Þjóðviljinn - 13.07.1986, Blaðsíða 15

Þjóðviljinn - 13.07.1986, Blaðsíða 15
Utvarp Okkar plan og útvarpsins Hlutursvonefndrar klassískrartónlistarer gjarnan deilumál í dálkum sem þessum. Ég mátil meö aö halda mig við hefðina og berja lóminn í samræmi viö menningarþroskann. Hvers vegna er öllu þessu magni af draugþungri klassík dembt yfir útvarpshlustendur? Maður hefur kannski nýlokið við að hlusta á góðan þátt og á sér einskis ills von þegar allt í einu maður er staddur í svo harmi þrungnu verki að maður sér ekki til sólar. Maður er skyndilega gripinn þessari ósjálfráðu hlut- tekningu sem ætlar mann lifandi að drepa. Sú tónlist sem ég er að amast við er auðvitað vönduð og góð á sinn hátt. Við ákveðin skilyrði er hægt að njóta hennar. Oftast er hún þó þannig að menn þurfa nokkurn frið og einbeitingu til að svo megi verða. En jafnvel þótt menn hafi þessi skilyrði þá leyfi ég mér að efast um að þorri fólks vilji fórna þeim á altari klassískr- ar tónlistar. Raunar er það mjög lítill hluti fólks sem hefur brenn- andi áhuga á þessari svokölluðu æðri músík. Auk þess virðist þetta fólk flest vilja velja sínar tónlistarstundir sjálft í stað þess að fara eftir stundatöflu útvarps- ins. Kjarni málsins er sá að þorri fólks hefur ekkert gaman af þess- ari hámenningarlegu músík. Þorri fólks vill og hefur alltaf vilj- að þá tónlist sem kölluð hefur verið alþýðutónlist. Hluta þess- arar tónlistar eru gerð ýtarleg skil á Rás 2. Þar er þó fyrst og fremst um að ræða þá músík sem vinsæl- ust er meðal unglinga hverju sinni. Almenningur er hins vegar ekki tómir unglingar. Svo ég komi mér nú að efninu þá finnst mér músíksmekkur út- varpsins gersamlega úr takt við músíksmekk venjulegs fólks. Tónlistarvalið er alltof öfga- kennt. Það er eins og þessir menningarráðunautar haldi að ef fólk er ekki á kafi í klassík, þá hljóti það að vera mjög upptekið af vinsældarlistum unglinga. Lítum á dagskrá útvarpsins. Ég fyrir mína parta: Hvar er vönduð rokktónlist? Hvar er allur djass- inn? Hvar er þjóðlagatónlistin? Hvar er hippatímabilið? Hvar er blúsinn? Hvar er öll okkar lágkúrulega afþreying? Ef maður lítur síðan á fólkið í landinu, þá kemur í ljós að hipp- akynslóðin er komin á fertugsald- ur, rokk kynslóðin á fimmtugs- GARÐAR SVERRISSON aldur og djasskynslóðin á sex- tugsaldur. Við erum einfaldlega ekki þessir forngripir sem útvarp- ið telur okkur vera. Okkur dauð- leiðist þessi þunglyndislega klass- ík. Við erum bara ekki á hærra plani. Sorrý. Að lokum mælist ég til þess að Neytendasamtökin, eða jafnvel hin önnum kafna verkalýðshreyf- ing, bjóði nú ráðamönnum út- varps í skoðunarferð um hljóm- plötuverslanir borgarinnar. Þar gæfist þeim kostur á að kynnast því í hnotskurn hvert vandamálið er. Okkar andans lítilmótleiki blasir við í hverju horni. G.Sv. Sjónvarp Álit atvinnurekandans Til hamingju fréttastofa sjón- varps og útvarps. Atvinnu- rekandi ykkar hefur gefið til kynna í skoðanakönnun aö hann sé bara nokkuð ánægð- ur með ykkur. Ykkur sé jú bara treystandi. Hvað um það, þessi umsögn setur nú sjálfsagt vissa aðila á gat. Við skulum vona að þessir aðilar hafi vit á að gaspra ekki um of í fjölmiðla í bráð. Annars má nú alveg setja út á sjónvarpsfréttir. Eitt er það sem maður tekur eftir kvöld eftir kvöld, dularfullt mat á erlendum fréttum. Allt of oft vill það brenna við að frétt verður frétt vegna þess að það er „aksjón“ á skjánum. Um þetta má finna ótal dæmi. Eitt þeirra er prentara- deilan í Englandi. Fréttir af henni bárust helst ekki nema þegar átök hófust utan við nýju prent- smiðjuna hans Rupert Murdoch. Undir blóðugum átökum og há- reysti var svo þulið hversu margir lögregluþjónar hefðu særst og svo framvegis og svo rakin í stuttu máli þróun þessa máls undanfar- ið. Nú er ég auðvitað ekki í stakk búinn til að meta það hvort fréttastofa sjónvarps leggur með eðlilegum hætti fram það mynd- efni sem henni berst. Við vitum hins vegar að sjónvarpsstöðvar víða um hinn vestræna heim leggja það mat á hugarheim fólks að það sé hasar sem fólk vill. Hvort sem það er í fréttum eða hverju því sem í sjónvarpi er sýnt. En mér finnst fréttaflutningur sjónvarpsins af prentaradeilunni vera dæmi um hvernig ekki á að segja fréttir. Mér þykir það af- skaplega ótrúlegt að ekki skuli hafa borist annað myndmál af prentaradeilunni en óeirðamynd- ir. Auðvitað hefur það breyst mjög til batnaðar að fréttatímar sjónvarps eru að verða líflegri, hressilegri. En það fæst ekki allt með hressileikanum. Hressileikinn var náttúrulega nægur í útvíkkuðum íþróttaþætti sjónvarpssins í síðasta mánuði og atvinnurekandi sjónvarpsmanna virðist hafa verið nokkuð ánægð- ur með það ef marka má skoð- anakannanir. Eftir miklar deilur þar sem hvað eftir annað var búið að lýsa yfir vilja þjóðarinnar INGÓLFUR HJÖRLEIFS.'i varðandi knattspyrnuna ætti þetta nú að vera orðið sæmilega ljóst. En þó ég hafi fylgst með hverjum einasta leik eins og ég gat af allt að því sjúklegum áhuga, sagði ég ekki orð þegar fólk í kringum mig var að bölsót- ast yfir þvf að fréttatíma og öðru efni þyrfti að fresta vegna þessa andskotans fótbolta. Nýlega var það haft eftir einhverjum fót- boltamanninum að knattspyrnan væri annað og meira en trúar- brögð. Sú kenning gengur nú ekki hér uppi á klakanum, það er auðvitað fullmikið þegar dag- skrárliðir eru þurrkaðir út af dagskránni eða frestað vegna fót- boltans. En við þessu er bara ekkert að gera! IH Hvernig litist mönnum á að fá að sjá glænýja kvikmynd með þeim James Dean og Marilyn Monroe í aðalhlutverkunum? Eflaust mæltist slíkt vel fyrir, en því miður, hugsar lesandi, slíkt er ógerlegt. Þau eru bæði steindauð. Það skal hér með upplýst að það er vel gerlegt að fram- leiða glænýja mynd með þeim skötuhjúum og það án milli- göngu spíritista eða annarra sem eru í beinu sambandi við astralplanið. Að undanförnu hefur átt sér stað bylting í tölvugrafík sem gerir það mögulegt að endurskapa þessi horfnu kvikmyndagoðá skjánum og setja þau í hvaða hlutverk semer. Nýjar víddir Þessi nýja tækni gerir í raun og veru leikara óþarfa auk þess sem óþarfi er að leita að heppilegum upptökustöðum eða leggja mikla vinnu í stúdíótökur. Umhverfi jafnt sem leikara er hægt að skapa á skjánum og bæði um- hverfið og persónurnar eru svo eðlilegar að áhorfandinn getur ekki séð neinn mun á slíkri kvik- mynd og ef hún hefði verið gerð við þær aðstæður sem nú tíðkast með manneskjum af holdi og blóði í hlutverkunum. En það eru fleiri en kvikmynd- agerðarmenn sem njóta góðs af þessari öru þróun tölvutækninnar hún opnar nýjar víddir fyrir vís- indamenn, bæði í læknavísindum og ekki síður í verkfræði. Verkfræðingar þurfa ekki lengur að teikna sjálfir þá hluti sem þeir eru að hanna hvort sem það eru hús, bílar, brýr eða eitthvað annað því tölvan sér um Tölvugrafík Myndin sýnir hvernig tölvumynd verður til. Fyrst er gerð beinagrind úr þráðum, sem síðan eru litgreindir og myndin að lokum fínpússuð. Leikarar framtíöar innar tölvu- teiknaöir það og skapar þrívíddarmynd af sköpunarverkinu. Læknar geta gert grafískar myndir af vefjum og vöðvum líkamans og reynt áhrif nýrra Myfja á þá. Tilraunakanínurnar verða því óþarfar og geta dýra- verndunarmenn andað léttara. Dansandi belja Tölvugrafíkin byggir á sömu hugmynd og rastamynd í prent- verki. Skjánum er skipt niður í net af örsmáum punktum, röst- unum. Stjórnandi tölvunnar byrjar á því að búa til beinagrind af myndinni þar sem höfuðlínur fyrirmyndarinnar koma fram. Þá er liturinn lagður á þræðina og með reiknikúnstum eru réttir skuggar og tónar í Iitnum fund- nir. Að lokum er myndin svo fín- pússuð. Tölvurnar í dag geta líka ráðið við hreyfingar. Bandaríski tölvu- grafíkerinn Michael Girard bjó t.d. til mynd af dansandi kú. Sjálf beljan var dregin upp með ein- földum Iínum en hreyfingar hennar voru mjög þokkafullar. En áður en myndin var teiknuð hafði Girard rannsakað hreyfing- ar beljunnar í langan tíma auk þess sem tölvan var mötuð á öllum fáanlegum upplýsingum um líffærafræði kusu. Kynþokkafulla vélmennið Annar bandarískur tölvugraf- íker, Robert Abel, varð frægur fyrir auglýsingamyndina „kyn- þokkafulla vélmennið", en í henni dansar málmgljáandi íbúi frá Satúrnusi urn skjáinn og kveikir líf í dósagúrku og öðrum niðursoðnum ávöxtum. Grafík- erinn rannsakaði hreyfingar ung- rar dansmeyjar og bjó til tölvu- prógram eftir danssporum henn- ar. Tölvan var mötuð á þessu og því varð vélmennið jafn kynþokkafullt og raun ber vitni. Lucasfilm, sem hefur náð langt í gerð geimmynda hefur notað þessa tækni og þeir hyggjast nota hana mun meira í framtíðinni, m.a. með því að endurlífga látna leikara. Tölvugrafíkerarnir eiga einna erfiðast með að endurskapa nátt- úruna einkum eru hreyfingar einsog akur í roki, öldugangur o.s.frv. erfiðar viðfangs því þess- ar hreyfingar virðast ekki hlýta neinum gefnum reikniformúlum. Þetta er þó hægt en er óheyrilega dýrt. Hringir Satúrnusar Bandaríkska geimferðastofn- unin NASA hefur tekið þessa tækni í sína þjónustu og var tölv- ugrafíkerinn James F. Blinn, sem vann fyrir Lucasfilm, að sjón- varpsþáttunum Alheimurinn, sem Carl Sagan stjórnaði og sýndir hafa verið hér á landi, ráð- inn til þess af NASA að endur- skapa á skjánum ferð geimfars í gegnum hringi Satúrnusar. Var tölvan mötuð af öllum upplýsing- um sem geimferðastofnunin hafði, m.a. frá ferðum geimfars í gegnum hringina. Það sem einkum stendur í vegi fyrir þessari tækni er hversu óheyrilega dýrt er að framleiða tölvumyndirnar. f dag myndi slík mynd í fullri lengd kosta um milljarð íslenkra króna í fram- leiðslu. Svo enn um sinn getur leikarafélagið tekið því rólega, það er nokkuð langt í það að tölvumyndirnar leysi lifandi leikara alfarið af hólmi. —Sáf/Illustreret videnskab Sunnudagur 13. júlí 1986 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 15

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.