Þjóðviljinn - 21.09.1986, Síða 19
Ísland/Sovét
Sókndjaifir
Sovét-
menn
Þann 24. september nk. hefst
undankeppni Evrópumeistara-
mótsins í knattspyrnu meö leik
milli landsliða Sovétríkjanna og
íslands í Reykjavík, en Evrópu-
meistaramótið fer fram á fjögurra
ára fresti eins og heimsmeistar-
akeppnin. Það má minna á að
auk landsliða Sovétríkjanna og
íslands eru landslið Frakklands,
sem varð Evrópumeistari árið
1984, Þýska Alþýðulýðveldisins
og Noregs í 3. riðli undankeppn-
innar. Þann 11. mars sl. komu
fulltrúar allra þjóðanna fimm í 3.
riðli saman til að ákveða leikdag-
ana. Það má til gamans geta
þess að landslið Sovétríkjanna
byrjar á að spila gegn íslandi, og
síðasti leikurinn verður einnig
gegn íslandi, (Dann 28. október
1987 í Sovétríkjunum.
Litlar breytingar
frá Mexíkó
Vjacheslav Koloskov, yfir-
maður Knattspyrnudeildar
íþróttanefndar Sovétríkjanna,
sagði mér að það væri varla hægt
að tala um breytingar á landsliði
Sovétríkjanna í fyrri leiknum
gegn íslandi. í Reykjavík spila
þeir leikmenn sem spiluðu í
heimsmeistarakeppninni í Mex-
íkó 1986.
í Mexíkó sýndu sovésku
knattspyrnumennirnir sínar
bestu hliðar. Þeir sýndu mjög fal-
legan leik, sem byggðist á feyki-
góðri tækni, og leikur þeirra gaf
góðan árangur sem auðvitað var
aðalatriðið - sovésku meistararn-
ir skoruðu mark í hverjum leik.
En íþróttir eru og verða íþróttir
og lánið gegnir þar ekki svo litlu
hlutverki. Því miður brosti gæfan
við landsliði Belgíu, keppinaut-
um Sovétmanna í 16-liða úrslit-
unum, og það sigraði í spennandi
og örlagaríkum leik með fjórum
mörkum gegn þremur. í þessum
leik var það Igor Belanov, frá Di-
namo Kiev, sem stóð sig best, en
hann skoraði öll þrjú mörkin.
Framherjarnir
stóðu sig
Eitt er áhugavert: Fyrir úrslita-
hrinuna í Mexíkó var einmitt ver-
ið að gagnrýna sovésku framherj-
ana, sem voru slappir í keppni við
félaga sína og í æfingaleikjum.
En í Mexíkó var þessu öðruvísi
varið. Framherjar sovéska lands-
liðsins stóðu sig vel, en satt að
segja var frammistaða varnarinn-
ar og markvarða slök. En eins og
Vjacheslav Koloskov sagði mér,
mun Valeri Lobanovski, yfir-
þjálfari landsliðs Sovétríkjanna,
koma með Mexíkóliðið 1986 til
Reykjavíkur.
Uppistaðan
frá Kiev
Það eru leikmenn Dinamo frá
Kiev sem verða aðaluppistaðan í
landsliði Sovétríkjanna en þeir
hafa undir stjórn Valeri Loban-
ovski sigrað tvisvar í Evrópubik-
arkeppninni og einu sinni unnið
Stórbikar Evrópu. Liðið vann
fyrri sigurinn í bikarkeppninni
árið 1975 en af þeim sem þá voru í
liðinu er aðeins Oleg Blokhin
eftir. Hann er 34 ára og hefur
þrisvar verið kjörinn besti knatt-
spyrnumaður Sovétríkjanna og
besti knattspyrnumaður Evrópu
árið 1975. Til gamans má geta j
þess að Oleg Blokhin er eini so-
véski knattspyrnumaðurinn sem
skorað hefur samtals yfir 200
mörk í Sovétmeistarakeppninni.
Hann er giftur Irínu Derjugínu,
sem tvisvar hefur orðið
heimsmeistari í nútímafim-
leikum. Þau eiga dóttur sem
heitir íra og hún lætur sig dreyma
um að ná langt í nútímafim-
Ieikum eins og móðir hennar.
Á þessu ári unnu Dinamo-
menn frá Kiev annan sigurinn í
Evrópukeppni bikarhafa en Stór-
bikarinn fengu þeir árið 1976. Og
í lok sl. árs útnefndu 209 sovéskir
íþróttafréttamenn frá 138 aðil-
um, TASS, APN, útvarpinu,
sjónvarpinu, útgáfufyrirtækjum
og öðrum samtökum blaða-
manna, Anatólí Demianenko,
liðsmann Dinamo Kiev og varn-
armann í landsliðinu, besta
knattspyrnumann Sovétríkjanna
árið 1985. Sama niðurstaðan
fékkst í könnun sem vikuritið
„Fútbol-Hokkey" gerði í 22.
skipti. í öðru sæti varð Oleg Prot-
asov, framherji í landsliðinu og
liðsmaður Dnépr frá Dnéprop-
etrovsk, sem skoraði 35 mörk í 1.
deild á síðasta keppnistímabili og
setti þar með met. Fyrra metið
átti Nikita Simonjan, sem
skoraði 34 mörk á einu tímabili
og hafði met hans staðið í 35 ár.
Margir
kunnir leikmenn
Það koma fleiri kunnir knatt-
spyrnumenn til Reykjavíkur.
Markverðirnir Rinat Dasajev,
frá Spartak í Moskvu, Viktor
Chanov og Mikhailov, báðir frá
Dinamo Kiev, Sergej Krakovski
frá Dnépr, varnarmennirnir Al-
exander Chivadze frá Dinamo
Tiblisi, Alexander Bubnov og
Gennadi Morozov, báðir frá
Spartak í Moskvu, tengiliðirnir
og framherjarnir Vladimir Bess-
onov, Ivan Jaremchuk, Vasili
Rats, Alexander Zavarov og Pa-
vel Jakovenko, allir frá Dinamo
Kiev, Gennadi Litovchenko frá
Dnepr, Sergej Aleinikov frá Di-
namo í Minsk og Sergej Rodion-
ov frá Spartak í Moskvu.
ísiand í
stöðugri framför
Landslið Sovétríkjanna og fs-
lands leiddu saman hesta sína í
undankeppninni fyrir Ólympíu-
leikana 1976 og í bæði skiptin
sigruðu sovésku knattspyrnu-
mennirnir (2-0 og 1-0). Sovésku
knattspyrnumennirnir búa sig nú
undir átökin við íslenska lands-
liðið sem hefur verið í stöðugri
framför á undanförnum árum.
Vjacheslav Koloskov sagði að
leikurinn í Reykjavík yrði erfiður
og að þar yrði ekkert gefið eftir,
en einnig væri það von sovéska
landsliðsins að geta sýnt íslensk-
um áhorfendum fallegan og ár-
angursríkan sóknarleik.
Boris Olshevski,
sovéskur íþróttameistari,
íþróttafréttamaður APN
Sunnudagur 21. september 1986 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 19
Igor Belanov aðalmarkaskorari sovéska landsliðsins á hór í höggi við Jozsef Kovdos varnarmann Ungverja í
heimsmeistarakeppninni í Mexíkó sl. sumar. Leiknum lauk sex núll fyrir Sovét.
AMSTRAD PCWtölva með íslensku RITVINNSLUKERFI, ísl. 3ja tíma leiðbeiningum á snældum,
SAMSKIPTAFORRITI fyrir telex, gagnabanka o.fl. og PRENTARAI-fyriraðeins 39.900,- kr. Stóri
bróðir, AMSTRAD 8512, er með 2 drifum og stærra minni og kostar aðeins 49.900,- kr. Hann er
auk þess hægt að fá með fullkomnu fjárhagsbókhaldi eða með viðskiptamanna-, sölu- og
lagerkerfi fyrir 59.900,- kr., og með hvoru tveggja fyriraðeins 64.900,- kr.-allt í einum pakka
- geri aðrir beturl
AMSTRAD PCW 8256
ritvinnslutölvan: 256 K RAM linnbyggður RAM diskurj, I drif;
skjár: 90 stafir x 32 línur. Prentari: Punktaprentari, 90 stafir á sek.
AMSTRAD PCW 8512
ritvinnslu- og bókhaldstölvan: 512 K RAM |innb. RAM diskur),
2 drif (B-drif er I megabyte), skjár: 90 st. x 32 línur. Prentari:
punktaprentari, 90 stafir á sek.
Báðum geröum fylgir (slenskt ritvinnslukerfi (LOGO-
SCRIPT), Dr. Logo og CP/M+, ísl. lyklaborð, ísl.
leiöbeiningar, 3ja tíma kennsluefni á 2 snældum |ísl.),
prentari með mörgum fallegum leturgerðum og
-stærðum. Með AMSTRAD 8512 er einnig hægt að fá
fullkomin bókhaldskerfi sem henta mjög vel litlum og
meðalstórum (yrirtækjum.
Námskelð:
Tölvufræðslan sf. ÁrmOla 36, s. 687590 & 686790:
Fjérhagsbókhald 6 tfmar aðeins 2.500 kr.
Viðskiptamanna-, sölu- or lagerkerfi 6 tímar aðeins 2.500 kr.
Ritvinnslunámskeið 6 tfmar aðeins 2.500 kr.
FORRIT FYRIR AMSTRAD:
Samskiptaforrit: BSTAM, BSTMS, Chit-Chat, Crosstalk, Honeyterm
8256, Move-it. Áætlana- og relknlforrlt: Pertmaster, Milestone,
Brainstorm, Statflow, Cracker, Master Planner, Multiplan, PlannerCalc,
SuperCalc. Gagnagrunnsforrit: Cambase, Cardbox, dBase II, dGraph,
dUtil, Delta, Flexifile Telknlforrlt: Dataplot plus, Datplot III, DR Draw,
DR Graph, Polyplot. Polyprint. Forrltunarmál: DR C Basic, Mallard,
Basic, Microsoft Basic, Nevada Basic, Cis-Cobol, Nevada Cobol, RM
Cobol, HiSoft C, Nevada Fortran, Pro FortrarvDR PL/1. DR Pascal MT+,
Nevada Pascal, Pro Pascal, Turbo Pascal. AnnaÖ: Skákforrit. BridgeforriL
íslensk forrlt: Ritvinnsla (fylgir). Fjárhagsbókhald. Viöskiptamannafor-
rit, Sölukerfi. Lagerbókhald, Nótuútprentun, Límmiðaútprentun.
Auk þúsunda annarra CP/M forrita.
[^Braga
v/Hlemm Símar 29311 & 621122
CniMÞ^
TÆKNID0LD HaHarmúla2 Slmi832T1
ÞETTA ER TÖLXAIM!
FYRIR EINSTAKLINGA OG FYRIRTÆKI
Umboösmenn útl á landl: Akranes: Bókaskemman. Akureyrl: Bókabúðin Edda, Blönduós: Kaupfélag Húnvetninga. DJúpavogl: Verslunin Djúpið.
Grindavlk: Bókabúð Grindavíkur. Hafnarfjörður: Kaupfélag Hafnfirðinga, Húsavlk: Bókaverslun Pórarins Stef., ísafjörður: Hljómborg,
Keflavík: Bókabúö Keflavíkur, Vestmannaeyjar: Vídeóleiga GS. Seltjarnames: Verslunin Hugföng.
öll verö miðuö viö gengi I. sept. 1986 og staögreiðslu. TOLVULAND HF., SIMI 17850