Þjóðviljinn - 12.12.1985, Qupperneq 1

Þjóðviljinn - 12.12.1985, Qupperneq 1
BÚSÝSLAN VIÐHORF HEIMURINN Seðlabankinn brást Matthíasi ráðhena / Hafskip/ Utvegsbankinn Bankastjórar Seðlabankans héldu bágri stöðu Hafskips gagnvart Út- vegsbanka Islands leyndrifyrir viðskiptaráðherra í40 daga sl. sumar. Tómas Arnason margsaga ísamtölum við Þjóðviljann ígœr. Fullyrti fyrstað viðskiptaráðherra hefðistrax verið látinn vita endró ummœli sín svo til baka eftir að Matthías Á. Mathiesen fríherra tók hann á teppið ígœrkvöldi Teikning: Kristjana M. Harðardóttir8 ára, Búhamri 7a Vestmannaeyjum. 12 dagar til/ólaí i Tómas kl. 15.00: Matthías vissi allt Eins og fram hefur komið í fréttum sendi Útvegsbankinn skýrslu til Seðlabankans dagsetta 3. júní sl. þar sem bankastjórnin greindi frá slæmri stöðu Hafskips og þeim vanda sem það skapaði Utvegsbankanum. Tómas Árna- son seðlabankastjöri var inntur eftir því um nónbil í gær hvort þáverandi viðskiptaráðherra hefði ekki strax verið látinn vita um þá stöðu sem Útvegsbankinn var þá kominn í. Tómas sagði: „Ólafur Ragnar spurði mig að þessu í gær og hvaða viðbrögð hefðu átt sér stað við ráðherra. Ég ráðfærði mig við Jóhannes Nordal til að glöggva okkur á þessu. Okkur kom saman um að það væri rétt svar að segja að það hefði nokkrum sinnum verið rætt við ráðherra síðan í júní og alloft við bankastjóra Útvegsbank- ans.“ Þið fenguð skýrslu frá Útvegs- bankanum dagsetta 3. júní. Var viðskiptaráðherra (Matthías A. Mathiesen) látinn vita um inni- hald hennar strax? „Já, hann var strax látinn vita. Mig minnir að Jóhannes hafi far- ið með þessar upplýsingar til hans og þeir ræddu þessi mál náttúr- lega. Þetta var áreiðanlega svona.“ Matthías kl. 18.00 Alls ekki rétt Þegar Þjóðviljinn bar þessar upplýsingar seðlabankastjóra undir Matthías Á. Mathíesen síð- degis í gær brást hann reiður við: „Þetta er ekki rétt hjá Tómasi. Ég verð að tala við hann. “ Kvaðst Matthías standa fast á fyrri um- mælum um að hann hefi ekkert verið látinn vita um málið fyrr en í lok júlí, eða 40 dögum eftir að Tómas Árnason seðlabanka- stjóri staðfesti í samtali við Þjóðviljann í gærkvöldi að Matt- hías Á. Mathiesen fyrrum við- skiptaráðherra hefði ekki verið látinn vita um bága stöðu Útvegs- banka íslands fyrr en 40 dögum eftir að Seðlabankanum barst skýrsla þar að lútandi. Þetta viðurkenndi Tómas í samtali við blaðamann Þjóðviljans kl. 19.15 í gærkvöldi eftir að hafa sagt fyrr um daginn að viðskiptaráðherra hefði strax verið látinn vita um vanda Hafskips og Útvegsbank- ans eftir að Seðlabankanum barst um það vitneskja. Seðlabankanum barst vitneskja um að Útvegsbankinn ætti ekki lengur veð fyrir skuldum Haf- skips. Tómas kl. 19.15: Matthías vissi ekkert Rétt eftir kl. 18.00 hringdi svo Tómas Árnason í blaðamann og sagði: „Mig hefur greinilega mis- minnt um það sem ég sagði þér áðan. Matthíaís fékk víst ekkert að vita um málið fyrr en 30. júlí.“ Og þið hélduð sumsé vitneskju um stöðu Útvegsbankans leyndri fyrir viðskiptaráðherra í heila 40 daga? „Bíddu, ég verð að ráðfæra mig um þetta allt við Jóhannes Nordal,“ sagði bankastjórinn. Um kl. 19.15 hringdi Tómas enn aftur í Þjóðviljann og sagðist hafa ráðfært sig við Jóhannes Nordal. Hefði þeim komið saman um að skýrslan sem var dagsett 3. júní í Útvegsbankanum hafi ekki farið til Matthíasar. Þessi margsaga Tómasar Árna- sonar leiðir því í ljós að banka- stjórar Seðlabankans héldu yfir- manni sínum viðskiptaráðherr- anum utan við alla vitneskju um yfirvofandi gjaldþrot Hafskips í hartnær tvo mánuði á sl. sumri. - S.dór/-v. Matthías Á. Mathiesen Fékk ekkert aö vita um bága stööu Hafskips og afleið- ingar þess fyrir Útvegsbankann fyrr en 40 dögum eftir að bankastjórum Seðlabankans var skýrt frá málavöxt- um. Tómas Árnason Margsaga í samtölum við blaðamenn Þjóðviljans. Full- yrti fyrst að ráðherra hefði strax verið látinn vita um erfiðleika Hafskips. Dró þau ummæli til þaka í gær- kvöldi. Jóhannes Nordal Aðalbankastjóri Seðlabankans, en undirmaður Matthi- asar Á. Mathiesen í viðskiptaráðherratið hans. Stakk upplýsingum undir stól í 40 daga og 40 nætur. Bókagerðarmenn Alþingi ekki gefinn frestur Samningar hafa ekki náðst um setningu texta áAlþingi. Félag íslenskaprentiðnað- arins kœrir. Magnús E. Sigurðsson: Engin ástœða til að veita frekari frest að hefur ekkert komið upp í málinu sem gefur okkur á- stæðu til að veita frckari frest og því er nú svo komið að frá og með morgundeginum verður ekki tekið við diskettum með texta frá Alþingi í Gutenberg. En við erum eftir sem áður tilbúnir til við- ræðna ef óskað verður eftir því, sagði Magnús E. Sigurðsson for- maður Félags bókagerðarmanna í samtali við Þjóðviljann í gær. Áður boðaðar aðgerðir FBM gegn Alþingi taka gildi í dag. Bókagerðarmenn krefjast þess að samið verði við þá um starfs- fólk sem vinnur við setningu tex- ta á tölvur fyrir Alþingi og telja að þar sem tölvutækni nýtist við vinnslu prentaðs máls heyri það undir þeirra félag. Deila um þetta hefur verið uppi svo mánuðum skiptir, en samningar hafa ekki náðst, eins og áður segir. Félag íslenska prentiðnaðarins kærði FBM í gær til Félagsdóms vegna þessara aðgerða. „Við höf- um ekkert á móti því að starfsfólk á Alþingi gerist félagar í FB en við getum ekki unað því að hótað sé lokun á meðlimi í okkar félagi, Gutenbergprentsmiðjuna. Við getum ekki annað. Það eru í gildi samningar um að félagar í FBM megi ekki vinna hjá öðrum en okkar féiögum, en ég sé ekki hvernig við getum krafist þess að Alþingi gerist félagi í FÍP,“ sagði Sveinn Sigurðsson framkvæmda- stjóri FÍP í gær. Þess má geta að þegjandi sam- komulag hefur verið á milli félag- anna um frávik frá þessu samkomulagi og eru dæmi þess á báða bóga. Fulltrúar Alþingis óskuðu eftir frestun aðgerða í gær, en trúnað- armannaráð FBM ákvað að verða ekki við þeirri ósk. Þótt félagar í FBM neiti nú að vinna texta sem settur er í Al- þingi, verða handrit þaðan unnin með eðlilegum hætti. -gg

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.