Þjóðviljinn - 20.06.1986, Blaðsíða 2
FRETTIR
Hjálparstofnun kirkjunnar
Heimili fyrir Eþíópíuböm
Heimilið á að rúma 150 börn og kostar 15 milj. kr.
Eins og flestum mun sjálfsagt í
fersku minni stóð Hjálpar-
stofnun kirkjunnar að útgáfu
hljómplötunnar „Hjálpum þeim“
fyrir síðustu jól. Var það gert
með stuðningi og í samvinnu við
íslenskt hljómlistarfólk. Og nú í
maí stóðu svo Hjálparstofnunin
og íþróttafólk saman að Afríku-
hlaupinu.
Tilgangurinn með hljómplötu-
útgáfunni og hlaupinu var sá, að
safna fé til hjálpar bágstöddum
Afríkubúum. Inn komu um 10
milj. kr. Hefur nú verið ákveðið
að verja upphæðinni til byggingar
heimilis fyrir munaðarlaus börn í
Eþíópíu, sem safnast höfðu sam-
an þar sem íslensku hjúkrunar-
fræðingarnir störfuðu sl. ár. Þessi
börn 6-13 ára búa nú ítjöldum við
ógóða vist.
Heimilið verður reist í Hajk,
um 500 km. frá Addis Ababa, og
verður fyrir 150 börn. Alls munu
íslendingar verja 15 milj. kr. til
þessarar stofnunar. Tveir smiðir
héðan munu koma upp heimilinu
og íslenskur hjúkrunarfræðingur
kemur til með að starfa þar, en
alls verða starfsmenn um 10 tals-
ins.
Dr. Salomon Gidada, for-
stöðumaður lúthersku kirkjunn-
ar í Eþíópíu, er nú staddur hér á
landi til viðræðna við Hjálpar-
stofnunina um þessar fram-
kvæmdir.
íslendingar hafa tekið umtals-
verðan þátt í hjálparstarfinu með
öðrum þjóðum. En bygging
þessa heimilis er fyrsta verkefnið,
sem við sjáum algerlega einir um.
Og þó að enn vanti nokkuð upp á
að nægilegt fé hafi safnast til þess
að koma málinu heilu í höfn þarf
ekki að efa að það muni skila sér.
- mhg
Já.. veldur Hafskipsbjór minn-
isleysi?
Zahíd Ali: Vil gjarnan koma á pennavinatengslum milli íslendinga og lesenda
blaða okkar. Ljósm.: Ari.
Hugfanginn af Islandi
Fulltrúifrá stœrsta útgáfufyrirtœki blökkuhreyfingarinnar í Bretlandi
óskar eftir íslenskum pennavinum fyrir lesendur blaða fyrirtœkisins
r ,
Eg er hugfanginn af Islandi. Eg
hef ferðast mikið en þetta er
tvímælalaust athyglisverðasta
land sem ég hef komið til sagði
Zahid Ali dreifingarstjóri hjá
stærsta útgáfufyrirtæki blökku-
hreyf ingarinnar í Bretlandi um
upplifun sína af Islandi. Mér er
því mikið í mun sagði Ali, að
pennavinatengsl skapist á milli Is-
lendinga og lesenda blaða okkar
en við erum með sérstaka penna-
vinaauglýsingar í öllum okkar
blöðum.
Útgáfufyrirtækið Hansib sem
Ali starfar fyrir gefur út mánað-
arrit sem heitir Westindian Di-
gest en auk þess dagblöð sem
koma út þrisvar í viku. Dagblöð-
in eru þrjú, Karabíska, Asíska og
Afríska dagblaðið og þjóna þau
stærstu innflytjendasamfélögun-
um í Bretlandi. I þessum blöðum
er leitast við að vekja athygli á
öllum hliðum kynþáttamisréttis
en slík umræða er mjög þörf sagði
Ali því enn eru það margir sem
ekki eru meðvitaðir um stöðu
sína og rísa upp gegn henni.
Ali sagði að hann hygðist skrifa
um reynslu sína á íslandi í öll þau
blöð sem útgáfufyrirtækið stæði
að og vonaðist til þess að penna-
vinatengsl sköpuðust í framhaldi
af því. Hann sagði að nöfn þeirra
sem óskuðu eftir pennavinum
væru meðhöndluð sem algjört
trúnaðarmál og að í auglýsingu
gæti viðkomandi einfaldlega birt
númer í stað nafns. Ali bað um að
fólk tilgreindi áhugamál og frí-
stundaiðkanir auk upplýsinga um
hvort viðkomandi vildi skrifast á
við konu eða karl. Þeir sem
áhuga hafa á pennavinum í Bret-
landi geta sent nafn og ofan-
greindar upplýsingar til útgáfu-
fyrirtækisins en heimilisfangið
þar er:
Hansib publishing Itd.
Tower House
139/149 Fonthill Road
London N4 3 HF
England
Ólafur Ragnar Grímsson
Albert 09 Guðmundur hafa
báðir bmgðist trúnaði
jóðviljinn leitaði í gær til
Ólafs Ragnars Grímssonar,
formanns framkvæmdastjórnar
Alþýðubandalagsins, og bað
hann að skýra afstöðu sína til
þeirra fjármálatengsla sem kom-
ið hafa í Ijós milli stjórnmála-
mannanna Guðmundar J. Guð-
mundssonar og Alberts Guð-
mundssonar.
„Á þessu máli eru þrjár megin
hliðar. I fyrsta lagi sú sem snýr að
Hafskipsmálinu. í öðru lagi sú
sem snýr að verkalýðshreyfing-
unni og samskiptum forystu-
manna verkalýðshreyfingarinnar
við viðsemjendur. Þriðja hliðin
er sú sem snýr að Alþýðubanda-
laginu, stjórnmálunum í landinu
og Alþingi.
Alþýðubandalagið er flokkur
þeirrar gerðar að það þolir ekki
að alþingismenn, forystumenn
flokksíns, taki við stórum pening-
um frá höfuðandstæðingum í
stjórnmálum, jafnvel þótt þeir
séu persónulegir vinir. Við þetta
bætist að hér er um að ræða pen-
inga sem hvergi koma fram og
óljóst hvort um lán eða gjöf er að
ræða.“
- En nú er þarna líka um mjög
náinn persónulegan vinskap að
rœða?
„Það er rétt. Við vitum öll að
vinátta Guðmundar J. og Aiberts
hefur verið mikil, en vinátta
stjórnmálamanna er vandmeð-
farin. Stjórnmálamaður og for-
ystumaður ber bæði siðferðis-
legan og félagslegan trúnað. Á
þessum þætti málsins er annars
vegar hinn persónulegi harm-
leikur að Albert Guðmundsson
blekkir vin sinn og hins vegar sá
hreini skjöldur sem Alþýðu-
bandalagið hefur haft og verður
að hafa ef barátta þess á að hafa
siðferðilegan og pólitískan styrk
og vera trúverðug."
- Pú nefndir að hér vœri um að
rœða peninga sem livergi hefðu
komið fram opinberlega. Er það
e.t.v. mikilvœgara atriði í þínum
huga?
„Það er ljóst að það er veiga-
mikill þáttur málsins. Þarna er
um að ræða upphæð sem nemur
tæpum árslaunum verkamanns.
Þessi upphæð er ekki talin fram
til skatts og hennar er hvergi get-
ið á opinberum vettvangi. I þess-
um efnum er sök Alberts Guð-
mundssonar mun stærri, því hann
var á þessum tíma fjármálaráð-
herra og sem slíkur yfirmaður
skattamála og skattrannsókna í
landinu."
- Nú hefur Guðmundur J.
Guðmundsson lýst því yfir að
hann muni láta af þingmennsku ef
og þá á meðan hans mál verður
rannsakað sérstaklega. Eru þetta
ekki rétt viðbrögð að þtnu mati?
„Yfirlýsing hans er ekki skýr.
Ef hún merkir það að hann sé að
bíðjast lausnar þá tel ég það vera
rétta ákvörðun. í þessum efnum
ber honum, sem og okkur öllum
sem höfum valist til félagslegs
trúnaðar og forustu fyrir Alþýðu-
bandalagið, að hugsa um þann
hreina skjöld sem flokkurinn
verður að hafa og hefur haft.“
- Hefur Guðmundur brugðist
trúnaði?
„Já, því miður er óhjákvæmi-
legt að álykta svo.“
- Hvað um Albert Guðmunds-
son. Ert þú þeirrar skoðunar að
hann eigi að víkja líka?
„Alveg tvímælalaust. Það er
siðblindur forsætisráðherra sem
sér það ekki að hann verður þeg-
ar í stað að biðjast lausnar fyrir
Albert, ef hann segir ekki sjálfur
af sér. Á sama hátt er það alvar-
leg siðblinda hjá Þorsteini
Pálssyni og forustumönnum
Sjálfstæðisflokksins að neita að
aðhafast eitthvað í málinu. Nú
þegar er komið í ljós, og Albert
Guðmundsson hefur í reynd ját-
að því, að hann hefur tekið við
fjárhæð hjá forstjóra stórfyrir-
tækis, og að öllum líkindum vitað
að þeir fjármunir komu frá Haf-
skip og Eimskip beint, og afhent
hana síðan að hluta eða alla al-
þingismanni á skrifstofu fjár-
málaráðherra. Jafnframt hefur
hann nú viðurkennt að hafa leynt
því hvaðan þessir peningar komu
og greinir auk þess hvergi frá
þeim gagnvart skattayfirvöldum
eða öðrum opinberum aðilum.
Albert greinir hvergi frá því að
hann hafi flutt upphæð sem nem-
ur tæpum árslaunum verkamanns
frá forstjórum fyrirtækja og yfir
til annars forystumanns í þjóð-
málum. Alls staðar í nágranna-
löndum okkar, í Vestur-Evrópu,
á Norðurlöndum, í Bretlandi og í
Bandaríkjunum þar sem upplýst
væri að fjármálaráðherra og yfir-
maður skattamála í landinu hefði
gerst sekur og játað á sig slíkan
verknað myndi hann annaðhvort
sjálfur segja af sér samdægurs
eða forsætisráðherra myndi biðj-
ast lausnar fyrir hann. Það er því
prófsteinn á pólitískt siðgæði og
lýðræði á íslandi hvort Steingrím-
ur Hermannsson og Þorsteinn
Pálsson nú þegar biðjast lausnar
fyrir Albert. Þeir þurfa ekki að
bíða eftir neinu meiru úr rann-
sókn Hafskipsmálsins. Það er
nægileg vitneskja komin fram til
þess að réttlæta slíka afsögn í sið-
uðu þjóðfélagi. Það væri alvar-
legt áfall fyrir trúnaðinn milli
fólksins í landinu og
stjórnkerfisins ef siðblinda hindr-
aði forsætisráðherrann og for-
mann Sjálfstæðisflokksins í því
að gera þetta nú þegar.“
- En aftur um flokksbróður
þinn. Á ekki varaþingmaður
Guðmundar J. erfitt með að
hvetja til afsagnar hans með þeim
hœtti sem þú hefur nú gert?
„Undanfarna daga hef ég reynt
að vinna að þessu máli sem for-
maður framkvæmdastjórnar
flokksins og í nánu samstarfi við
formann flokksins. Ég hef unnið
að þessu máli af fullum heilindum
og samvinna mín við formann
flokksins hefur verið sérstaklega
nauðsynleg þar sem formaður
þingflokksins er nú staddur er-
lendis. Ég harma það hins vegar
mjög að Guðmundur J. Guð-
mundsson skuli í viðtali við
Morgunblaðið beinlínis taka
undir það að afskipti mín af þessu
máli helgist af því að ég sé að
sækjast eftir þingsæti hans. Með
slíkum ásökunum, eftir að ég hef
átt persónuleg trúnaðarsamtöl
við Guðmund sjálfan, þingmenn
flokksins, Ásmund Stefánsson,
Þröst Ólafsson og fjöldann allan
annan af trúnaðarmönnum, er
verið að draga alvöru þessa máls
niður á ærið lágt plan.“
- En verðtir hjá því komist að
fólkifinnist þarna verða togstreita
milli hlutverka þinna og
hagsmuna?
„Ég hef ákveðið að láta ekki
ásakanir um annarlegar hvatir
mínar skyggja á siðferðilega og
stjórnmálalega alvöru málsins
fyrir Alþýðubandalagið og
stjórnmálalífið í landinu. Það má
ekki draga þetta mál niður á plan
einhverrar persónulegrar tog-
streitu um varaþingsæti. Ég tel
það því skyldu mína gagnvart Al-
þýðubandalaginu að taka ekki
sæti Guðmundar J. Guðmunds-
sonar á Alþingi og það mun ég
þess vegna ekki gera.“
G.Sv.
2 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Föstudagur 20. júní 1986