Þjóðviljinn - 13.07.1986, Qupperneq 11

Þjóðviljinn - 13.07.1986, Qupperneq 11
Fjárstuðningur mótaði stefnuna BllBlWIÍW Tvö mál, sem fljótt á litið virð- ast lítið eiga sameiginlegt, hafa verið töluvert í umræð- unni að undanförnu. Annar- svegar er hér átt við fjárstuðn- ing fyrirtækja við stjórnmála- flokka, sem komið hefur í kjölfar Hafskipsmálsins og hinsvegarsameining vinstri aflanna. Fjárstuðning til stjórnmála- flokka hefur margsinnis borið á góma í þjóðmálaumræðunni og hefur vissum flokkum verið borið á brýn að hafa þegið fé erlendis frá. Sögusagnir um fjárstuðning Norðurlandakrata við Alþýðu- flokkinn hafa t.d. með reglulegu millibili skotið upp kollinum en kratar ætíð neitað slíkum áburði. Þorleifur Friðriksson, sagn- fræðingur hefur rannsakað tengsl sósíaldemókrata á Norðurlönd- unum við Alþýðuflokkinn og flutti hann erindi um þau á ráð- stefnu Norrænna verkalýðssagn- fræðinga og áhugafólks um sögu verkalýðshreyfingarinnar, sem haldin var í Odda, húsi Hugvís- indastofnunar Háskólans dagana 22.-25. júní. Það voru Menning- ar- og fræðslusamband alþýðu og Sagnfræðistofnun sem stóðu að ráðstefnunni. Erindi Þorleifs nefndist Fjár- stuðningur Norrænna Sósíaldem- ókrata við Alþýðusamband ís- lands 1918-1939. Alþjóðahyggja eða íhlutun. Ólafur samvinnunefndarinnar voru til- tölulega magrar og dreifðar. í þessu grúski mínu rakst ég á skjöl sem vörðuðu samskipti krata og Alþýðusambandsins við norræna skoðanabræður. Höfuð- stöðvar mínar voru í skjalasafni verkalýðshreyfingarinnar í Kaupmannahöfn en þar eru varð- veittar miklar heimildir um ís- lensku verkalýðshreyfinguna og samskipti hennar við Norður- löndin. Sum þessara skjala varða innbyrðis viðræður Norrænna sósíaldemókrata um stöðuna á ís- landi, en þeir virðast hafa haft verulegan áhuga á þróun mála hér á landi og skirrðust þá ekki við að blanda sér í málin ef þann- ig horfði við.“ Erlend áhrif á stefnu Krata í erindinu rekur Þorleifur tengsl Alþýðuflokksins og Al- þýðusambands íslands við nor- ræna systurflokka og sambönd. Sérstök áhersla er lögð á fjármál- atengsl og kannað hvort þau kunni að hafa haft áhrif á stefnu íslenskra jafnaðarmanna í ýms- um málum einsog t.d. sambands- lagamálinu 1918, inngöngu ASÍ í Alþjóðasamband sósíaldemó- krata 1927 og sameiningartil- raunir Alþýðuflokksins og kom- múnista á fjórða áratugnum. Kemur þar fram hvernig fjármá- laítök norrænna skoðanabræðra Alþýðuflokksins höfðu áhrif á viðbrögð flokksins og komu í veg fyrir tilraunina. Þar sem umræður um sam- vinnu eða sameiningu þeirra afla sem kenna sig við jafnaðar- mennsku hafa enn einusinni skotið upp kollinum báðum við Þorleif að leyfa okkur að glugga í erindið og segja okkur nánar frá þessum rannsóknum. Það er kannski von til þess að menn læri af sögunni. Erindið er liður í stærri rann- sókn sem Þorleifur hefur unnið að. „Ég hóf þessa rannsókn 1981 og og hafði hugsað mér að skoða Norrænu samvinnunefndina, sem Alþýðuflokkurinn á íslandi gerðist aðili að 1932. Ég komst þó fljótt að því að heimildir um störf 10 SfÐA - ÞJÓÐVILJINN Sunnudagur ‘ Fluga með gyllta vœngi Alþýðusamband íslands var frá stofnun sambandsins 12. mars 1916 til 1940 hluti af Alþýðu- flokknum. Margir af forystu- mönnum ASÍ höfðu verið við nám og störf í Danmörku og kynnst starfi danskra sósíaldem- ókrata á uppgangsárum þeirra, meðal þeirra voru þeir Ólafur Friðriksson og Héðinn Valdim- arsson og má segja að þeir hafi komið upp til íslands með sósíal- ismann í farteskinu. Þegar ASÍ var stofnað var fyrri heimsstyrjöldin í algleymingi og ísland því einangrað frá dönskum áhrifum. Fyrstu tvö árin gætti því erlendra áhrifa á starf ASÍ lítið. í upphafi árs 1918 varð Sam- bandsmálið aðalmál íslenskrar þjóðmálaumræðu. í stríðinu höfðu íslendingar þurft að taka stjórn sinna mála í eigin hendur. Þar sem íslendingar lentu á vald- asvæði bresku krúnunnar kom upp krafan um íslenskan sigling- arfána. Árið 1917 voru raddir orðnar háværar um nauðsyn þess að íslendingar fengju eigin þjóð- fána og sama ár samþykkti Al- þingi íslenskan siglingarfána. Þetta varð til þess að dönsk stjórnvöld féllust á að taka upp sambandsmálið að nýju. Það hafði einnig áhrif að Danir áttu óuppgerðar sakir við Þjóðverja um Suður-Jótland, vonuðust til 13. júlí 1986 Héðinn að endurheimta þau svæði að stríði loknu og áttu þá erfitt með að standa gegn kröfum íslend- inga. Sovéska stjórnin hafði sett fram kröfu um sjálfsákvörðun- arrétt þjóðanna og Wilson Bandaríkjaforseti tekið hana upp í friðaryfirlýsingu sinni. Alþýðuflokkurinn átti erfitt með að gera upp hug sinn í mál- inu. Þó taldi hann að nauðsynlegt væri að ljúka því í eitt skipti fyrir öll þar sem Sambandsmálið stæði í vegi fyrir stéttabaráttunni. Fór Ólafur Friðriksson til Kaup- mannahafnar vorið 1918 í þeim tilgangi að útskýra afstöðu ASÍ fyrir þingflokki danskra sósíald- emókrata og fá þá til að styðja kröfur íslendinga í fánamálinu. Dönsku sósíaldemókratarnir lögðu mikla áherslu á sameigin- legan ríkisborgararétt en sam- kvæmt honum gátu danskir og ís- lenskir verkamenn og atvinnu- rekendur athafnað sig frjálst í báðum löndunum. í kjölfar ferðar Ólafs Friðriks- sonar var kosin átta manna nefnd sem í sátu jafn margir íslendingar og Danir til að semja drög að sambandslögum. Gekk Alþýð- uflokkurinn að tillögu Dana um sameiginlegan ríkisborgararétt og var þeim legið mjög á hálsi að vera dansklundaðir. Þá komu jafnframt fram ásakanir um að þeir hefðu selt sannfæringu sína fyrir styrk úr flokkssjóði danskra sósíaldemókrata. Þessu neituðu Alþýðuflokksmenn og sögðu á- sakanirnar vera rógburð. 6. júlí 1918 ályktaði ASÍ um sambandsmálið og lagði áherslu á að sameiginlegur fæðingarréttur væri undirstöðuatriði að sönnu þjóðasambandi. Dagblaðið Vísir fullyrti að þessi ályktun væri stuðningsyfirlýsing við Dani: „Flugan er komin sunnan um haf og hefur gyllta vængi.“ Lán til stofnunar Alþýðublaðsins Þessum ásökunum var mót- mælt en skömmu seinna ritaði stjórn ASÍ dönskum jafnaðar- mönnum beiðni um 15 þúsund Stefán króna lán til stofnunar dagblaðs. (Tímalaun Dagsbrúnarverka- manns var þá 75 aurar.) Lánið var veitt sem styrkur og barst hann til íslands haustið 1919. Vikublaðið Dagsbrún var þá lagt niður og Alþýðublaðið stofnað. f erindi Þorleifs segir að þessi styrkur ýti stoðum undir ásakanir andstæðinga Alþýðuflokksins um að samband væri á milli af- stöðu jafnaðarmanna í sam- bandsmálinu og danskra fjár- framlaga, hinsvegar hafi engar heimildir fundist sem sanna það samband afdráttarlaust. „Út af fyrir sig er ekkert óeðli- legt við að danskir flokksbræður Alþýðuflokksins hafi stutt starfið hér heima því alþjóðahyggjan og samhjálp verkalýðsflokka og samtaka voru þýðingarmiklir þættir í arfleifð sósíaldemókrata. Danski flokkurinn var mjög öfl- ugur um þessar mundir en sá ís- Ienski rétt að taka sín fyrstu skref. Fjárstuðningurinn var því í hæsta máta eðlilegur að því til- skildu að skilyrði og kvaðir fylgdu ekki með í kaupunum. Éngar heimildir sanna það af- dráttarlaust en ekki er óeðlilegt að menn dragi þá ályktun í sam- bandi við sambandsmálið. Það er hinsvegar ljóst að ákveðin skil- yrði eru sett þegar Alþýðusamb- andið þiggur fjárstuðning fimm árum síðar.“ Kommúnistar hreinsaðir út Áhugi dönsku flokksforyst- unnar á stefnu Alþýðuflokksins á íslandi kom vel í ljós árið 1923. Alþýðuflokkurinn fór fram á 10.000 króna lán vegna þingkosn- inga um haustið. (Tímalaun Dagsbrúnarverkamanns voru þá 1,20 kr.) Var honum heitið 5.000 króna láni að fengnum vissum upplýsingum. í bréfi danska flokksins til Jóns Baldvinssonar er afstaða Dana ítrekuð; „... að við berjumst gegn kommúnistum í landi voru af öllu afli, og vegna þessarar ákveðnu afstöðu okkar hafa þeir ekki náð að verða ann- að en næstum ósýnilegur sértrú- arhópur hér í Danmörku. Þér munuð einnig skilja að við viljum ekki á nokkurn hátt veita komm- ún-ískum áróðri stuðning annars staðar. Því gerum við það að skil- yrði að kosningabaráttan sem nú stendur fyrir dyrum íslenska Al- þýðuflokksins, verði háð á alger- lega sósíaldemókratískum grunni bæði í ræðu og riti. Okkur er ljóst að það þýðir að enginn kommún- isti verður á lista, og aðeins fólk sem án efasemda samþykkir stefnuskrá sósíaldemókrata verð- ur boðið fram.“ Það hafði borist eyrum dan- skra sósíaldemókrata að Ólafur Friðriksson, sem var í framboði í Vestmannaeyjum, væri orðinn handgenginn kommúnistum. Honum var kippt úr kosninga- slagnum og Álþýðuflokkurinn fékk aðstoðina. Alþjóðasambandið En það voru fleiri róttæklingar en Ólafur Friðriksson í Alþýðu- flokknum og héldu þeir áfram að starfa innan flokksins þrátt fyrir að flokkurinn ætti að hafa „hreina sósíaldemókratíska stefnu“. Andúð Dana á þessu kom berlega í ljós á árunum 1924- 26, en þá var tekið íyrir alla fjár- hagsaðstoð við ASI, þrátt fýrir margítrekaða beiðni þar um. Frá 1919 til 1924 hafði Alþýð- uflokkurinn þegið að minnsta kosti 27 þúsund krónur frá dönskum sósíaldemókrötum en eftir það daufheyrast þeir við öllum óskum Islendinga og fjár- reiður flokksins fóru stöðugt hnignandi. Árið 1926 var svo komið að flokkurinn var kominn í nær botnlaust skuldafen og í fjárbeiðni til danska flokksins er farið fram á 50.000 krónur en þeirri beiðni var hafnað. í desember 1926 gekk Alþýð- uflokkurinn í Alþjóðasamband Sósíaldemókrata og samtímis skerptist afstaða forystunnar til vinstri arms flokksins. Þorleifur segir að sú staðreynd að ákvörðunina um inngöngu í Alþjóðasambandið hafi borið mjög skjótt að og án þess að ráð- færst væri við aðildarfélög ASÍ ýti stoðum undir þá kenningu að Danir hafi sett aðild að Alþjóða- sambandinu sem skilyrði fyrir fjárhagsaðstoð. Eitt af grundvall- aratriðum í utanríkissamskiptum danska sósíaldemókrataflokksins var að hafa aðeins náið samband við aðildarflokka Alþjóðasam- bandsins. Þessi stefna opinberað- ist skýrt í samskiptum við Norska verkamannaflokkinn á árunum 1918-1938. Þá ákvað sambandsstjórn á þingi haustið 1930 að losa Al- þýðusambandið við „kommún- íska óróaseggi". Strax í kjölfar aðildar Alþýð- uflokksins að Alþjóðasamband- inu hófu Danir söfnun meðal að- ildarflokka sambandsins. Danir útveguðu sjálfir 33 þúsund danskar krónur, 10 þúsund komu frá Svíum og 7.200 kr. frá sex öðr- Viðtal við Þorleif Friðriksson, sagnfrœðing, um fjárstuðning Norðurlandakrata við Alþýðuflokkinn fyrri hluta aldarinnar og hvernig sá stuðningur hafði mótandi áhrif á stefnu íslenskra krata um löndum. (Tímalaun Dags- brúnarverkamanns 1,20 kr.) Að byggja hús Alþýðuflokkurinn gerðist aðili að Norrænu samvinnunefndinni þegar hún var endurvakin 1932. Eiginlegt starfssvið nefndarinnar var ekkert og tilgangurinn sá einn að tryggja að stjórnmálaleiðtogar og forystumenn sósíaldemókrat- ísku verkalýðssambandanna hitt- ust reglulega. Norrænir sósíal- demókratar héldu einnig ráð- stefnur sósíaldemókratískra verkalýðssambanda. Sumarið 1934 var slík ráðstefna haldin í Stokkhólmi og sótti hana Oddur Ólafsson, formaður byggingarn- efndar Alþýðuhússins í Reykja- vík. Átti hann að reyna að útvega lán upp á 150 þúsund krónur til byggingar hússins. Að sögn Odds voru norsku fulltrúarnir hlynntir lánveiting- unni og einnig taldi hann að sænsku fulltrúarnir hefðu verið jákvæðir, hinsvegar var Nygaard, formaður danska Alþýðusam- bandsins andvígur því að Danir veittu aðstoð. Danir virðast hafa verið orðnir þreyttir á sífelldum fjáraustri í þennan litla flokk og einnig hefur það haft áhrif á afstöðu þeirra, að beiðnin var borin upp við fulltrúa verkalýðssamtakanna en áður hafði jafnan verið farin sú leið að biðja flokksforystuna fyrst um aðstoð." íslenskir kratar voru þó ekki af baki dottnir og í ársbyrjun 1936 ritaði Jón Baldvinsson Thorvald Stauning, forsætisráðherra Dana, bréf, þar sem hann gerir grein fyrir því að það sé ekki bara verið að fara fram á fjárhagsað- stoð við byggingu Alþýðuhúss- ins, heldur þarfnist allt prentverk Alþýðublaðsins endurnýjunar þar sem það sé úr sér gengið. Fer hann fram á lán upp á 75 þúsund krónur og segist hann ekki geta séð að það sé bundið miklum erf- iðleikum fyrir samtökin í Dan- mörku, Noregi og Svíþjóð, að út- vega hvert 25 þúsund króna lán. Út af fyrir sig er ekkert óeðlilegt við það að norrænir flokksbræður hafi stutt starf Alþýðuflokksins því alþjóð- ahyggjan og samhjálp verkalýðs- flokka og sambanda voru þýðinga- miklir þættir í arfleifð sósíaldemókr- ata. Fjárstuðningurinn var því í hæsta máta eðlilegur að því tilskildu að skil- yrði og kvaðir fylgdu ekki með í kaupunum. Á fundi Norrænu samvinnu- nefndarinnar í Stokkhólmi 1936 hefur Iánsbeiðni Alþýðuflokks- ins væntanlega borist í tal. Nú snérust Norðmenn og Svíar gegn henni en Danir tóku betur í hana. Virðast þeir hafa hlaupið undir bagga með því að útvega Alþýð- uflokknum lán úr Arbejdernes Landsbank. (Tímalaun Dags- brúnarverkamanns 1,36 kr.) „Það er ljóst að Alþýðuflokk- urinn var þegar hér er komið sögu tengdur dönskum sósíal- demókrötum umtalsverðum fjár- hagsböndum. Þvf vaknar sú spurning hvort það hafi haft áhrif á stefnumótun flokksins í þeim afdrifaríku stjórnmálaátökum sem framundan voru.“ Samfylking stöðvuð Eftir kosningarnar í júní 1934 mynduðu Framsókn og Alþýðu- flokkur „stjórn hinna vinnandi stétta“. Stjórnarsamstarfið var gott lengi framan af en í ársbyrj- un 1937 var það orðið það stirt að til þingrofs kom og boðað var til nýrra kosninga. í kosningabaráttunni boðuðu kommúnistar samfylkingu vinstri flokka og jókst fylgi þeirra úr 6% í 8,5%, sem veitti flokknum einn kjördæmakjörinn þingmann og tvo uppbótaþingmenn. Úrslitin voru túlkuð á þann hátt að verka- fólk vildi samfylkingu. Innan Alþýðuflokksins voru skoðanir mjög skiptar um hvern- ig svara bæri samfylkingartilboði kommúnista. Hluti flokksmanna vildi stjórnarsamstarfið feigt og óskuðu viðræðna við kommún- ista en þrátt fyrir það var gert bráðabirgðasamkomulag við Framsókn um áframhaldandi stjórnarsamstarf. Héðinn Vald- imarsson var einn þeirra sem greiddi atkvæði gegn samkomu- laginu. „Það er athyglisvert að þá eins- og nú hófust sameiningarumræð- urnar með ályktun, sem sam- þykkt var á fundi hjá Dagsbrún. Á fundi Dagsbrúnar kvöldið áður en samkomulagið var undirritað var samþykkt tillaga frá Héðni þar sem skorað er á stjórnir og meðlimi Alþýðuflokksins og Kommúnistaflokksins að ganga þegar til endanlegra samninga um tafarlausa sameiningu flokk- anna í einn sameinaðan alþýðu- flokk er starfi á lýðræðisgrund- velli. 1937 eru sósíaldemókratar í fyrsta skipti í stjórn á öllum Norðurlöndunum og þá voru í gangi samfylkingarviðræður um öll Norðurlöndin. Samfylkingu þessari var beint gegn fasisman- um. Sósíaldemókratar höfnuðu víðast slíkri samfylkingu og nor- rænir skoðanabræður höfðu þungar áhyggjur af þróun mála hér.“ Um sumarið var haldinn fund- ur Norrænu samvinnunefndar- innar í tilefni af 25 ára afmæli hennar og var tveim fulltrúum ASÍ boðið á fundinn og tóku .sænskir sósíaldemókratar að sér að greiða ferðakostnað fyrir þá. Það voru þeir Stefán Jóhann Stef- ánsson og Jón Axel Pétursson sem fóru á fundinn og höfðu með sér lánsbeiðni upp á 100 þúsund krónur sænskar.“ Lánið átti að nota til kaupa á prentvélum og til að endurnýja tækjakost Alþýðublaðsins. Svíar virðast hafa frétt af sameiningar- viðræðum Alþýðuflokksins og Kommúnista og ekki Iitist á blik- una. Skömmu eftir heimkomu þeirra Stefáns Jóhanns og Jóns Axels, skrifaði Anders Nilsson, ritari sænska sósíaldemókrata- flokksins, Stefáni bréf og innir fregna af sameiningarviðræðun- um. Jafnframt bendir hann á að ef af sameiningu verði þá hafi það í för með sér að Alþýðuflokkur- inn verði að ganga úr Samvinnu - nefndinni. Bróðurlegar leiðbeiningar Stefán Jóhann svarar um hæl og segir að flokksstjórnin hafi ákveðið að vísa sameiningunni á bug. Jafnframt biður hann Nils- son um lög og reglur sænska flokksins, sem gætu komið að gagni á næsta flokksþingi, en þá átti að endurskoða stefnuskrá Ál- þýðuflokksins að sögn Stefáns. Nilsson sendir reglurnar og lín- ur með þeim þar sem afstaða sænsku sossanna til kommúnista er tíunduð. „Við höfnum skilyrð- islaust öllu samneyti við komm- únista. Stefna vor að berjast gegn kommúnistum af krafti hefur þannig sannað réttmæti sitt. Ein- mitt vegna hversu ákveðið við snérumst gegn þeim hafa áhrif þeirra hér í Iandi orðið svo lítil sem raun ber vitni um. Þess vegna vonum við að jafnvel önnur lönd muni taka upp sömu baráttuaðferð.“ í svarbréfi Stefáns Jóhanns kemur fram að sameiningarvið- ræðurnar séu nú dottnar upp fyrir vegna þess að kommúnistar höfnuðu skilgreiningu sósíaldem- ókrata á iýðræðishugtakinu. Skömmu seinna fékk svo Alþýð- uflokkurinn lánið frá Svíþjóð og hafði það verið hækkað úr 100 þúsundum í 185 þúsund.(Dags- brúnartaxtinn var þá 1,45 á tím- ann.) Þá hafði Héðinn Valdi- marsson verið gerður brottrækur úr Alþýðuflokknum og stofnaði hann ásamt stórum hluta verka- lýðsarms Alþýðuflokksins og Kommúnistum, Sameiningar- flokk alþýðu Sósíalistaflokkinn. Varla verður annað séð en sú hækkun á sænska láninu úr 100 þúsundum í 185 þúsund krónur hafi gagngert verið ætluð til þess að framkvæma þá vafasömu hlut- afjáraukningu í fyrirtækjum Al- þýðusambandsins sem gerði það að verkum að Alþýðuflokkurinn og tryggir sósíaldemókratar héldu eignum ASÍ eftir aðskilnað flokks og verkalýðssambands 1940-1942. Byggt á erindi Þorleifs Friðriks- sonar, sagnfræðings; Fjárstuðn- ingur Norrænna sósíaldemókrata við Alþýðusamband íslands 1918-1939. Alþjóðahyggja eða íhlutun. Auk samtals við höfund erindisins —Sáf Sunnudagur 13. júlf 1986 ÞJÖÐVILJINN - SIÐA 11

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.