Þjóðviljinn - 28.11.1985, Page 9
Hornið á Lækjargötu og Austurstræti hefur löngum verið ímynd gamla miðbæjarins. Samkvæmt skipulaginu eiga öll timburhúsin milli Bókaversl-
unar Eymundsons og Nýja bíós að hverfa en í þeirra stað rísa 5 hæða steinhús. Ljósm. Sig.
Hér má á líkaninu sjá hvernig hornið á Lækjargötu og Austurstræti kemur til með að líta út eftir að byrgt hefur verið fyrir alla sól í Austurstræti. Fyrir enda
Austurstrætis hefur verið skipt á gamla söluturninum og e.k. sigurboga og yfirbyggð skýli eru sýnd eftir götunni endilangri. Ljósm. Sig.
Kvosarskip ulagið
200 ÁRA SAGA ÞURRKUD Úí
Á næsta ári verður mikið um dýrðir
í Reykjavík. Þá á höfuðborgin 200
ára kaupstaðarafmæli og undirbún-
ingur veglegra hátíðahalda hefur
staöiö mánuðum saman. Lengst af
þessi 200 ár var Reykjavík, eða Víkin
eins og hún var kölluð, það sem við í
daglegu tali nefnum Kvosina, þ.e.
spildan milli Lækjar(götu), Tjarnar,
AðalstrætiS og Hafnar(strætis). Nú,
þegar skammt lifir 199. aldursárs
þessarar sömu spildu, er komin fram
tillaga um að þurrka þar út á einu
bretti næstum allt sem er eldra en
50-60 ára gamalt! Hætt er við að
holur hljómur verði í hátíðaræðum
næsta árs ef þessi tillaga nær fram
að ganga, þar sem þær munu berg-
mála milli 5 hæða steinveggja í
Austurstræti.
Stórfellt
niðurrif í bígerð
Kvosin var frá upphafi timburhúsa-
byggð. Þar voru aldrei torfbæir svo
nokkru næmi og allra síðustu öld og
langt fram á þessa bjuggu í Kvosinni
æðstu embættismenn landsins, kaup-
menn og ríkir iðnmeistarar. Árið
1909 voru í Kvosinni 106 hús, þar af
95 timburhús. Þau voru flest reist af
yfirstéttinni og vel til þeirra vandað.
Mörg urðu þau eldi að bráð fyrr á
þessari öld en eftir standa milli 30 og
40 hús, sum hver að stofni til frá
byrjun 19. aldar.
Skipulagstillagan nýja að Kvos-
inni gerir ráð fyrir að milli 20 og 30
þessara húsa verði rifin, þeirra á
meðal fjölmörg sögufræg hús sem
gegnt hafa sínu hlutverki með sóma í
tæp 200 ár og gera enn. Sem dæmi
um tiliöguna má nefna að öll timbur-
húsin við Austurstræti og Lækjar-
götu milli Reykjavíkurapóteks og
Nýja bíós eiga að hverfa en 5 hæða
steinhús rísa í þeirra stað. Hér verð-
ur aðeins tekið eitt dæmi um þann
skaða sem niðurrifsstarfsemi af
þessu tagi mun valda, aðeins eitt hús
tekið út út, Austurstræti 22, sem að
stofni til er frá 1801.
En fyrst er rétt að víkja að yfirlýst-
um markmiðum nýju tillögunnar
hvað varðar niðurrif og upp-
byggingu.
1 Morgunblaðinu 13. nóvember
s.l. leggja skipulagshöfundar áherslu
á að háreistu steinhúsin í Kvosinni
(Reykjavíkurapótek, Hótel Borg og
Landsbankinn) séu gott dæmi um
glæsilegt yfirbragð miðbæjarhúsa en
um lágreistu timburhúsin er sagt að
þau séu mörg hver löngu búin að
glata upprunalegu útliti og innra
skipulagi. Þeir segjast leggja ríka
áherslu á að halda þeim húsum sem
hafi menningarsögulegt gildi en jafn-
framt að ekkert þeirra 20-30 húsa,
sem þau leggja til að verði rifin, hafi
það fagurfræðilcgt gildi að þau megi
ekki missa sín til að ná fram þeirri
uppbyggingu sem tillagan stefni að.
Fagurfræðilegt mat höfunda vegur
greinilega þyngra en matið á menn-
ingarsögulegum verðmætum Kvos-
arinnar. Austurstræti 22 er gott
dæmi um það.
3ja elsta húsið
Austurstræti 22 þar sem Guð-
laugur í Karnabæ nú verslar er þriðja
elsta hús Reykjavíkur. Það varfyrsta
húsið sem reis við Austurstræti, það
heldur nokkurn veginn sínu upp-
runalega svipmóti og gegnir enn sínu
hlutverki með sóma. Saga þess er svo
merkileg og ævintýraleg að sjálfsvit-
und okkar sem þjóðar mun bíða tjón
af ef það hverfur. Hér skal fullyrt að
Austurstræti 22 er eitt merkilegasta
og sögufrægasta hús landsins.
Það var ísleifur Einarsson, dómari
við Landsyfirréttinn, sem reisti húsið
1801. Það var byggt úr stokkum, ein-
lyft með háu risi og borðaklætt að
þeirra tíma hætti. Enn heldur húsið
sínu fyrra formi þó kvisti hafi verið
bætt við það sem og viðbyggingum
og stórir búðargluggar séu á framhlið
þess.
Árið 1805 var húsið gert að æðsta
embættisbústað landsins og var það
til 1819. Þar bjuggu stiftamtmenn-
irnir Trampe greifi og Castenskjöld.
í tíð þess fyrrnefnda var húsið nefnt
'' fig mi i í
i^íwiiiiiiiiiii’wwiTorý'
M T-4—
Austurstræti 22, þar sem nú er verslunin Karnabær, var fyrsta húsið sem reis við götuna árið 1801. Saga þessa látlausa húss
er svo ævintýraleg og merkileg að leitun mun á öðru eins. Verði það rifið hverfur stór hluti sögu okkarog menningar. Ljósm. Sig.
Greifahús og þá gerðust í því æsilegir
atburðir sem hér verður greint frá.
Ríkissjóði rænt
Sumarið 1808, þegar Napóleons-
styrjaldirnar stóðu sem hæst, kom
enskt sjóræningjaskip til Reykjavík-
ur undir forystu manns að nafni
Gilpin. Enginn viðbúnaður var til
varnar gegn ræningjunum og flýði
margt kvenna og barna bæinn. Ræn-
ingjarnir skutu út báti með 12
mönnum, öllum vopnuðum og
gengu þeir til húss Trampe greifa,
opnuðu fjárhirslu landsins og tóku
allt sem í henni var en það voru 35
þúsund dalir. Þótti Gilpin þetta fá-
tækleg ríkisfjárhirsla, en enn verra
að meiri liluti fjárins var í „bankó-
seðlum”. Þetta er í eina skiptið sem
ríkissjóði íslands hefur verið stolið í
heilu lagi og sá stuldur fór fram í
Austurstræti 22.
Jörundur kom næstur
Næsti stóratburður í sögu hússins
varð ári seinna. Þann 25. júní 1809
gengu í land í Víkinni þeir Liston
skipstjóri á enska herskipinu Marg-
arethe og Anne ásamt tveimur
enskum kaupmönnum og dönskum
ævintýramanni að nafni Jörgen Jörg-
ensen auk 12 háseta, vopnuðum
byssum og sverðum. Þeir tóku Tram-
pe greifa og fluttu til skips. Þetta var
upphaf ríkisstjórnar Jörundar
hundadagakonungs og hann settist
að í húsinu og stjórnaði byltingu
sinni þaðan. Þó ekki væri nema fyrir
þetta eitt væri vel þess virði að varð-
veita húsið. Á það voru tilskipanir
hæstráðanda til sjós og lands festar.
Síðari stiftamtmaðurinn sem bjó í
húsinu var Castenskjöld eins og áður
sagði. Hann brá sér utan haustið
1814 en fól Bjarna Thorarensen að
gegna stiftamtmannsstörfum um vet-
urinn. Þá var merkilegt selskap í hús-
inu því auk Bjarna skálds bjó þar um
veturinn Rasmus Christian Rask,
málfræðingurinn heimsfrægi, sem
varð 1815 einn aðal frumkvöðull að
stofnun Hins íslenska bókmenntafé-
lags.
Ráðhús Reykjavíkur
Árið 1819 flutti stiftamtmaður í
núverandi stjórnarráð en 1823 var
ákveðið að húsið sem hér um ræðir
skyldi í senn vera fundarstaður
Landsyfirréttar (stofan hægra megin
þegar inn er komið) og bæjarþings-
stofa Reykjavíkurkaupstaðar (stof-
an vinstra megin). Þá hafði lögreglu-
þjónn bæjarins aðsetur í húsinu en á
Ioftinu var útbúið svarthol 1838.
Þannig var Austurstræti 22 um ára-
tugaskeið aðsetur æðsta innlenda
dómstóls landsins og ráðhús Reykja-
víkur í senn. Um leið og á því herrans
ári 1985 er lagt til að það verði rifið, á
að reisa nýtt ráðhús fyrir ’oorgina við
Tjörnina! En áfram með söguna. í
Austurstræti 22 var dæmt í hinum
stóru glæpamálum síðustu aldar, svo
sem Kambsránsmáli og morði Nat-
ans Ketilssonar og glæpamennirnir
geymdir uppi á lofti. Raunar var
þetta eina fangelsi landsins allt frá
því Tugthúsið við Arnarhól
(Stjórnarráðið) var lagt niður og þar
til Hegningarhúsið við Skólavörðu-
stíg var tekið í notkun, 1873.
Koníak og
flautuspil
Lögregluþjónarnir, sem yfirleitt
voru danskir, voru margir hverjir
æði skrautlegir. Einn af þeim var
Hendrik Hendriksen sem bjó í hús-
inu ásamt ráðskonu sinni, maddömu
Baggesen. Þeim þótti sopinn góður
og tóku upp á því að halda dansleika
í sjálfri yfirréttarstofunni og lék lög-
regluþjónninn sjálfur á flautu fyrir
dansinum milli koníaksstaupanna.
Þetta vakti mikla hneykslun í bænum
og var Hendriksen að lokum settur
af.
Danskir dátar
Þegar þjóðfundurinn 1851 var
haldinn bjuggust Danir við uppreisn
og sendu hingað herflokk. Þá kemur
Austurstræti 22 enn við sögu því
setuliðið hafði aðsetur í því um eins
árs skeið. Vörður spígsporaði þá
fyrir framan húsið dag og nótt en
verðinum til skjóls í vondum veðrum
var rauðmálaður varðklefi sem sett-
ur var framan við húsið. íslendingar
hentu mjög gaman að þessum dáta-
flokki og kölluðu klefann ýmist
danska gapastokkinn eða rauða
hólkinn. Brynjólfur Oddsson bók-
bindari orti svokallaðar Dátarímur
um herflokkinn og segir þar m.a.:
Hjá því reistu rauðan strók,
er rambaði á einum fœti;
var í holum viðarhrók
vökumannsins sæti.
Þegar mœddi sorg og sút
af settum vöku-pressum,
í grimmviðrunum gœgðust út
úr gapastokki þessum.
Ekkert afrekuðu dátarnir í bænum
nema hlaða upp virki Jörundar
hundadagakonungs, svokallað Batt-
erí, og skilja eftir sig nokkra afkom-
endur í bænum.
Prestaskóli
í tæp 40 ár
Landsyfirréttur var í Austurstræti
22 til 1873 eða í hálfa öld en þá fékk
Prestaskólinn húsið til afnota og var
þar allt til ársins 1911 að Háskóli
Islands var stofnaður. Þarna
menntuðust því prestefni íslands í 38
ár.
Saga hússins á þessari öld er flest-
um kunn. Þar var til húsa um ára-
tugaskeið stærsta og fínasta fatabúð
landsins, Haraldarbúð. Haraldur
kaupmaður Árnason lét breyta hús-
inu mikið og lét m.a. gera norskt
drekaskraut á kvistinn sem nú er að
vísu búið aðeyðileggja. Hann lét líka
gera svokallaðan Skemmuglugga á
húsið og í honum voru m.a. haldnar
sýningar. Þar hélt t.d. Svavar
Guðnason sína fyrstu málverkasýn-
ingu árið 1935. Erfingjar Haraldar
Árnasonar áttu húsið fram til 1973
að Karnabær hf. keypti það.
Vilja menn virkilega að sögu þessa
húss ljúki hér og nú? Á kannski að
nota 200 ára afmælisdaginn til að
ryðja því um koll?
ÁI tók saman
eftir ýmsum heimildum
og heimildarmönnum.
8 SÍÐA - ÞJOÐVILJINN Fimmtudagur 28. nóvember 1985
Fimmtudagur 28. nóvember 1985 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 9
Stærsta skipulags-
slys íhaldsins
Sigurður Harðarson, skipulagsnefndarmaður: Hvar
er annað ogþriðja elsta hús borgarinnar ef Aðalstrœti
10 brennur?
„Þessi vinna er yfirmáta yfir-
borðskennd. Þetta er billegt út-
litsskipulag sem gerir enga grein
fyrir því hvernig eigi að fram-
kvæma þær breytingar sem lagt
er til. Það er engin tilraun gerð til
mats á gildi núverandi byggðar og
niðurrif á þriðja tug húsa er rök-
stutt með einhliða fagurfræðilegu
mati höfunda. Sögulcgt samhengi
er ekkert: Elsta hús borgarinnar
skal jú varðveitt en engin tengsl
sköpuð við fortíðina að öðru
leyti. Hvar er næst elsta hús borg-
arinnar og það þriðja elsta cf Að-
alstræti 10 brennur?“ Þetta sagði
Sigurður Harðarson, fulltrúi Al-
þýðubandalagsins í skipulags-
nefnd um nýja Kvosarskipulagið.
„Það er ekki einu sinni reynt að
mynda bakgrunn fyrir þetta elsta
hús borgarinnar”, sagði hann.
„Þetta er dæmigerð hræsni, sögu-
leg hræsni. Það er verið að
snobba fyrir þessu eina atriði, því
allra elsta, en allt annað látið
lönd og leið. Röksemdirnar eru
að það sé lítið eftir af hinum hús-
unum, en það var heldur ekkert
eftir af upprunalegunt innrétting-
um í Aðalstræti 10 fremur en öðr-
um húsum."
Vandi miðbæjarins
eykst
„Það eina sem gert hefur verið
raunhæft í skipulagi Kvosarinnar
gerðist í tíð vinstri meirihlutans
með staðfestingu nýrra deili-
skipulaga að Pósthússtrætisreit
og Grjótaþorpi. Þar var reynt að
prjóna sarnan gamalt og nýtt,
byggingamagn takmarkað veru-
lega og varðveisla byggð á húsa-
könnunum Árbæjarsafns. Fyrri
meirihlutinn ætlaði að hafa sam-
keppni um Kvosina og rnynda
þannig ramma um skipulags-
samkeppni alþingis en Sjálfstæð-
isflokkurinn hætti við það og
þetta er afraksturinn.
Vandi miðbæjarins eykst með
þessu stóraukna byggingamagni.
Af því leiðir stóraukna umferð,
fjölgun bílastæða úr 900 í 1800
þýðir meiri umferðaráþján á göt-
um og hverfum kringum Kvosina
og afleiðingin verður auðvitað
breikkun Fríkirkjuvegar út í
Tjörnina og Sóleyjargötunnar út
í Hljómskálagarðinn. Bílastæða-
húsin norðanvert í Kvosinni
draga alla umferð sem kemur
sunnan að gegnurn Kvosina og þó
aukin göngusvæði séu auðvitað
góðra gjalda verð versnar að-
staða gangandi vegfarenda til að
komast inn á svæðið um allan
helnting."
Monthús yfir
borgarstjóra
„Menningarmiðstöðin á
Steindórsplani er jákvætt skref
en eins og hún er sýnd á skipu-
laginu þrengir hún allt of mikið
að gömlu húsunum í kring og
peningarnirsem þarf til að byggja
hana hefðu betur verið komnir í
Fjalakettinum ásamt þeirn 2 milj-
ónum sem eigandanum var borg-
að fyrir að rífa húsið nýlega.
Tjörnin er unnin í samræmi við
tillögur síðasta meirihluta, út frá
nákvæmlega sömu hugmyndum
með nákvæmlega söntu „síldar-
bryggjunum" og er ekki nema
gott eitt um það aö segja. Hins
vegar finnst mér ástæðulaust að
byggja monthús yfir borgarstjóra
viðTjörnina. Höfðier alvegnógu
góður fyrir veislurnar hans. Það
er líka eftirsjá í húsinu sem þarf
að víkja fyrir ráðhúshugntynd-
inni auk þess sent það er nýupp-
gert. Norðurendi tjarnarinnar
með þessu gamla húsi og húsi
Skúla Thoroddsen ásamt Iðnó
sómir sér vel og ástæðulaust að
eyðileggja þann svip.
í þessu skipulagi er engin til-
raun gerð til að skilgreina starf-
semi Kvosarinnar í dag og draga
einhverjar niðurstöður af því
með tilliti til framtíðarinnar.
Þetta á bara að verða verslun-
armiðborg, hvað sem það kostar.
Ef hins vegar á að vera hægt að
hlúa að annarri starfsemi og fjöl-
breytilegu mannlífi þarf að setja
takmörk fyrir notkun húsnæðis
og skapa skilyrði fyrir aðra starf-
senti en verslun og banka."
Minnihlutinn
hundsaður
„Það er ekki hægt að fjalla um
þessa tillögu nenta minnast á tvö
atriði til viðbótar", sagði Sigurð-
ur:
„Minnihlutanum hefur verið
haldið algerlega utan við þessa
vinnu og skipulagið hefur ekki
verið unnið í santvinnu við skipu-
lagsnefnd á neinn hátt. Það er á
hreinu að ætlunin er að keyra það
í gegn eins og önnur skipulagsmál
borgarinnar nú án nokkurrar fag-
legrar umfjöllunar eða pólitískr-
ar umræðu.
Hitt atriðið varðar nýstofnuð
samtök kaupmanna, „Garnla
miðbæinn". Það er Ijóst þrátt
fyrir yfirlýst markmið þeirra um
að bjarga gantla bænum þá eru
þau stofnuð til að styðja við bakið
á þessu skipulagi sem er beinlínis
ætlað að rjúfa öll tengsl við eldri
tíma og rífa öll menningarverð-
mæti sem tryggja þau.
Stofnfundurinn var lítið annað en
prófkjörsfundur kringunt borgar-
stjóra, Vilhjálm Þ. og Árna Sig-
fússon. Það er vissulega jákvætt
ef borgarstjóri ætlar að fara að
gerast fundarstjóri hjá Torfu-
samtökunum og íbúasamtökum!
í stjórn samtakanna sitja svo til
eingöngu verslunareigendur og
það styður þá tilgátu að samtök-
unum er fyrst og fremst ætlað að
halda utanum hagsmuni verslun-
arinnar í þessu skipulagi. Ilins
vegar held ég að verslunar-
eigendur þarna geri sér ekki ljóst
að ef gamli miðbærinn á að stand-
ast santkeppni við þann nýja
verður að styrkja sérstöðu hans
en ekki breyta honum í eftirlík-
ingu af nýja miðbænum.
Að lokum eitt: Guðni Pálsson
arkitekt er annar tveggja höf-
unda þessa skipulags. Eg álít að
það samrýmist varla hans lilut-
verki sent trúnaðarmaður og ráð-
gjafi borgarinnar varðandi skipu-
lagið að sitja í stjórn þessara
hagsmunasamtaka", sagði Sig-
urður Harðarson að lokurn.
-ÁI
Sigurður Harðarson, skipulagsnefndarmaður: Bernhöftstorfan og uppbygging hennar er gott dæmi um hvernig „gamlar
danskar fúaspýtur” voru glæddar nýju lífi til sóma fyrir alla þá sem að stóðu. Það hefði aldrei tekist ef þeir sem nu stjorna
skipulagsmálum miðbæjarins hefðu þá ráðið ferð. Ljósm. Sig.