Þjóðviljinn - 13.07.1986, Qupperneq 20
Bæjaraland
Hundrað listamenn
hylltu Franz-Josef Strauss
en mannvalið var skrýtið, og þeir höfðu í reynd
aldrei skrifað undir neitt
Einn helsti máttarstólpi íhald-
sins í Vestur-Þýskalandi er
Franz-Josef Strauss, foringi
þess útibús frá Kristilegum,
CSU, sem fer með völd í
Bæjaralandi. Strauss hefur
þótt annað betur gefið en að
umgangast menninguna- því
vakti það nokkra athygli fyrir
skömmu, að tilkynnt var að
hundrað menningarvitar í
Bæjaralandi hefðu undirritað
hyllingarbréf til hans. Og nú
kannast sumir þeirra alls ekki
við að hafa skrifað undir þetta
bréf.
„bókmenntaklíkum" Þýskalands
kveðjur í nýlegum ræðum og
hvatt þess í stað til þess að menn
hafi hugann við „súkkulaðihlið-
ina á menningu okkar“.
Og nú átti semsagt að sýna
Græningjum og Sósíaldemókröt-
um, að það væri út í hött að líta á
flokk Strauss, CSU, eins og „risa-
eðlu með lítinn heila“.
Það var fjölmiðlatengslamaður
flokksins, Markus Schöneberger,
sem skipulagði undirskrifta-
söfnunina. Aðferð hans var sú,
að hringja í menn út og suður,
sem honum leist einna skást á, og
segja með almennum orðum
hvað til stæði að skrifa um „and-
rúmsloft frjálsrar listsköpunar“ í
Bæjaralandi. Síðan fékk hver
þeirra, sem talað var við, bréf
heim til sín, með tilbúnum texta
þakkarávarpsins til Franz-Josefs
Strauss. Bragðvísi fjölmiðlafull-
trúans kom svo fram í því, að að-
eins þeir sem létu sérstaklega vita
af því, að þeir væru ekki sam-
þykkir textanum, sluppu við að
lenda undir honum. Þeir sem
ekki létu til sín heyra voru settir á
listann samkvæmt formúlunni:
þögn er sama og samþykki.
Þessi skrýtna aðferð við að
safna undirskrifum, sem þó ekki
voru undirskriftir, hefur vakið
upp hneykslun. Einnig meðal
þeirra sem á listanum lentu.
Sumir þeirra eru mjög reiðir.
Einn þeirra, Hans-Christian
Blech, komst svo að orði: „Ég
hélt ég yrði ekki eldri þegar ég sá
þetta. Ég er ekki nein frama-
hóra.“
Svo fór um sjóferð þá.
(byggt á Spiegel).
ŒlliSf©
...
Strauss, forsætisráðherra Bæjara-
lands: væri þessum listaklíkum ekki
nær að hugsa um súkkulaðihliðina á
menningu okkar?
Vinsamlegast
FRAMVÍSID BANKAKORTI
þegar þið greiðið með tékka
Hans-Christian Blech: aldrei skrifaði
ég undir, og er ég engin framahóra...
Sem fyrr segir þótti hollustu-
yfirlýsingin við Strauss nokkrum
tíðindum sæta. Blaðið Bay-
ernkurier sagði sem svo, að nú
væri loksins búið að snúa niður
fordóma, sem gilt hefðu ára-
tugum saman. Semsagt þá villu,
að „andinn flygi með vinstrislag-
síðu“.
Blaðið skýrði frá því með mikl-
um fögnuði, að forsætisráðherra
þessa stærsta „lands“ Sambands-
lýðveldisins hefði fengið bréf
undirritað af hundrað nafn-
greindum listamönnum og væri
það fullt aft lofi um það „dásam-
lega andrúmsloft" fyrir listir og
menningu, sem skapað hafi verið
í Bæjaralandi.
En þegar menn svo fóru að
skoða málið nánar, þá kom það í
ljós, að varla hafði nokkur þeirra
Bæjara, sem álits njóta sem skáld
eða kvikmyndamenn eða
leikhúsmenn skrifað undir. Þeim
mun meira var af fjölmiðlastjörn-
um og skemmtikröftum. Og í
annan stað var náttúrlega ekki
um það að ræða að listafólk hefði
sjálft komið saman til að hylla
landsföðurinn, heldur hafði
flokkur Strauss, CSU, skipulagt
þessa aðgerð sem lið í „almanna-
tengslum“ eins og það heitir.
v Skrýtin aðferð
Talið var að ekki mundi af
veita. Menntamálaráðherra
Strauss hefur átt í útistöðum við
leikhús í Múnchen (m.a. út af
andófi þar gegn kynþáttakúgun í
Suður-Afríku), útvarpsstjóri
hans hefur beitt ritskoðun, sjálf-
ur hefur Strauss ekki. vandað
ObOO
«*m 000? 0
OM.OW ii
^oo
oooo ooo^
0300 0000 0002 5b0 ~
•** . i g 0 J 2 oTíTb i - 0-
S"5=S?
SS
a3t
,7 mub*nk,nn h
SÉWi í§é
0000 oonp
0?6ft - j ‘ O H
BJ**»*00
C“-D*W
Bankakortið - tákn um traust tékkaviðskipti
Alþýöubankinn - Búnaðarbankinn - Landsbankinn - Samvinnubankinn
Útvegsbankinn - Verzlunarbankinn - Sparisjóðirnir
AUK hf./SlA X2.5