Þjóðviljinn - 21.09.1986, Blaðsíða 20

Þjóðviljinn - 21.09.1986, Blaðsíða 20
Fögnuðurinn leynir sér ekki. 1. sæti og 1. deild. Frá vinstri Sveinn Freysson, Björn Olgeirsson fyrirliði og Birgir Skúlason. Húsavíkurhátfð Bvoslu út að öxlum MyndirfrásigurhátíðhúsvískraVölsungasemfögnuðu í heila viku sigri í 2. deild Það má víst segja að líf manna á Húsavík hafi ekki snúist um ann- að síðustu daga en fótbolta. Knattspyrnulið staðarins gerðist svo liðtækt í sparkinu að vinna sigur í 2. deildinni og fá þar með rétt til að sparka fótbolta í 1. deild. Svo mikill var hamagangurinn að menn voru meira og minna frá vinnu dögum saman. Það var engu líkara en sjálfur heimsmeistaratitillinn hefði komist í hendur húsvískra. Gaml- ir sparkunnendur sáust brosa út að öxlum og fjandmenn féllust í faðma. Daglegt líf manna í bæn- um snerist ekki um annað en fót- bolta. Ótrúlegasta fólk var farið að hafa áhuga á íþróttinni til að vera viðræðuhæft á sínum vinnu- stað. En líf Húsvíkinga er smám saman að færast í eðlilegt horf og framundan er sumar með til- hlökkun um fótboltaspark, rang- stöðu, bakhrindingu, tæklingar og guð má vita hvað. Einar Ólafsson ljósmyndari Þjóðviljans af húsvískum ættum og gallharður Völsungur var að sjálfsögðu mættur til að fylgjast með framvindu gleðinnar í bæn- um og árangur ferðarinnar sjáum við hér til hliðar. - ab/Húsavík

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.