Þjóðviljinn - 20.06.1986, Qupperneq 8
GLÆTAN
Lloyd Cole, söngvari, textasmiöur og gítarleikari skosku sveitarinnar The
Commotions. Hæverskan og séntiimennskan uppmáluö.
einn, „algjörlega óþolandi, og
kvartaði undan öllu, jafnvel vatn-
inu!“. Og þetta orð virðist loða
við hljómsveitina því að þeir úr
hinum þrem sveitunum, sem
undirrituð komst í návígi við,
vildu sem minnst um Simply Red
segja eða vita. En það verður
ekki af þessu bandi skafið að það
er alveg þrumugott og ekki
skemmdi hljóðblöndunin fyrir.
Simply Red áttu að fagna besta
„sándinu“ á Listapoppi ’86 enda
kvenmaður við stjórnvölinn.
í>ó hefur aldrei verið betra
sánd í Höllinni í heildina litið,
nýju græjum Davíðs að þakka.
Eins og áður sagði slógu Fine
Young Cannibals í gegn á þjóð-
hátíðardagskvöld og voru klapp-
aðir þrisvar upp, alltaf við jafn
mikinn fögnuð. Mjög gott hljóm-
leikaband. Madncss voru síðastir
á dagskrá og sjálfur borgarstjór-
inn kynnti þá stutt og laggott, en
hann hafði haft boð inni í Höfða
fyrir hljómsveitirnar allar um
daginn. Ekki var fullkomið sánd-
ið hjá Madness, söngvararnir
áttu í nokkurri baráttu við undir-
leikinn og höfðu ekki betur. En
Madness er mjög skemmtileg
hljómsveit, ljúfmennskan lekur
af hverjum tóni og ekki skeinma
fyrir sérstakar og húmorískar
hreyfingar og danstaktar fóst-
bræðranna Suggs og Carls.
Reyndar tókst Carl ekki á loft
eins og músaamman í Dýrunum í
Hálsaskógi í þetta skipti, því að
ekki voru aðstæður til að taka til-
heyrandi útbúnað með. En þetta
var skemmtilegur endir á tvenn-
um frábærum hljómleikum, þar
sem allir kunnu sitt fag, á sviði,
baksviðs og fyrir framan það.
A
Mick Hucknall, söngvarinn mikli í Simply Red. Myndirnar tók Ari.
Vegna þjóðlegrar, meðfæddr-
ar og áunninnar óstundvísi missti
undirrituð af fyrsta þætti bæði
kvöld, Bjarna Tryggva og
Greifunum en náði í rassinn á
Grafík og Rikshaw. Grafík virð-
ist soldið vera að breyta um stíl,
fara út í e.k. blöndu af Duran og
Talking Heads. Ekki finnst mér
það til bóta. bitnar á sjarmanum
sem var aðall plötunnar „Get ég
tekið cjens“. Annars var Grafík
upp á sitt besta á mánudags-
kvöldið, Helgi í góðu söngformi,
en hljóðblöndun hefði mátt vera
betri - t.d. drukknaði léttur
trumbusláttur Abdus á köflum.
Rikshaw er góð hljómsveit en
ekki frumleg á heimsmælikvarða.
Þeim tókst að ná upp ágætu sam-
bandi við salinn í gegnum Ric-
hard söngvara Scobie - hann
minnir mann bara dulítið á Julian
Lennon. Rikshaw eru rokkaðri
og skemmtilegri á hljómleikum
en á hljómplötu.
Og þá er það útlenda liðið.
Pessar fjórar bresku hljómsveitir
eru svo ólíkar að ekki er hægt að
bera þær saman. Allar stóðu þær
undir því sem við var af þeim bú-
ist og meira en það. Lloyd Cole
and the Commotions sem voru
fyrra útlenda bandið á mánu-
dagskvöld, fluttu sitt efni óað-
finnanlega, heldur hressilegar en
á plötunni sinni. Nokkuð sérstök
poppgrúppa og mjög bresk, hvað
sem það nú þýðir. Simply Rcd
sækir hins vegar fanga í banda-
rískri sálartónlist og djass. Söng-
varinn Mick „Red“ Hunckall hef-
ur meiriháttar rödd, háa og
sterka, og hljómsveitin er aldeilis
frábær... það er að segja í spila-
mennskunni... Starfsfólk í Höll-
inni í kringum hljómleikana var
ekki eins hrifið af framkomunni:
„Montið lið og hrokafullt", sagði
Madness- Madness... sveittir í hita leiksins og eftir veislu með borgarstjóra. Yndislegt lið- Suggs aðalsöngvari í
flekkóttu fötunum og Carl Smith söngvari, dansari og saxisti í þeim röndóttu.
Vinsældalistar Þjóðviljans
Fellahellir
9
Grammid
1. (-) Megas - Megas allur
2. (1) The Smiths - Big Mouth Strikes Again
3. (-) Fine young Cannibals - F.Y.C.
4. (4) Lioyd Coal and the Commotions - Easy
5. (3) Easter House - Inspiration Pieces
6. (5) Simply Red - Picture Book
7. (6) New Order - Shellshock
8. (10) Love Reed - Mistral
9. (9) Microdisney - The clock comes down the
stairs
10. (10) Robert Wyatt - Old rotten Hat
Rás 2
1. (3) Re-sett-ten - Danska fótboltalandsliöiö
2. (2) Svart-hvíta hetjan mín - Dúkkulísur
3. (1) Lesson in love - Level 42
4. (24) Funny how love is - Fine Young Canni-
bals
5. (5) Holding back the years - Simply Red
6. (13) Spirit in the sky - DR and the Medics
7. (6) Invisible touch - Genesis
8. (10) Can’t wait another minute - Five star
9. (8) Bad boy - Miamy sound machine
10. (-) When tomorrow comes - Eurythmics