Þjóðviljinn - 12.12.1985, Side 7

Þjóðviljinn - 12.12.1985, Side 7
VIÐHORF Tvö ár án vísitölubindingar launa HVAD HEFUR GERST? Ari Skúlason skrifar Síðan vísitölubinding launa var afnumin með lögum í maí 1983 hafa launþegasamtökin í landinu hvað eftir annað lýst því yfir að það sé illmögulegt að semja við atvinnurekendur til langs tíma án þess að kaupmáttur launa sé tryggður. Krafan um kaupmátt- artryggingu hefur þó ekki náð fram að ganga, en í samningun- um í júní sl. náðist samt sá árang- ur að ríkisstjórnin lofaði fyrir sitt leyti að halda verðhækkunum í skefjum. Síðan hefur reynslan sýnt að þessi loforð stóðust ekki. Nú fara kjarasamningar í hönd og sem fyrr er einhvers konar kaupmáttartrygging ein höfuð- krafa launþegasamtakanna. Nú hefur hins vegar komið fram sú hugmynd að gera skuli „lífskjara- samning“ við atvinnurekendur og ríkisstjórn þar sem inn komi verð á opinberri þjónustu, skattar o.s.frv. auk launahækk- ana. Hugmyndir þessar virðast þó ekki fastmótaðar, en fram hef- ur komið að bæði atvinnurekend- ur og ríkisvald vilja skoða málið nánar. í umræðunni undanfarið hefur komið fram að ýmsir talsmenn verkalýðshreyfingarinnar segjast geta sætt sig við annað kaupmátt- artryggingarform en það kerfi sem hér ríkti áður. Meginrök- semdin fyrir afnámi þessa kerfis var sú kenning stjórnvalda og at- vinnurekenda að vísitölubinding launa væri höfuðorsök þeirrar verðbólgu sem hér ríkti. Með því að gefa eftir kröfur um gamla vís- itölukerfið virðast talsmenn verkalýðshreyfingarinnar vera að lýsa sig sammála kenningu að hækkun launa vegna verðhækk- ana hafi verið höfuðorsök verð- bólgunnar. í ritgerð sem ég skrifaði árið 1983 um launaþróun á íslandi frá 1950-1981 kom ég m.a. inn á vís- itölubindingu launa. Ég rannsak- aði áhrif vísitölubindingarinnar á launaþróunina með tölfræði- legum aðferðum og komst að niðurstöðu sem gengur í berhögg við þá kenningu sem stjórnvöld og atvinnurekendur hafa haldið fram um þetta kerfi. Meginniður- staða mín var sú, að afnám og skerðingar vísitölubóta á þessum árum höfðu ekki marktæk áhrif á launaþróunina. Sagt með öðrum orðum þá eru það aðrir þættir en vísitölubindingin sem ákvarða launaþróunina þegar til langs tíma er Jitið, vísitölubindingin sjálf skiptir ekki miklu máli. Vinnumarkaðurinn í þjóðfé- lagi nútímans er orðinn mjög þró- aður og upplýsingastreymi er mikið. Olíklegt er að kaupmáttur launa geti lækkað mikið sé litið til lengri tíma. Hér koma þættir eins og yfirborganir og launaskrið inn í myndina auk hinna hefðbundnu samningsbundnu launahækkana. Sé t.d. vísitölubinding launa af- numin er ekki ólíklegt að þessir þættir vegi þyngra en ella. Þá kemur einnig til að samningar eru yfirleitt gerðir til mun styttri tíma sé kaupmáttur ekki tryggður á sjálfvirkan hátt. Niðurstöður mínar fyrir tíma- bilið 1950-1981 bentu allavega í þá átt að afnám eða skerðing vísi- tölubóta virtust ekki hafa mark- tæk áhrif á launaþróunina á tíma- bilinu. Þessi niðurstaða gengur greinilega þvert á þá kenningu að vísitölubindingin út af fyrir sig sé sjálfstæður verðbólguvaldur. Benda má á að vísitölubinding launa hefur það fram yfir aðrar launahækkunaraðferðir að hún gildir jafnt fyrir alla launþega og launahækkanir ganga jafnt yfir alla eftir fyrirfram ákveðnum reglum. Ekki er ólíklegt að launamunur aukist við það að af- nema slíkt heildarkerfi og vísi- tölubindingin er. Þá kemur í ljós hverjir það eru sem hafa sterk- asta samningsstöðu á vinnumark- aðinum og geta tryggt kaupmátt sinn best. Nú eru liðin rúm 2 ár síðan vís- Meginniðurstaða mín varsú, aðafnám og skerðingar vísitölubóta á þessum árum höfðu ekki marktœk áhrif á launaþróunina. itölubindingin var afnumin. Það er því ekki úr vegi að athuga hvernig þróunin hefur verið á þessu tímabili. í meðfylgjandi töflu má sjá annars vegar kaup- mátt taxtakaups ákveðinna starfsstétta og hins vegar kaup- mátt greidds kaups skv. tölum Kjararannsóknarnefndar. Taxta- kaupið sýnir umsamdar launa- hækkanir en greidda kaupið sýnir raunverulega greitt kaup með öllum yfirborgunum. Kaupmátt- urinn er settur 100 á 2. ársfjórð- ungi 1983, en þá var vísitölubind- ingin einmitt afnumin. Tölurnar sýna að kaupmáttur umsamins taxtakaups hefur að meðaltali minnkað um 12,6% á tímabilinu, en kaupmáttur greidds kaups hefur að meðaltali minnkað um 6,9% Síðan á 2. ársfjórðungi 1985 hefur kaupmáttur taxta- kaups haldið áfram að minnka, en nýrri tölur um kaupmátt greidds kaups liggja ekki fyrir. Benda má á að frá 1982-1984 minnkaði kaupmáttur kauptaxta um 28%, en kaupmáttur ráð- stöfunartekna á mann um 12,7% í ár hefur verið stefnt að því að halda kaupmætti kauptaxta í horfinu, en spáð er 4% aukningu kaupmáttar ráðstöfunartekna. Frá 1984 hefur kaupmáttur kauptaxta því minnkað um 28% en kaupmáttur ráðstöfunartekna um 9,6% Allt styður þetta þá kenningu að sé vísitölubinding launa af- numin, þá komi aðrir þættir inn í staðinn til þess að viðhalda kaupmættinum. Vísitölubinding- in er heldur engin aðalforsenda fyrir því að viðhalda kaupmætti og getur því varla talist sjálfstæð- ur verðbólguvaldur. Tölurnar sýna annað sem einn- ig er mjög athyglisvert; Hinum mismunandi hópum á vinnu- markaðinum gengur ekki jafn vel að vernda kaupmátt launa sinna sé sjálfvirk kaupmáttartrygging afnumin. Af töflunni sést greini- lega að það eru verkakonurnar sem hafa orðið undir í baráttunni um yfirborganir og launaskrið á undanförnum tveimur árum. Það er greinilega fólkið í skrifstofu- störfum, sérstaklega karlar, sem hefur tekist að vernda kaupmátt sinn. Það bendir allt til þess að sú tilraun stjórnvalda að draga úr launahækkunum með afnámi vísitölubindingarinnar hafi ekki tekist. Þessar aðgerðir hafa vald- ið því að vinnumarkaðurinn er orðinn mun flóknari en áður. Enginn veit hvað aðrir hafa í laun, en hins vegar vita allir að fáir fá greitt eftir hinu umsamda kaupi, nema e.t.v. þeir iægst launuðu, og þeirra kaupmáttur hefur minnkað mest. Kannski eru einhverjir ánægðir með það...? 2. ársfjórðungur 1982 = 100 Verkamenn........................... Verkakonur.......................... Iðnaðarmenn......................... Afgreiðslufólk, karlar.............. Afgreiðslufólk, konur............... Skrifstofufólk, karlar.............. Skrifstofufólk, konur............... Kaupmáttur taxtakaups 87A 86,6 87,9 87,8 87,8 87,8 87,8 Kaupmáttur greidds kaups 91.5 89,9 93,1 94,0 92,0 101,7 98.5 Meðaltal 87,4 93,1 Það f stefnuskrá Alþýðubandalags- ins er kjarna pólitískrar baráttu þess flokks lýst á eftirfarandi hátt: „Markmið sósíalismans er að breyta umhverfi og tilveruskil- yrðum mannsins í það horf að það leyfi alhliða þroska mann- legra hæfileika.“ Undanfarið tvö og hálft ár hafa Sjálfstæðisflokkur og Framsókn- arflokkur stjórnað íslandi. Sjálf- stæðisflokkur, sem boðar frelsi og sjálfstæði fólksins og taust fjölskyldulíf. Framsóknarflokk- ur, sem segist rata hinn gullna meðalveg milli hægri og vinstri öfga á vegferðinni til framfara. Framfara til sjávar og sveita. Hvernig nýtur svo launafólkið á íslandi í dag frelsisins og trausta fjölskyldulífsins - launafólkið sem fær greitt eftir töxtum verka- lýðsfélaganna og bætir endalaust við sig vinnu til að ná endum sam- an? Hvar er hið stolta fólk sem finnur til sjálfstæðis síns í krafti öruggs húsnæðis og tryggrar af- komu? í hverju felast framfarir í undirstöðuatvinnuvegum þjóð- arinnar, sjávarútvegi og landbún- aði, síðustu 2 til 3 árin? Þau skil- yrði sem ríkjandi stjórnarstefna hefur búið íslenskum almenningi hafa grafið undan sjálfsvirðingu fólks. Jafnframt hefur ráðandi markaðshyggja og samkeppnis- ofstopi alið á virðingarleysi er spurt um sjálfsvirðingu Kristín Ólafsdóttir skrifar gagnvart fólki. Virðingarleysi sem m.a. birtist í okurhneykslum og nauðungaruppboðum. Sam- kennd, samstaða og samábyrgð eru ekki áberandi eðlisþættir í ís- lensku samfélagi dagsins í dag. Fólki sem býr við basl er hætt við að glata einhverju af sjálfs- virðingu sinni. Þeir sem fá smánarlaun fyrir vinnu sína finnst þeir vera harla lítils virði. Börn og unglingar sem búa við léleg uppeldisskilyrði gjalda þess líklega alla ævi. Sjálfsvirðingu þeirra er hætta búin og þar með virðingu þeirra fyrir öðrum. Yfir þessu fólki - íslenskum al- menningi - er svo verðbólgusvip- an látin dvína. Ef það dirfist að krefjast mannsæmandi kjara kemur óðaverðbólgan æðandi. Launafólk skal halda sér á mott- unni með nagandi samviskubit yfir erlendum skuldum og hurð- arásum sem það reisti sér um öxl; sóknarkonan með 17 þúsundin og BSRB-maðurinn með 25 þús- undin - ef hann hefur þá náð uppí miðjan launastigann. Það er að velta þjóðarskútunni um koll með heimtufrekju sinni. ÞAÐ skal sýna ráðdeild og sparsemi! Þannig hljóðar boðorð landsfeðr- anna. Stjórnmálabarátta er fyrst og síðast spurning um mismunandi lífssýn, hagsmuni oghugarfar. Á- vinningar kvennabaráttu síðustu áratuga eru ekki fengnir með lag- asetningum, heldur vegna harð- rar baráttu gegn ríkjandi viðhorf- um til kvenna. Viðhorfsbreyting hefur vissulega átt sér stað og henni verður að fylgja eftir, t.d. í samkeppni sem ræður hér ríkjum grefur undan sjálfstæði fólks, menningu og þroska. Og það veikir lýðræðið í landinu. Þótt kosningaréttur og tjáning- arfrelsi séu sjálfsagðir og ómet- anlegir þættir lýðræðis skapa þeir „Pau skilyrði sem ríkj- andi stjórnarstefna hefur búið íslenskum almenn- ingi hafa grafið undan sjálfsvirðingufólks. Jafnframt hefur ráðandi markaðshyggja ogsam- keppnisofstopi alið á virðingarleysi gagnvart fólki“ kjarabaráttu. Verkalýðshreyf- ingin öll verður að taka sig á og hafna viðhorfum sem réttlæta þá mismunun, vinnuþrælkun og niðurlægingu sem viðgengst í ís- lensku þjóðfélagi. Skilyrði sem leyfa alhliða þroska mannlegra hæfileika verða ekki sköpuð ef auður og völd safnast á hendur fárra. Slíkt leiðir nefnilega af sér peninga-, valda- og aðstöðuleysi fjöldans. Það hugarfar peningahyggju og einir sér ófullkomið lýðræðis- þjóðfélag. Lýðræði þýðir að fólk hafi áhrif á umhverfi sitt og taki þátt í að skapa þau skilyrði sem það býr við. Til þess þarf tíma - til þess þarf fjármuni - til þess þarf upplýsingar og menntun. Landsbyggðin kvartar nú sáran yfir Reykjavíkurvaldi sem sogar til sín fjármuni og fólk og deilir takmörkuðum peningum til landsbyggðarverkefna án eðli- legrar íhlutunar heimamanna. Alþýðubandalagið vinnur nú að tillögum sem eiga að færa aukið vald, fjármuni og sjálfsforræði út í sveitarfélög og héruð - og jafn- framt auka áhrif hverfa í stórum sveitarfélögum eins og Reykja- vík. Flokkurinn hefur lagt mikla vinnu í að móta stefnu um fram- haldsskóla og er þar lögð áhersla á að almenn menntun skuli vera undirbúningur nemenda til að starfa í lýðræðisþjóðfélagi og til að auðvelda ungmennum að efla sjálfsforræði sitt. „í skólastarfinu eiga kennarar og nemendur að vinna saman að verkefnum líð- andi stundar. Það á þannig ekki aðeins að skila sér í undirbúningi að framtíðarstarfi, heldur í þroska einstaklinganna og menn- ingarlegum afurðum“ - segir þar. Atvinnulýðræði og launa- mannasjóðir eru til umfjöllunar í flokknum og settu svip sinn á landsfundinn sem og aðrar kröfur um aukið lýðræði og meira sjálfs- forræði fólks. Brýnasta verkefni Alþýðu- bandalagsins næstu vikur og mánuði er að hnekkja hug- myndafræðilegu forræði hinna fáu sterku í þjóðfélaginu. Þannig stuðlum við að þjóðfélagsskipan sem byggist á jafnrétti, mannleg- um verðmætum og samábyrgð. Kristín Á. Ólafsdóttir er varaformaður Alþýðubandalagsins. Fimmtudagur 12. desember 1985 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 7

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.