Þjóðviljinn - 28.11.1985, Síða 5
1
Nýja Heilsugæslustöðin á Hvammstanga.
Heilbrigðismál
Heilsugæslustöð á Hvammstanga
Formlega tekin í notkun 15. nóv. sl.
Umsjón:
Magnús H.
Gíslason
DJÚÐVILJINN
Föstudaginn 15. nóv. sl. var
formlega tekin í notkun ný heilsu-
gæslustöð á Hvammstanga.
Sökum óveðurs gátu heilbrigðis-
ráðherra, alþingismenn og aðrir
sunnanmenn ekki verið við-
staddir er heimamenn fögnuðu
þessum áfanga í uppbyggingu
heilbrigðisþjónustu héraðsins.
Heilsugæslustöðin er teiknuð
af Jóni Haraldssyni arkitekt.
Húsið er 725 ferm. og 3270
rúmm. Það kemur í stað gamallar
Mývatn - Laxá
Rannsóknir
verði efldar
og samræmdar
Afskipti Sverris átalin
Meðal mála, sem síðasti aðal-
fundur Landverndar fjallaði um, -
(blaðið greinir nánar frá hinum
síðar), - var verndun og rann-
sóknir á Mývatns- og Laxár-
svæöinu. í framhaldi af ítarlegum
umræðum samþykkti fundurinn
svofellda ályktun:
„Aðalfundur Landverndar
1985 bendir á að Mývatns- og
Laxársvæðið er einstakt á
heimsmælikvarða og á það jafnt
við um lífríki þess sem hið jarð-
fræðilega umhverfi. Vegna kísil-
gúrvinnslu, vaxandi ferðamann-
astraums og þar af leiðandi
stækkunar byggðarlagsins við
Reykjahlíð er sérstakrar varúðar
þörf.
Nauðsynlegt er að efla og sam-
ræma rannsóknir á núttúrufari
Mývatns- og Laxársvæðisins og
tryggja fjármagn til þeirra. Nið-
urstöður rannsóknanna verði til-
tækar sem allra fyrst, svo komið
verði í veg fyrir að óbætanlegt
tjón verði unnið á þessu sérstæða
svæði, áður en það er orðið um
seinan.
Samkvæmt sérlögum fellur
verndun Mývatns- og Laxársvæð-
isins undir umsjón Náttúruvernd-
arráðs. Fundurinn átelur afskipti
fyrrverandi iðnaðarráðherra af
verndarsvæðinu og áréttar að í
því máli sem öðrum skuli farið að
Íandslögum.
Fundurinn telur að enga
áhættu megi taka varðandi
breytingar á þessari viðkvæmu og
einstæðu nátttúruperlu“.
-mhg
og þröngrar húsnæðisaðstöðu,
sem heilsugæslan hefur búið við
til þessa.
Byggingarframkvæmdir hófust
árið 1981 og lauk haustið 1984.
Verktakar voru Sameinaðir verk-
takar hf. á Hvammstanga og
byggingarstjóri Hreinn Krist-
jánsson, trésmíðameistari. Starf-
semi hófst í stöðinni í júlí á sl.
sumri.
Formaður sjúkrahússtjórnar,
sr. Robert Jack og Þórður Skúla-
son, sveitarstjóri á Hvamms-
tanga röktu aðdraganda að bygg-
ingu heilsugæslustöðvarinnar og
greindu frá því, að hún væri
áfangi í uppbyggingu heilbrigðis-
þjónustu í Vestur-Húnavatns-
sýslu. Brýnt væri að hefjast sem
fyrst handa við byggingu nýs
hjúkrunarheimilis við stöðina, en
hún er teiknuð með það fyrir
augum.
Heilsugæsla og rekstur sjúkra-
húss á Hvammstanga stendur á
gömlum merg. Á staðnum er nú
rekið sjúkrahús með 40 rúmum.
Aðstaða þar er hinsvegar þröng
og ófullnægjandi. í íbúaspá, sem
gerð hefur verið fyrir heilsugæsl-
usvæði Hvammstanga, er gert
ráð fyrir því, að á næstu 15 árunt,
eða til aldamóta, þrefaldist tala
þeirra, sem eru 80 ára eða eldri.
Vistundarþörf fólks á þeim aldri
færi þá úr 25 í 75 manns. Bygging
nýs hjúkrunarheimilis er því að-
kallandi.
Við vígslu stöðvarinnar bárust
henni góðar gjafir, Lionsklúbb-
urinn Bjarmi gaf augnskoðunar-
tæki og Kvennaband V-
Húnavatnssýslu gaf tæki til mæl-
inga á þrýstingi í eyra. Þessi félög
hafa alla tíð látið málefni
heilbrigðisþjónustunnar í hérað-
inu mjög til sín taka og oft gefið
stórgjafir og lagt fram fé í því
sambandi. Við opnun stöðvar-
innar var það m.a. rifjað upp, að
Kvennabandið hafði raunar for -
göngu um byggingu sjúkrahúss
Hvammstanga, sem tekið var í
notkun árið 1960.
Við opnun stöðvarinnar töluðu
auk áðurgreindra, Jón ísberg,
sýslumaður og Friðrik Friðriks-
son, héraðslæknir, sem fluttu
starfsfólki og héraðsbúum árnað-
aróskir í tilefni þessara tíma-
móta, formaður Lionsklúbbsins
Bjarma, sem afhenti augn-
skoðunartækið, Haraldur Tóm-
asson, heilsugæslulæknir og Eng-
ilbert Snorrason, tannlæknir, en
þeir Iýstu stöðinni og þeirra starf-
semi, sem þar fer fram. Auk
þeirra er Matthías Halldórsson
starfandi heilsugæslulæknir á
Hvammstanga.
ere/mhg
Landvemd
Aðalfundur í Alviðru
Rannsóknir á umhverfismálum og staða þeirra
Aðalfundur Landverndar var
haldinn í umhverfisfræðslusetr-
inu Alviðru í Ölfushreppi 9. nóv.
sl. Fundinn sátu 80 fulltrúar og
gestir. Formaður Landverndar,
Þorleifur Einarsson, setti fundinn
og flutti skýrslu stjórnarinnar.
Svanhildur Skaftadóttir, fram-
kvæmdastjóri, sagði frá störfum
samtakanna og lagði fram
reikninga.
Alviðra og
Öndverðarnes
í upphafi fundarins lýsti Sig-
urður Sigursveinsson landfræð-
ingur staðháttum í Alviðru og
Öndverðarnesi og rakti sögu
jarðanna. Síðasti eigandi og ábú-
andi í Alviðru, Magnús Jóhann-
esson, gaf Árnessýslu jarðirnar
árið 1973. Sigurður lýsti náttúru-
fari jarðanna og gildi þeirra til
umhverfisfræðslu. Hin fjölbreyti-
lega náttúra þeirra verður nýtt til
útivistar, náttúruskoðunar og
fræðslu og komið hefur verið þar
á fót miðstöð í umhverfisfræðum.
Er land jarðanna einkar vel til
þess fallið. Þar er fjölskrúðugt
gróðurfar og fuglalíf, athyglis-
verð jarðfræði og óvenjuleg
náttúrufegurð við Sogið. Alviðra
er auk þess ákaflega vel í sveit
sett. Innan 60 km þaðan búa yfir
130 þús. manns, um 57% þjóðar-
innar. Á svæðinu eru yfir 70
grunnskólar og um 20 framhalds-
skólar. Vegir að Alviðru eru alla-
jafna greiðfærir árið um kring.
Þjórsárver, Mývatn
og fiskeldi
Aðalmál fundarins var rann-
sóknir á umhverfismálum og
staða þeirra. Um þau efni voru
flutt þrjú framsöguerindi.
Þóra Ellen Þórhallsdóttir ræddi
einkum líffræðilegar rannsóknir
og umhverfis í Þjórsárverum og
við Mývatn, og gat helstu aðferða
við rannsóknir. Lagði hún
áherslu á hvað lifandi náttúra er
flókið viðfangsefni og oft erfitt að
segja fyrirfram til um áhrif fram-
kvæmda. Rannsóknir þyrftu því
oft að standa lengi til þess að gefa
áreiðanlegar niðurstöður.
Sigurður St. Helgason fjallaði
einkum um fiskeldi og umhver-
fismál tengd því. Eldið væri háð
hreinu vatni og hreinum sjó og
erlendis hefði kornið í ljós, að
mikil mengun fylgdi því, jafnt í
sjó sem vötnum. Bæri m.a. að
hafa þetta í huga þegar komið
væri upp fiskeldisstöðvum.
Líffræðirannsóknir
Jón Gauti Jónsson, kennari,
ræddi um rannsóknir í líffræði,
einkum vistfræði. Gagnrýndi
hann starfsaðferðir þeirra líf-
fræðinga, sem stunda slíkar rann-
sóknir. Þeir hefðu m.a. ekki sinnt
sem skyldi fræðslu um nauðsyn
umhverfisverndar og lítið gert að
því að svara áleitnum spurning-
um um afleiðingar ýmissa gerða
mannsins á umhverfið. Jón Gauti
benti á að líffræðingar væru oft
ósammála í túlkun sinni á
rannsóknargögnum. Er vistfræð-
in svona skammt á veg komin og
aðferðir ófullkomnar að hún ætti
engin einhlít svör, spurði ræðu-
maður? Væri svo ættu líffræðing-
ar að segja frá því svo almenning-
ur og stjórnvöld gætu tekið það til
greina við skoðanamyndun og
ákvarðanatöku.
Miklar umræður urðu um er-
indin og þær ályktunartillögur,
sem fram komu á fundinum og
síðar mun greint frá.
Stjórn Landverndar er nú
þannig skipuð: Þorleifur Einars-
son, formaður, Auður
Sveinsdóttir, Ágúst Gunnar
Gylfason, Anna Guðrún Þór-
hallsdóttir, Gísli Júlíusson, Guð-
mundur Stefánsson, Hrefna Sig-
urjónsdóttir, Sigríður Einars-
dóttir, Sigurður Sigursveinsson
og Tryggvi Jakobsson.
-mhg
Miðvikudagur 27. nóvember 1985 'ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 5