Þjóðviljinn - 15.04.1986, Blaðsíða 2
ÍÞRÓTTIR
ÍÞRÓTTIR
Vestur-Þýskaland
Badminton
Uerdingen er
óstöðvandi!
✓
Skellti Bremen og er best íseinni umferð. Asgeir átti stórleik
ogskoraði í Kaiserslautern. Bayern heppið að vinna 3-0
Frá Jóni H.Garðarssyni frétta-
manni Þjóðviljans í V.Þýskalandi:
Bayer Uerdingen hleypti mik-
iili spennu í baráttuna uni sigur í
Bundesligunni með því að sigra
toppliðið Werder Bremen 1-0 á
föstudagskvöldið. Sigurinn var
sanngjarn. Uerdingen sótti stíft,
sérstaklega í seinni hálileik, og
svndi mjög góðan leik. Atli Eð-
valdsson lék á miðjunni og stóð
sig með prýði, fékk 3 í einkunn
hjá Kickcr. Lárus Guðmundsson
lék ekki með en kemur inní liðið á
ný í Evrópuleiknum þýðingar-
Willum Þórsson, tvö mörk gegn
Þrótti.
Knattspvrna
KRfékk
aukastig
KR-ingar nældu sér í aukastig
þegar þeir sigruöu Þrótt 4-0 í
Reykjavíkurmótinu á gervi-
grasinu í fyrrakvöld. Sigurinn var
í léttara lagi’, Willum Þórsson
gerði 2 mörk, Júlíus Þorfinnsson
eitt og Gunnar Gíslason eitt úr
vítaspyrnu. Staðan í riðlunum er
nú þessi:
A-riðill:
......1 1 0 0 2-1
......2 1 0
......1 0 1
......2 0 1
B-riðill:
......2 2 0 0 8-0 5
......2 10 14-13
......1 0 0 1 0-4 0
......1 0 0 1 0-7 0
Víkingur
Valur..
Ármann
ÍR.....
Fram....
KR......
Þróttur.
Fylkir...
Tvö efstu lið úr hvorum riðli
fara í undanúrslit. Næsti leikur er
í kvöld kl. 20.30 á gervigrasinu.
Ármann og Víkingur eigast við,
en Fylkir og Þróttur leika á
fimmtudagskvöldið. —VS
mikla gegn Atletico Madrid í
kvöld.
Það var Franz Rachid sem
skoraði sigurmarkið á 56. mínútu
en hann hefur verið frá vegna
meiðsla í hálft ár. Wolfgang
Funkel átti stórleik í vörninni og
Franz Beckenbauer landsliðs-
einvaldur hringdi í hann eftir
leikinn til að tilkynna honum að
hann ætti möguleika á að fara
meðtil Mexíkó. Uerdingen hefur
náð bestum árangri allra liða í
seinni umferðinni og á nú jafnvel
möguleika á að hreppa þriðja
sætið í deildinni.
Ásgeir Sigurvinsson átti enn
einn stórleikinn þegar Stuttgart
gerði 2-2 jafntefli í Kaisers-
lautern á föstudagskvöldið.
Fyrsta stigið sem Stuttgart tapar í
7 leikjum. Ásgeir skoraði laglegt
mark á 20. mínútu, komst einn
innfyrir vörnina og renndi bolt-
anum framhjá markverðinum.
Brehme jafnaði, Klinsmann kom
Stuttgart yfir á ný en Dusek jafn-
aði, 2-2. Ásgeir fékk 2 í einkunn
hjá Kicker og var valinn í lið vik-
unnar í 5. sinn hjá blaðinu í vetur.
Hann hefur sjaldan verið betri en
einmitt nú.
Urslit í Bundesligunní um
helgina:
Uerdingen-WerderBremen......... 1-0
Kaiserslautern-Stuttgart........2-2
Bochum-Hannover.................3-2
Dortmund-Bayern Munchen.........0-3
Leverkusen-Gladbach.............3-1
Frankfurt-Schalke...............3-0
Nurnberg-Köln...................3-0
Mannheim-Saarbrucken............1-0
Dusseldorf-HamburgerSV..........3-1
Bayern á góða möguleika á
meistaratitlinum, en getur þakk-
að belgíska markverðinum Pfaff
fyrir það. Hann kom í veg fyrir að
Dortmund kæmist í yfirburða-
stöðu á fyrsta hálftímanum með
ótrúlegri markvörslu. Síðan
skoraði Pflugler og Wohlfarth
bætti við tveimur seint i leiknum,
0-3.
Staða efstu liða:
Bremen ........31 20 7
Bayern.........31 20 5
Gladbach.......31 15 11
Stuttgart......31 15 7
Uerdingen......29 15 6
Leverkusen.....31 14 8
Hamburger......30 14 5
Blau-Weiss Berlin og Fortuna
Köln standa best að vígi í 2. deild
en Homburg, Aachen og Karls-
ruher eru einnig í baráttunni um
sæti í Bundesligunni.
Heimir Erlingsson brýst í gegnum vöm Selfyssinga og skorar fyrir Stjörnuna á lokakaflanum örlagarika.
Handbolti/3. flokkur
Otrúlegur úrslítaleikur!
Selfoss leiddi 15-8 en Stjarnan jafnaði og vann 26-20 eftir framlengingu.
Stjarnan úr Garðabæ varð ís-
landsmeistari í 3. flokki karla í
handknattleik í íþróttahúsi Selja-
skóla á sunnudaginn, eftir sigur á
Selfyssingum í hreint ótrúlegum
úrslitaleik. Selfoss komst í 8-15 í
seinni hálfleik en Stjarnan sigraði
26-20 eftir framlengingu.
Leikurinn var jafn framanaf en
staðan í hálfleik var 10-7, Selfys-
singurn í hag. Þegar staðan var
svo orðin 15-8 lét Magnús Teits-
son, þjálfari Stjörnunnar, taka
tvær aðalskyttur Selfyssinga úr
umferð. Þeir áttu ekkert svar við
því og misstu boltann hvað eftir
annað. Stjarnan náði svo að
jafna, 16-16, og því var fram-
lengt.
Það er skemmst frá því að segj a
að Stjarnan átti framlenginguna
og skoraði 10 mörk gegn aðeins 4
Selfyssinga og sigraði því 26-20.
Bæði lið léku skemmtilegan og
laglegan handbolta, einkum þó
Selfyssingar framanaf. En vörn
Stjörnunnar var mjög árang-
ursrík síðustu mínúturnar og
gerði það gæfumuninn.
Mörk Stjörnunnar: Sigurður Bjarnason
7, Valdimar Kristófersson 5, Heimir Er-
lingsson 4, Bjarni Benediktsson 3, Magnús
Eggertsson 3, Þóroddur Ottesen 2, Sigurð-
ur Hilmarsson 1 og Stefán Stefánsson 1.
Mörk Selfoss: Gústaf Bjarnason 6,
Magnús Sigurðsson 5, Grímur Hergeirs-
son 4, Magnús Gíslason 3 og Einar Guð-
mundsson 2.
Bjarni Bcnediktsson, fyrirliði
Stjörnunnar:
„Þetta var frábær leikur, nán-
ast ótrúlegur. Við vorum svolítið
smeykir en gáfumst ekki upp og
vorum ákveðnir í að klára þetta.
Við tókum tvær aðalskytturnar
úr umferð og tókst að lama sókn-
arleik þeirra. Okkur tókst það
sem við stefndum að, náðum
verðlaunasæti."
Magnús Teitsson, þjálfari
Stjörnunnar:
„Strákarnir sýndu frábæran
karakter, úr7 mörkum undirísex
mörk yfir. Það var gott að vinna
þennan leik því Selfoss er með
gott lið. En það sem réði úrslitum
var þegar við breyttum um vörn.
Kalott-keppnin
Eðvarð ósigrandi í Oulu
Fimm sigrar ogfimmmet. Yfirburðasigur íslands, sáfyrsti
frá upphafi, og mikið metaregn
Það er erfitt að spila með fjóra
fyrir framan sig, sérstaklega í
svona taugaleik.”
Þórir Hergeirsson, þjálfari
Selfyssinga:
„Við vorum í erfiðum riðli þar
sem voru fleiri og sterkari lið.
Menn voru þreyttir og gáfust upp
um leið og illa fór að ganga. Þeir
náðu boltanum af okkur þrisvar í
röð og svo brenndum við af á
meðan þeir skoruðu alltaf. Það
sem okkur vantar fyrst og fremst
er reynsla.“
Leikir í úrslitakeppninni fóru
þannig:
A-riðill:
KR-Breiðablik...................25-13
Selfoss-HK......................22-19
Breiðablik-Þór A................19-19
KR-HK..........................12-11
Selfoss-Þór A...................27-18
Breiðablik-HK...................21-15
Selfoss-KR......................16-15
HK-ÞórA........................27-22
Selfoss-Breiðablik..............20-17
KR-ÞórA.........................27-10
Broddi vann
þrefalt
Elísabet tvöfaldur meistari
„Urslitaleikirnir í einliða- og
tvíliðaleik voru erllðir. Árangur-
inn kom mér á óvart, ég er búinn
að vera meiddur og byrjaði ekki
að æfa fyrr en í janúar, og er því
mjög ánægður með þetta,“ sagði
Broddi Kristjánsson úr TBR í
samtali við Þjóðviljann eftir að
hann varð þrefaldur íslands-
meistari í Laugardalshöllinni á
sunnudaginn.
Þeir Broddi og Þorsteinn Páll
Hængsson, TBR, léku til úrslita í
einliðaleik. Broddi sigraði 15-8
og 15-7.
í tvíliðaleik léku Broddi og
Þorsteinn gegn Jóhanni Kjart-
anssyni og Sigfúsi Ægi Árnasyni
úr TBR. Broddi og Þorsteinn
sigruðu í fyrstu lotu, 15-11. töpu-
ðu 17-18 í annarri en sigruðu svo
15-12 í úrslitalotunni.
í tvenndarleik lék Broddi með
Kristínu Magnúsdóttur gegn Þor-
steini og Ingu Kjartansdóttur og
sigruðu þau fyrrnefndu 15-12 og
15-12.
1 einliðaleik kvenna lék Elísa-
bet Þórðardóttir, TBR, gegn
Þórdísi Edwald, TBR, í úrslita-
leik. Fyrsta lotan fór 1-11 fyrir
Þórdísi en Elísabet vann hinar
tvær, 11-6 og 11-3.
„Eg er búin að dvelja í Svíþjóð
hjá Aura í Malmö og er því búin
að æfa mikið, auk þess sem ég hef
fengið' tækifæri til að spila við
sterka einstaklinga. Það var því
ætlast til mikils af mér og ég var
ekki á því að láta þennan tima
fara til einskis," sagði Eiísabet í
samtali við Þjóðviljann.
í tviliðaleik unnu þær Elísabet
og Þórdís þær Ingu og Kristínu
M. í úrslitaleik, 18-15 og 15-7.
í A-flokki sigraði Ármann Þor-
valdsson, TBR, í einliðaleik
karla, Guðrún Gísladóttir, IA, í
einliðalcik kvenna, Gunnar
Björnsson og Njáll Eysteinsson,
TBR, í tvíliðaleik karla, Guðrún
og Hafdís Böðvarsdóttir, IA, í tví-
liðaleik kvenna og Njáll og Birna
Petersen, TBR, sigruðu í tvennd-
arleik.
í öðlingaflokki sigraði
Eysteinn Björnsson, TBR. í ein-
liðaleik og þeir Friðleifur Stef-
ánsson og Sigurður Þorláksson,
KR, í tvíliðaleik. í tvenndarleik
sigruðu þau Eysteinn og Anna
Njálsdóttir, TBR. í öðlingaflokki
eru keppendur á aldrinum 40-50
ára.
í æðsta flokki, 50 ára og eldri.
sigraði Óskar Guðmundsson,
KR, í einliðaleik og þeir Jón
Árnason og Magnús Elíasson,
TBR, í tvíliðaleik.
—Logi
Broddi
Kristjánsson
Elísabet
Þórðardóttir
Selfoss 4
KR
Breiöablik 4
HK
Þór A 4
E&varft Þ. E&var&sson
stöðvandi í Oulu.
ísland vann yfirburðasigur í
Kalott-keppninni í sundi sem
fram fór í Oulu í Finnlandi um
helgina. Þetta er í fyrsta sinn sem
Island ber sigur úr býtum í
keppninni en þátt taka lið
norðurhéraða Noregs, Finnlands
og Svíþjóðar, auk liðs íslands.
ísland fékk 249 stig, Noregur
200, Svíþjóð 198 og Finnland
181. ísland hlaut 11 gullverðlaun
í 24 greinum, 10 silfur og 4 brons,
og í fjórum greinum vannst tvö-
faldur sigur.
Eðvarð Þ. Eðvarðsson stakk
ó- sér fimm sinnum til sunds, sigraði
alltaf og setti alltaf fslandsmet!
Fyrst 56,30 í 100 m baksundi, þá
1:05,10 í 100 m bringusundi,
2:06,28 í 200 m fjórsundi, 2:01,90
mín. í 200 m baksundi og loks
bætti hann aftur metið í 100 m
baksundi, synti á 56,26 sek. í
4x100 m fjórsundinu, sem ísland
vann á íslandsmeti, 3:57,38 mín.
Eðvarð er nú 8. besti í heimi í 100
m baksundi og 12. besti í 200 m
baksundi. Stórkostlegur árangur
og hann er enn á hraðri uppleið.
Magnús Ólafsson setti tvö ís-
landsmet, 2:07,41 í 200 m flug-
sundi og 58,29 í 100 m flugsundi.
Hugrún Ólafsdóttir setti ís-
landsmet í 100 m flugsundi,
1:05,49 mín.
Ragnheiður Runólfsdóttir setti
íslandsmet í 200 m baksundi,
2:27,93 mín, og Þórunn Kristín
Guðmundsdóttir setti stúlkna-
met í sömu grein, 2:32,22 mín.
Ingibjörg Arnardóttir setti
telpnamet í 200 m flugsundi,
2:28,39 mín.
Sveitir íslands settu Islandsmet
í 4x100 m fjórsundi kvenna
(4:31,53 mín), 4x200 m skrið-
sundi karla (7:51,51 mín), 4x100
m fjórsundi karla (3:56,53 mín.)
og í 4x100 m skriðsundi kvenna
(4:00,96 mín).
—VS
, B-riöill:
ÍR-Haukar......................20-15
Stjarnan-Ármann.................20-13
Stjarnan-Haukar................19-18
IR-Ármann......................16-10
Stjarnan-lR....................27-19
Ármann-Haukar..................14-13
Stjarnan.............3 3 0 0 66-50 6
ÍR...................3 2 0 1 55-52 4
Ármann...............3 1 0 2 37-49 2
Haukar...............3 0 0 3 46-53 0
KR og ÍR léku um þriðja sætið.
KR-ingar sigruðu nokkuð örugg-
lega, 15-10, eftir að staðan í hálf-
leik hafði verið 7-5. Flest mörk
KR gerðu Gunnar Gíslason 7 og
Þorsteinn Guðjónsson 3. Flest
mörk ÍR gerðu Rúnar Ragnars-
son 4, Guðmundur Pálsson 2 og
Róbert Rafnsson 2. L<)gj
Knattspyrna
Þriggja
liða mót
Þriggja landa keppni verður
háð hér á landi í vor, dagana 25.-
29. maí. Landslið írlands og
Tékkoslóvakíu taka þátt í henni
auk íslenska landsliðsins. Flestir
atvinnumanna okkar eru lausir á
þcssum tíma og ættu að geta
leikið með.
Hliðstæð keppni hefur einu
sinni áður verið haldin hér á
landi. Það var árið 1957 þegar
Norðnienn og Danir kornu hing-
að í tilefni af opnun Laugardals-
vallarins. Norðmenn unnu þá ís-
lendinga 3-0 og Dani 3-1 og Danir
unnu Islendinga 6-2.
—VS
Stjarnan úr Gar&abæ — Islandsmeistari I 3. flokki karla 1986.
Mynd: E.OI.
Vestur-Þýskaland
Sigurður
á uppleið
Skoraðiófyrir Lemgo. Pállmeð
7 og Kristján 6
Frá Jóni H.Garðarssyni fréttamanni Þjóðviljans í
V.Þýskalandi:
Sigurður Sveinsson er greinilega að ná sér á strik
eftir meiðslin langvinnu. Hann skoraði 6 mörk, 3
úr vítum, þegar Lemgo tapaði 19-22 fyrir Gum-
mersbach í Bundesligunni í handknattleik um
helgina.
PáB1 ©toafsson skoraði 7 fyrir Dankersen sem
tapaði 29-19 fyrir Schwabing. Kiel vann Göpping-
en 28-26, Gunzburg skellti Grosswallstadt óvænt,
19-15y og Essen vann Dusseldorf 18-16. í 2. deild
skoraði Kristján Arason 6 mörk í 28-18 sigri Ha-
Handbolti/yngri flokkar
UMFN, Fram og Valur
Sigruðu Víking, Stjörnuna og Þór A. íúrslitaleikjum
UMFN varð íslandsmeistari í
3. flokki kvenna, Fram í 4. flokki
karla og Valur í 5. flokki karla um
helgina. Stjarnan sigraði í 3.
flokki karla eins og sagt er frá hér
í opnunni.
Stúlkurnar kepptu í Keflavík,
níu lið í tveimur riðlum. í A-riðli
hlaut Víkingur 7 stig, Stjarnan 7,
Þór Ak. 2, Haukar 2 bg IR 2 stig.
í B-riðli hlaut UMFN 6 stig, Týr
4, ÍBK 2 og FH ekkert stig.
Til úrslita léku því UMFN og
Víkingur. Njarðvíkurstúlkurnar
leiddu 4-2 í hálfleik og unnu 8-4.
Harpa Magnúsdóttir gerði 4
marka þeirra, Kristín Blöndal 2,
Brynja Thorsdóttir 1 og
Sveinbjörg Olafsdóttir 1. Heiða
Erlingsdóttir skoraði 2 rnörk fyrir
Vtking, Erna Aðalsteinsdóttir 1
og Halla Helgadóttir 1.
Stjarnan vann Tý 9-3 í úrslitum
um 3. sætið. Helga Sigmunds-
dóttir gerði 5 marka Stjörnunnar
og Elísabet Benónýsdóttir 2
marka Týs.
Úrslitin í 4. flokki karla fóru
fram í Garðabæ. Þar sigraði
Stjarnan í A-riðli með 8 stig, Þór
Ak. fékk 5, Selfoss 4, Þór Eyjunr
2 og Grótta 1 stig. I B-riðli fékk
Fram 5 stig, Valur 5, Víkingur 2
og Týr ekkert.
Fram vann síðan Stjörnuna 19-
11 í úrslitaleik eftir 6-4 í hálfleik.
Mörk Fram gerðu Halldór Jó-
hannsson 6,J Jason Ólafsson 4,
Hlynur Ragnarsson 4, Jón Geir
Sævarsson 3, Böðvar Þorvalds-
son 1 og Ólafur Björnsson 1.
Mörk Stjörnunnar gerðu Magnús
Baldvinsson 5, Jón Þórðarson 2,
Jóhann Sigurðsson 1, Sigurður
Gunnlaugsson 1, Jörundur
Sveinsson 1 og Ingi Þórðarson 1.
Valur vann Þór frá Akureyri
21-16 í úrslitum um 3. sætið. Lár-
us Sigurðsson skoraði 7 marka
yals en Hjalti Hjaltason og Þórir
Áskelsson gerðu 6 hvor fyrir Þór.
Loks var keppt í 5. flokki karla
á Akranesi. I A-riðli fékk Þór
Akureyri 8 stig, Fram 4, Týr 4,
Afturelding 4 og Stjarnan ekkert.
í B-riðli fékk Valur 8 stig, Grótta
5, ÍA 4, ÍR 3 og Höttur ekkert.
Valur sigraði Þórsara frá Ak-
ureyri 10-7 í úrslitaleik, 6-4 í hálf-
leik. Fyrir Val skoruðu Óskar
Óskarsson 3, Ólafur Stefánsson
3, Einar Ö. Birgis 2, Sveinn Sig-
finnsson 1 og Dagur Sigurðsson
1. Fyrir Þór Bjarmi Guðlaugsson
3, Steindór Gíslason 2 og Hákon
Örvarsson 2.
Fram vann Gróttu 10-8 í úrslit-
um um3, sætið eftir 4-Gf hálfleik.
Einar P. Kjartansson skoraði 5
marka Framara en Valur Krjstj-
ánsson 5 rnarka Gróttunnar.
- VS
10 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Þri&judagur 15. apríl 1986
meln á Verden.
Þriðjudagur 15. apríl 1986 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 11