Þjóðviljinn - 12.12.1985, Side 16

Þjóðviljinn - 12.12.1985, Side 16
BaBSHrara Dúax 'Efirlicíi Endurfœðingin ‘hulitrfa’dintjin Pétur Proud, aðstoðar- prófessor við Suður-Kali- forníuháskóla, dreymir sömu drauma nótt eftir nótt. Draumarnir eru úr hversdagslífi fólks sem hann kannast ekki við. Einn þessara drauma er þó martröð: Pétur dreymir að hann sé myrtur. Sagan greinir frá viðleitni Péturs til að losna við þessa drauma, skilja hvernig á þeim stendur og loks leit hans að sögusviði draumanna og fólkinu sem þar kemur fram. Skáldsagan Endurfædingin er dulræn spennusaga þar sem sérstætt efni er gert aðgengilegt með góðri frásagnar- tækni. Sagan kallar á sterka innlifun lesanda í æsilegt efni og er spennandi frá upphafi til enda. Þessi bók er jafnt fyrir áhugafólk um dulræn efni og þá sem vilja spennu. Sagan hefur verið kvikmynduð. Bókin er 279 bls. Þýðandi er Þorsteinn Antonsson. ÍSAFOLD .Vax 'hfufich Aðalsími: 681333. Kvöldsfmi: 681348. Helgarsími: 681663. MÖÐVIUINN Flmmfudaour 12. desember 1985 287. tðlublað 50. órgangur Ríkisspítalar Lyfjaskuldir yfir 100 milj. Margra ára uppsafnaðar skuldir ríkisspítala hjá Lyfjaversluninni ÁTVR lánar Lyfjaversluninnirekstrarfé. Lánahringdans íríkiskerfinu Ríkisspítalarnir skulda Lyfja- verslun ríkisins fyrir úttekt á lyfjum á annað hundrað miljónir króna. Spítalarnir hafa um langt árabil safnað stórum skuldum hjá Lyfjaversluninni og þrátt fyrir að heilbrigðisráðuneytið hafi sent spítölunum harðort bréf þar sem farið var fram á að þcir gerðu upp skuldir sínar hafa litlar sem enga geiðslur borist. „Það getur auðvitað ekkert fyrirtæki fjármagnað svona stór- ar útistandandi skuldir hvort sem reksturinn gengur vel eða ekki, en við myndum deyja drottni okkar alveg á stundinni ef við fengjum ekki rekstrarfé að láni frá Afengis- og tóbaksversluninni sem við deilum húsnæði með. Okkar viðskiptavinir verða síðan að borga dráttarvexti af skuldum sínum við okkur og við borgum þá sömu dráttarvexti beint til ÁTVR, sagði Benedikt Andrés- son fjármálastjóri Lyfjaverslunar ríkisins í samtali við Þjóðviljann. Benedikt sagði að önnur sjúkrahús en þau ríkisreknu skulduðu sum hver nokkrar fjár- hæðir hjá Lyfjaversluninni. Til þess að ríkisspítalarnir geti gert upp skuid sína við Lyfja- verslunina þurfa þeir að fá fjár- framlög frá heilbrigðisráðuneyti sem sækir þá peninga tii fjármáía- ráðuneytis sem að stórum hluta sækir sínar tekjur til ÁTVR sem verður hins vegar að ráðstafa hluta tekna sinna í rekstrarlán handa Lyfjaversluninni vegna vanskila ríkisspítalanna. -lg- Rafskautasamningurinn Ríkisstjórnin skrifar upp á samningsákv œði við Alusuisse sem þekkjast hvergi lengur í heiminum Breski herinn aftur búinn aö handtaka ritstjóra Þjóðviljans? Sem betur fer ekki: Vaskur tlokkur úr söngleiknum Land míns föður kom hins vegarvið á blaðinu í gær til að kynna Stríðsáraball sem haldið verðurá Hótel Borg I kvöld. Þar eru flutt söngatriði úr leiknum, skemmtiatriði f stríðsárastíl og fluttir gömlu stríðsáraslagararnir. Spilað er fyrir dansi til kl. 2. Umsjón með skemmtan þessari hafa þeir Kjartan Ragnarsson, Jóhann G. Jóhannsson og Karl Ágúst Úlfsson. (Ljósm. E. Ól.) • Reykjavík Hækkun á rafmagni og hita Borgarráð samþykkti sam- hljóða á fundi sínum í gær að hækka verð á hitaveituvatni til borgarbúa um 17% ogennfremur mun rafmagn hækka um 14%. Hækkanirnar taka gildi um ára- mótin. Eftir hækkun mun rúmmeter- inn af heitu vatni kosta 20 krónur en kostaði áður 17 krónur. Að sögn Sigurjóns Péturssonar borg- arfulltrúa er hækkun á rafmagni tilkomin vegna hækkunar Lands- virkjunar 'á rafmagni til Raf- magnsveitu Reykjavíkur. -gg Ragnar Aðalsteinssn hrl. lýsti því yfir fyrir iðnaðarnefnd neðri deildar á dögunum að slík- ur samningur sem ríkisstjórnin hefur gert og ætlar að keyra í gegn á alþingi um einhliða verð- ákvörðun Alusuisse á rafskautum til Álversins þar sem rafskauta- verðið er undanskilið öllum endurskoðunarákvæðum . hafi ekki verið óþekktur fyrir 20 - 25 árum í milli fjölþjóðafyrirtækja og ríkisstjórna en ætíð vakið deilur og ætti nú að heyra sögunni til. Þessar upplýsingar koma fram í nefndaráliti Hjörleifs Gutt- ormssonar um álsamninginn sem lagt var fram á alþingi í gær. Hjörleifur vísaði til þess í ræðu sinni að Gunnar G. Schram einn af þremur aðalsamningamönnum ríkisstjórnarinnar í álmálinu hefði lýst því yfir á þingi á dögun- um að samningurinn um raf- skautaverðið til ísal væri ekkert leyndarmál. Þeir samningar væru opinbert plagg. Albert Guð- mundsson hefði hins vegar lýst {iví yfir að verð á hráefnum til sals væri viðskiptaleyndarmál. Þá sagðist Hjörleifur hafa óskað eftir að sjá samningana í iðnaðar- nefnd en Gunnar G. Schram þá lýst þvf yfir að þetta opinbera plagg væri aðeins á lausu fyrir trúnaðarmenn þ.e. endurskoð- endur ríkisstjórnarinnar. Öll stjórnarandstaðan lýsti sig andvíga þessum nýja samningi. Guðmundur Einarsson fyrir hönd BJ, Guðrún Agnarsdóttir fyrir kvennalistann og Kjartan Jóhannsson fyrir Alþýðuflokk- inn. -•g- Guðmundur Daníelsson tolftona^^ n Régine Deforges Stúlkan á bláa hjólinu Árið er 1939. Lea Delmas er sautján ára heimasæta á óðalsjörðinni Montillac í hjarta vínræktarhéraðs í nágrenni Bordeaux. Húner falleg, lífsglöðogáhyggju- laus og vefur karlmönnun- um um fingur sér. Hún hefur þegar ákveðið hvern hún vill. I undirbúningi er mikill dansleikur... Stríðið skellur á og fyrr en varir kasta örlögin Leu út í hringiðu þess. Hún lendir í straumi flóttamanna undir stöðugu kúlnaregni og kemst í návígi við dauðann og hernám Þjóðverja. Brátt verður hún þekkt sem Stúlkan á biáa hjólinu, mikilvægur sendiboði á milli hins hernumda og hins frjálsa hluta Frakklands. Hættur, ábyrgð og sorgir þroska þessa villtu og líísglöðu stúlku en temja hana ekki... Régine Deforges mun konia og kynna bók sína og árita í bókaverslunum í vikulokin. Bókin er 360 bls. Þýðandi er séra Dalla Þórðardóttir. ÍSAFOLD Tólftónafuglinn snýst um atburði í sjávarþorpinu Skerveri. Eins og mörg önnur þorp á Skerver sér glæsilega fortíð en óvissa framtíð. Þaðan eru margir helstu framámenn þjóðar- innar, jafnt athafnamenn sem listamenn, allir löngu burtfluttir en Skerverjar engu að síður. Heima í Skerveri undir- búa menn hátíðarhöld ítil- efni af aldarafmæli barna- skóla þorpsins. Mikils er vænst af hinum miklu sonum Skervers, og það kemur líka á daginn: í afmælishófi eru gefin hástemmd loforð um uppbyggingu þorpsins með hafskipaþryggju og tilheyr- andi. Þegar aímælisvíman rennur af mönnum er efnd- anna beðið. Löngu síðar rís Tólftónafuglinn, minnisvarði um einn af sonunum. Bókin er gefin út á 75 ára afmæli og 50 ára rithöfundar- afmæli Guðmundar Daníelssonar. Bókin er 182 bls. 9SAFOLD Jt Ætti að heyra sögunni til

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.