Þjóðviljinn - 13.07.1986, Blaðsíða 16

Þjóðviljinn - 13.07.1986, Blaðsíða 16
Þá rigndi eldi og brennisteini 50 ár eru liðin íár frá þ ví að borgarastyrjöldin á Spáni braust út Picasso sýningin á Kjar- valsstöðum hefur tæpast farið fram hjá neinum, enda mikill fengur að fá hingað upp verk eins þekktasta myndlistar- manns þessarar aldar. Á sýn- ingunni er ein lítil mynd í gráum tónum á trönum. Leiðir sú mynd ósjálfrátt hugann að einu þekktasta málverki meistarans, Guernicu, sem hann málaði eftir loftárás Þjóðverja á bæinn 29. apríl 1937. Guernica skipar stórann sess í sögu Baska. í bænum er eikartré sem Baskar líta á sem heilagt tré. Undir trjákrónunni sór Ferdín- and böskum hollustueið árið 1476 og leiðtogar baska hafa ver- ið útnefndir við tréð frá ómunatíð til 1876 að þeir misstu sjálfstæði sitt, en þing baska kom saman við eikina. Guernica var því tákn sem þurfti að þurrka út sama hvað það kostaði. Mánuði áður en loft- árásin var gerð hafði Franco bæst Iiðstyrkur frá Þjóðverjum. Her- sveit Þjóðverja réð yfir Messerschmitts-, Heinkels- og Junkers flugvélum. Þótti tilvalið að reyna áhrifamátt þessarar flugvéladeildar og þótti Guernica tilvalið skotmark, enda var bær- inn skammt frá vígstöðvunum og stór hergagnaverksmiðja staðsett í honum. Það var markaðsdagur og mikil þrengsli í Guernica. Mánudagur- inn 29. apríl 1937. Hundrað manns biðu á brautarstöðinni eftir lestinni til Bilbao. Lúðra- sveit bæjarins lék fyrir dansi og um kvöldið átti að sýna kvik- mynd í bíóinu. Rjúkandi víti íbúar bæjarins voru 7000 en auk þeirra var mikill fjöldi særðra og flóttamanna af vígstöðvunum í bænum. Korter yfir fjögur síðdegis flugu 43 þýskar sprengjuflugvélar lágflug inn yfir bæinn. Vélbyssur geltu og sprengjur féllu. A nokkrum sekúndum breyttist þessi friðsæli bær í rjúkandi víti. Myndirnar brenndar í minnið „Þetta var hryllingur sem eng- inn sem ekki hefur upplifað hann getur ímyndað sér,“ segir Kar- mele, sem var fjórtán ára þegar árásin var gerð. Hún var nýkom- in á markaðinn að versla í matinn fýrir kvöldið. „Sprengjur sprungu allt í kring og fólk æddi vitstola í átt til fjallanna í leit að skjóli, en nýr hópur flugvéla kom svífandi í lágflugi og vélbyssu- hríðin skall á götunum. Jörðin skalf og ég hentist ofan í kjallara- inngang og setti hendur yfir höfuð. Reykurinn sveið í augu og ég lá þarna sem lömuð þar til ég heyrði einhvern segja að Tómas frá Catarro hefði verið drepinn. Ég mátti ekki mæla, því Tómas var faðir minn.“ f rúma þrjá tíma hélt árásin áfram og eldsprengjum var hent yfir rústirnar. „Það rigndi eldi og brennisteini yfir bæinn sem stóð í Ijósum logum. Myndirnar eru brenndar í minnið: Sundursprengdir asnar, logandi, vælandi hundar, manns- líkamar sundurtættir,“ segir Kar- mele. Móðir hennar hafði einnig lifað af árásina en húsið þeirra og verkstæði föður hennar var að engu orðið. Hver afdrif heimilis- föðurins urðu hefur aldrei fengist vitneskja um. Hergagna- verksmiðjan stendur enn Rúmlega 1500 íbúar létust í á- rásinni og hátt í 1000 særðir voru fluttir á sjúkrahús í nágrenninu. Tveim dögum seinna hertóku sveitir Francos bæinn. Hergagnaverksmiðjan hafði ekkert skemmst í árásinni og enn þann dag í dag er hún stærsti vinnustaðurinn í bænum. Alls vinna þar 275 manns og er verk- smiðjan, sem nefnist Astra, stærsti útflytjandi hergagna frá Spáni í dag; m.a. er mikið flutt út til Suður-Afríku. —Sáf/Ny tid 16 SIÐA - ÞJÓÐVILJINN Sjúkraliðar - athugið Viö Sjúkrahúsið á Egilsstööum eru lausar 3-4 stöður sjúkraliða, nú þegar eða frá 1. sept. nk.. Fljótsdalshérað er fagurt bæði sumar og vetur, flugvöllur er við bæjardyrnar og skíðaland í Fjarð- arheiði skammt undan. Við höfum grunnskóla, menntaskóla og tónlistaskóla á staðnum, svo eitthvað sé nefnt. Er ekki tilvalið að breyta til og prófa að búa úti á landsbyggðinni? Hugsið málið og leitið nánari upplýsinga, það kostar ekkert. Hjúkrunarforstjóri, sími 97-1631. Skrifstofan, sími 97-1386. Utboð Innkaupastofnun Reykjavíkurborgar, fyrir hönd Grjótnáms Reykjavíkurborgar, óskar eftir tilboð- um í að bora og sprengja í grjótnáminu í Seljadal, moka efninu á bíl og aka því í inntaksop grjót- mulningsstöðvarinnar við Sævarhöfða. Útboðsgögn eru afhent á skrifstofu vorri, Frí- kirkjuvegi 3, Reykjavík, gegn kr. 5.000 skilatrygg- ingu. Tilboðin verða opnuð á sama stað, miðvikudag- inn 23. júlí nk. kl. 11. INNKAUPASTOFNUN REYKJAVIKURBORGAR Frikukjuvcgi 3 Sinn 25800 Útboð - Gangstétt Hafnarfjarðarbær leitar tilboða í endurbyggingu gangstéttar og lagningu snjóbræðslukerfis við Strandgötu í Hafnarfirði (um 450 m2). Útboðsgögn eru afhent á skrifstofu bæjarverk- fræðings, Strandgötu 6, frá mánudeginum 14. júlí gegn kr. 5.000.- skilatryggingu. Tilboðin verða opnuð á sama stað, þriðjudaqinn 22. júlí kl. 11. Bæjarverkfræðingur. Ertu fjölhæfur og áhuga- samur? Okkur vantar kennara að Grunnskólanum Hófs- ósi. Kennslugreinar eru: íþróttir, smíðar og danska. Gott húsnæði er í boði. Nánari upplýsingar veitir skólastjóri Svandís Ing- imundardóttir í síma 95-6395 eða í síma 95-6346. Efnagreiningarstjóri Rannsóknastofnun landbúnaðarins óskar að ráða efnagreiningarstjóra á rannsóknastofu stofnunarinnar. Umsækjandi skal hafa lokið háskólaprófi í efna- fræði. Umsóknir ásamt upplýsingum um menntun og fyrri störf sendist Rannsóknastofnun landbúnaðarins, Keldnaholti, 110 Reykjavík.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.