Þjóðviljinn - 20.06.1986, Page 7
MODVIUINN
Umsjón:
Andrea Jónsdóttir
Roland Gift söngvari Fine Young Cannibals er með fallegri mönnum. Hann kvað synda fjögurhund-
ruð metra flugsund í einum rykk án þess að blása úr nös. Sterkur og góður söngvari, ættaður frá Hull.
Meiriháttar
stemmning
ogspilerí .
Listapopp ’86 eru bestu rokkhljómleikar sem haldnir hafa
veriö síðan Led Zeppelin spiluöu í Laugardalshöll 17. júní
1970. Engin þeirraerlendu hljómsveitasem hérspiluöu
nú á Listahátíð veröur þó talin slík tímamótahljómsveit
sem Led Zeppelin, enda fara fáir ef nokkrir í fötin þeirra.
Hins vegar komu þær verulega á óvart meö því aö vera
jafnvel betri á hljómleikum en á hljómplötu. Einkum á
þetta viö um Fine Young Cannibals sem fengu hvaö
bestar viötökur og er þá mikið sagt. Áhorfendur í Laugar-
dalshöll bæöi mánudags- og þriðjudagskvöld voru nefni-
lega alveg frábærir- þakklátir, uppörvandi og afskaplega
úthaldsgóðir, því að þaö er nefnilega ekki tekiö út meö
sitjandi sældinni, jafnvel þótt maöur hafi sæti, aö vera
viðstaddur, hvaö þá í góöu stuði, svo langa hljómleika á
enda. Mér er nær aö halda aö þetta hafi verið glaövær-
asta og huggulegasta rokksamkunda af þessari stærö
sem hér hefur verið haldin - rúmlega fimm þúsundir
voru í Höllinni fyrri kvöldið og a.m.k. þúsund fleiri þaö síðara.
Stemmningin á tónleikunum var mögnuð. A stundum var allt að tryllast í salnum. Ljósm. Ari.
Föstudagur 20. júnf 1986 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 7