Þjóðviljinn - 12.12.1985, Qupperneq 3

Þjóðviljinn - 12.12.1985, Qupperneq 3
FRETTIR Uppskipunarbann Dagsbrún krefst frávísunar VSIá hendur Dagsbrún vegna uppskipunarbanns í Félagsdómi í dag. Atli Gíslason lögfrœðingur Dagsbrúnar: Málatilbúnaði VSÍ Kæra VSÍ á hendur Verka- mannafélaginu Dagsbrún vegna uppskipunarbanns félags- ins á suðurafrískar vörur verður tekin fyrir í Félagsdómi í dag. Fyrir liggur frávísunarkrafa Dagsbrúnar á kaeruna. „Ég tel að vísa eigi kærunni frá í fyrsta lagi vegna ýmissa form- galla. í fyrsta lagi höfðar VSÍ mál á hendur Dagsbrún í eigin nafni en ekki fyrir hönd tiltekinna skipafélaga sem hlut eiga að mál- inu. í öðru lagi tel ég að það sé ekki verkefni Félagsdóms að skera úr um þetta mál. í þriðja íýmsu ábótavant lagi er málatilbúnaði VSÍ í ýmsu ábótavant. Og í fjórða lagi má nefna að þarna er VSÍ í raun að- eins að leita lögfræðilegs álits á málinu og það er ekki verkefni Félagsdóms að gefa slíkt álit,“ sagði Atli Gíslason lögfræðingur Dagsbrúnar í samtali við Þjóð- viljann í gær. Málið verður tekið fyrir í þriðja sinn fyrir Félagsdómi í dag. Atli sagðist eiga von á að annað hvort yrði fallið frá máls- höfðun í dag, eða eingöngu yrði fjallað um frávísunarkröfu Dagsbrúnar. Uppskipunarbannið hefur ver- ið í gildi í nokkrar vikur með góð- um árangri. Innflytjendur suður- afrískra vara hafa margir hverjir lýst því yfir að þeir muni ekki kaupa slíkar vörur meðan bannið gildir. -gg Mœðrastyrksnefnd Margir hjálpar þurfi Plastprenth.f. og starfsfólk þess afhentu Mœðrastyrksnefnd 36.800 ígœr. Jólasöfnun nefndarinnar er hafin og margir eru aðstoðar þurfi Jólasöfnun Mæðrastyrks- nefndar er hafín og í gær komu nokkrir starfsmenn Plastprents h.f. í heimsókn að Njálsgötu 3 þar sem skrifstofa nefndarinnar er til húsa og afhentu 36.800 krónur í söfnunina frá fyrirtækinu og starfsfólki þess. Þetta er 3ja árið í röð sem Plastprent og starfsfólk Hjálparstarf Safnað fyrir afganska flóttamenn Hjálparstofnun kirkjunnar er nú að hefja árlega jólasnfnun sína í þágu bágstaddra jarðarbúa. Að þessu sinni rennur söfnunarféð til tveggja verk- efna í Eþíópíu og fjögurra nýrra verk- efna í þágu afganskra flóttamanna. Gunnlaugur Stefánsson fræðslu- fulltrúi Hjálparstofnunar kirkjunnar er nýkominn úr ferðalagi til Pakistan. Hann sagði að aðstoðin við afgani væri í fjórum þáttum. Ætlunin er að aðstoða nýkomið flóttafólk, styðja samtök afganskra lækna við menntun fólks til heilsugæslu beggja megin landamæranna, flytja sáðkorn frá Pakistan til bænda í Afganistan og aðstoða þá við ræktun, og loks að aðstoða við menntun flóttamanna. Gunnlaugur sagði að stríðið í Af- ganistan hefði dregist á langinn og mætti merkja það að úthald ýmissa hjálparstofnana væri farið að þverra. Pess vegna væri mikilvægt að íslend- ingar brygðust vel við og legðu sitt af mörkum til aðstoðar flóttafólkinu. Nánar verður skýrt frá þessu hjálparstarfi í viðtali við Gunnlaug sem birtist í helgarblaðinu. —ÞH Kolbrún Haraldsdóttir t.v. afhendir gjöfina frá Plastprenti h.f. og starfsfólki þess. (Ljósm. E.ÓI.) þess gefur svo rausnarlega gjöf til Mæðrastyrksnefndar. Kolbrún Haraldsdóttir hafði orð fyrir starfsfólki Plastprents h.f. og sagði að fyrirtækið hefði lofað að gefa jafn háa upphæð og starfsfólkið safnaði, en það voru 18.400 kr. og því væri gjöfin 36.800 kr. Guðlaug Þorvaldsdóttir hjá Mæðrastýrksnefnd sagði að margir væru aðstoðar þurfi nú og þörfin yrði ekki minni að þessu sinni en undanfarin ár. Hún sagð- ist biðja fólk sem ætlaði sér að gefa fatnað eða aðra þarfa hluti að hafa samband við nefndina en móttaka mun fara fram í Garð- astræti 3 frá kl. 14 til 18 næstu 3 vikur. Þeir sem vilja gefa fé í söfnunina geta snúið sér til skrifstofunnar að Njálsgötu 3, eða notað gíróseðla, en númer þeirra er 36600-5. -S.dór Frysting kjarnorkuvopna Ætlaði ekki að fella stjómina Páll Pétursson: Aldrei hugsun mín að knésetja Geir Hallgrímsson né að fella stjórnina Það var aldrei hugsun mín að knésetja Geir Hallgrímsson utanríkisráðherra né að fella stjórnina með andstöðu minni við hjásetu íslendinga við tillögu Svía, Mexíkó og fleiri ríkja hjá S.Þ. um frystingu kjarnorku- vopna, sagði Páll Pétursson for- maður þingflokks Framsóknar- manna í samtali við Þjóðviljann. Páll sagðist mótmæla því að hann hefði runnið á rassinn í þessu máli og að tillaga sín og 7 annarra Framsóknarmanna sem lögð hefur verið fram á alþingi um frystingu kjarnorkuvopna væri merkilegasta framlag utan- ríkismála það sem af er þingi. „Við féllum á tíma og það var ekki hægt að afgreiða þessa til- lögu mína né Hjörleifs um sarna efni frá alþingi nema með slíkum afbrigðum að það hefði ólíklega gengið í gegn áður en málið verð- ur afgreitt hjá Sameinuðu þjóð- unum.“ -•g- BSRB Kröfugerð í burðarliðnum Kristján Thorlacius formaður BSRB: Leggjum áherslu á tryggingu kaupmáttar. Viðmiðun við framfærsluvísitölu heppilegust. Loforð stjórnvalda lítils virði Það er unnið að undirbúningi kröfugerðar BSRB í 10 manna nefnd, og ég á von á að haldinn verði fundur með samn- inganefndinni innan skamms. Það sem við munum leggja áherslu á er trygging kaupmáttar og það er hægt að framkvæma eftir ýmsum leiðum, sagði Krist- ján Thorlacius formaður BSRB í samtali við Þjóðviljann í gær. Verkalýðshreyfingin er nú í óða önn að móta kröfugerð fyrir næstu samninga, en núgildandi samningar verða lausir um ára- mótin. Á þingi BSRB fyrir nokkrum vikum var samþykkt að leggja bæri höfuðáherslu á veru- Iegar launahækkanir og samræm- ingu launa í landinu. BSRB eins og ASÍ leggur megináherslu á tryggingu kaupmáttar, en enn sem komið er hefur ekki verið ákveðið hvernig stefna beri að því. Kristján telur að viðmiðun við framfærsluvísitölu verði af- farasælust, þannig að ef verðlag fer yfir ákveðin mörk verði launafólki greiddar bætur í sam- ræmi við það. „Ég tel að kaupmáttur verði best tryggður með sterkum sam- tökum launafólks og samstöðu innan verkalýðshreyfingarinnar. Loforð stjórnvalda í gegnum árin hafa verið allt of lítils virði og því ekki nægilegt að reiða sig á þau, þetta verður að tryggja í samn- ingum. Það hefur verið rekinn sterkur áróður gegn vísitölubindingu launa, en ég held það sé falskur áróður. Ég legg áherslu á að vísi- tölubinding launa hefur ekki or- sakað efnahagsvanda. Þetta kerfi hefur ekki verið við lýði stðan 1983, en efnahagslegt öngþveiti hefur aldrei verið meira á Islandi en einmitt nú,“ sagði Kristján. -gg Hamar hf./Stálsmiðjan Skrifstofufólki sagtupp Ikjölfar sameiningar Stálsmiðj- unnar og vélsmiðjunnar Ham- ars hf. var nokkrum starfsmönn- um sagt upp, skrifstofufólki og framkvæmdastjóra. Ekki kom til uppsagna iðnaðarmanna. „Þetta er eðlileg hagræðing í skrifstofuhaldi. Það var ástæðu- laust að vera með tvöfalda yfir- byggingu á fyrirtækinu," sagði Skúli Jónsson framkvæmdastjóri Hamars í samtali við Þjóðviljann í gær. Stálsmiðjan var eign Hamars og Vélsmiðjunnar Héðins, en í síðasta mánuði keypti Hamar hluta Héðins í fyrirtækinu. Á hinn bóginn kaupir Héðinn hluta Hamars í Járnsteypunni hf., sem var í eigu þessara tveggja fyrir- tækja. -gg Fimmtudagur 12. desember 1985 ÞJÖÐVILJINN - SÍÐA 3

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.