Þjóðviljinn - 05.02.1986, Síða 14
VtÐHORF
(
W
getrmíha-
VINNINGAR!
23. LEIKVIKA - 2. FEBRÚAR 1986
VINNINGSROÐ: 1X1 - 111 - 21X
1. VINNINGUR:
12 réttir,
111
kr. 154.515.-
51727(4/11) 533392(4/11) 82023(4/11)* 126461(6/11)
52140(4/11)* 56009(4/11)* 100692(6/11)
2. VINNINGUR:
11 réttir. kr. 1.964.
1280 41848 52633* 69660 81122** 102 596 125991* 131372*
3358 42378 52746 69741 81512 103161* 126136 131376*
5881 43288 53354 69857 81903* 103686 126152** 131511
8315 43412 53680 70099 95817 104045 126295* 132376
8456* 43889 54519 70210 95819 104361 126457* 132574*
9990 45460 56138 71006 96048 104969 126458* 132660*
10701 45497* 56447** 71054 •96355 105698 126470* 133206**
14015* 46878* 57861** 71147 96461* 105703 126471* 133211**
14887 46899* 58897 71923 96487* 106182 126487* 133601
14901 47262 58911 72120 98374* 106574 126795 133698
16826 47459 60245* 72125 99318 106698 126882 134106**
16859 48082* 60429 73248 99457 107536 126891 134577
17934 48771* 60862 73637* 99542 108139 127037 135590
20784 48856 61439 73780* 99561* 109047 127429 135765*
23457 48880* 61833 76429 99761* 109186 127689 135855
24146* 49060 62290** 77656** 100121 109206 127512 135969
25584 49515* 63457** 77658** 100249 109237 127933* 136255**
27439 50204 63893 77930 100333 110262 129251 136277
28898 50575* 64524* 78345 100365 110288 130816 136309*
40078 51153 66834 79466* 100792 111559 130916* 167377
40514 51758* 67998 80752 101823 111568 131311 183744
41516* 51979 69651 80878 102528 125891* 131320 * = 2/11
Kærufrestur er til mánudagsins 24. febr. 1986 kl. 12:00 á hádegi.
Kærur skulu vera skriflegar. Kærueyðublöð fást hjá umboðsmönnumog á skrifstofunni í
Reykjavík Vinningsupphæðir geta lækkað, ef kærur verða teknar til greina.
Handhafar nafnlausra seðla (+) veröa að framvísa eða senda stofninn og fullar upplýsing-
ar um nafn og heimilisfang til íslenskra Getrauna fyrir lok kærufrests.
íslenskar Getraunir, íþróttamiðstöðinni v/Sigtún, Reykjavík
Lausar stöður
Lausar eru til umsóknar eftirtaldar rannsóknarstööur
við Raunvísindastofnun Háskólans sem veittar eru til
1-3 ára:
a) Tvær stöður sérfræðinga við efnafræðistofu.
Æskilegt er að umsækjendur geti unnið að rann-
sóknum á sviði eðlisefnafræði eða ólífrænnar
efnafræði.
b) Tværstöðursérfræðinga viðstærðfræðistofu, en á
stærðfræðistofu fara fram rannsóknir í stærðfræði
og stærðfræðilegri eðlisfræði.
Stöðurnar verða veittar frá 1. september n.k.
Laun samkvæmt launakerfi starfsmanna ríkisins.
Umsækjendur skulu hafa lokið meistaraprófi eða til-
svarandi háskólanámi og starfað minnst eitt ár við
rannsóknir.
Starfsmennirnir verða ráðnirtil rannsóknastarfa, en
kennsla þeirra við Háskóla íslands er háð samkomu-
lagi milli deildarráðs raunvísindadeildar og stjórnar
Raunvísindastofnunar Háskólans og skal þá m.a.
ákveðið, hvort kennsla skuli teljast hluti starfsskyldu
viðkomandi starfsmanns.
Umsóknir, ásamt ítarlegri greinargerð og skilríkjum
um menntun og vísindaleg störf, skulu hafa borist
menntamálaráðuneytinu, Hverfisgötu 6, 101 Reykja-
vík, fyrir 15. mars n.k.
Æskilegt er, að umsókn fylgi umsagnir frá 1-3
dómbærum mönnum á vísindasviði umsækjdnda um
menntun hans og vísindaleg störf. Umsagnir þessar
skulu vera í lokuðu umslagi sem trúnaðarmál og má
senda þær beint til menntamálaráðuneytisins.
Menntamálaráðuneytið,
31. janúar 1986.
STYRKIR TIL HÁSKÓLANÁMS í
PORTÚGAL
Portúgölsk stjórnvöld hafa tilkynnt að þau bjóði fram í
löndum sem aðild eiga að Evrópuráðinu fimm styrki til
háskólanáms í Portúgal háskólaárið 1986-87. Ekki er
vitað fyrirfram, hvort einhver þessara styrkja muni
koma í hlut íslendinga. Styrkir þessir eru eingöngu
ætlaðir til framhaldsnáms í háskóla. - Umsóknar-
eyðublöð fást í sendiráði Portúgala í Ósló, utanáskrift:
Ambassade du Portugal, Josefines Gate 37, Oslo-2,
Norge, pg þangað ber að senda umsóknir fyrir 1. júní
n.k. '
Menntamálaráðuneytið,
31. jánúar 1986.
Ég ákæri
Sigurður Árnason skrifar
Sterk samvinnuhreyfing með ábata-
sömum atvinnurekstri erforsenda þess
að í landinu myndist mótvœgi við
óhamið einkafjármagn, sem nú síðast
veður uppi sem svokölluð
frjálshyggja.
Ég hefi lesið Þjóðviljann frá
því ég man eftir mér og keypt
hann eftir að ég komst að
heiman. Þetta hefi ég gert vegna
þess að mér var innrætt að það
væri aðall hvers síðaðs manns að
styðja heldur þá sem minna mega
sín. Þá fremur en hina, sem alla
tíð fljóta ofaná hvernig sem
veður breytast í samfélaginu,
enda virðast slíkir menn vera lík-
ari korkinu en viti borinni félags-
veru. Lengi trúði ég því að blaðið
styddi þennan málstað. En
skoðun mín breyttist eftir að ég
varð læs og svo mun um fleiri. Nú
er svo komið að Þjóðviljinn er í
mínum augum málpípa nöldrara
og fúskara. Nöldrara vegna
stöðugs tóns óánægju og niðurrifs
sem einkennir blaðið (mikill
meirihluti af fyrirsögnum og
greinum á for- og baksíðu eru
þannig eðlis). Fúskara vegna þess
að starfsmenn blaðsins vinna mál
illa, skoða þau aðeins af lágum
sjónarhóli. Um nöldrið ætla ég
ekki að ræða, þótt það hafi gert
það að verkum meir en annað, að
nú les ég varla blaðið. Enda er
slíkur tónn lítt til þess fallinn að
koma góðum málum til leiðar. Ég
kýs fremur að ræða svolítið um
fúskið, sem hvílir einsog bölvun
yfir íslenskri blaðamennsku og
birtist nú síðast í Þjóðviljanum í
frásögnum hans af svokölluðu
„kaffibaunamáli". Fréttaflutn-
ingur blaðsins af því máli er með
slíkum eindæmum og endemum,
að beinast liggur við að halda
hvatirnar að baki slíkum skrifum
tengdar einhverskonar brenglun-
um (eða Guð veit hverju) hjá
metnaðarsjúkum utanveltupóli-
tíkusum, eða mönnum sem ekki
hafa borið gæfu til þess að fá sér
vinnu við það sem þeir hafa lært.
„Hámarki“ ná þessi skrif Þjóð-
viljans með leiðara blaðsins 28.
jan. sl.. Þar reisir ritstjóri blaðs-
ins sér og sínum níðstöng, með
því að raða saman af kostgæfni
rökvillum, tilbúningi og tilfinn-
ingaþvælu. Eftirtalin dæmi nefni
ég máli mínu til stuðnings:
kaffiinnflutningi til landsins".
Fyrri hluti: hvert heldur ritstjóri
Þjóðviljans að ágóðinn af kaffi-
sölunni hafi farið? í hvað eru
„sjóðir sambandsmanna" (Þjv.
25/1) notaðir? Ef Þjóðviljarit-
stjórnin hefði viljað beita heiðar-
legum vinnubrögðum, hefði hún
flett upp í skýrslum Sambands ís-
lenskra samvinnufélaga og getað
séð, að ágóðinn var notaður til að
greiða tekjuafgang til kaupfélag-
anna í landinu, til mín og væntan-
lega þín. Eða telur ritstjórinn það
verðugri notkun á hagnaði að
auka enn á kaffiþamb íslendinga,
með því að lækka verð á drykkn-
um (verð á kaffi til neytenda var
þá lægra hér á landi en annars
staðar áNorðurlöndum), en það,
að lækka örlítið almennt vöru-
verð útá landi eða þá auka
atvinnumöguleika fólksins utan
höfuðborgarsvæðisins, í sveitum
og kaupstöðum? Varla er það að-
ferð Þjóðviljans til að rétta hlut
þeirra sem minna mega sín? Eða
hvað? Seinni hluti: „.. svindla á
kaffiinnflutningi...“ Er það í
samræmi við heiðarlega blaða-
mennsku að hlamma sér í dóm-
arastól? Staðreyndir málsins eru
nefnilega þær að Kaffibrennsla
Akureyrar leitaði tilboða á al-
mennum markaði um kaup á
þessu margumtalaða kaffi og
Sambandið hlaut „hnossið“ og
útvegaði kaffið á því verði sem
tilboðið gerði ráð fyrir. Þetta
hefði ÖS getað lesið í greinargerð
frá Sambandinu ef hann hefði
haft vilja til að leita sér upplýs-
inga.
3. „... 200 milljónir ... “ Hefur rit-
stjórinn gleymt því að dollarinn
hefur hækkað mikið frá því að
umrædd viðskipti áttu sér stað og
þess vegna er út í hött að tala um
200 milljónir íslenskar? Nær væri
að miða þetta við allt annan stað-
al, nefnilega raunvirði 4 milljóna
dollara hér á landi á þeim árum
sem viðskiptin fóru fram. Hvort
sá samanburður verður sam-
vinnuhreyfingunni í hag eða
ekki, hef ég ekki hugmynd um.
Ég hirði ekki um að tína til
fleira úr ofangreindum leiðara.
Herra ritstjóri. Samvinnu-
hreyfingin á íslandi er ekki full-
komin frekar en önnur mannana
verk: Hún er háð sömu annmörk-
um og aðrar fjöldahreyfingar;
hún verður aldrei betri né verri
en mennirnir sem mynda hana,
samvinnufólkið í landinu. Sterk
samvinnuhreyfing með ábata-
sömum atvinnurekstri er fors-
enda þess að í landinu myndist
mótvægi við óhamið einkafjár-
magn, sem nú síðast veður uppi
sem svokölluð frjálshyggja. En
Þjóðviljamönnum virðist fyrir-
munað að skilja þetta. Það er eins
og þeim finnist að Sambandið
eigi að starfa eftir allt öðrum lög-
málum en gilda annars staðar í
viðskiptalífi og atvinnurekstri.
Slík ráð eru viðlíka viturleg og að
ætla mönnum af hugsjónaástæð-
um að aka vinstra megin í hægri
umferð.
Ef Þjóðviljamönnum er ennþá
annt um þá hugsjón að styðja við
bakið á þeim sem minna mega
sín, þá ættu þeir að snúast gegn
raunverulegum óvinum. Séu þeir
hinsvegar óánægðir með stefnu
samvinnuhreyfingarinnar, þá er
auðveldust leiðin að ganga í
KRON eða annað kaupfélag og
reyna að breyta hreyfingunni
innanfrá, í stað þess að hamast
gegn henni einsog naut í flagi, og
berjast þannig við hlið þeirra sem
vilja hana feiga.
Reykjavík, 29. janúar 1986.
Sigurður Árnason er læknir,
samvinnumaður og féiagi í
KRON.
1. „... stjórnast af gróðasókn-
inni...“: Hefur Þjóðviljaritstjór-
inn einhvern betri mælikvarða á
rekstur atvinnufyrirtækis en
hvort það ber sig eða ekki? Telur
ritstjórinn kannski að samvinnu-
hreyfingunni sé betur borgið með
því að reka hana einsog tíðkast
hefur þar sem Þjóðviljamenn
hafa ráðið lögum og lofum? Að-
ferð þeirra hefur orðið þess vald-
andi að kaupfélagið, sem ég er
félagi í, hefur misst markaðshlut-
deild frá því að vera stórveldi í
sölu dagvara hér á Reykjavíkur-
svæðinu fyrir nokkrum áratug-
um, niður í örlítið brot af því sem
áður var. Auðvitað er hagnaður-
inn það sem mestu skiptir og
hvernig honum er varið.
2. „... haft hundruð milljóna af
neytendum með því að svindla á
Námsgagnastofnun
Kennari óskast í hálft starf (síðdegis) við
pöntunarþjónustu Námsgagnastofnunar.
Umsóknir er tilgreini menntun og fyrri störf
sendist Námsgagnastofnun, pósthólf 5192,
125 Reykjavík fyrir 12. febrúar nk. merkt
„Pöntunarþjónustan“. Upplýsingar gefur
Ragnar Gíslason deildarstjóri.
Faðir okkar,
Þorlákur G. Ottesen
fyrrverandi verkstjóri,
lést í Landakotsspítala að morgni 3ja febrúar sl.
Dætur hins látna.
14 SIÐA - ÞJÓÐVILJINN