Þjóðviljinn - 12.12.1985, Blaðsíða 12
ALÞÝÐUBANDALAGK)
SKUMUR
AB Selfoss og nágrennis
Almennur félagsfundur
veröur haldinn laugardaginn 14. desember kl. 17.00 að Kirkjuvegi 7 Sel-
fossi. Dagskrá: 1) Inntaka nýrra félaga. 2) Forval fyrir komandi sveitar-
stjórnarkosningar.
Stjórnin
Kvennafylking AB
Starfið - skemmtikvöld
Fimmtudaginn 12. desemberkl. 20.30 verðurframhaldsaöalfundurKvenn-
afylkingarinnar að Hverfisgötu 105.
Fundarefni: 1) Framsaga og umræður um vetrarstarfið. 2) Valin ný
miðstöð.
Fundinum lýkur á léttari nótum. Guðrún Helgadóttir les upp, Kristín og
Margrét Pála skemmta með söng. Léttar veitingar á vægu verði.
Alþýðubandalagskonur og stuðningskonur í Reykjavík og nágrenni
hvattar til að fjölmenna.
Undirbúningshópur
Alþýðubandalagið Kópavogi
Bæjarmálaráðsfundur
ABK boðar til bæjarmálaráðsfundar í Þinghóli miðvikudaginn 11.
desember kl. 20.30.
Dagskrá: 1) Fjárhagsáætlun Kópavogskaupstaðar.
2) Önnur mál.
Stjórnin
Alþýðubandalagið í Kópavogi
Jólaglögg
verður laugardaginn 14. desember á milli kl. 15 og 18 i Þinghóli. Skáld lesa
úr verkum sínum.
Komið við úr jólainnkaupunum og yljið ykkur á jólaglöggi og ræðið málin.
Stjórnin
Alþýðubandalagið í Reykjavík
Forval
Kjörnefnd Alþýðubandalagsins í Reykjavik vegna borgarstjórnarkosning-
anna 1986 hefur hafið störf. Nefndin óskar eftir ábendingum og hugmynd-
um flokksfélaga, gjarnan bréflega, til skrifstofu flokksins eða eftirtalinna
nefndarmanna:
Arnmundur Bachman s. 77030, Arnþór Pétursson s. 71367, Guðbjörg
Sigurðardóttir s. 34998, Lena M. Rist s. 71635, Margrét Pála Ólafsdóttir s.
29371, Steinar Harðarson s. 18953 og Þorbjörn Guðmundsson s. 76562.
Sameiginlegur listi kjörnefndar og þeirra sem tilnefndir hafa verið af
flokksfélaögum verður birtur 14. desember í Þjóðviljanum. Þá hafa félagar
síðan tvær vikur til frekari tilnefninga og er eindagi þeirra 31. desember.
(Samkvæmt nýju forvalsreglunum geta 5 félagar í ABR tekið sig saman og
tilnefnt einstakling til forvals enda hafi hann samþykkt tilnefninguna).
Kjörnefnd
AB í Keflavík og Njarðvík
Bókmenntakynning
og tónlistarkvöld verður haldið í KK húsinu við Vesturbraut laugardaginn
14. desember kl. 15.00.
Eftirtaldir listamenn koma fram: Sigurður A. Magnússon les úr bók
sinni Skilningstréð, Jónas Árnason les úr nýútkominni viðtalsbók sinni,
Karvel Ögmundsson les úr nýútkominni bók sinni, Aðalsteinn Ásberg
Sigurðsson les úr bók sinni Jarðljóð, Einar Kárason les úr bók sinni
Gulleyjan. - Kristín Ólafsdóttir syngur lög af nýútkominni plötu sinni.
Steinar Guðmundsson leikur létta tónlist á píanó.
Léttar veitingar og piparkökur. Aðgangseyrir 100 kr.
Menningar- og fræðslunefnd AB í Keflavík
ÆSKULÝÐSFYLKINGIN
Æskulýðsfylkingin í Reykjavík
Jólin koma! (og fara!!!)
Jólasveinar einn og átta... Nei, nei, nei það er ekki verið að tala um
borgarstjórnarmeirihlutann rétt einu sinni. Við erum að auglýsa hið frábæra
jólaglögg Æskulýðsfylkingarinnar í Reykjavík. Verður það haldið í flokks-
miðstöðinni þann 13. desember, þ.e. á föstudaginn kemur. Undirbúningur
er vel á veg kominn. Auglýst betur næstu daga.
Jólaglöggsnefndin
ÆFAB og ÆFR
Komandi kjarasamninga
tökum við fyrir næsta laugardag 14. des. kl. 14.00 á opnum fundi með
Ásmundi Stefánssyni, Birni Arnórssyni o.fl. Allir velkomnir meðan húsrúm
leyfir upp á efstu hæðina á Hverfisgötu 105.
Verkalýðsnefndir ÆFAB og ÆFR
STAÐAR NEM!
Öll hjól eiga að stöðvast
12 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Fimmtudagur 12. desember 1985
GARPURINN
FOLDA
2 3 □ ■ 8 i 7
□ ■
0 10 □ 11
12 13 □ 14
m n 18 1« m
17 18 # 18 20 .
21 n 22 23 a □
24 c 28 J
KROSSGÁTA
Nr. 79
Lárétt: 1 far 4 hring 8 lögmálið 9
stjórni 11 fuglar 12 ílát 14 eins 15
eyðimörk 17 nagla 19 málmur 21
ofn 22 lengdarmál 24 ilma 25
fljótinu.
Lóðrétt: 1 kyrtil 2 heiðursmerki 3
ráfar 4 rög 5 eðja 6 yndi 7 veggur
10 karlmannsnafn 13 kýr 16
nokkur 17 mánður 18 ný 20 utan
23 féll.
Lausn á síðustu krossgátu
Lárétt: 1 busl 4 slór 8 óartina 9
láns 11 atað 12 agninu 14 Ra 15
nart 17 stunu 19 æsi 21 man 22
moli 24 árar 25 gata.
Lóðrétt: 1 bóla 2 sónn 3 lasinn 4
staur 5 lit 6 ónar 7 raðaði 10
ágætar 13 naum 16 tæla 17 smá
18 Una 20 sit 23 og.