Þjóðviljinn - 13.07.1986, Síða 14

Þjóðviljinn - 13.07.1986, Síða 14
Síðustu myndirnar af Baðstofunni sem brann ■ Flestum mun enn ífersku minni, laugardagurinn 21 sti júní sl., þá er eldur kom upp í gamla lönaðarmannahúsinu við Tjörnina. Mönnum til mik- ils léttis brann húsið ekki til kaldra kola, en þeim mun meiri eftirsjá var að bruna leikbúningasafns Leikfélags Reykjavíkur. Hitt var á vitorði færri, að uppi undir súð í þessu gamla húsi var einstakt listaverk - eða listasafn öllu heldur sem varð eldinum að bráð. Baðstofa frá árinu 1926, hvar Iðnaðarmannafélagið hélt félags- og aðalfund og var þar hvert einasta snitti; utan veggirn- ir, útskorið af miklum hagleik og næmi. Borð, bekkir, stólar, lampar, dyrastafir, gluggakarm- ar, allt var það útskorið og bar verkið meistara sínum fagurt vitni. Sá var heldur enginn annar en Ríkharður Jónsson myndhög- gvari með meiru, einhver mesti tréskurðarmeistari íslenskur er við þekkjum. Hann var fyrsti ís- lenski iðnneminn, sem nam hér heima og því vel við hæfi, að fundarsalir Iðnaðarmannafélags- ins væru hans verk. Hitt hefði og verið við hæfi, að almenningi hefði gefist kostur á því, að skoða þessa listasmíð, en einsog er með svo margt annað sem skylt á við menningu í þessu landi, varð það aldrei. Aðeins einu sinni kom til tals að svo yrði og það ekki af góðu. Reykjavík- urborg félst á það árið 1965, að flytja baðstofuna upp í Árbæjar- safn, þareð til stóð að rífa Iðnað- armannahúsið, Búnaðarfélags- húsið og Leikfélag Reykjavíkur og byggja á grunninum ráðhús. En það er víst aðeins of seint að ætla nú að bjarga baðstofu Rík- harðs undan skemmdum og gera að safni. Það er eftir öðru í menn- ingarmálum okkar að nú rjúka menn upp til handa og fóta eftir að listv.erkið er brunnið og vilja bjarga. Pað hefur löngum viljað brenna við að þá fyrst hugkvæm- ist mönnum að eitthvað eigi að gera í hlutunum, þegar listaverk- in eru ónýt eða glötuð, húsin grotnuð niður eða brunnin og listamennirnir látnir. Það er þó ekkert rangt við það, betra er seint en aldrei. Því ber að fagna hugmyndum um að lærisveinar og/eða lærisveinar lærisveina Ríkharðs heitins verði fengnir til- að endurgera baðstofuna í sinni upprunalegu mynd, enda eru all- ar teikningar að henni til, svo og ljósmyndir. Þær myndir sem hér gefur að líta úr baðstofunni, eru teknar af Matthíasi Andréssyni, kennara við Heimilisiðnaðarskólann, en hann fór ásamt félögum sínum í baðstofuna fyrir skemmstu, fyrst og fremst til að mynda mynstrin í útskurðinum, enda fæst hann við útskurð í frístundum. Þetta eru líklega síðustu myndirnar sem teknar voru í baðstofunni þeirri. Hhjv. 14 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Sunnudagur 13. júlí 1986

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.