Þjóðviljinn - 20.06.1986, Qupperneq 5
FRETTIR
Hjólreiðar
Fjórir kepptu
í Finnlandi
Eins og kunnugt er af fréttum
þá var ísland meðal þátttak-
enda í aiþjóðlegri keppni vél- og
reiðhjólamanna. Þessi keppni er
haidin á vegum PRI sem eru al-
þjóðasamtök umferðarráða. Að
Trimmdagar
Heilbrigt líf
- hagur allra
Á Jónsmessu 1986 verður gert
átak til eflingar hollri hreyfíngu
og útiveru undir kjörorðinu:
Heilbrigt lif - hagur allra.
Að undanförnu hafa augu
margra opnast fyrir nauðsyn
heilbrigðs lífernis. Það veldur
óhug að heyra frásagnir af ung-
mennum sem ekki finna sér
önnur viðfangsefni en þau er
tengjast vímuefnum. Heilbrigðis-
yfirvöld, sveitarfélög og frjáls fé-
lagasamtök vinna mikilvægt
fyrirbyggjandi starf, en sá þáttur
gæti þó orðið miklu stærri ef bet-
ur væri að búið.
Þá skyldu foreldrar minnast
þess þegar sest er fyrir framan
sjónvarp eða vídeó að sá tími gæti
orðið börnunum dýrmætari ef
notaður væri til hreyfingar útivið
og til að skoða náttúru landsins.
Nú er tækifæri til frómra óska,
enda þótti Jónsmessan góð til
slíks áður fyrr. Það er auðvitað
ekki nóg að hreyfa sig eina helgi,
en upphaf gæti þetta orðið að
reglubundinni hreyfingu.
Föstudaginn 20. júní verða
fimleikar á dagskrá, 21. júní
verður tileinkaður sundi og verða
allir sundstaðir landsins opnir
þann dag.
Sunnudagur 22. júní verður
dagur skokks og gönguferða.
Ungmennafélögin hafa árlega
staðið fyrir „Göngudegi fjöl-
skyldunnar" og hafa á annað
hundrað ungmennafélög skipu-
lagt slíkar fjölskyldugöngur víð-
svegar. Auk þess mun Ferðafélag
íslands og Útivist skipuleggja
gönguferðir um land síðustu ár
þennan dag. Sólstöðugangan
verður laugardaginn 21. júní.
Ég hvet fólk um land allt til að
nota þessa helgi vel til hollrar
hreyfingar og útiveru og fylgjast
með því hvar skipulögð þátttaka
er undirbúin t.d. mætti hafa sam-
band við næsta ungmennafélag
og taka þátt í „Göngudegi fjöl-
skyldunnar". En umfram allt ver-
ið öll með, það er úr nógu að
velja.
Pálmi Gíslason
form. UMFÍ
Próunarfélag
Ný stjórn
Stjórn Þróunarfélags íslands
hf., sem kosin var á framhaldsað-
alfundi félagsins hinn 13. júní sl.
kom saman til fyrsta fundar 18.
júní sl.
Stjórnin skiptir með sér verk-
um og var Ólafur Davíðsson kos-
inn formaður, Jón Sigurðarson
varaformaður og Ólafur B. Thors
ritari. Aðrir í stjórn eru Dag-
bjartur Einarsson og Guðmund-
ur G. Þórarinsson.
Varamenn sem kosnir voru á
framhaldsaðalfundi eru Stefán
Pálsson, Björn Jósef Arnviðar-
son og Valgerður Sverrisdóttir.
þessu sinni sendu 14 þjóðir þátt-
takendur í keppnina sem fór fram
í Espo í Finnlandi 1.-6. júní.
ísland sendi tvo keppendur í
hvorn flokk. í vélhjólaflokknum
kepptu Magnús Garðarsson úr
Reykjavík og Hlynur Hreinsson
frá ísafirði. I reiðhjólaflokknum
kepptu Dofri Örn Guðlaugsson
úr Njarðvíkurskóla og Auðunn
R. Ingvarsson Árbæjarskóla
Reykjavík.
Islensku keppendurnir stóðu
sig vel og urðu vélhjóiamenn í 6.
sæti í sveitakeppni og reiðhjólast-
rákarnir í 8. sæti. Sigurvegari í
báðum flokkum voru gestgjaf-
arnir, Finnar.
Keppnin fer þannig fram að
fyrst svara keppendur skriflega
spurningum síðan er keppt í
þrautaakstri og loks er keppt í
góðakstri í umferð.
Framkvæmd keppninnar var
mjög til fyrirmyndar og Finnum
til sóma.
Umferðarráð þakkar öllum
sem undirbjuggu þessa keppni
þ.e. skólastjórum í grunnskólum
landsins, Bindindisfélagi öku-
manna og lögreglumönnum víðs
vegar um landið.
Þátttakendur og fararstjórar, talið frá vinstri: Guðmundur Þorsteinsson nám-
stjóri, Magnús Garðarsson Rvík, Auðunn F. Ingvarsson Rvík, Dofri Örn Guð-
laugsson Njarðvík, Hlynur Hreinsson ísafirði og Þröstur Hjörleifsson lögreglu-
varðstjóri Kópavogi. Ljósm. P.S.
Jafnaðarmenn
á þingi í Perú
Jón Baldvin fulltrúi Alþýðuflokksinsþar
Sautjánda þing Alþjóðasam-
bands jafnaðarmanna, sem
haldið er þriðja hvert ár, verður
að þessu sinni haldið í Lima, höf-
uðborg Perú. Þingið er haldið í
boði PAP, en sá flokkur fer þar
með landsstjórn. Þetta er í fyrsta
sinn sem þing Alþjóðasambands-
ins er haldið á meginlandi Amer-
íku.
Þingið stendur yfir dagana 20.-
23. júní. Þingið hefst með ávarpi
Alan Garcia, forseta Perú og for-
manns jafnaðarmannaflokks
Perú. Því næst flytur forseti Al-
þjóðasambandsins, Willy Brandt
yfirlitsræðu.
Meginviðfangsefni þingsins
eru þrjú:
1. Afgreiðsla nýrrar stefnuyfir-
lýsingar Alþjóðasambandsins,
sem verið hefur í smíðum sl. 10
ár.
2. ítarleg stefnuályktun um nýja
efnahagskipan heimsins, þ.e.
samskipti Norðurs og Suðurs í
framhaldi af Brandt-skýrslunni
svokölluðu. Kjarni hennar er að
þar er sovétkommúnisma og
óheftum markaðsbúskap sem
fyrirmyndum þróunarríkja hafn-
að. í staðinn er bent á þriðju
leiðina: Leið hins blandaða hag-
kerfis.
3. Loks er ítarleg ályktun um
samskipti Austurs og Vesturs um
afvopnunarmál og um frumkvæði
alþjóðahreyfingar jafnaðar-
manna í friðarmálum.
Alls munu 80 jafnaðarmanna-
flokkar í öllum heimsálfum eiga
beina aðild að Alþjóðasamband-
inu. Auk þess eiga margar
stjórnmálahreyfingar þriðja
heimsins nú aukaaðild að því.
Þeirra á meðal má nefna jafnað-
armannahreyfingar frá ýmsum
löndum, sem nú eru landflótta,
t.d. frá baltnesku ríkjunum og
ríkjum Austur-Evrópu.
Alþýðuflokkurinn hefur átt
aðild að Alþjóðasambandinu frá
árinu 1922. Formaður hans, Jón
Baldvin Hannibalsson, mun
sækja þingið og taka þátt í störf-
um stefnuskrárnefndar, sem er>
undir forystu bandaríska hag-
fræðingsins Michaels Harring-
tons.
Arneshreppur
Niðjamót
Afkomendur hjónanna Val-
geirs Jónssonar og Sesselju Gísla-
dóttur, sem bjuggu í Norðflrði í
Árnesshreppi í Strandasýslu frá
því fyrir síðustu aldamót og fram
undir miðja þessa öld, ætla að
hittast norður í Árneshreppi 28.
júní n.k.
Ætlast er til að fólk komi
norður á föstudag. Laugardagur-
inn verður notaður til samveru og
ýmissa uppákoma. Á sunnudag
heldur hver til síns heima.
Þeir sem hyggjast notfæra sér
rútuferð norður á föstudag og til
baka á sunnudag láti vita fyrir 23.
júní í síma 38141 (Guðlaugur),
33933 (Margrét) og 76229
(Pálmi).
Skólameistarar
Ný stjóm
Aðalfundur Skólameistarafé-
lags íslands var haldinn mánu-
daginn 9. júní í menntaskólanum
við Hamrahlíð. I stjórn voru
kosnir:
Formaður, Ingvar Ásmunds-
son skólastjóri Iðnskólanum í
Reykjavík. Ritari, Þórir Ólafs-
son, skólameistari Fjölbrauta-
skólans á Akranesi. Gjaldkeri,
Karl Kristjánsson, aðstoðar-
skólam. Fjölbrautaskólans v/
Ármúla. Varamenn: BjörnTeits-
son, skólameistari Mennta-
skólans á ísafirði og Kristinn
Kristmundsson, skólameistari
Menntaskólans að Laugarvatni.
Á fundinum fluttu skóla-
meistararnir Kristján Bersi Ól-
afsson, Flensborgarskóla og Þór-
ir Ólafsson erindi um innra starf
framhaldsskólanna. Um þetta
efni urðu mjög líflegar umræður
á fundinum.
Stjórninni var falið að taka upp
viðræður. við menntamálaráðu-
neytið um þetta efni og um sam-
skipti skólanna við ráðuneytið.
Blómabœndur
Lækka
verðið
Blómamiðstöðin hf. sölusam-
tök blómabænda, hefur lækkað
heildsöluverð afskorinna blóma
um allt að þriðjung. Þetta lága
verð mun haldast fram eftir
sumri.
Ákvörðun þessi er tekin vegna
stöðugra verðlags á aðföngum
blómabænda og aukinnar hag-
ræðingar í ræktun. Á undanförn-
um árum hefur áhugi á blómum
og notkun þeirra farið vaxandi,
og vilja blómabændur mæta þess-
um aukna áhuga á blómurn, með
lækkuðu verði, segir í frétt frá
þeim.
Brúðubíllinn
A ferö og flugi
Helga Steffensen og Sigríður Hannesdóttir með Lilla.
Leikhúsið Brúðubíllinn á 10 ára
afmæli í sumar og hefur und-
anfarna daga verið að ferðast á
milli gæsluvalla borgarinnar. Nú
verða sýndir tveir einþáttungar,
BrúðubíIIinn 10 ára og Úlfurinn
og kiðlingarnir sjö.
Einþáttungurinn Brúðubíllinn
10 ára er blönduð dagskrá, nýtt
og gamalt efni frá fyrri sýningum.
Ulfurinn og kiðlingarnir sjö er í
leikgerð Helgu Steffensen, en
Sigríður Hannesdóttir semur vís-
urnar en báðar stjórna þær brúð-
unum.
Brúðurnar býr Helga til en þær
eru af ýmsum gerðum eins og allir
krakkar vita. Sumar þeirra kann-
ast börnin við eins og Lilla,
Gústa, ömmu og refinn.
Nú er seinni untferð yfirreiðar
Brúðubílsins hafin og á næstu
vikum rnunu krakkarnir á þess-
um stöðum eiga þess kost að hitta
vini sína: 20. júní: Safamýri kl. 2
og Kambsvegi kl. 3. 23. júní:
Barðavog kl. 10, Sæviðarsundi
kl. 2. 24. júní: Rofabæ 1 kl. 10,
Rofabæ 11 kl. 11, Vesturv. kl. 2.
25. júní: Tunguseli kl. 10, Faxas-
kjóli kl. 2. 26. júní: Fífuseli kl.
10, Freyjugötu kl. 2. 27. júní:
Suðurhólum kl. 10, Breiðholti kl.
2. 30. júní: Vesturbergi kl. 10,
Hringbraut kl. 2. 1. júlí: Dala-
landi kl. 10, Rauðalæk kl. 2,
Gullteigi kl. 3. 2. júlí: Tunguvegi
kl. 10, Stakkahlíð kl. 2, Hvassa-
leiti kl. 3.
Föstudagur 20. júni 1986 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 5