Þjóðviljinn - 13.07.1986, Qupperneq 7

Þjóðviljinn - 13.07.1986, Qupperneq 7
lítur hún á hana sem eðlilegt ástand? Guðrún Agnarsdóttir, þingmaður Kvennaiistans Herstöðin gerir landið að eftir- sóttu skotmarki Guðrún Agnarsdóttir, þing- maður Kvennalistans kaus að skila skriflegu svari við þeim spurningum sem lagðar voru fyrir hana og fer það hér á eftir. Ef marka má niðurstöður úr skoðanakönnun, sem gerð var sumarið 1983 af Ólafi P. Harðar- syni, er ekki hægt að segja að menn séu almennt sáttir við veru bandarísks herliðs hér á landi. Þar kom í ljós að 54% aðspurðra voru annaðhvort afgerandi eða frekar hlynntir. 30% voru frekar eða afgerandi andvígir en 15% töldu það ekki skipta máli. Það er þó eftirtektarvert að umræður hafa ekki orðið miklar í þjóðfélaginu um hin auknu um- svif herliðsins á undanförnum árum. Umræðan geldur þess ef til vill hve viðkvæmt málið hefur verið og mikið notað til að gefa mönnum flokkspólitískan stimp- il. Auk þess er enginn vafi á því að bandaríska herliðið hefur bor- ið með sér efnahagslegan ágóða hérlendis allt frá fyrstu tíð. Vegna stórfelldra nýrra hernað- arframkvæmda sem tengjast auknum vígbúnaði á norðurslóð hafa efnahagsleg áhrif herstöðv- arinnar farið vaxandi og skilað sér til fleiri einstaklinga. Þegar svo er komið er hætt við að efna- hagshagsmunir geti haft áhrif á afstöðu manna. Það er áhugavert að í áðurn- .efndri skoðanakönnun er and- staðan gegn herstöðinni meiri meðal yngra fólks en eldra, það er þeirra sem hafa að jafnaði minni efnahagslega ábyrgð og umsvif. í aldurshópnum 20-23 ára voru t.d. 39% meðmæltir, 37% andvígir og 24% töldu her- stöðina ekki skipta máli. Vera erlends hers í landinu, einkum þegar við eigum ekki í ófriði við aðrar þjóðir er óeðlileg og stöðug ögrun við sjálfstæðis- vitund þjóðarinnar. Það kemur einnig fram í skoðanakönnuninni að andstaða gegn herstöðinni er mun meiri en gegn áframhald- andi veru íslendinga í Atlants- hafsbandalaginu og eru þó málin skyld. Þar voru 53% meðmæltir, 13% andvígir en 34% sögðust enga skoðun hafa. Þessar tölur benda til þess að þótt menn kjósi samflot með öðrum þjóðum í hernaðarbandalagi finnst þeim gegna allt öðru máli að hýsa er- lent herlið í eigin landi. Kvennalistinn telur að í veröld nútímavopna veiti herlið enga vörn. Engin þjóð geti tryggt ör- yggi sitt umfram aðrar þjóðir gegn þeim vopnarveldum sem skáka hvort öðru í því ógnar- jafnvægi sem sumir una við og telja að varðveiti friðinn. Banda- nsk hernaðarumsvif á íslandi eru fyrst og fremst liður í víðtækri og vaxandi vígbúnaðaruppbyggingu á norðurslóðum, þangað sem leikvangur ögrunartogstreitu stórveldanna hefur flust. Þessi umsvif veita fslendingum enga vörn, enda hvergi gert ráð fyrir slíku í hernaðaráætlunum, en gera ísland miklu fremur að eftir- sóknaverðu skotmarki sem þörf yrði að dæma úr leik ef til styrj- aldarátaka kæmi. Landvinningastefna beggja stórveldanna til að auka yfirráða- svæði sín er öðrum sjálfstæðum þjóðum óþolandi, bæði austan hafs og vestan. Ein stærsta rétt- læting fyrir veru bandarísks her- liðs hér á landi er óttinn við það að ella kæmu Rússar og tryggðu sér þennan lykilhólma í Norður- Atlantshafi. Það er að renna upp fyrir æ fleirum að ótti og viðhald óvinaímyndar er drjúgt eldsneyti til að kynda undir og réttlæta víg- búnaðarkapphlaupið. Kvennalistinn tekur afstöðu gegn vígbúnaði hvar sem er og hvenær sem er. Við viljum draga úr umsvifum herliðsins meðan það er hér á landi því að aukin hernaðarumsvif hvar sem er í heiminum auka á vígbúnaðar- kapphlaupið. Við viljum strangt eftirlit með starfsemi herliðsins og að stjórnvöld skýri undan- bragðalaust frá framkvæmdum þess og herbúnaði. Við teljum mikilvægt að minnka áhrif her- liðsins á íslenskt efnahagslíf svo að tryggt verði að afstaða til þess mótist ekki af efnahagshagsmun- um. íslenskt atvinnulíf á að vera óháð veru herliðsins. Ég er hlynnt þjóðaratkvæðagreiðslu um herstöðina, segir Guðrún Agnars- dóttir. Varðandi spurninguna um þjóðaratkvæðagreiðslu um veru herliðsins í landinu þá hefur ekki verið tekin afstaða til þess innan Kvennalistans, en að mínum dómi á hún sannarlega meiri rétt á sér en t.d. þjóðaratkvæða- greiðsla um bjór. Ef hún færi fram yrði það að vera með næg- um fyrirvara þannig að góður tími gæfist áður til umræðu og upplýsingamiðlunar. Hersetan afar varasöm Páii Pétursson, formaður þingflokks Framsóknarflokksins „Það eru skiptar skoðanir meðal Framsóknarmanna um af- stöðuna til hersins, en það er Ijóst að verulegur hópur manna innan flokksins lítur veru hersins hérna hornauga,14 sagði Páll Pétursson, formaður þingflokks Framsókn- arflokksins við blaðamann Þjóð- viljans, er hann var spurður um afstöðu Framsóknarflokksins til veru bandaríska hersins hér á landi. „Það eru vissulega skiptar skoðanir um þetta mál innan flokksins og menn hafa verið frjálsir að því að hafa sínar eigin skoðanir á hermálinu. Það var Framsóknarflokkurinn sem stóð að stefnumörkuninni 1971, þegar ákveðið var að láta herinn fara í áföngum, en það er einnig vitað að talsverður hópur Framsóknar- manna léði nöfn sín á undir- Hernám hugarfarsins hefur fært út kvíarnar, segir Svavar Gestsson. hefur ekki fengist til að taka það stefnumál upp á nýjan leik og í utanríkismálum hefur hann al- gjörlega snúið við blaðinu. Þann- ig að á seinni árum hefur það ver- ið Alþýðubandalagið eitt sem hefur verið með þessa afstöðu. Afstaða Kvennalistans er hins- vegar ekki alveg ótvíræð.“ Það hefur verið talað um að hér skuli ekki vera her á friðartímum. Hafa stjórnvöld svikið þá yfirlýs- ingu? „Þegar ísland varð aðili að Atl- antshafsbandalaginu gáfu her- námsflokkarnir þá yfirlýsingu að hér skyldi aldrei vera her á friðar- tímum. Þessi yfirlýsing var svikin nákvæmlega tveim árum seinna af sömu flokkum þegar að banda- ríski herinn kom til landsins á nýjan leik. Síðan hefur þeim alltaf tekist að finna út að það væru stríðs- og átakatímar. Við bendum hinsvegar á að ísland er skotmark svo lengi sem herstöðin er hér. Herstöðin tryggir því ekki öryggi þjóðarinnar heldur stefnir því í aukna hættu." En hafa herstöðvarandstæð- ingar staðið sig í stykkinu? „Ég er þeirrar skoðunar og veit að svo er um marga fleiri her- stöðvarandstæðinga, að starfið hafi hvergi nærri verið nógu kröftugt. Bæði flokkurinn og aðr- ir sem hafa raunverulegan áhuga á að reka herinn í burtu þurfa að standa sig mikið betur en gerst hefur. Það segir sína sögu að í þjóðmálaumræðu undanfarinna mánaða ber þessi mál mjög sjald- an á góma þrátt fyrir þá útþenslu á umsvifum hersins sem nú er en hún er afleiðing af samningi sem Steingrímur Hermannsson og Geir Hallgrímsson gerðu við Ge- orge Bush þegar hann kom hing- að til lands strax eftir að núver- andi ríkisstjórn tók við stjórnar- taumunum. Þrátt fyrir allt er engin ástæða fyrir þá sem hafa áhuga á því að losa Island við herstöðina að láta deigan síga. Þvert á móti er kann- ski aldrei brýnna en nú, þegar sljóleikinn virðist vera að taka völdin, að menn taki sér tak og láti heyra í sér.“ —Sáf Röskum ekki jafn- vœginu í heiminum Kjartan Jóhannsson, þingmaður Alþýðuflokksins „Það hefur reynst okkur býsna vel að hafa herstöðina á Keflavík- urflugvelli og ég er þeirrar skoð- unar, að einsog sakir standa í heimsmálunum, sé engin ástæða til að breyta því,“ sagði Kjartan Jóhannsson, þingmaður Alþýð- uflokksins. „Ég hef trú á því að þetta ástand muni vara um nokkra hríð. Keflavíkurstöðin er fyrst og fremst hlekkur í öryggiskeðju og ég held að hvað eina sem raskaði því jafnvægi sem nú er í heimin- um stefndi þeirri ró sem ríkt hef- ur í okkar heimshluta í hættu. Skoðun Alþýðuflokksins er sú að við eigum að vera í NATO og herstöðin er hluti a>f samstarfi okkar við önnur ríki Atlantshafs- bandalagsins." Þú talar um ró í okkar heims- hluta en því hefur verið lýst yfir að hér skuli aldrei vera her á frið- artímum. „Það er rétt að við höfum notið friðar að undanförnu en spenna ríkir í samskiptum stórveldanna Ég er eindregin herstöðvaandstæð- ingur, segir Páll Pétursson. skriftalista Varins lands, þegar hernum var send stuðningsyfir- lýsing. Að einu leyti er þó afstaða Framsóknarflokksins skýr, en það er að því leytinu, að innan flokksins er eindregin andstaða gegn auknum umsvifum hersins. Einsog er tel ég hinsvegar ekki vera pólitísk skilyrði í landinu til að láta herinn fara.“ Páll segist aldrei hafa farið leynt með eigin skoðun á dvöl hersins hér, hann sé eindreginn herstöðvarandstæðingur. En hef- ur hann þá áhuga á að láta fara fram þjóðaratkvæðagreiðslu um málið? „Nei ég held að það yrði lítill tilgangur með henni því ofurvald þeirra fjölmiðla sem vilja um- fram allt halda í herinn er slíkt að fólk ætti erfitt með að mynda sér sjálfstæða skoðun um málið. Morgunblaðið og DV hafa ætíð tekið málstað hersins og yrði því mikil slagsíða á málflutningnum. Hvað ríkisfjölmiðlana varðar þá held ég að meira jafnvægi yrði í málflutningi þeirra en hjá hægri pressunni. Þar eru vissulega her- námssinnar en einnig hernáms- andstæðingar svo ég treysti þeim frekar til að vera með heiðar- legan málflutning." Hvernig skilgreinir Páll Péturs- son hugtakið friðartími? „Það hefur nú viljað vefjast fyrir mönnum að skilgreina það hugtak og ég held að ég láti það ógert. Mín afstaða til hersetunn- ar er hinsvegar alveg ljós. Ég tel að vera hersins hér sé okkur afar varasöm og ég vildi sjá hann fara sem allra fyrst.“ —Sáf Herstöðin hefur reynst okkur býsna vel, segir Kjartan Jóhannsson. og þó ég sé eindreginn talsmaður afvopnunar tel ég, að hún þurfi að vera gagnkvæm. Á meðan ekkert gerist í afvopnunarmálum þurfum við að gæta þess að raska ekki jafnvæginu í heiminum." Er Alþýðuflokkurinn hlynntur þjóðaratkvæðagreiðslu um her- málið? „Ég sé ekki tilganginn með því núna. Ég held að hermálið sé ekkert stórt deilumál núna. Ég er hinsvegar á því að önnur mál ættu að fara í þjóðaratkvæði einsog t.d. bjórmálið og lífeyrissjóður fyrir alla landsmenn.“ Hvað með aukin umsvif hers- ins, stefna þau ekki þeirri hættu heim að við verðum enn háðari honum? „Við teljum að þessi umsvif séu nauðsynleg fyrir öryggi lands- ins. Radarstöðvarnar eru sam- eiginlegt öryggisatriði okkar og hersins. Þá hef ég engan áhuga á að herstöðin líti út einsog rusla- haugur og það var svo sannarlega kominn tími til að lagfæra ýmis- legt á Keflavíkurflugvelli og á það bæði við um flugskýlin og stjórnstöðina. Helguvíkurfram- kvæmdirnar eru einnig nauðsyn- legar því miklir olíuflutningar eiga sér stað til hersins og eigi ekki að hljótast mengun og sóða- skapur af þurfa aðstæður að vera sem bestar. Hvað varaflugvöll á Sauðárkrók varðar skal ég ekkert segja um hvort það er rétt stað- setning en það hefur verið ljóður á flugsamgöngum til íslands að hér er ekki nema einn alþjóð- legur flugvöllur. Varaflugvöllur er því öryggisatriði bæði fyrir okkur og herinn." —Sáf Sunnudagur 13. júli 1986 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 7

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.