Þjóðviljinn - 18.03.1986, Page 2
ÍÞRÓTTIR
Knattspyrna
Brassamir steinlágu!
Töpuðu 3-0 í Búdapest og skoruðu ekki mark í
Evrópuferðinni
Brasilíumenn eru taldir líkleg-
ustu heimsmeistarar í knatt-
spyrnu 1986 en til þess að svo
megi verða verða þcir að leika
betur en gegn Ungverjum í Bú-
dapcst á sunnudaginn. Ungverj-
ar, sem einnig leika í Mexíkó,
unnu öruggan sigur, 3-0, og
Brössum mistókst því að skora
mark í tveimur leikjum í þessari
'Evrópuför sinni.
Lajos Detari var maðurinn á
bakvið stórgóðan leik Ungverja
og hann skoraði fyrsta markið
eftir aðeins fimm mínútna leik.
Hann lagði síðan upp hin mörkin
tvö, fyrir varamanninn Kaiman
Kovacs á 60. mínútu og Marton
Esterhazy á 73. mínútu. Hinn
gamalkunni Leao, sem er á ný
kominn í mark Brasilíu, kom í
veg fyrir stærri sigur Ungverja
með góðri markvörslu.
Ungverjar státa nú af einstæð-
um árangri gegn þreföldum
Skíði
Tveir titlar
til Þjóðveija
Marina Kiehl frá Vestur-
Þýskalandi tryggði sér á sunnu-
daginn sigur í heimsbikarkeppn-
inni í risastórsvigi á þessum vetri
með því að vinna mót í Colorado í
Bandaríkjunum. Anita Wachter
frá Austurríki varð önnur og
Liisa Savijarvi frá Kanada
þriðja.
Maria Walliser varð tólfta og
Erika Hess 15. en þessar
svissnesku skíðadrottningar eru
áfram langefstar í stigakeppni
heimsbikarsins. Walliser er með
275 stig en Hess 238.
Körfubolti
Skallagrímur á
enn möguleika
Skallagrímur lifir í voninni um Staðan í úrslitakeppninni:
að hreppa 1. deildarsætið eftir Snæfell.4 2 2 275-278 4
sigur á Snæfelli, 67-66, í úrslita- Skallagrímur.4 2 2 279-286 4
keppni 2. deiidar í Borgarnesi á T'ndasfóH....1 1 o 100-88 2
laugardaginn.
Snæfell var fjórum stigum yfir Tindastóil stendur nú best að
þegar mínúta var eftir en með 3ja vlgj en ^ eftjr fjmm af sex leikjum
stiga körfu og hraðaupphlaupi sínum. Sauðkrækingarnirfá HSK
tfyggðu Borgnesingar sér sigur á j heimsókn annað kvöld og leika
síðustu stundu. Hólmarar áttu síðan báða leiki sína við Snæfell á
tvö misheppnuð skot á lokasek- heimavelli um næstu helgi. Með
úndunum, boltinn vildi ekki of- þremur heimasigrum myndu þeir
aní og þeir sjá nú 1. deildarsætið Sama sem tryggja sæti sitt í 1.
vera að renna sér úr greipum eftir deild.
tvö töp í röð. _ysj
Vestur-Þýskaland
Schuster
færfrest
Hefur áhuga á að leika á HM
Bernd Schuster, vandræða-
barn vestur-þýskrar knatt-
spyrnu, hefur fengið fjögurra
vikna frest frá Franz Beckenbau-
er landsliðseinvaldi til að ákveða
hvort hann ætli að leika með
landsliðinu í úrslitum HM í Mex-
íkó í sumar.
Schuster hefur neitað að leika
með vestur-þýska landsliðinu síð-
an Beckenbauer tók við stjórn
þess en undanfarið hefur hann
gefið í skyn að hann langi til að
leika í Mexíkó. Schuster er 26 ára
gamall og óumdeilanlega í hópi
bestu knattspyrnumanna í heimi.
Hann á nú í útistöðum við félag
sitt, spænsku meistarana Barce-
lona, sem ætlar að segja upp
samningi sínum við hann í vor.
—VS/Reuter
heimsmeisturum Brasilíu. Af
fjórum viðureignum þjóðanna
hafa Ungverjar unnið þrjár en
einni hefur lyktað með jafntefli.
Það verður þó að telja Brasilíu-
mönnum til málsbóta að í lið
þeirra vantaði stjörnur á borð við
Zico, Socrates, Junior, Falcao og
Cerezo. En þeir léku ekki eins og
lið íþessari ferð, heldureinsog 11
einstaklingar, og það lofar ekki
góðu.
—VS/Reuter
Vestur-Þýskaland
Atli slasaöist illa
Sleit hásin og verður lengifrá. Alfreð meiddist líka en skoraði
fimm. Kristján með 7 í tapleik Hameln
Frá Agli Eiðssyni fréttamanni Þjóðvilj-
ans í V.Þýskalandi:
Atli Hilmarsson landsliðsmaður í
handknattleik leikur ekki meira með
Gunzburg á þessu keppnistímabili.
Hann var fyrir því óláni að slíta hásin í
bikarleik gegn Grieshcim um helgina og
þurfti að gangast undir aðgerð á sjúkra-
húsi strax á eftir. Slík meiðsli eru jafnan
langvarandi og það gæti tekið Atla
nokkra mánuði að verða alheill á ný.
Gunzburg vann leikinn 24-21 og
skoraði Atli tvö markanna. Alfreð
Gíslason varð einnig fyrir meiðslum og
varð að fara útaf þegár Essen sigraði
Handewitt 30-20. Það var í fyrri hálfleik
en Alfreð hafði þá þegar gert 5 mörk
fyrir Essen.
Kristján Arason skoraði 7 mörk fyrir
Hameln en það dugði skammt, liðið tap-
aði 20-26 fyrir Nettelstedt og er úr leik.
Bjarni Guðmunasson skoraði 4 mörk
fyrir Wanne-Eickel, en liðið féll útúr
bikarnum fyrir óþekktu liði. Páll Ólafs-
son gerði 3 marka Dankersen í 24-19
sigri á öðru smáliði. Lemgo vann Altju-
hrden 27-20 á útivelli, Sigurður Sveins-
son lék ekki með Lemgo en er loksins að
verða tilbúinn, fer sennilega fljótlega að
sitja á bekknum og koma inná til að taka
vítaköstin.
ÍÞRÓTTIR
Gunnar Gunnarsson úr KA í hörðum slag í unglingaflokki. Hann sigraði í 65
kg flokki og er einn hinna fjölmörgu efnilegu Akureyringa. Mynd: E.ÓI.
Helgi Júlíusson, sigurvegari í 55 kg flokki unglinga. Mynd: E.ÓI.
Markus Wasmeier frá
V.Þýskalandi tryggði sér sigurinn
í risastórsvigi í karlaflokki með
því að sigra örugglega í greininni í
Bresku-Kólumbíu í Bandaríkj-
unum. Martin Hangl frá Sviss
varð annar og Peter Roth frá
V.Þýskalandi þriðji.
Marc Girardelli frá Luxem-
burg er áfram langefstur í stiga-
keppni karla í heimsbikarnum,
hefur 294 stig. Pirmin Zurbriggen
frá Sviss, sem varð níundi um
helgina, er með 255 stig og Peter
Muller frá Sviss 204 stig.
—VS/Reuter
Júdó
Vestur-Þýskaland
Fyrstur eftir Atla
Klinsmann gerði 5fyrir Stuttgart í Dusseldorf.
Meistaraheppni með Bremen, sýninghjá Bayern. Lárus góður
Frá Agli Eiðssyni fréttamanni Þjóðviljans í
V.Þýskalandi:
Jurgen Klinsmann varð á laugardaginn
fyrstur til að skora 5 mörk í ieik í Bundes-
ligunni í knattspyrnu síðan Atli Eðvalds-
son vann það afrek fyrir Dusseldorf fyrir
þremur árum.
Stuttgart, án Ásgeirs Sigurvinssonar
sem var í leikbanni og Karls-Heinz Förs-
ters sem var meiddur, lék við hvern sinn
fingur í Dusseldorf og vann ótrúlegan úti-
sigur, 0-7. Og það gegn liði sem vann
Bayern í Munchen helgina á undan!
Áhugamaðurinn Spies, sem lék í stað Ás-
geirs, skoraði eftir 15 mínútur. Þá tók
Klinsmann við og skoraði fimm í röð,
Karl Allgöwer átti síðan lokaorðið, 0-7,
rétt fyrir leikslok.
Lárus Guðmundsson átti góðan leik
með Uerdingen sem vann Dortmund 2-0.
Hann lagði upp síðara markið á laglegan
hátt fyrir Feilzer en Schafer skoraði það
fyrra rétt eftir hlé. Dortmund lék með 10
menn frá 30. mínútu þegar einn leik-
manna liðsins var rekinn af leikvelli. Lár-
us fékk 3 í einkunn í blöðum og góða
dóma. Atli Eðvaldsson lék ekki með Uer
dingen vegna veikinda.
Úrslit í Bundesligunni um helgina:
Dusseldorf-Stuttgart....
Uerdingen-Dortmund......
Frankfurt-Bremen........
Mannheim-Bayern Munchen
Bochum-Mönchengladbach.
Köln-Hannover...........
Nurnberg-Schalke........
Hamburger-Saarbrucken...
Kaiserslautern-Leverkusen..
0-7
2-0
0-2
0-4
2-2
3-0
3- 1
4- 0
4-1
Meistaraheppnin var með Bremen í
Frankfurt þar sem heimaliðið var sterkari
aðilinn. En Bremen lék skynsamlega,
varðist og beið eftir mistökum mótherj-
anna, og uppskar tvö mörk á síðustu 10
mínútunum. Hermann og Okudera voru
þar á ferð, 0-2.
Bayern Munchen sýndi stórkostlegan
fyrri hálfleik gegn Mannheirn, eitt það
albesta sem sést hefur í vetur. Úrslit voru
ráðin eftir korter, þá hafði Hoeness
skorað tvö mörk og lagt eitt upp fyrir
Nachtweih. Wohlfarth skoraði síðan á 34.
mínutu, 0-4, og eftir það var bara form-
satriði að ljúka leiknum.
Sjöundi í
röð hjá
Bjama
Margrét vann opinn
flokk kvenna
Bjarni Friðriksson úr Ármanni
varð á laugardaginn íslands-
meistari í opnum flokki karla sjö-
unda árið í röð. Síðari hluti fs-
landsmótsins fór þá fram í íþrótt-
ahúsi KHÍ.
Annar í opna flokknum varð
Sigurður Hauksson frá Grinda-
vík en hann átti ekki mikla mögu-
leika gegn Bjarna frekar en aðrir.
Margrét Þráinsdóttir úr Ár-
manni sigraði í opnum flokki
kvenna. Þar varð í öðru sæti Lín-
eik Sævarsdóttir úr hinu nýja jú-
dófélagi á Egilsstöðum, Kjarna.
Keppt var í fimm flokkum pilta
undir 21 árs. Þar urðu sigurvegar-
ar Helgi Júlíusson úr Armanni í
55 kg flokki, Magnús Kristinsson
úr Ármanni í 60 kg flokki, Gunn-
ar Gunnarsson úr KA í 65 kg
flokki, Adam Traustason úr KA í
71 kg flokki og Rögnvaldur Guð-
mundsson úr Gerplu í 86 kg
flokki.
—VS
Bjarni Fri&riksson var jafnan snöggur að afgreiða mótherja sína en E.ÓI. sá við honum í þetta skiptið og festi þetta sigurkast á filmu
Gladbach var nálægt sigri í Bochum en
Leifeld jafnaði fyrir heimaliðið rétt fyrir
leikslok, 2-2. Kaiserslautern lék mjög vel
í seinni hálfleik og vann Leverkusen 4-1.
Köln átti lengi í vandræðum með Hanno-
ver, uns einn leikmanna botnliðsins gerði
sjálfsmark og annar var rekinn af
leikvelli. Ungur nýliði, Balzis, gerði
þrennu fyrir Hamburger í 4-0 sigrinum á
Saarbrucken.
Staðan í Bundesligunni:
Bremen..................27 18 6 3 73-36 42
Bayern..................27 17 4 6 60-28 38
Gladbach................25 13 8 4 55-35 34
Hamburger...............24 12 4 8 39-23 28
Stuttgart...............26 11 6 9 52-38 28
Leverkusen..............25 10 8 7 48-38 28
Uerdingen...............23 10 5 8 35-49 25
Mannheim................24 9 7 8 32-30 25
Bochum..................25 10 4 11 44-39 24
Frankfurt...............25 6 11 8 27-37 23
Köln....................25 7 8 10 37-45 22
Dortmund................26 8 6 12 40-51 22
Schalke.................24 8 5 11 38-38 21
Kaiserslaut.............25 7 7 11 35-39 21
Nurnberg................27 8 5 14 38-44 21
Dusseldorf..............27 8 4 15 40-66 20
Saarbrucken.............25 5 8 12 31-49 18
Hannover................24 5 4 15 35-74 14
Skotland
Nevin og Wark
Sterkt lið Skota gegn Rúmenum
Pat Nevin, litli og leikni útherj-
inn hjá Chelsea, var í gær valinn í
landsliðshóp Skota fyrir vináttu-
landsleik við Rúmena í knatt-
spyrnu sem fram fer í Glasgow
eftir viku. Alex Ferguson lands-
liðseinvaldur valdi einnig John
Wark frá Liverpool sem ekki hef-
ur komist í hópinn í 18 mánuði og
hefur mest þurft að leika með
varaliði félags síns í vetur.
Kenny Dalglish er áfram f
hópnum þótt hann leiki nær ekk-
ert með Liverpool, Graeme So-
uness kemur frá Sampdoria á ft-
alíu og Steve Archibald frá
Barcelona á Spáni.
—VS/Reuter
England
Penyman á fonim
Margrót Þráinsdóttir, sigurvegari í opnum flokki kvenna, skellir einum andstæðinga sinna. Mynd: E.ÓI.
Steve Perryman, fyrirliði Tott-
enham, fær frjálsa sölu frá fé-
laginu þegar yfirstandandi
keppnistímabili lýkur. Perryman
hefur leikið með Tottenham sam-
fleytt í 19 ár og verið einn
traustasti leikmaður liðsins.
Hann hefur íeikið einn A-
landsleik, gegn íslandi á Laugar-
dalsvellinum 1982, og var það ár
kjörinn knattspyrnumaður ársins
af enskum íþróttafréttamönnum.
Tottenham bauð Perryman eins
árs samning, hann vildi tvö ár og
að lokum varð frjáls salá
samkomulag milli hans og félags-
ins.
—VS/Reuter
T0 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Þriðjudagur 18. mars 1986
Þri&judagur 18. mars 1986 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 11