Þjóðviljinn - 05.09.1986, Blaðsíða 15
ÍÞRÓTTIR
Frakkland
Helgarfrí fýrir
íslandsleikinn
Jafntefli efstu liða í fyrrakvöld
Áttunda umferð frönsku 1.
deildarkeppninnar í knattspyrnu
var leikin í fyrrakvöld - til þess að
gefa franska landsliðinu betri
tíma til undirbúnings fyrir leikinn
gegn íslandi á Laugardalsvellin-
um næsta miðvikudag.
Toppliðin gerðu öll jafntefli,
Nantes 0-0 heima gegn Le Havre,
Marseilles 1-1 úti gegn Metz,
Bordeaux 0-0 heima gegn Lens
og Paris SG 1-1 úti gegn
botnliðinu Toulon. •
Marseilles og Nantes eru með
12 stig hvort, Bordeaux og Paris
SG 11.
Aðeins einn frönsku landsliðs-
mannanna skoraði mark, varnar-
maðurinn Jean-Francois Dom-
ergue úr vítaspyrnu fyrir Marseil-
les. Tigana, Ferreri og
Vercruysse hjá Bordeaux létu all-
ir markvörð Lens verja frá sér úr
upplögðum færum. -VS/Reuter
2-0
Finnar sigruðu
Jafn landsleikur U21 árs liða í Finnlandi í gœr
Finnar sigruðu íslendinga 2-0 í
fyrsta leik Evrópukeppni lands-
liða undir 21 árs í Kemi í Finn-
landi í gær.
Leikurinn var jafn allan tím-
ann og lítið var um færi. Finnar
skoruðu á 20. mínútu. íslensku
Knattspyrna
ísland fengi
2 lið í UEFA
Ef íslensku félagsliðin ná
jafngóðum árangri í ár og næstu
þrjú ár til viðbótar og þau gerðu í
fyrra í Evrópumótunum í knatt-
spyrnu, eru miklar líkur á að ís-
land fengi að senda tvö lið í
UEFA-bikarinn að þeim tíma
liðnum.
Fjöldi þátttökuliða frá hverju
landi í UEFA-bikarnum fer eftir
árangri í mótunum þremur síð-
ustu fimm árin á undan. Þrjár
efstu þjóðirnar á töflunni mega
senda 4 lið, næstu fimm fá 3 lið og
þjóðirnar í 9.-21. sæti fá tvö lið
hver og aðrar eitt lið.
1 Evrópumótunum í fyrra unnu
íslandsmótið
Dregur til
tíðinda í
1. deild
Nœstsíðasta umferð um helgina
Mætir Guðmundur Torfason tvíefldur
til leiksins við Víði?
Eftir hálfsmánaðar hlé hefst
keppni í 1. deildinni í knattspyrnu
aftur á morgun, laugardag og á
sunnudag lýkur næstsíðustu um-
ferðinni. Það er einvígi Vals og
Fram um Islandsmeistaratitilinn
sem allra augu beinast að, úrslit
fallbaráttunnar eru nánast ráðin
og eins víst að henni ljúki endan-
lega á morgun.
Á morgun, laugardag, leika
ÍB V og FH í Eyjum og ÍBK mætir
ÍA í Keflavík. FH þarf eitt stig í
Eyjum til að senda Breiðablik
endanlega niður með ÍBV. ÍBK
og ÍA eru að bítast á um brons-
verðlaunin.
leikmennirnir töldu að áður hefði
verið brotið á Hermenni Har-
aldssyni markverði. Eftir mikla
sókn íslands í lokin, fengu Finnar
vítaspyrnu eftir skyndisókn og
skoruðu seinna mark sitt með síð-
ustu spyrnu leiksins.
- VS
íslensku liðin þrjú, Fram, Valur
og ÍA, samtals 3 leiki en töpuðu
5. Þetta lyftir íslandi í 21. sætið á
Evróputöflunni fyrir síðasta
keppnistímabil. En síðustu 5 árin
ráða og á þeirri töflu er ísland í
30. sæti af 32 þjóðum.
Spánverjar náðu bestum ár-
angri í fvi'ra, Vestur-Þjóðverjar
næstbestum og Sovétmenn voru
þriðju. Þetta dugði þó ekki Spán-
verjum, en hinsvegar Sovét-
mönnum. Þær þrjár þjóðir sem fá
að senda 4 lið í keppnina í vetur
eru Ítalía, Vestur-Þýskaland og
Sovétríkin, Sovétmenn komu í
þann flokk í stað Englendinga.
-VS
Hollandsferðin
Tuttugu utan
Það eru 20 stúlkur sem fara
með A-landsliði og unglinga-
landsliði kvenna í æfinga- og
keppnisferðina til Hollands í
dag. Níu í því fyrrnefnda og
ellefu í því síðarnefnda.
í A-landsIiðinu eru eftir-
taldar:
Gyða Úlfarsdóttir, FH
Guðríður Guðjónsdóttir, Fram
Ingunn Bernótusdóttir, Fram
Arna Steinsen, Fram
Eiríka Ásgrímsdóttir, Víkingi
Erna Lúðvíksdóttir, Val
Katrín Fredriksen, Val
Guðrún Kristjánsdóttir, Val
Björg Gilsdóttir, v.þýsku félagi
Unglingalandsliðið skipa
eftirtaldar stúlkur:
Fjóla Þórisdóttir, Stjörnunni
Hafdís Guðjónsdóttir, Fram
Ósk Víðisdóttir, Fram
Valdís Birgisdóttir, Vfkingi
Inga Lára Þórisdóttir, Víkingi
Jóna Bjarnadóttir, Víkingi
Steinunn Þorsteinsdóttir, Stjörnunni
Guðný Gunnsteinsdóttir, Stjörnunni
Anna M. Guðjónsdóttir, Stjörnunni
María Sigurðardóttir, FH
Hrafnhildur Pálsdóttir, Haukum
Þjálfari er Hilmar Björns-
son en liðsstjóri Kristján Hall-
dórsson. Fararstjórar eru
Helga Magnúsdóttir og Davíð
Sigurðsson. Liðið er væntan-
legt heim næsta föstudag.
-VS
Sviss
Þriðja tap Luzem
Luzern tapaði í þriðja skiptið í
fimm fyrstu leikjum sínum í
svissnesku 1. deildinni í knatt-
spyrnu í fyrrakvöld. Það var 4-2
gegn Lausanne á útivelli. Luzern
hefur unnið heimaleikina en tap-
að útileikjunum og er í 11. sæti af
16 liðum með 4 stig. Sigurður
Grétarsson getur ekki leikið með
liðinu fyrr en eftir nokkrar vikur
vegna meiðsla og Ómar Torfason
hefur átt í erfiðleikum með að
vinna sér sæti. Neuchatel og Sion
eru efst með 9 stig en Grasshopp-
ers er með 8 stig.
-VS/Reuter
Þrístökk
Vilhjálmur væri
enn við toppinn!
íslandsmetið frá 1960 enn á heimsmœlikvarða
Vilhjálmur Elnarsson, núverandi
skólameistari á Egilsstöðum, hefði
orðið níundi í Stuttgart.
Það er ekki í mörgum greinum
frjálsra íþrótta sem árangur fyrir
30 árum væri boðlegur á stór-
mótum enn þann dag í dag. Fram-
farir hafa orðið það miklar að
menn eru farnir að spyrja sig: er
hægt að hlaupa, stökkva og kasta
hraðar, hærra og lengra en þegar
hefur verið gert?
Vilhjálmur Einarsson setti
glæsilegt íslandsmet í þrístökki
árið 1960 þegar hann stökk 16,70
metra á móti í Reykjavík. Metið
stendur enn þann dag í dag. Á
þeim tíma var þetta með því besta
sem gerðist í heiminum, enda
hafði Vilhjálmur hlotið silfrið á
Ólympíuleikum fjórum árum
áður, og þó stokkið tæplega hálf-
um metra skemur þá.
Þegar litið er á árangurinn í
prístökkinu á Evrópumeistara-
mótinu sem fram fór í Stuttgart á
dögunum kemur í ljós að árangur
Vilhjálms hefði fleytt honum
langt, hann hefði orðið níundi í
úrslitakeppninni. Þetta undir-
strikar enn betur glæsileg afrek
Vilhjálms og vekur þá spumingu
hvað hann hefði eiginlega getað
gert með alla þá þjálfun og tæki-
færi sem toppmenn í frjálsum
íþróttum fá í dag. -VS
Fram mætir Víði á Laugardals-
velli kl. 14 á sunnudag. Fram
þarf 3 stig og ekkert annað í bar-
áttunni um meistaratitilinn en
Víðir siglir lygnan sjó í deildinni.
Pétur Ormslev leikur ekki með
Fram vegna meiðsla og er þar
skarð fyrir skildi en hinsvegar
gæti Guðmundur Torfason tekið
uppá því að leika af tveggja
manna afli til að sýna landsliðs-
þjálfaranum hvað í sér búi.
Breiðablik og Þór leika í Kópa-
vogi kl. 16. Blikar vita þá hvort
þeir eiga von og leika samkvæmt
því.
Valur og KR mætast á Hlíðar-
enda kl. 18. Valsmenn stíga
skrefi nær titilinum ef þeir sigra,
og tapi Framarar fyrr um daginn
verða Valsmenn m.a.s. meistarar
með sigri.
Staðan í 1. deild fyrir helgina er þessi:
Valur...........16 11 2 3 28-6 35
Fram...........16 10 4 2 35-12 34
IBK............16 9 1 6 21-21 28
lA.............16 8 3 5 28-17 27
KR.............16 6 7 3 18-10 25
Víðir..........16 5 4 7 19-19 19
Þór............16 5 4 7 18-26 19
FH.............16 5 3 8 21-31 18
Breiðablik.....16 3 3 10 13-33 12
(BV............16 1 3 12 15-41 6
í lokaumferðinni sem fer fram
laugardaginn 13. september mæt-
ast síðan KR-Fram, ÍA-Valur,
Víðir-ÍBV, FH-Breiðablik og
Þór-ÍBK. ’ _ys
England
Dregið í
rieilda-
bikar
Ensku 1. deildarliðin í knatt-
spyrnu drógust flest gegn 3. og 4.
deildarliðum í 2. umferð deiida-
bikarsins. Handhafar bikarsins,
Oxford, leika við 3. deildarliðið
Gillingham, Liverpool mætir Ful-
ham úr 3. deiid, Manchester Un-
ited leikur við Port Vale úr 3.
deild og Everton við Newport úr
3. deild.
Leikir 1. deildarliðanna eru
sem hér segir, deildir annarra liða
í svigum:
Liverpool-Fulham(3)
Cambridge(4)-Wimbledon
Reading(2)-Aston Villa
Swansea(4)-Leicester
Arsenal-Huddersfield(2)
Southampton-Swindon(3)
Everton-Newport(3)
Coventry-Rotherham(3)
Oxford-Gillingham(3)
Barnsley(2)-Tottenham
Preston(4)-West Ham
Watford-Rochdale(4)
Luton-Cardiff(4)
Peterborough(4)-Norwich
Southend(4)-Manch.City
Bradford C.(2)-Newcastle
York(3)-Chelsea
Q.P.R.-Blackburn(2)
Manch.Utd-Port Vale(3)
Sheff.Wed.-Stockport(4)
Charlton-Lincoln(4)
Brighton(2)-Nottm.For.
Aðrir leikir í 2. umferð:
Wrexham(4)-Portsmouth(2)
Scunthorpe(4)-lpswich(2)
Middlesboro(3)-Birmingham(2)
Shrewsbury(2)-Stoke(2)
Oldham(2)-Leeds(2)
Walsall(3)-Millwall(3)
Hull(2)-Carlisle(3)/Grimsby(2)
Cr.Palace(2)-Bury(3)
Bristol C.(3)-Sheff.Utd(2)
Derby County(2)-W.B.A.(2)
Leikið er heima og heiman,
22.-24.sept og 6.-8.okt.
-VS/Reuter
ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 15