Þjóðviljinn - 18.03.1986, Page 1
UMSJÓN: VlÐIR SIGURÐSSON
Landsliðið og pressan í körfu. Marcelo með KR. Stjórn HSÍ
gegn Kristjáni, troðslukeppni, Stjörnulið Ómars og Víga-
Hátíð í
menn
Það sáust oft skemmtileg tilþrif í íþróttahúsi Kennaraháskólans á laugardaginn
þegar þar fór fram síðari hluti íslandsmótsins í júdó. Nánar á bls.11. Mynd:
Ítalía
Höllinni!
leikur hið landsfræga Stjörnulið
Ómars Ragnarssonar við lið
íþróttafréttamanna.
Landsliðið í körfuknattleik er
skipað þeim 12 leikmönnum sem
valdir voru til Evrópufararinnar
og áður hefur verið birt en í press-
uliðinu eru eftirtaldir:
ívar Webster, Haukum, Jó-
hannes Kristbjörnsson, UMFN,
Henning Henningsson,
Haukum, ísak Tómasson,
UMFN, Helgi Rafnsson,
UMFN, Leifur Gústafsson, Val,
Kristinn Einarsson, UMFN,
Garðar Jóhannsson, KR, Guð-
jón Skúlason, ÍBK, Ólafur
Rafnsson, Haukum, Björn Stef-
fensen, ÍR, og Karl Guðlaugs-
son, ÍR.
—VS
Torfi Magnússon verður án efa
atkvæðamikill í troðslukeppninni
Það verður sannkallað stjörnu-
kvöld í Laugardalshöllinni í
kvöld. íþróttafréttamenn og körf-
uknattleiksmenn sameinast þar
um fjöruga dagskrá sem er byggð
upp í kringum „pressuleik“ ■
körfuknattleik, en landsliðið býr
sig nú undir Evrópukeppnina sem
haldin verður hér á landi eftir
mánuð.
Hátíðin hefst kl. 20 með leik
mílli íslandsmeistara KR og
Reykjavíkurúrvals í innanhúss-
knattspyrnu. Nýi Argentínumað-
urinn hjá KR, Marcelo Hou-
seman, leikur þar í fyrsta skipti
opinberlega hér á landi.
Vígamenn verða með sýning-
aratriði í karate áður en sjálfur
pressuleikurinn hefst. Hann
verður óvenjulegur að því leyti
að klukkan verður aldrei stöðvuð
og leikurinn því í raun öllu styttri
en venjulega þótt leiknar verði
2x20 mínútur.
í hálfleik fer fram „troðslu-
keppni" í fyrsta skipti hér á landi
en það fyrirbæri á miklum vin-
sældum að fagna víða erlendis.
Nokkrir valinkunnir körfuknatt-
leiksmenn „troða“ knettinum í
körfuna, án efa með tilþrifum, og
má þar nefna ívar Webster, Val
Ingimundarson, Torfa Magnús-
son, Tómas Holton og Pál Kol-
beinsson.
Stjórn Handknattleikssam-
bands íslands, með gömlu stór-
skyttuna Jón Hjaltalín Magnús-
son í fararbroddi, freistar þess að
skora hjá Kristjáni Sigmundssyni
landsliðsmarkverði og að lokum
Passarella
á förum
Daniel Passarella, landsliðsfyr-
irliði Argentínu í knattspyrnu,
tilkynnti í gær að hann myndi
hætta að leika með ítalska fé-
laginu Fiorentina að loknu þessu
keppnistímabili.
Passarella kvaðst eiga í útistöð-
um við stjórn félagsins og að hann
hefði fengið tilboð frá nokkrum
félögum á Ítalíu og heima í Arg-
entínu. River Plate væri eitt
þeirra en hann myndi tilkynna
nánar um það eftir 10 daga.
—VS/Reuter
England
Liverpool-Ever-
ton á Wembley?
Það stefnir alltí einvígi Liver-
poolliðanna tveggja um sigur í
bæði deild og bikar í ensku knatt-
spyrnunni. I gærkvöldi vann
Liverpool góðan útisigur gegn
Watford í 6. umferð bikarkeppn-
innar, 2-1 eftir framlengingu, og
mætir Southampton í undanúr-
slitum. Hin viðureignin þar er á
milli Everton og Sheff.Wed.
Liverpool hafði nokKra yfir-
burði í leiknum en þó stefndi
lengi vel allt í tap liðsins. John
Barnes skoraði glæsimark fyrir
Watford beint úr aukaspyrnu á
47. mínútu og það var ekki fyrr en
fjórum mínútum fyrir leikslok
sem Jan Mölby jafnaði fyrir Li-
verpool úr vítaspyrnu eftir að
brotið hafði verið á Ian Rush.
Rush gerði síðan útum leikinn
með marki á 2. mínútu í seinni
hálfleik framlengingarinnar.
—VS/Reuter
Italía
AC Milano
í bann
ítalska knattspyrnufélagið AC
Milano var í gær dæmt til að leika
tvo næstu heimaleiki sína í Evróp-
ukeppni á hlutlausum velli, í
a.m.k. 500 km fjarlægð frá Mi-
lano. Astæðan er sú að á leik liðs-
ins við Waregem frá Belgíu fyrr í
vetur brutust út mikil ólæti mcðal
áhorfenda.
—VS/Reuter
Knattspyrna
Þrír til Rangers
Leika með unglingaliðinu í V.Pýska-
landi. Moyes fimmtugur
Þrír unglingalandsliðsmenn fara um næstu helgi til skoska
stórliðsins Glasgow Rangers, þeir Rúnar Kristinsson úr KR og
Ólafur Viggósson og Þorsteinn Halldórsson úr Þrótti Neskaup-
stað.
Rangers hefur boðið piltunum utan og þeir munu fara með
unglingaliði félagsins til Vestur-Þýskalands þar sem þeir leika
með því í alþjóðlegu móti.
Tengsl íslands og Skotlands á knattspyrnusviðinu standa á
gömlum merg og einmitt um næstu helgi, 22. mars, verður einn
helsti tengiliður landanna, David Moyes, fimmtugur. Moyes
hefur í gegnum árin verið mörgum íslenskum knattspyrnu-
mönnum mjög hjálplegur er þeir hafa heimsótt Skotland og
einnig hefur hann komið með marga hópa frá Skotlandi hingað
til lands. Moyes á fjölmarga vini og kunningja hér á landi og
fyrir þá er heimilisfang hans: 50 Stochiemuir Avenne, Mosshe-
ad Estate, Bearsden, Glasgow G 61, Scotland.
—VS
Pressuleikur
Hafþór Sveinjónsson.
Knattspyrna
Hafþór
með á ný
Hafþór Sveinjónsson er byrj-
aður að æfa á ný með Frömurum
og stefnir á að leika með þeim í
sumar. Hafþór, sem er 24 ára ga-
mall og hefur leikið 3 A-
landsleiki, lék síðast með Fram
1984. Síðan hélt hann til V.Þýska-
lands og gekk til liðs við 3.
deildarlið, meiddist og lenti síðan
í útistöðum við félagið með þeim
afleiðingum að það neitaði lcngi
að samþykkja félagaskipti hans
yfir í Fram á ný. Hafþór sagði í
spjalli við Þjóðviljann í gær að
hann væri loksins laus allra mála
ytra og einbeitti sér nú að því að
komast í form fyrir sumarið.
Hann gekkst í fyrra undir upp-
skurði á báðum nárum en nái
hann sér á strik á ný ætti hann að
geta orðið Frömurum góður liðs-
auki í sumar.
—VS
Knattspyrna
Amór
skoraði
Byrjar vel
eftir meiðslin
Arnór Guðjohnsen lék að nýju
með aðalliði belgísku meistar-
anna í knattspyrnu, Anderlecht,
á sunnudaginn. Hann kom inná
sem varamaður á 35. mínútu og
átti stórgóðan ieik, skoraði fallegt
mark og gerði mikinn usla í vörn
Waregem. Anderlecht vann 3-1
og er með tveggja stiga forystu í
belgísku 1. deildinni eins og betur
kemur fram á bls. 12. Vonandi
tekst Arnóri að fylgja þessu eftir
og ná sér á strik á ný en þrálát
meiðsli í hálft þriðja ár hafa leikið
hann grátt og ógnað ferli hans
sem atvinnuknattspyrnumaður.
—VS
Þrlðjudagur 18. mars 1986 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 9