Þjóðviljinn - 05.02.1986, Side 5
ÞJOÐMAL
Spurt
um...
Þungir á brún hlýða þeir Skúli Alexandersson, Helgi Seljan og Svavar Gestsson á útskýringar Jóns Helgasonar um
leiguna á Gæslu-fokkernum. Ljósm. Eöl. . r i i
uœslu-fokkerinn
Menn leigja ekki hjarta-
bílinn til skemmtiferða
Skúli Alexandersson: Vélin verðurað vera tilstaðar
hvenœr sem þörf krefur
... útflutning
á ferskum fiski
Sighvatur Björgvinsson og
Helgi Seljan spyrja sjávarútvegs-
ráðherra hvort hann sé reiðubú-
inn til að beita sér fyrir því að
komið verði í veg fyrir að einstök
veiðiskip selji meiri hluta fiskafla
síns ferskan til útlanda.
...vanskil korthafa
Guðmundur Einarsson spyr
viðskiptaráðherra hversu mikil
vanskil korthafa hjá greiðslu-
kortafyrirtækjum hafi verið um
síðustu áramót. Hann óskar
skriflegs svars.
... lektorsstöðu í
bókmenntum
Sigríður Dúna Kristmunds-
dóttir spyr menntamálaráðherra
hvort hann telji ráðningu í stöðu
lektors í íslenskum bókmenntum
við heimspekideild HÍ 27. des-
ember s.l. vera í samræmi við
ákvæði laga um jafna stöðu og
jafnan rétt kvenna og karla.
... erlendar skuldir
Guðrún Helgadóttir spyr fjár-
málaráðherra hver greiðslubyrð-
in af erlendum skuldum hafi ver-
ið 1985 og hversu há prósentutala
af útflutningstekjum þjóðarinn-
ar. Til samanburðar óskar Guð-
rún eftir sömu upplýsingum um
árin 1979-1984.
... lausar stöður emb-
ættismanna
Kristín S. Kvaran spyr fjár-
málaráðherra hvort lagaá-
kvæðum varðandi auglýsingar
um lausar stöður hjá ríkinu hafi
verið stranglega framfylgt. Hún
spyr hvort veitt hafi verið emb-
ætti s.l. 4 ár án þess að svo sé og
hver sé skýringin.
... menningarstefnu
Helgi Seljan og Guðrún Helga-
dóttir spyrja menntamálaráð-
herra hvort hann hyggist beita sér
fyrir vinnu að ákveðinni stefnu-
mörkun í menningarmálum í
samráði við helstu aðila um
menningarstefnu.
... opinberar fram-
kvæmdir
Hjörleifur Guttormsson spyr
fjármálaráðherra hvert hafi verið
raungildi ríkisframlaga á árunum
1982-1986 til byggingar mennta-
og fjölbrautaskóla, héraðsskóla,
grunnskóla og íbúða fyrir skóla-
stjóra, dagvistarheimila, íþrótt-
amannvirkja, sjúkrahúsa, heilsu-
gæslustöðva og læknisbústaða,
hafnarmannvirkja og lendingar-
bóta og loks til framkvæmda á
flugvöllum.
... mengunarvarnir
Helgi Seljan spyr fjármálaráð-
herra hvernig ríkisstjórnin hygg-
ist beita sér fyrir útvegun fjár-
magns til mengunarvarna í fiski-
mjölsverksmiðjum í framhaldi af
ákveðnum tilmælum meirihluta
fjárhags- og viðskiptanefndar um
nauðsyn á útvegun lánsfjár til
þessa verkefnis.
Skúli Alexandersson tók fyrir-
hugaða leigu á Fokkervél Land-
helgisgæslunnar til Flugleiða upp
utan dagskrár á alþingi í gær og
skoraði á Jón Helgason
dómsmálaráðherra að hverfa frá
þeirri fyrirætlan sinni. Fjölmarg-
ir þingmenn tóku undir varnað-
arorð Skúla, þeirra á meðal Kar-
vel Pálmason, sem eins og Helgi
Seljan benti á, þekkir nytsemi
TF-SYN af eigin raun en hún
flutti hann helsjúkan til London í
haust. Jón Helgason bar því við
að leiguféð væri Gæslunni
nauðsynlegt til að hægt væri að
skipta á litlu Gæsluþyrlunni fyrir
aðra nýrri og betri.
Skúli vitnaði í bréf Farmanna-
og fiskimannasambands íslands
þar sem varað er við þessum
leigusamningi og sagði að þetta
öryggis- og björgunartæki yrði að
vera til staðar ef eitthvað brygði
út af. Hann spurði ráðherra um
hvernig þetta mál stæði og hvaða
ástæður væru fyrir þessari ráða-
breytni hans. Jón Helgason sagði
að náðst hefði samkomulag um
að leigja Flugleiðum vélina frá 1.
júní til 15. september í sumar, 3
daga í viku hverri eða um 50
flugtíma á mánuði. Ástæðan væri
fyrirhuguð aukning í áætlunar-
flugi Flugleiða sem þó væri ekki
nógu mikil til þess að standa
undir kaupum á nýrri vél eða
leigusamningi á heilli vél utan-
lands frá. Hann sagði að TF SYN
gætu engu að síður sinnt þeim 60
flugtímum á mánuði sem alþingi
hefði skammtað henni með fjár-
veitingum í ár og leiguféð væri
nauðsynlegt til að hægt væri að fá
betri þyrlu í stað þeirrar minni.
Þannig væri verið að bæta búnað
Gæslunnar með þessari ráðstöf-
un.
Árni Johnsen benti á að það
gengi ekki upp að grípa til Gæsl-
ufokkersins í neyð eins og
ráðherrann sagði, þegar ljóst
væri að Flugleiðir hygðist nota
hana í flug til Færeyja og Skot-
lands. Hann benti á að TF SYN
er eina flugvélin hér heima sem
getur haft radíósamband við
skip, að hún getur miðað út gúm-
björgunarbáta og hefur 10 tíma
flugþol á móti 5 tíma flugþoli
Flugleiðafokkeranna. Þá hefði
hún meiri burðargetu og hægt
væri að varpa úr henni gúmbjörg-
unarbáti. Þessi sérstaða vélarinn-
ar hefði margoft nýst við björg-
unarstörf og ekki síður þegar
flytja þyrfti sjúklinga milli landa.
„Maðurleigirekki hjartabílinn til
skemmtiferða," sagði Árni.
Karvel Pálmason gekk hart að
ráðherra eftir svörum við því
hversu langan tíma tæki að gera
vélina klára til björgunarstarfa ef
þörf krefði og viðurkenndi
ráðherrann að hann gæti ekki
Aárinu 1984 lánaði Útvegs-
banki íslands fimm stærstu
viðskiptavinum sínum samanlagt
tæpar 1950 miljónir króna sem
var nær fjórfalt eigið fé bankans
það árið. Þetta kom fram í svari
Matthíasar Bjarnasonar við-
skiptaráðherra við fyrirspurn frá
Jóhönnu Sigurðardóttur á alþingi
í gær, en vegna bankaleyndarinn-
ar neitaði ráðherrann að upplýsa
hverjir þessir fimm stærstu lán-
takendur bankans hefðu verið.
Eigið fé Útvegsbankans var
1984 tæpar 500 miljónir króna,
reiknað á verðlagi í júní 1985. Á
sama verðgrundvelli fékk stærsti
lántakandinn 720 miljónir króna í
bankanum 1984 eða 145% af
eigið fé bankans. Lítill vafi er tai-
inn leika á að þarna sé um að
ræða Hafskip en næst stærsti lán-
þeginn fékk 648 miljónir eða
130,6% af eigið fé bankans og
telja menn að þar sé um að ræða
eitt olíufélaganna.
En þó Útvegsbankinn hafi lán-
að nær fjórfalt eigið fé til fimm
svarað því. Skúli benti á að það
tæki minnst 2-3 tíma að breyta
henni úr farþegavél í björgunar-
vél þannig að notkunartími Flug-
leiða yrði ekki 50 tímar á mánuði
heldur mun lengri tími. Helgi
Seljan sagði þessar fregnir
hrollvekju fyrirsjómenn ogfólk á
landsbyggðinni sem treysti á
þetta björgunartæki ef illa færi.
Þá mætti það ekki vera í milli-
landaflugi. Eiður Guðnason og
Kjartan Jóhannsson tóku í sama
Ríkisbankarnir
stærstu viðskiptavina sinna, þá
var Landsbankinn á svipuðu róli,
en hann lánaði þrefalt eigið fé til
sinna „fimm stærstu" eða samtals
5,6 miljarða króna á verðlagi
1985. Búnaðarbankinn lánaði
hins vegar tæplega tvöfalt eigið fé
til sinna fimm eða 1370 miljónir.
í máli ráðherra kom fram að
streng. Kjartan sagði fráleitt að
þingmenn hefðu samþykkt að
skipta um minni þyrluna ef þeim
hefði verið sagt að það kostaði að
binda Gæslu-fokkerinn í leigu.
Jón Helgason sagði að Land-
helgisgæslan yrði að sníða sér
stakk eftir vexti og ríkisstjórnin
hefði gert margt gott til að bæta
búnað hennar. Hins vegar myndi
hann taka tillit til ábendinga
þingmanna og taka ákvarðanir í
ljósi þeirra. - ÁI
hann er nú að láta vinna reglur
um þak á lánveitingar til ein-
stakra aðila miðað við eiginfjár-
stöðu ríkisbankanna en Jóhanna
Sigurðardóttir leggur til að það
megi aldrei vera meira en 35% af
eigið fé sem hver viðskiptavinur
Alþingi
Aætlun um eldvarnir
Þingmenn AB leggjafram
ar aðgerðir í eldvörnum
Helgi Seljan og Svavar Gests-
son hafa lagt fyrir alþingi tillögu
að þingsályktun um eldvarnir í
opinberum byggingum. Þeir
leggja til að gerð verði fram-
kvæmdaáætlun þar sem verkefn-
um á þessu sviði er skipað í for-
gangsröð, þannig að hefjast megi
handa samkvæmt áætluninni
strax á næsta ári.
í greinargerð segir að alþingi
geti ekki látið sem ekkert sé þeg-
þingsályktun um raunhœf-
í opinberum byggingum
ar því er haldið fram að fjár-
veitingavaldið hafi árum saman
ýtt til hliðar brýnum verkefnum
eins og eldvörnum í opinberum
byggingum. Hinn hörmulegi at-
burður á Kópavogshæli nú í árs-
byrjun hafi orðið til þess að vekja
menn til umhugsunar og þakka
beri víðtæka söfnun Kiwanis-
manna til eldvarna á Kópa-
vogshælinu.
-ÁI
„Fimm stærstu“ fengu
margfalt eigið fé
Utvegsbankinn lánaðifimm viðskiptafyrirtœkjum samanlagt
fjórfalt eigiðfé sitt á árinu 1984. Landsbankinn lánaði sínum
fimmþrefalt eigiðfé og Búnaðarbankinn sínum tœplega
tvöfalt
Mlðvlkudagur 5. febrúar 1986 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 5