Þjóðviljinn - 12.12.1985, Síða 4

Þjóðviljinn - 12.12.1985, Síða 4
LEIÐARI Feluleikur í Hafskipsmálinu Jónas Kristjánsson ritstjóri DV ber sig aum- lega í leiöara blaös síns í gær. Hann segir aö DV, Frjáls fjölmiðlun eigi enga aðild aö Haf- skipsmálinu, Útvegsbankamáiinu Kokhreysti ritstjórans er ekki komin til af því að blað hans hafi fjallaö svo ítarlega um þetta stærsta gjaldþrot í sögu lýðveldisins, - ekki vegna þess aö DV hafi rakið spillingarþætti þessa máls, ekki vegna þess aö DV hafi fjallað um tengsl Sjálfstæðisflokksins við málið, - nei reiðin á rætur að rekja til þess að Þjóðviljinn og fleiri hafa haft orð á tengslum Hafskips og DV. Jónasi Kristjánssyni er væntanlega ekki kunnugt um það að kumpáni hans, Sveinn R. Eyjólfsson er stjórnarformaður í Hafskip. Hefði Jónas Kristjánsson brugðið sér í gervi blaða- mannsins eitt augnablik í júní sl., þá hefði hann t.d. getað barið augum fréttatilkynningu eftir síðasta aðalfund Hafskips hf, þar sem segir, að komið hafi fram „aukin bjartsýni um rekstur fé- lagsins". Þessari fréttatilkynningu Hafskips lýk- ur með frásögn af því að Albert Guðmundsson hafi verið fundarstjóri á fundinum og hverjir hafi verið kjörnir í stjórn félagsins. Aftan við nöfn þeirra einstaklinga sem kosnir voru í stjórn eru tilgreind fyrirtæki þau sem þeir eru fulltrúar fyrir í stjórn félagsins að mati Hafskips. Þannig stend- ur í þessari opinberu fréttatilkynningu við nafn Sveins R. Eyjólfssonar Hilmir hf - Dagblaðið/ Vísir. Nú kann vel að vera að Jónasi Kristjánssyni rannsóknarblaðamanni og spillingarandstæð- ingi sé ókunnugt um hver þessi Sveinn R. Eyjólfsson er, hann viti ekki að DV er brotið um og sett hjá Hilmi hf., hann þekki ekki hverjir gefi út DV, Dagblaðið/Vísi. En ef hann hefði sett upp rannsóknarblaðamannsgleraugu sín ígær-og litið á hausinn fyrir ofan leiðarann þar sem hann þrætir fyrir tengslin, þá hefði hann komist nær sannleikanum. Þar stendur nefnilega að útgáf- ufélag DV heiti Frjáls fjölmiðlun. Þar er titlaður stjórnarformaður og útgáfustjóri Sveinn nokkur R. Eyjólfsson, - sá sami og er í stjórn Hafskips. Og þar segir einnig að blaðið sé sett og brotið um í Hilmi hf. Matador fyrirtækjanna er nefni- lega stórt spil með mörgum reitum, mörgum fyrirtækjum. Og ef Jónas Kristjánsson hefði sótt í sig kjark til að fygljast með fjölmiðlunum undanfarna daga, þá hefði hann komist að því að Sveinn R. Eyjólfsson var ekki einn aðstandenda DV í þessari hringekju fyrirtækjanna í Hafskipsævin- týrinu. Hann hefði komist að því, að í fimm manna stjórn „íslenska skipafélagsins", sem leysti af stjórn Hafskips í nokkra daga, voru tveir DV-menn, því auk Sveins R. Eyjólfssonar var |Dar í stjórn Hörður Einarsson. Hefði Jónas Krist- jánsson beitt fyrir sig aðferðum rannsóknar- blaðamennskunnar hefði hann aftur getað litið á hausinn fyrir ofan leiðarann sem hann skrifaði í gær, - og séð að þar stendur einmitt nafn Harð- ar Einarssonar og titlarnir „framkvæmdastjóri og útgáfustjóri". Hefði Jónas Kristjánsson, sem ekkert kann- ast við tengsl Hafskipsævintýrisins og DV, horft framan í þá sem sitja með honum í stjórn Frjálsrar fjölmiðlunar, - þá er ekki loku fyrir það skotið að hann hefði með fránum rannsóknaraugum séð þá tvo heiðursmenn Svein R. Eyjólfsson og Hörð Einarsson, því samkvæmt hlutafélagskrá sitja þessir þrír menn nefnilega saman í stjórn Frjálsrar fjölmiðlunar, Jónas, Sveinn og Hörður, frjálsir og óháðir, nema hvað? Það er í sjálfu sér skiljanlegt að Jónas Krist- jánsson vilji ekkert af vinnuveitendum sínum vita við slíkar og þvíumlíkar aðstæður sem nú ríkja í íslensku þjóðfélagi. En það er með öllu óþolandi að hann krefjist þess af alþingi, og Þjóðviljanum og öðrum fjölmiðlum, að þeir þegi yfir þessum tengslum DV við Hafskipshneyksl- ismálið. -óg KUPPT OG SKORIÐ þllMIIUl eintök LOKSINS, LOKSINS: AAnorAir com * Adgerðit sem jreitt gætu 'vrir kjara -imningum Ismeygileg áætlun 11., umyiwl l'in'l.'in- IV.Issnnar IttiniialaiaiMn'iTít um li'nninjju -kamniliinal.ina luisl>yj>j;jcn<la í liankakcrlinu aliiam vi-rðtrygg- mgar a sknmnitinialánum hofur kumiö mnrgum undarlcga fvnr 1.. mr Mciiii skilja nuciavcl til- uaiigmn mcá |»vi að hri'.vta skamm- i imalanum luishyggjcndji i lcngri Slikt yrði luishvggjcnduni tvi- mn'liihiusl til hagslxita ng myndi lctia grciiVluhyrði Jx’irra. Það cr lnnii hluti luigmyndarinnar. sem mcnn ciga crfiðara mcð að fó lx»tn i Scm sc hvcr tilgangurinn eigi að vcra mcð afnámi vcrðtryggingar á skammtímalánum. Hverra hagur cr|,að’ Kjallarinn Hverjirskulda? Kinlitldasl cr að þcirri spurningu mcð annarri scm sc jx'irri hvcrjir það scu sem fvrst og l'rcmst skulda skammlíma veltilán SIGHVATUR BJÖRGVINSSON FYRRVERANDI ALWNGISMAÐUR undan sér mcð rcglulegum Iram lcngingum og cnduniyiuiuiin lan- anna? I/Ogar |XT:m ckki uuna cnnþá ska*rar? ismeygileg áætiun Það cr svo sem cltir nðru ;ið fa-stir virðasl haf;i tckið cftir kjarnit málsins i |x*ssuin luigmynd- um. Hann cr ckki >;i ;ið hida grciðslustoðu htishvggjcnda |m»U svo sé látið i vcðri vaka. Kjiirm málsins er sá að skipta á lántak endum viðskiptahankanna i tvo flokka. í öðrurn flokknum vcrða þeir sem gefínn er kostur ;i vcrð tryggðum lánum og þurfa að horgn lánin sín til baka með jafnmiklum vcrðmœtum og lánvcitingin nam að viðbœttum vöxtum. í hinurn flokknum verða svo þeir scm f;i óverötryggð veltilán og gctn i krafti aðstoðu og viðskiptavildiir lálið verðbólguna hjálpa sér til þess að greiða lánin niður Snarpur penni Kjallaragreinar Sighvatar Björgvinssonar varaþingmanns vekja gjarnan mikla athygli. f>ær eru vel stílaðar, - Sighvatur nálg- ast oft pólitísk viðfangsefni sín út frá óvæntu sjónarhorni og um- fram allt, hann liggur ekki á skoð- unum sínum á mönnum og mál- efnum, - nema.... Einn er sá reynsluheimur sem Sighvatur nálgast aldrei í skrifum sínum, - og það er reynsluheimur kratans í Alþýðuflokknum. Hann getur fjalíað um alla flokka, alla stjórnmálamenn, nema Alþýðuflokkinn og stjórnmálamenn úr þeim flokki. Nú er klippari ekki að halda því fram, að nauðsynlegt sé fyrir mannlíf í landinu, að reynsla Al- þýðuflokksins og Alþýðuflokks- mannsins sé ævinlega höfð til hliðsjónar. Og klippari er heldur ekki að krefjast þess að þegar fjallað er um ást og hatur í öðrum stjórnmálaflokkum, séu kratar að tíunda ástleysið í Alþýðu- flokknum. En hinu er ekki að leyna, að þegar tilamynda er fjal- lað um lýðræðismál í stjórnmála- flokkunum, - þá sé sá flokkur sem viðkomandi er í undan- skilinn umfjöllun. Þá kemur hol- ur tónn. Þá er slegið á falska nótu. Og Sighvatur hefur oft þrátt fyrir prýðisgott lag, slegið á slíkar falskar nótur. Kremlar- aðferðir Staðreyndin er hins vegar sú, að Sighvatur drepur ekki niður penna á blað öðruvísi en að skrifa um Alþýðuflokkinn og Jón Bald- vin Hannibalsson. Hann notar nefnilega þá aðferð, sem kratar í öllum flokkum (Nema við - eða þá a.m.k. sárasjaldan) brúka, - hann þykist vera að fjalla um aðra menn, aðra flokka. Þessi siðbótarformáli er ekki settur á blað af einhverju sér- stöku tilefni, þetta á nefnilega við um nær flestar blaðagreinar og málflutning Sighvats Björgvins- sonar - og er því bæði löglegt og siðlegt skens á drenginn. Táradalur Það er nú kannski ekki alveg rétt, að Sighvatur hafi ekki gefið neitt tilefni síðustu daga til þess að þetta verði dregið fram. Hann skrifaði nefnilega annars prýðis- góða grein um „hugmynd Þor- steins Pálssonar um Iengingu skammtímalána húsbyggjenda og afnám verðtryggingar á skammtímalánum“. Eins og stundum áður, þá sýnir Sighvatur fram á að þessar „hug- myndir" gætu haft önnur áhrif, annan tilgang heldur en að létta undir með húsnæðiskaupendum, en það er önnur saga. Staðreynd máls er sú, að í raun- inni var Sighvatur að svara Al- þýðublaðinu alias Árna Gunn- arssyni með þessari grein. Til- drög þess máls eru þau, að Al- þýðuflokksforystan, Jón Bald- vin, vill alltaf fara í kjarasamn- inga og skiptir þá engu máli um hvað þeir samningar eru. Víst er að Jón Baldvin er samkvæmur sjálfum sér í því, að vera ævinlega á móti vísitölubindingu launa og að skrifað verði sem fyrst undir samninga. Árni hefur nú hlotið þau dap- urlegu örlög, að flytja Alþýðu- flokksmönnum slíkan jónbald- vinskan boðskap í gegnum Al- þýðublaðið. Intermesso má geta þess, að síðustu daga hefur mátt vinda þetta blað, svo grátklökkva og társtokkið sem það hefur verið afþví aðrir stjórnmálaflokkar hafa unnið Alþýðuflokkinn í því kapphlaupi sem enginn virðist vilja vera síðastur í nú á dögum, nefnilega kapphlaupinu um at- hyglina. Þegar Alþýðuflokkurinn hálf- sokkinn í táradalinn nýtur fall- andi gengis í skoðanakönnunum og er í skugganum í fjölmiðla- heiminum, - þá þarf hann að „marka sér sérstöðu" einsog það er kallað, til að fá athygli. Oft áður þegar þessi flokkur sem kennir sig við alþýðuna, lýsir yfír vilja til að skrifa undir samninga, þá hefur Morgunblaðið klappað á bakið á flokksforystunni og hrópað húrra fyrir Alþýðu- flokknum. Loksins, loksins Þess vegna ætlaði Jón Baldvin að skjóta sér upp flugeldi með „hugmynd" Þorsteins Pálssonar og lét Árna Gunnarssona skrifa dæmalausan leiðara. Hann byrj- aði svona: „Forsíðuleiðarar koma ekki á hverjum degi í Al- þýðublaðinu - tii þess þarf ríka ástæðu“. Engu var líkara en íslendingar hefðu eignast nýjan Nóbel, því fyrirsögnin á forsíðuleiðaranum var hvorki meira né minna en: „LOKSINS, LOKSINS“ og þessi púðurkerling sprakk af því eina tilefni að Þorsteinn Pálsson hafði fengið „hugmynd". Bara fyrir SÍS Flestir aðrir hugsuðu á þá leið að það væri nú best að fá að sjá þessa „hugmynd“ útfærða áður en húrrahrópin skyllu á - og í samræmi við reynslu af „aðstoð til húsnæðiskaupenda“, sem stjórnmálamenn hafa verið ó- sparir á að heita, tortryggði fólk þessa „hugmynd“. En Alþýðuflokkurinn sá glytta í samninga; engin verkföll, engin átök, engin vísitölubinding launa. Sighvatur varð hneykslaður á þessu upphlaupi Alþýðublaðsins en í stað þess að mótmæla skrifar hann grein um „hugmynd" Þor- steins, þarsem hann bendir á að þeir sem fyrst og fremst þurfi á veltufjárfyrirgreiðslu að halda, hagnist á þessu afnámi verðtrygg- ingar, „og þá ekki hvað síst fyrir- tæki í verslun og þjónustu. Þann- ig er SIS frændi án efa langstærsti „skammtímaskuldari" iandsins“, segir Sighvatur. Þannig varð „loksins, loksins" bara „ísmeygi- leg áætlun“. Þessi grein er að sjálfsögðu „í- smeygileg“ gagnrýni á Jón Baldv- in og Alþýðublaðið, - en hefði ekki verið frekar í anda dreng- skapar og vináttu að stíla hana á þá sem hún er ætluð? -óg DJOÐVILJINN Málgagn sósíalisma, þjóðfrelsis og verkalýðshreyfingar Útgofandi: Útgáfufélag Þjóðviljans. Ritstjórar: Árni Bergman, össur Skarphóðinsson. Ritstjórnarfulltrúi: Öskar Guðmundsson. Fréttastjóri: Valþór Hlöðversson. Blaðamenn: Aðalbjörg Óskarsdóttir, Álfheiður Ingadóttir, Garðar Guðjónsson, Ingólfur Hjörleifsson, Lúðvík Geirsson, Magnús H. Gísla- son, Mörður Árnason, Sigurdór Sigurdórsson, Víðir Sigurðsson, Þór- unn Sigurðardóttir, Þröstur Haraldsson. Handrita- og prófarkalestur: Andrea Jónsdóttir, Elías Mar. Ljósmyndir: Einar Ólason, Sigurður Mar Halldórsson. Útllt: Sævar Guðbjömsson, Garðar Sigvaldason. Simvarala: Sigríður Kristjánsdóttir. Húsmæður: Agústa Þórisdóttir, Ölöf Húnfjörð. Bílstjóri: Jóna Sigurdórsdóttir. Framkvæmdastjóri: Guðrún Guðmundsdóttir. Skrifstofustjóri: Jóhannes Harðarson. Skrifstofa: Guðrún Guðvarðardóttir, Magnús Loftsson. Útbroiðslustjóri: Sigríður Pótursdóttir. Auglýsingastjóri: Ragnheiður Óladóttir. Auglýsingar: Ásdís Kristinsdóttir, Guðbergur Þorvaldsson,. Olga Clausen. Afgreiðslustjóri: Baldur Jónasson. Afgreiðsla: Bára Sigurðardóttir, Kristín Pótursdóttir. Innhoimtumonn: Brynjólfur Vilhjálmsson, Ólafur Björnsson. Útkeyrsla, afgroiðsla, auglýsingar, ritstjórn: Síðumúla 6, Reykjavík, símí 681333. Umbrot og setning: Prentsmiðja Þjóðviljans hf. Prentun: Blaðapront hf. Verð í lausasölu: 35 kr. Sunnudagsblað: 40 kr. Áskrlft ó mánuði: 400 kr. 4 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.