Þjóðviljinn - 04.02.1986, Qupperneq 2
ÍÞRÓTTIR
ÍÞRÓTTIR
I
Vestur-Pýskaland
r
Asgeir í fínu
langþráðum
formi
útisigri
Lagði upp annað markið. Atli skoraði ísigri Uerdingen.
Meistaraheppnin með Bremen íHamborg. Höness ílandsliðið?
Frá Jóni H. Garðarssyni frétta-.
manni Þjóðviljans í V.Þýskalandi:
Ásgeir Sigurvinsson lék mjög
vel þegar Stuttgart vann sinn
fyrsta útisigur í Fimm mánuði, 2-1
í Schalke á laugardaginn. Hann
fékk 2 í einkunn í öllum blöðum
og hlaut mikið hrós í útvarpi og
sjónvarpi fyrir leik sinn. Hann
skyggði alveg á ungu stjörnuna
hjá Schalke, Olaf Thon, sem náði
sér ekki á strik.
Stuttgart beitti aðallega
skæðum skyndisóknum og þar
nutu langar sendingar Ásgeirs sín
vel. Ekkert var skorað fyrr en
Pasic kom Stuttgart yfir eftir ein-
leik á 53.mínútu. Sex mín. síðar
átti Ásgeir glæsisendingu á
Skíði
Walliser á
toppinn
Maria Walliscr frá Sviss tók
um helgina forystuna í stiga-
keppni kvenna í heimsbikarnum.
Hún varð fjórða og önnur á
tveimur brunmótum sem fram
fóru í Crans-Montana í Sviss á
laugardag og sunnudag og hefur
nú 184 stig. Erika Hess er með
176 stig og þriðja svissneska
stúlkan, Vreni Schneider, er
þriðja með 170 stig. Hún varð
þriðja á sunnudaginn.
Það var Laurie Graham frá
Kanada sem sigraði í bruninu á
laugardag, Brigitte Oertli frá
Sviss varð önnur og Karen Gut-
ensohn frá Austurríki þriðja. Á
sunnudag bar síðan Gutensohn
sigur úr býtum, Walliser varð
önnur og Zoe Haas frá Sviss
þriðja.
—VS/Reuter
Seljaskóli 2. feb.
Valur-ÍBK 76-77 (34—44)
12-25, 20-29, 28-36, 34-44, 45-55,
59-69, 66-71,72-72, 76-76, 76-77.
Stig Vals: Torfi Magnússon 21,
Sturla Örlygsson 16, Krislján Ágústs-
son 11, Leifur Gústafsson 8, Jón
Steingrímsson 6, Tómas Holton 4,
Einar Ólafsson 3, Páll Arnar 3, Jó-
hannes Magnússon 2 og Björn Zoega
2.
Stig ÍBK: Hreinn Þorkelsson 20,
Guöjón Skúlason 12,Sigurður Ingi-
mundarson 11, Ólafur Gottskálksson
10, Ingólfur Haraldsson 10, Jón Kr.
Gíslason 9, Hrannar Hólm 4 og Magn-
ús Guðfinnsson 1.
Dómarar: Kristbjörn Albertsson og
Jóhann Dagur - sæmilegir.
Maður leiksins: Torfi Magnússon,
Val.
Staðan
i úrvalsdeildinni í körfuknattleik
UMFN...........17 14 3 1463-1347 28
Haukar.........17 13 4 1441-1367 26
Valur......... 17 8 9 1349-1333 16
ÍBK............17 8 9 1330-1353 16
KR.............17 5 12 1336-1433 10
ÍR........... 17 3 14 1370-1452 6
Stigahæstir:
Valurlngimundarson, UMFN...........435
PálmarSigurðsson, Haukum...........403
Birgir Mikaelsson, KR..............334
RagnarTorfason, ÍR.................318
Jón Kr. Gíslason, (BK..............299
Allgöwer sem skoraði, 0-2. Atta
mínútum fyrir leikslok skoraði
Kleppinger fyrir Schalke, 1-2, og
það sem eftir var sótti heimaliðið
látlaust — Jager markvörður
Stuttgart bjargaði þá liði sínu
með því að verja þrívegis á glæsi-
legan hátt.
Atli Eðvaldsson og Lárus Guð-
mundsson léku vel þegar Uer-
dingen vann Bochum 3-2. Uer-
dingen lék einsog bikarmeistur-
um sæmir í fyrri hálfleik og komst
í 3-0. Dangen og Bommer
skoruðu fyrst og síðan skallaði
Atli í mark Bochum eftir horn-
spyrnu Bommers. En gamla
brýnið Klaus Fischer skoraði tví-
vegis fyrir Bochum í upphafi
seinni hálfleiks, 3-2, og Uerding-
en mátti síðan teljast heppið að
halda báðum stigunum. Atli lék
allan leikinn á miðjunni og Lárus
framá 71. mínútu í framlínu Uer-
dingen. Þeir fengu á víxl 3 eða 4 í
einkunnir í blöðunum.
Úrslit í Bundesligunni á laugardaginn:
Hannover-Bayern Munchen..........0-5
HamburgerSV-WerderBremen.........0-1
Nornberg-Dortmund................0-0
Dusseldorf-Kaiserslautern........0-0
Mannheim-Frankfurl...............0-0
Uerdingen-Bochum.................3-2
Schalke-Stuttgart................1-2
Saarbrucken-Gladbach.............1-3
Köln-Leverkusen..................2-3
Bremen vann stórleikinn í
Hamborg og sótti tvö stig þangað
í fyrsta sinn í 10 ár. Meistara-
heppnin var svo sannarlega með
liðinu og það var gamla kempan
Manny Burgsmuller sem skoraði
sigurmarkið með skalla á
56.mínútu, 0-1. Burdenski átti
stórleik í marki Bremen og sá til
þess að liðið hlyti stigin tvö.
Bayern vann stórsigur í Hann-
over, 5-0, og heimamenn báru
þar alltof mikla virðingu fyrir
meisturunum. Höness skoraði 2
mörk og menn ræða nú í alvöru
hvort þessi 33 ára gamli marka-
skorari eigi ekki fullt erindi í
landsliðið. Rummenigge, Matt-
haus og Wohlfarth sáu um hin
mörkin.
Mönchengiadbach varð fyrst
liða í vetur til að sigrá í Saar-
brucken. Mill var í hörkuformi,
lagði upp tvö mörk og skoraði eitt
í 3-1 sigrinum. Kölri komst í 2-0
gegn Leverkusen, sem síðan
svaraði þrívegis. Hinir eldfljótu
Cha, Waas og Zeichel skoruðu
fyrir hið unga lið Leverkusen sem
án efa er fljótasta lið deildarinn-
ar.
Staða efstu liða:
Bayern ....21 13 3 5 45-23 29
Gladbach ....21 11 7 3 48-30 29
Leverkusen... ....21 10 6 5 45-31 26
Hamburger... ....21 11 3 7 34-21 25
Uerdingen 21 9 5 7 33-47 23
Mannheim.... ....20 8 5 7 30-25 21
Stuttgart ...21 8 5 8 33-34 21
Borðtennis
ísland í
fjórða
sætinu
íslenska landsliðið í borðtennis
hafnaði í fjórða sæti 3.deildar
Evrópukeppninnar sem fram fór
á Ermarsundseynni Guernsey á
föstudag og laugardag.
Island vann Mön 4-3 og San
Marino 7-0 en tapaði 3-4 fyrir
Möltu, 3-4 fyrir Guernsey og 1-6
fyrir Jersey.
—VS
Urvalsdeildin
ÍR stóð í Haukum
IBK alltafyfir en vann naumlega
Valsmenn voru hársbreidd frá
sigri yfir Keflavík á sunnudaginn.
Keflvíkingar sigruðu 76-77, en
boltinn fór hvað eftir annað í
körfuhring Keflvíkinga á loka-
sekúndunum án þess að fara ofan
í. Staðan í hálfleik var 34-44 Kefl-
avík í hag.
Valsmenn voru hreint ótrúlega
nálægt sigri þó þeir hafi aldrei
komist yfir. Þeir náðu að jafna
rétt undir lok leiksins, eftir að
ÍBK hafði verið yfir allan leikinn.
ÍBK skoraði sigurkörfuna 25 sek-
úndum fyrir leikslok og sá tími
nægði Valsmönnum ekki til að
skora. Bestir í liði Vals voru þeir
Torfi og Sturla sem börðust báðir
mjög vel, Torfi aðalmaðurinn í
Valsvörninni og lék á als oddi í
síðari hálfleik. Þá var Kristján
góður á lokamínútunum.
Keflvíkingar léku mjög vel
framan af og náðu góðu forskoti,
en Valsmenn settu mikla pressu á
þá á lokamínútunum og ekki er
hægt að segja annað en að
Keflvíkingar hafi haft heppnina
með sér.
Bestir í liði ÍBK voru þeir
Hreinn, Ólafur og Jón Kr. sem
léku allir mjög vel. Guðjón átti
sæmilegan leik einkum þó loka-
mínúturnar.
Með þessum sigri eru
Keflvíkingar nær öruggir með
sæti í úrslitakeppninni.
logi.
Úrvalsdeildin
Munaði hársbreidd
Haukar unnuþó sinn 8. leik íröð og náðulOO stigum3ja
leikinn í röð
Það er ekki hægt að segja ann-
að en að leikur IR og Hauka í
úrvalsdeildinni hafí verið jafn og
spennandi. Það réðist ekki fyrr en
á iokamínútunni, hvert sigurinn
færi og var ekki að sjá að annað
liðið væri í fallbaráttunni.
Leiknum lauk mcð sigri Hauka
96-101. Staðan í hálfleik var 50-
49 ÍR í hag.
Haukar eru í banastuði um
þessar mundir og kom það satt að
segja nokkuð á óvart hve ÍR-
ingar voru nálægt sigri. Eftir að
hafa verið yfir lengst af í fyrri
hálfleik, töpuðu þeir niður for-
skotinu og voru nær allan síðari
hálfleik undir. Þó er ekki hægt að
segja annað en að ÍR liðið hafi
leikið vel, þeir Ragnar, Björn og
Karl léku allir mjög vel og
skoruðu allir yfir 20 stig. íR-ingar
eru sem fyrr í neðsta sæti en eiga
enn möguleika á að halda sér
uppi.
Sigurinn á laugardaginn var 8.
sigur Hauka í röð og þriðji leikur-
inn í röð sem þeir fara yfir hundr-
að stig. Liðið er í mjög góðu
formi þessa dagana og hefur leik-
ið mjög vel í síðustu leikjum.
Bestir í liði Hauka voru þeir We-
bster og Pálmar. Webster virðist
vera í hreint ótrúlegri framför og
þeir Henning og Ólafur verða
betri með hverjum leiknum sem
líður. logi.
Seljaskóli 1. feb.
ÍR—Haukar 96—101(50-49)
22-24, 36-36, 48-37, 50-49, 58-
53, 65-73, 83-84, 92-99, 96-101.
Stig ÍR: Ragnar Torfason 24, Karl
Guðlaugsson 21, Björn Steflensen 20,
Jón Örn Guðmundsson 8, Vignir Hilm-
arsson 8, Jóhannes Sveinsson 7,
Hjörtur Oddsson 4 og Björn Leósson
4.
Stig Hauka: Pálmar Sigurðsson 31,
Ivar Webster 29, Ólafur Rafnsson 17,
Henning Henningsson 13, Eyþór
Árnason 6, Ivar Ásgrimsson 4 og Krist-
inn Kristinsson 1.
Dómarar: Jóhann Dagur og Ómar
Scheving - sæmilegir.
Maður leiksins: Pálmar Sigurðs-
son, Haukum.
10 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Þriðjudagur 4. febrúar 1986
Kristján Arason varð markahæsti
leikmaður Flugleiðamótsins og hér
skorar hann í úrslitaleiknum gegn
Pólverjum í fyrrakvöld. Bogdan
Wenta, besti leikmaður mótsins, er
númer 4. Mynd: E.ÓI.
Ísland-Pólland
Flugleiðabikarinn
flaug ekki úr landi
Island sigraði Pólverja með góðum endaspretti og vann alla sína leiki á mótinu
Flugleiðabikarinn fór ekki úr landi
— íslensku landsliðsstrákarnir sáu til
þess í fyrrakvöld með því að sigra Pól-
verja 22-19 í úrsiitaleiknum. Pólverj-
um dugði jafntefli til sigurs á mótinu
og lengi vel virtust miklar líkur á að
svo yrði. En með frábærum sex mín-
útna kafla gerði ísland fímm mörk í
röð og náði fjögurra marka forskoti.
Það reyndist Pólverjum of þungur
baggi þótt þeir næðu að klóra í bakk-
ann í lokin. Fyrsti sigur íslands á Pól-
landi í síðustu 16 viðureignum þjóð-
anna var staðreynd, og jafnframt
fyrsti sigur Bogdans Kowalczycks
þjálfara á heimaþjóð sinni.
Fyrri hálfleikur var hnífjafn, ísland
oftast þó marki yfir, en síðan náðist
þriggja marka forskot, 9-6. Það hvarf
á fimm mínútum, Pólland náði að
jafna 9-9. „Við misstum þetta alltof
fljótt niður, með of miklum hraða.
Þarna áttum við að hægja á ferðinni
og leika yfirvegað,“ sagði Atli Hilm-
arsson eftir leikinn.
Pólland komst yfir, 10-11, en Sig-
urður Gunnarsson braust í gegnum
pólsku vörnina og jafnaði, 11-11,
nokkrum sekúndum fyrir hlé.
Tvö fyrstu mörk seinni hálfleiks
voru íslensk en Pólland jafnaði strax
og komst síðan yfir, 14-15 og 15-16. Þá
kom kaflinn umræddi. Pólverjar
höfðu freistað þess að koma vel út á
móti íslensku skyttunum en það kom
þeim í koll. Atli og Kristján Arason
rifu sig innúr hægra horninu, 17-16, og
í kjölfarið fylgdu hörkumörk frá Sig-
urði, Atla og Páli Ólafssyni, 20-16.
„Við héldum þessu með góðri ein-
beitingu, létum ekki það sama henda
og fyrr í leiknum,“ sagði Sigurður
Gunnarsson.
Pólverjar gáfust ekki upp og
minnkuðu muninn í 20-18 þegar enn
lifðu 6 mínútur af leiknum, og síðan
stóða 21-19 framá næst síðustu mín-
útu. Þá nældi Sigurður í vítakast sem
Kristján skoraði úr af öryggi, 22-19,
og þar með var sigurinn í höfn.
Þetta var nokkuð sveiflukenndur
leikur hjá íslenska liðinu. Talsvert var
um mistök á köflum, hjá báðum lið-
um, enda hraðinn oft mikill. Varnar-
leikurinn var mjög góður, einkum
eftir því sem á leið. Einar Þorvarðar-
son var lengi að ná sér á strik í markinu
en varði síðan af snilld þegar mest lá
við. Atli var sem fyrr óhemju virkur
og það er gaman að sjá hve vel honum
hefur tekist að bæta varnarleik sinn.
„Samt leik ég aðra stöðu í vörninni hjá
Gunzburg en með landsliðinu," sagði
Atli. Sigurður var mistækur framanaf,
eins og í mótinu í heild, en lék síðan
stórt hlutverk. Guðmundur Guð-
mundsson var kraftmikill að vanda,
það er aldrei neitt hálfkák þegar hann
brýst í gegn. Sóknarleikurinn gekk
þokkalega, var nokkuð sveiflukenn-
dur en frábær á köflum.
Pólska liðið lék svipað og við var að
búast. Sterkur varnarleikur og
kraftmiklar skyttur, Dzuba var sér-
staklega erfiður íslensku vörninni
ásamt línumanninum Urbanowicz
enda gerðu þeir lungann af mörkum
Póllands. Þávar markvörðurinn Szuk-
arski íslensku sóknarmönnunum erf-
iður ljár í þúfu í fyrri hálfleik, varði þá
12 skot. „Pólverjar leika alltaf svipað-
an handknattleik og þeir er mjög líkir
Tékkum sem við mætum f Sviss,“
sagði Sigurður.
En hversu mikilvægur er þessi
sigur? „Það er alltaf gott að lenda í
cfsta sæti og ég er ánægður með út-
komuna. Það er Ijóst að við eigum
alltaf einn slakan leik í hverri keppni,
einsog gegn Bandarikjamönnum nú,
en í heild hefur þetta mikið að segja
fyrir liðið,“ sagði Bogdan Kowalczyck
þjálfari. „Svona sigur er mikilvægur
og nú er ég bjartsýnn á framhaldið hjá
okkur. Við leggjum allt okkar í þetta
verkefni sem framundan er og ég bíð
spenntur eftir því að komast til Sviss,“
sagði Atli Hilmarsson, jafnbesti leik-
maður íslenska liðsins í mótinu. „Það
er ánægjulegt að uppskera þetta eftir
allt erfiðið, þetta er mjög mikilvægur
sigur fyrir okkur, andlega séð,“ sagði
Sigurður Gunnarsson.
Mörk íslands: Siguröur Gunnarsson 6(1v),
Kristján Arason 6(5v), Atli Hilmarsson 4, Guð-
mundur Guömundsson 3, Páll Ólafsson 2 og
Bjarni Guðmundsson 1.
Mörk Póllands: Dzuba 9(4v), Urbanowicz 4,
Wanta 2, Skalski 1, Konitz 1, Mientus 1 og Rzew-
uski 1.
Austur-þýsku dómararnir skiluðu
sínum hlutverkum nokkuð vel eins og
í hinum tveimur leikjum fslands. Þeir
dæma í Sviss, jafnvel í riðli íslands,
svo koma þeirra hingað gæti reynst
íslenska liðinu mikilvæg.
—VS
Ísland-Bandaríkin
Slakur leikur
íslenska liðsins
Stóðum okkur illa í vörninni, sagði Þor-
björn
„Þetta er ástæðan fyrir því að
það er svona spennandi að fylgj-
ast með íslenska landsliðinu,
maður veit aldrei á hverju maður
á von!“ lét kunnur handknatt-
leiksáhugamaður útúr sér á leik
Islands og Bandarikjanna á
laugardaginn. Nokkuð til í þessu,
eftir flugeldasýninguna gcgn
Frökkum á föstudagskvöldið áttu
flestir von á því að Bandaríkja-
mönnum yrði rúllað upp á svip-
aðan hátt. En þess í stað var sigur
íslands í naumara lagi, 27-24, og
voru tilþrifin einhver þau alslök-
ustu sem sést hafa hjá íslenska
landsliðinu hér heima um árabil.
Það tók íslenska liðið 15 mínút-
ur að ná forystu en eftir að staðan
varð 11-9 í hléi og 12-9 í byrjun
seinni hálfleiks leit út fyrir að lá-
deyðunni væri lokið. Ekki aldeil-
is, Kanarnir jöfnuðu 13-13 og þó
ísland kæmist í 24-20 seint í
leiknum gerði það lítið til að ylja
áhorfendum. Mörk Atla Hilm-
arssonar urðu helst til að vekja
fögnuð, svo og markvarsla Ell-
erts Vigfússonar sem stóð sig vel
fyrir aftan hripleka vörn.
„Ég á erfítt með að átta mig á
ástæðunni fyrir þessum slaka
Ieik,“ sagði Þorbjörn Jensson fyr-
irliði í samtali við Þjóðviljann
eftir leikinn. „Stemmningin fyrir
lcikinn var góð en svo gerðum við
tóma vitleysu. Menn virtust helst
vera að spara sig fyrir Pólverja-
leikinn þó ég eigi erfítt með að
trúa því. Kanarnir léku reyndar
góða vörn, eru mjög hreyfanlegir
og hafa greinilega góðan grunn
þar úr körfuboltanum. En við
stóðum okkur illa í vörninni og
náðum því ekki hraðaupphiaup-
unum sem hefði þurft til að keyra
þá í kaf,“ sagði Þorbjörn.
i
Mörk Islands: Atli Hilmarsson 7, Páll
Ólatsson 6, Kristján Arason 6(2v), Guö-
mundur Guömundsson 3, Siguröur Gunn-
arsson 2, Bjarni Guðmundsson 2 og
Steinar Birgisson 1.
Mörk Bandarikjanna: Goli 8(1 v), Story
7(2v), Buehning 3, Schneeberger 3, Paris
2 og Oleksyk 1.
—vs
Páll Ólafsson skoraði 6 mörk gegn Bandaríkjamönnum á laugardaginn og
hér er eitt þeirra í uppsiglingu. Mynd: eik.
Bogdan Wenta frá Póllandi, besti
leikmaður Flugleiðamótsins.
Flugleiðamótið
Wenta
bestur
Einar varði best og
Kristján skoraði mest
Pólska stórskyttan Bogdan Wenta
var útnefnd besti leikmaður Flug-
leiðamótsins í handknattleik. Wenta
(nr.4) var mjög atkvæðamikill í
leikjum Pólverja og skoraði mörg
glæsileg mörk.
Einar Þorvarðarson var kjörinn
besti markvörður mótsins.
Kristján Arason var markahæsti
leikmaður mótsins, skoraði 22 mörk,
þaraf 11 úr vítaköstuni þar sem hann
sýndi mikið öryggi.
-logi
Úrslit leikja á Flugleiðamótinu
urðu þessi:
Pólland-Bandaríkin.................25-17
Island-Frakkland...................34-25
Pólland-Frakkland..................26-20
(sland-Bandaríkin..................27-24
Frakkland-Bandaríkin...............25-23
Island-Pólland.....................22-19
Lokastaðan varð þessi:
Island.................3 3 0 0 83-68 6
Pólland................3 2 0 1 70-59 4
Frakkland ............3 1 0 2 70-83 2
Bandaríkin.............3 0 0 3 64-77 0
Þriðjudagur 4. febrúar 1986 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 11