Þjóðviljinn - 04.02.1986, Page 1
Handbolti
Handbolti
Einar líklega
í uppskurð
Leikur með spelku á ökkla. Tvísýnt með
Óttar, Bjarni og Þorbjörn meiddust um
helgina
„Það eru nokkrar líkur á að ég
þurfi að gangast undir uppskurð
eftir A-keppnina. Ég hef ekki náð
mér nógu vel eftir meiðslin sem ég
varð fyrir í upphituninni fyrir
Spánarleikinn í desember og spila
nú með spclku á ökklanum. Það
háir mér þó lítið sem ekkert,“
sagði Einar Þorvarðarson lands-
liðsmarkvörður í handknattleik í
samtali við Þjóðviljann.
Nokkrir landsliðsmannanna
eiga við meiðsli að stríða. Verst
horfir með Þorgils Óttar Mathie-
sen. Krossband í hné er slitið og
hann gat ekkert leikið á Flug-
leiðamótinu, hoppaði um á hækj-
um. „Ég ætla að láta reyna á þetta
á fimmtudaginn, það er mögu-
leiki á að ég geti spilað með sér-
stakri spelku við hnéð,“ sagði
Þorgils Óttar.
Bjarni Guðmundsson meiddist
á hné í leiknum við Frakka á
föstudagskvöldið en telur að það
jafni sig á einni viku. Þorbjörn
Jensson fyrirliði varð að yfirgefa
völlinn seint í leiknum við Pól-
verja með svipuð meiðsli sem
ættu að hverfa í tæka tíð.
„Þessi meiðsli eru mínus fyrir
okkur en það hefur sýnt sig að
maður kemur í manns stað. Ég tel
ástæðuna fyrir þessu vera þá að
leikmennirnir æfa lítið að sumar-
lagi. Með 4-6 vikna æfingum að
sumri til yrði meiðslahættan
minnkuð til muna," sagði Bog-
dan Kowalczyck landsliðsþjálf-
ari.
—-VS
Handbolti
Tékkar
sterkir
Frá Jóni H. Garðarssyni frétta-
manni Þjóðviljans í V.Þýska-
landi:
Tékkneska landsliðið í hand-
knattleik sýndi styrk sinn um
helgina með því að sigra Vestur-
Þjóðverja tvívegis í þremur
landsleikjum hér í landi. Þeir
unnu 19-17 og 26-21 en V.Þjóð-
verjum tókst að vinna miðju-
leikinn 17-15. Lið Vestur-
Þjóðverja olli miklum vonbrigð-
um í ieikjunum. Tékkar leika í
riðli með Islandi í A-keppninni í
Sviss einsog kunnugt er.
Robson
Heill fljótt
Bryan Robson, fyrirliði Man
Utd og enska landsliðsins i knatt-
spyrnu, sagðist í gær reikna með
að verða búinn að ná sér af
meiðslum sínum síðar í þessum
mánuði. Hann þarf nú að afplána
tveggja leikja bann og segist viss
um að geta leikið á ný að því
loknu. Hann meiddist á ökkla í
leik Man.Utd og West Ham á
sunnudaginn.
—VS/Reuter
England
Jafntefli
Watford og Manchester City
skildu jöfn, 0-0, í 4. umferð ensku
bikarkeppninnar í knattspyrnu í
gærkvöldi, eftir framlengingu.
Liðin þurfa því að leika í þriðja |
sinn um sæti í 5. umferðinni.
—VS/Reuter |
Þorbjörn Jensson fyrirliði íslenska landsliðsins í handknattleik lyftir
Flugleiðabikarnum, sigurlaununum í alþjóðlega mótinu sem lauk í
Laugardalshöllinni á sunnudagskvöldið. Nánar á bls. 10-11. Mynd:
E.ÓI.
B-liðið for létt
með Kanana
B-landslið íslands fór tiltölu-
lega létt með A-Iandslið Banda-
I ríkjamanna í Laugardalshöllinni
Ísland-Pólland
Islensk mistök af
öllum tegundum
Skellur gegn Pólverjum ígœrkvöldi, 16-24. Ákveðnir
Pólverjar yfir frá fyrstu mínútu og hefndu tapsins
frá kvöldinu áður
í annað skiptið á þremur
dögum datt leikur íslenska lands-
liðsins niður á lægsta plan. Gegn
Bandaríkjamönnum á laugardag-
inn kom það ekki að sök en gegn
Pólverjum í gærkvöldi þýddi lítið
að sýna samskonar tilþrif. Pól-
verjar komu fram hefndum fyrir
tapið í úrslitaleik Flugleiðamóts-
ins og unnu stórsigur, 24-16, í
Laugardalshöllinni.
Það sat greinilega talsverð
þreyta í mörgum íslensku leik-
mannanna og það var sérstaklega
áberandi þegar á leið. Fjórði
leikurinn á fjórum dögum — en
slíkt var ekki að sjá á Pólverjun-
um sem léku af krafti og ákveðni
allan tímann. Úthaldið er greini-
lega betra á þeim bæ. Islensku
leikmennirnir gerðu sig seka um
mistök af öllum tegundum, vörn-
in var oft illa úti á þekju, sóknar-
leikurinn var stirður og hug-
myndasnauður gegn framstæðri
pólsku vörninni og hraðaupph-
laupin gengu illa. Markvarslan
var slök nema hvað Einar Þor-
varðarson átti ágætan kafla í fyrri
hálfleik.
Það er skemmst frá því að segj a
að Pólverjar tóku forystu eftir 25
sekúndna leik og létu hana ekki
af hendi eftir það. Eins marks
munur af og til, t.d. 8-9 undir lok
fyrri hálfleiks en staðan var 8-11 í
hálfleik. ísland lagaði stöðuna í
10-11 en það voru síðustu bata-
merkin. Tvö íslensk vítaköst fóru
forgörðum á fyrstu 8 mínútunum
og þegar það þriðja var ekki nýtt í
stöðunni 11-15 var ljóst að ísland
átti ekki afturkvæmt í þessum
leik. Pólverjar komust í 12-18 og
síðan stóð 15-20. Þá komu fjögur
pólsk mörk, 15-24, og leikur ís-
lenska liðsins endanlega hruninn
til grunna. Steinar Birgisson átti
svo lokaorðið á síðustu mínút-
unni, 16-24.
Það er erfitt að hrósa nokkrum
manni og allir leikmenn íslenska
liðsins léku undir getu. Helst var
að Sigurður Gunnarsson sýndi
góð tilþrif, hann var einn um að
ógna verulegafyrirutan. Kristján
Arason skoraði t.d. fjögur af sín-
um fimm mörkum úr hraðaupph-
laupum.
Pólverjarnir sýndu góða bar-
áttu og stórskyttan Wenta og
hornamaðurinn Konitz voru ís-
lensku vörninni erfiðir. Mörg
marka Pólverja voru falleg og vel
að þeim staðið en mörg voru líka
af ódýrara taginu. En pólska liðið
er ekki það sterkt að það sé lík-
legt til mikiila afreka í Sviss.
Mörk íslands: Kristján Arason 5, Sig-
uröur Gunnarsson 3, Páll Ólafsson 3(2v),
Bjarni Guömundsson 2, Atli Hilmarsson 1,
Steinar Birgisson 1 og Þorbjörn Jensson 1.
Mörk Póllands: Wenta 6, Konitz 6, Po-
bert 4, Dzuba 3, Piechoc 3, Fiedorow 1 og
Urtoanowitz 1.
Óli Ólsen og Gunnlaugur Hjálmarsson
dæmdu og voru helst til of þjóðhollir á
stundum. _yg
í gærkvöldi. Islenska liðið lék af
ákveðni, enda verið að berjast
um sæti í HM-liðinu, og sigraði
22-16.
Fyrri hálfleikur var jafn en ís-
land náði að komast í 12-9 fyrir
hlé. Tvö fyrstu mörk seinni hálf-
leiks voru íslensk og eftir það var
aðeins spurning um hve sigurinn
yrði stór.
Mörkin gerðu Júlíus Jónasson
6(2v), Jón Árni Rúnarsson 4,
Hermundur Sigmundsson 3(lv),
Valdimar Grímsson 3, Egill Jó-
hannesson 3, Gylfi Birgisson 2 og
Sigurjón Guðmundsson 1. Auk
þeirra skipuðu B-liðið þeir Ellert
Vigfússon, Kristján Sigmunds-
son, Snorri Leifsson, Ingólfur
Steingrímsson og Stefán
Steinsen.
—VS
Skíði
Muller
sigraði
Svisslendingurinn Peter Muller
sigraði í stórsvigi karla í
heimsbikarnum Crans-Montana í
Sviss í gær. Pirmin Zurbriggen,
landi hans, varð annar og Mark-
us Wasmaier frá V.Þýskalandi
þriðji.
Rok Petrovic frá Júgóslavíu
sigraði í svigi í Wengen í Sviss á
sunnudag. Didier Bouvet frá
Frakklandi varð annar og Bojan
Krizaj frá Júgóslavíu þriðji.
—VS/Reuter
UMSJÓN: VfÐIR SIGURÐSSON
Þriftjudagur 4. febrúar 1986; ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 9