Þjóðviljinn - 12.12.1985, Page 6

Þjóðviljinn - 12.12.1985, Page 6
HLJÓMPLÖTUR FLOAMARKAÐURINN Jólasveinar í kassabíl Vantar ykkur jólasveina? Þeir eru á ferðinni á kassabíl og tilbúnir að koma á jólatrésskemmtanir. Upplýs- ingar í síma 10026 og 19567. Jólabasar Vesturgötu 12 Höfum opnað basar með handunn- umjólavörum. Eldhúsdúkkurog tusk- udúkkur, 5 stæðir og margt hentugt til jólagjafa. „Undir Mexíkómána" Langar ykkur ekki til að eignast „Undir Mexíkómána" sem út kom 1982. Verð aðeins 300 kr. Fræðandi og forvitnilegt bók. Ódýr og góð jólagjöf á þessum síðustu og verstu tímum. Hringið í síma 43294 á kvöldin. Dukkurúm er nú með blómlegu rúmin í þremur stærðum. Einnig með rúm úr furu. Verð á útimarkaðnum á torginu alla laugadaga fram að jólum. Uppl. í síma 611036, Auður Oddgeirsdóttir. Bókhald Ertu með bókhaldið í ólagi? Tek að mér bókhald fyrir lítil fyrirtæki. Uppl. í síma 30854, eftir kl. 18. Til sölu Volga árg. ’72 ekinn 74 þús. km. Einn eigandi. Uppl. í síma 99-4581 eftir kl. 17. Góð stúlka óskast Óska eftir góðri stúlku til að gæta tveggja barna á aldrinum 8 mán. - 4 ára, frá kl. 16.30 - 21.30, 2-3svar í viku og aðra hverja helgi. Verður að vera samviskusöm. Uppl. í síma 77615 og 33988. Eldavél Er ekki einhver sem á eldavél í geymslunni og vill losna við hana fyrir lítið? Sá hinn sami er vinsamlegast beðinn um að hringja í Veturliða í síma12015 eftir kl. 18. Öldungadeildarnema bráövantar herbergi eða einstak- lingsíbúð til leigu frá áramótum, reglusemi og snyrtilegri umgengni heitið, fyrirframgreiðsla ef óskað er. Uppl. í síma 96-41497, milli kl. 13-22. Svart/hvítt sjónvarpstæki óskast Lítið svart/hvitt sjónvarpstæki óskast keypt eða gefins. Uppl. í síma 39331 á kvöldin. IBM ritvél Til sölu gömul rafmagnsritvél á kr. 3.500.- Uppl. í síma 12629. Barnabílstóll til sölu Barnabílstóll af gerðinni KL, sem við- urkennt er af Bifreiðaeftirlitinu. Enn- fremur 2 nýir telpnakjólar á aldurinn 6 - 8 ára og 2 barnaskrifborð. Trésmíði Trésmiður getur bætt við sig verkefn- um fyrir áramót. Uppl. í síma 82981. Hnakkar til sölu 2 fallegir hnakkar til sölu, annar ónot- aður Steinbjarna-hnakkur, hinn norð- lenskur m/fallegri útsaumaðri dýnu léttur og meðfærilegur. Sími 78181. ísskápur til sölu (sskápur (gamall) með frystihólfi fæst gefins. Uppl. í síma 686406. Aukavinna 22 ára námsmaður óskar eftir auka- vinnu kvöld og helgar. Allt kemur til greina. Uppl. í síma 81078. Eldavél til sölu Nýleg Rafha eldavél til sölu. Einnig skápahöldur ca. 25 stk. Uppl. í síma 25668. Gefins svefnbekkur Eins manns svefnbekkur stærð 1,85x75 cm, fæst gefins. Sími 81905. Borðstofuhúsgögn Til sölu borðstofuhúsgögn og 4 stól- ar, dökk bæsað. Uppl. í síma 666789. Athugið Óska eftir ódýru og góðu eldhúsborði og bakstólum. Uppl. í síma 37505. Húsnæði óskast Ungur reglusamur maður óskar eftir einstaklingsíbúð á leigu eða 15-20 fm herbergi, með aðgangi að baði, eld- unaraðstöðu og þvottaaðstöðu, frá 15.-20. janúar 1986. Fataskápur mætti fylgja. Helst ekki í Árbæjar- eða Breiðholtshverfi. Öruggar greiðslur og góð umgengni. Uppl. í síma 37697, eftir kl. 18 á kvöldin. Til sölu Skiptiborð, góð hirsla, og vel með far- ið. Uppl. í síma 28161. Til sölu Skiptiborð og vagnpoki fyrir ungbarn. Uppl. í síma 681333 á skrifstofutíma. Sigga P. Til sölu vegna brottflutnings Svefnsófi frá Pétri Snæland, sófa- borð, hillusamstæða, skrifborð, skrif- borðsstóll frá IKEA. Canon AEI zoom linsa 80/200 flass, þrífótur, harmón- ikka 50 bassa Parrot. Uppl. í síma 36283, eftir kl. 18 á kvöldin. Fatnaður Tvenn óslitin jakkaföt með vesti til sölu. Önnur grá hin svört seljast á undir hálfvirði. Einnig grádröppuð kvenkápa nr. 46 kr. 2.000,- Hvítt bað- kar ásamt handlaug fæst á sama stað. Uppl. í vinnusíma 29300, heimasími 25859. Er einhver að endurnýja teppin sín? Ef svo er þá væri vel þegið af fátækri konu ef sá hinn sami gæti gefið henni það ca. 25-26 fm. Uppl. hjá auglýs- ingad. Þjv. sími 681333. Blaðburdarfólk i r 4 ^ £ ress Ef þú ert morgunh Haföu þá samband viö afgreiðslu ÞjoðvOjans, sími 681333 Laus hverfi: Víðsvegar um bæinn Þaö bætir heilsu« að bera út Þjóðv Betrabla Dghag iqann ð Valgeir, Valgeir syngur Jóhannes Fugl dagsins, nýkomin hljóm- plata sem geymir lög Valgeirs Guðjónssonar, Stuðmanns m.a., við Ijóð Jóhannesar úr Kötlum; sungin af Valgeiri, Sigrúnu Hjálmtýsdóttur (Diddú), Ævari Kjartanssyni. Valgeir segir á innleggsblaði með ljóðunum að tilurð laganna megi rekja til Þrándheimsdvalar þarsem bækur Katlaskáldsins höfðu lent með í bókakassa. Hann hafi sjónvarpslaus sest yfir Jóhannes með gítar í fanginu: „Ég fann fljótt að skáldið sló hörpu sína af músíkölsku innsæi, því lögin einsog biðu eftir að láta semja sig, blunduðu í kvæðunum og vöknuðu við minnsta hávaða. Margbreytilegir bragarhættirnir kölluðu á ólík form og yrkisefnin 'ti&m heimtuðu búning við hæfi. Fyrir mig var þetta heilmikil opinber- un: Að fylgja skáldinu úr sveitinni, í gegnum ungmennafé- lagshreyfinguna og íslendingas- ögurnar, ganga undir rauðum fánum í leit að betri heimi, skeg- Jóhannes græða við skaparann, sjá rímið sökkva í hafið og fá að taka þátt í vangaveltum um hinstu rök til- verunnar...“ Á plötu Valgeirs eru lögin Bíbí og blaka, Rauðsendingadans, Vögguvísa í húsi farmanns, Ferðavísur, Rímþjóð, Urðarm- áni, Uppboð, Miðnætti í Keníu, Draugagangur, Vorið kemur, Heimspeki og Systir mín góða í dali. Hljóðfæramenn auk Valgeirs eru Ásgeir Óskarsson, Skúli Sverrisson, Stefán Stefánsson, Rúnar Georgsson og Jakob F. Magnússon. Útgefandi Penninn. Kukl er Kukl Eftir helgina er von nýrrar plötu sem hljómsveitin Kukl hefur leikið inná tónlist sína víðfræga um allar rokkjarðir. Þetta er átta laga plata, stór, og heitir Evróp- ufrí eða uppá ensku Holidays in Europe. Það er hljómplötufyrirtækið Crass-hópsins í London sem gef- ur út, Grammið er hinsvegar dreifari hér heima. Hljómsveitin hélt sig lengi árs á hinum óís- lenska hluta Evrópu og fór um með hljómleikahaldi og galdra- slætti ýmsum, en félagar úr henni hafa nú stofnað sirkusinn Dútl ásamt fólki úr fjöllistahópnum sem kennir sig við hina fríðu Medúsu. f Kukli eru Guðlaugur Óttars- son, Sigtryggur Baldursson, Ein- ar Melax, Birgir Mogensen, Björk Guðmundóttir og Einar Örn Benediktsson. „Enda“ eins- og segir í kynningu frá Gramm- inu „er Kukl Kukl“. 6 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Fimmtudagur 12. desember 1985 Jóla- Kristinn Það verða ánægjuleg jól hjá söngvaranum Kristni Sigmunds- syni ef marka má heiti plötunnar sem Örn og Örlygur hafa gefið út með söng hans og Mótettukór Hallgrímskirkju, og ekki ættu jólin að verða miður gleðileg hjá hlustendum. Ég held glaður jól er safn jóla- tónlistar, íslenskrar og erlendrar, og er hún hljóðrituð á stafrænan hátt í kirkjum þeirra Krists og Hallgríms. Stjórnandi kórsins er Hörður Áskelsson, upptöku ann- aðist Halldór Víkingsson.

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.