Þjóðviljinn - 04.03.1986, Qupperneq 1
Karfa - úrslit
Ný úrslit um úrslit
Valsmenn unnu Hauka og liðin mœtast íþriðja sinn í kvöld í Firðinum
Þegar 9 sekúndur voru til leiks-
loka í leik Vals og Hauka var stað-
an 68-69 Haukum í hag. Þeir
misstu þá boltann. Valsmenn
fengu innkast og eftir að hafa
skipulagt málin í leikhléi, skoraði
Sturla Orlygsson sigurstigin fyrir
Val þegar 1 sekúnda var eftir.
Leiknum lauk því með sigri Vals
70-69. Og verða liðin því að mæt-
ast í úrslitaleik, í kvöld í Hafnar-
Síðustu leikirnir í 1. deildinni í
körfu karla fóru fram núna um
helgina og varð niðurstaðan sú að
Reynir Sandgerði féll eftir miklar
sviptingar á Akureyri þar sem
Reynismenn mættu svo fáliðaðir
að þeim tókst ekki að fylla völlinn
eftir brottrekstra síðast í fyrri
leiknum.
Það verðá Snæfell og HSK sem
keppa úr B-riðli 2. deildar í körfu
karla í úrslitum gegn Tindastóli
og Skallagrím. Þau úrslit réðust á
einu stigi í leik HSK og UÍA um
helgina, - þann leik þurftu UIA-
menn að vinna, því að þótt þeir
séu jafnir Snæfelli að stigum hef-
ur Snæfell unnið báða innbyrðis-
leikina.
HSK vann UÍA 60-59, en á
laugardaginn hafði UÍA unnið
Létti 72-57. Árvaksmenn reyndu
að fá leik sínum við Snæfell á
sunnudaginn kl. 15.30 frestað, en
þegar því var neitað gáfu þeir
leikinn frekar en missa af sjón-
varpsútsendingu frá viðureign
Ungverja og Islendinga í Basel.
Tveir leikir áttu að fara fram í
firði um það hvort liðið mætir
UMFN í úrslitum.
„Það var mjög gott að vinna
þennan leik,“ sagði Torfi
Magnússon, Þjálfari Vals eftir
leikinn í gær. „Við sáum það eftir
fyrsta leikinn að við erum betri og
það er alveg á hreinu að við gef-
um ekki minna í leikinn í kvöld.“
Valsmenn byrjuðu leikinn
mjög vel. Vörnin var góð og allt
Úrslitin: Breiðablik-ÍS 49-69,
Fram-Grindavík 90-77, Þór-
Reynir 69-66, og í seinni leiknum
86-69.
Lokastaðan í deildinni:
Fram..........20 20 0 1686-1232 40
Grindavík.....20 12 8 1421-1435 24
ÞórA..........20 8 12 1358-1352 16
IS............20 7 13 1251-1337 14
Breiðablik....20 7 12 1289-1450 14
Reynir........20 6 14 1202-1404 12
A-riðlinum, en hvorugur var
leikinn. Skallagrímur gaf leik
sinn gegn KFÍ, og leik Tindastóls
og USAH var frestað til miðviku-
dags vegna dómaraleysis. Er það
eini leikurinn sem eftir er í riðla-
keppninni.
Staðan í A-riðli:
Tindastóll 7 6 1 575-491 12
Skallagrímur 8 6 2 536-462 12
ÍA 8 3 5 589-610 6
KFl 8 3 5 448-487 6
USAH 7 1 6 435-533 2
Lokastaða í B-riðli:
HSK ... 10 9 1 712-570 18
Snæfell ... 10 7 3 635-536 14
UIA ... 10 7 3 631-551 14
Léttir ...10 5 5 592-582 10
Esja ... 10 1 9 502-618 2
Árvakur ... 10 1 9 490-699 2
-m
Seljaskóli 2. mars
Valur-Haukar 70-69 (31-29)
12-4, 20-8, 29-29, 31-29, 41-44, 48-
57, 64-65, 68-69, 70-69.
Stig Vals: Sturla Örlygsson 25,
Tómas Holton 19, Torfi Magnússon
14, Leifur Gústafsson 4, Kristján Ág-
ústsson 4, Jón Steingrímsson 2 og
Páll Arnar 2.
Stig Hauka: PálmarSigurðsson 20,
Ivar Webster 18, Henning Hennings-
son 16, Ólafur Rafnsson 9, Eyþór
Árnason 4 og Kristinn Kristinsson 2.
Dómarar: Kristbjörn Albertsson og
Sigurður Valgeirsson sæmilegir.
Maður leiksins: Sturla Örlygsson,
Val.
gekk upp í sókninni. Þeir náðu
upp 10 stiga mun, en þá tóku
Haukarnir við sér og náðu að
jafna leikinn. Valsmenn voru þó
yfir í hálfleik 31-29.
Haukarnir mættu ákveðnir til
síðari hálfleiks og náðu foryst-
unni og munaði þar mestu um að
Pálmar náði að rífa sig lausan, en
hann hafði verið undir strangri
gæslu Jóns Steingrímssonar í fyrri
hálfleik. Þá reyndist Vals-
mönnum erfitt að komast fram-
hjá Webster í Hauka-vörninni.
Valsmenn náðu þó að komast yfir
þegar fimm mínútur voru til
leiksloka 58-57'og lokamínúturn-
ar voru æsispennandi. Liðin
skoruðu til skiptis og það var svo
Sturla sem innsiglaði sigur Vals-
manna á síðustu sekúndunni.
Þessi leikur einkenndist af
mikilli baráttu og var góð
stemmning í Seljaskólanum.
Sturla var yfirburðamaður í Val-
sliðinu og átti mjög góðan leik.
Þá voru þeir Tómas og Torfi góð-
ir, þó að lítið hafi borið áTómasi í
síðari hálfleik.
Webster var bestur í liði Hauka
og Ólafur og Henning léku sæmi-
lega, þá var Pálmar góður þegar
Jón Steingrímsson var ekki ná-
lægt.
Liðin leika úrslitaleik í kvöld
um það hvort liðið mætir Njarð-
vík. Sá leikur fer fram í Hafnar-
firði og hefst kl. 20.
-Logi.
Karfa - 1. deild
Fullt hús hjá Fram
Reynir féll í 2. deild
Karfa - 2. deild
UÍA missti færið
HM/Sviss
Handboltinn á krossgötum
Gömlu risarnir riða tilfalls, Kórea og Kúba koma á óvart. Gullið yrði
í góðum höndum hjá Júgóslövum
Sovétmenn heimsmeistarar,
Rúmenar í öðru sæti. Þannig
hljóðuðu spár flestra í upphafí
heimsmeistarakeppninnar í
handknattleik 1986. En hér í Sviss
hefur gerst margt óvænt, og
keppnin tekið óvænta og
skemmtilega stefnu. Gömlu ris-
arnir riða til falls, nýjar víddir
hafa opnast - handknattleikurinn
stendur á krossgötum.
Tékkar eru fyrrverandi
heimsmeistarar, Pólverjar hlutu
bronsverðlaun fyrir fjórum
árum. Hvar standa þessar þjóðir
nú? Á sunnudag voru þær að
vinna sína fyrstu sigra í keppn-
inni, í botnbaráttunni gegn
Kúbumönnum og Alsírbúum.
Sovétríkin og Rúmenía, bæði
liðin hafa tapað tveimur leikjum
af þremur í milliriðlunum. Báðar
þjóðir eiga enn veika von um
bronsverðlaun - en ef þær halda
ekki vel tj spilunum gætu þær
misst af ólympíusæti og dottið
niður í B-keppnina. Rúmenar
lágu fyrir íslendingum einsog
Tékkar og það gerist ekki oft að
lið úr Vestur-Evrópu vinni tvö
austurevrópsk lið í röð í
heimsmeistarakeppninni.
Hinir hæversku Suður-
Kóreubúar segjast vera komnir
hingað til að læra - þeir ætli sér
hinsvegar að vera í einu af sex
efstu sætunum á ólympíuleikun-
um í heimalandi sínu eftir tvö ár.
Þeir gætu hæglega náð þessu
marki sínu strax hér í Sviss. Það
eru aðeins tvö ár síðan Suður-
Kórea komst fyrst í alvöru-
keppni þeirra bestu í heimi -
frammað því höfðu Asíubúarnir
aðeins stúderað íþróttina af
bókum. Þeirra létti og stór-
skemmtilegi leikstíll, kryddaður
barnslegri leikgleði, hrífur áhorf-
endur með sér, og er það sem
koma skal.
Fulltrúi Ameríku, - Kúba -, er
heldur ekki hér í Sviss til að fylla
töluna. Kúbanir hafa með kröft-
ugum og hröðum leik staðið uppí
hárinu á bestu þjóðum heints og
ungt lið þeirra á örugglega eftir
að láta að sér kveða í framtíðinni.
Júgóslavía-Ungverjaland er sá
úrslitaleikur sem nú blasir við og í
Það mun vera óleyfilegt að troða boltanum upp I körfuna en hér verður ekki
betur séð en Torfi Magnússon Valsari sé á þeim buxum, Sturla, fvar og Kristinn
horfa á forviða. (mynd: EÓL)
Italía
Vítum klúðrað, unnu samt
Roma vann Inter, en Platini sá fyrir öruggri
Juventus-forystu
Brasilíumanninuin Cerez mis-
tókust tvær vítaspyrnur í leik
Roma gegn Inter í ítölsku
deildinni á sunnudag, en Roma
vann samt, 3-1, á tveimur mörk-
um Graziani á fyrstu tíu mínútun-
um og viðbót Gerolin skömmu
fyrir lcikslok, þrátt fyrir að Boni-
ek gæti ekki leikið með og lands-
liðsmaðurinn Bruno Conti varð
að hverfa af vellinum.
Sigur Rómu færði liðið þó engu nær
toppliðinu Juventus sem vann Udin-
Sang-Hyo Lee, einn hinna snjöllu
Kóreumanna
þeim slag eru Júgóslavarnir öllu
sigurstranglegri. Þeir hafa leikið
léttasta handknattleikinn af
Austur-Evrópuþjóðunum, og ís-
lendingar vita allt um snilli þeirra
frá því landslið þeirra og besta
félagslið léku á Fróni fyrir ári.
Júgóslavar yrðu verðugir kyndil-
berar handknattleiksíþróttarinn-
ar- hjá þeim yrðu gullverðlaunin
í góðum höndum.
VS/Sviss.
ese mcð erfiðismunum og hcldur
fjögurra stiga forystu sinni. Platini
skoraði sigurmark íiðsins en stigin eru
ekki síður pökkuð markverðinum
Stefano Tacconi.
AC Milan færðist í fjórða sæti
deildarinnar með jafntefli við Verona
í leik sem cinkcnndist helst af
slagsmálum stuðningsmanna á áhorf-
endapöllum.
Önnur úrslit: Como-Avellino 1-1,
Fiorentina-Atalanta 0-0, Lecce-Bari
1-1, Napoli-Torino 3-1, Sampdoria-
Pisa 3-0.
Juventus er efst með 39 stig, þá
Roma 33, Napoli 28, AC Milan 26,
Torino 25, Inter 25, Fiorentina 24,
Sampdoria 22, Verona 22, Atalanta
20, Como 20, Pisa 20, Bari 16, Lecce
13.
m/reuter
Fótbolti
Til írak
og Bahrein
íslenska knattspyrnulandsliðið hélt
utan í morgun til írak og Bahrcin og
leikur tvo leiki við hvort landslið á tólf
dögum.
. I landsliðshópnum eru: Þorsteinn
Bjarnason ÍBK, Eggert Guðmunds-
son Halmstad, Gunnar Gíslason KR,
Guðmundur Steinsson Fram, Plall-
dór Áskelsson Þór, Ágúst Már Jóns-
son KR, Loftur Ólafsson KR, Mark
Duffield KS, Viðar Þorkelsson Fram,
Ormarr Örlygsson Fram, Ólafur
Þórðarson ÍA, Sveinbjörn Hákonar-
son íA, Kristján Jónsson Þrótti, Guð-
mundur Torfason Fram, Sævar Jóns-
son Brann, Teitur Þórðarson Öster.
ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 9.