Þjóðviljinn - 15.02.1986, Blaðsíða 12

Þjóðviljinn - 15.02.1986, Blaðsíða 12
DÆGURMAL ... tveim árum áður, tyrir hugarfars- og útlitsbreytingu. Vincent Crane hefur ekki látið skerða hár sitt, eða réttar sagt haldið sömu síddinni allan sinn feril í rokk- inu. Hann hefur þó fengið sér nokkrar bylgjur til málamiðlunar við Kevin. Vincent er fæddur í Reading í Eng- landi 21. maí 1943 og er menntaður á klassíska vísu í orgel- og píanóleik. Þá hefur hann ekki ósnotra söng- rödd, eins og heyra má á Atomic Ro- oster plötunni In the Hearing of... Dexy’s Midnight Runners Rólegir Spíttarar Dexy’s Midnight Runners - klippt, skorin og snyrt: Kevin Rowland söngvari, Billy Adams, gítar og bakraddir, Nicky Gatfield, saxófónn og bakraddir, Helen O’Hara, fiðla og bakraddir... Dexy’s Midnight Runners er skrýtin hljómsveit... kannski væri réttara aö kalla hana regnhlífasamtök, eins og Helgi söngvari Grafíkur hefur kallað þaö ástand sinnar hljómsveitar að vera tríó sem fær sér til spils og ráðagerðar viðbótarmúsikanta. Dexy’s var á Comeon Eileen árun- um 10 manna band, en er nú samkvæmt mynd á albúmi sinnar nýjustu plötu Don’t stand me down, sem út kom í fyrra, orðið kvartett. Og þó, á textablaðinu er mynd af sex manns (fyrrnefndir 4 + 2) og þar að auki koma 9 manns við hljóðfæraleiktil aðstoðar kjarnanum. Kjarni Dexy’s er Birmingham- geir og kó, eru hvorki vandræða- legir né klénir að inntaki, enda Valli staffírugur geimfari í orða- leit og textasmíð. En fólki leikur kannski forvitni á að vita hvaða lög eru á hinni hliðinni? Gott og vel. Þar er að finna lög gömul og góð sem eitthvað voða lítillega hefur verið fiktað við; lagið um djassgeggjar- ana og Búkalú og svo fjórir góð- kunningjar úr áðurnefndri gam- anmynd, þ.á m. Taktu til við að tvista, en sá texti er hreinasta lím- onaði og mun vonandi lengi renna um kverkar komandi kyn- slóða... nú, ef ekki hér í geimi þá bara á víðáttubrjáluðu sviði Astr- alplansins góða. -9 pilturinn Kevin Rowland, sem stofnaði sveitina árið 1978, en hafði áður verið í hljómsveitum sem báru nöfnin Lucy and the Lo- vers og The Killjoys. Útgangur- inn á Dexy’s Midnight Runners var nokkuð í stíl við nafnið, sem þýðir svona sirkabát Miðnætur- hlauparar á spítti, en Dexy er stytting á dexydrine, sem er örv- andi efni. Nú eru hins vegar aðrir tímar og Kevin karlinn ekur segl- um eftir vindi - hefur bæði skipt um skoðun og klæðaburð á öllu heila-genginu í íhaldsátt. Ekki hefur honum þó tekist að aka Vincent gamla Crane til rakar- ans, enda hefðu slík undur varla vitað á gott að mati bítlarokk- hippa. Vincent þessi sem nú er sestur við píanóið hjá Dexy’s festi sig á síður rokkmannkynssög- unnar þegar hann samdi lagið Fire á tíð sinni sem orgelleikari með hljómsveitinni Crazy World of Arthur Brown árið 1968. 1970 stofnaði hann Atomic Rooster með trommaranum Carl Palmer sem nú spilar með Asiu en var í Crazy World og Emerson, Lake og Palmer sitt hvorumegin við Atomic Rooster. Ég byrjaði á að segja að Dexy’s væri skrýtin sveit, og stend við það enn. Ég held hún hafi ekki gefið út nema 3 breiðskífur og varð sú í miðið, Too-Rye-Ay (1982), ansi vinsæl og þá einkum lagið góða Come on EAleen. Þaö vakti því furðu mína að heyra hversu hræðilega léleg hljómsveit Dexy’s reyndist vera á vídeóupp- töku af hljómleikum með þeim anno 1983. Sérstaklega var söng- ur Kevins hræðilegur, bæði falsk- ur og leiðinlegur. En eitthvað hefur mannfjandinn til að bera, því að þessi nýja plata, sem er hans hugarsmíð að mestu, er al- veg þrælnotaleg. Ekki það að hann sé eitthvað betri söngvari, en tæknin er náttúrulega notuð til að lyfta honum á rétta tóna og þegar því er náð er röddin hin þægilegasta. Músikin er eins og áður einskonar blanda af popp- rokki og sálarmúsik með írskri þjóðlagaáferð, sem stafar m.a. af fiðluspilinu hennar Helenu O’Hara. Platan virkar mjög lif- andi og samfléttuð bæði með rabbi og ljúfu músíkflæði, og nostalgían í upprifjun Kevins á liðnum tíma er afslöppuð og sannfærandi á frásagnarmáta hans, enda þótt honum skjótist í tímasetningu gamalla hittlaga sem hann telur upp. En ekki er ég sammála honum um að fólk eigi að loka augunum fyrir eða ekki að skipta sér af vandamálum ann- arsstaðar en heimafyrir. Sést hefur í skrifum um plötu þessa að fólk veltir fyrir sér hvort Kevin sé algjör snilli eða jafnvel þveröfugt. Eins og sést af ofan- skráðu álít ég hann tækifæris- sinna, sem ætlar sér sess í dægur- lagatónlistarsögunni. En hann er líka sniðugur strákur, sem sést best á því að maður skuli falla fyrir þessari hljómplötu hans þrátt fyrir ærna fordóma í hans garð. En snillingur er samt of stórt orð fyrir hann að rísa undir. A Stuðmenn Obrigóul töíraformúla Ég skal koma mér beint að efninu: Stuðmenn eru snillar, (mega þeir kannski ekki við þessu??). Þaðerengin slembilukka að þessir stuðfýr- ar skipa vinsælustu hljóm- sveit landsins, sei sei nei. Þessi töfraformúla, Egill, Valgeir, Jakob, Ragnhildur, Þórður, Tómas og Asgeir, bætiralltaf, hressirog kætir meltinguna, hvað svosem bramboltiðer. Plata þeirra í góðu geimi er velkomin fyrir þær sakir fremst og fyrst að þar er að finna „af- ganginn” úr söng og skemmtimyndinni Með allt á hreinu. Þrjú lög úr myndinni, Grikkir, Orlög mín og Úfó, ásamt þrem „nýjum“, þ.e. áður óútgefnum, Segðu mér satt, eftir Valgeir, Ég vildi að ég væri, eftir Röggu og Valgeir, fyrsta lag hennar með og fyrir hljóm- sveitina, gott og nokkuð spes lag eftir Kobba sem Ragga syngur á alvöru frönsku í fyrsta sinn. En textahöfundur skrifar sig undir dulnefni: Victor Nossláp. Fólki til ómældrar skemmtunar má það geta þessa gátu á eigin spýtur með eina vísbendingu í vasanum þó: eftirnafn Victors má lesa á bak aftur og er þá hálfur sigur unninn... (skemmtilegt?). Þess skal þó getið svo ekki örli á neinum misskilningi að hér fer mektarmaður og stórskáld í Ljónsmerkinu. Hvað um það. Þessi hálfnýja plata dekurbarna þjóðarinnar er að sjálfsögðu engin vanskap- lingur og virðist manni lengi síga í koðrann á körlunum. Og alltaf má gamna sér við texta eftir Val-

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.