Þjóðviljinn - 26.09.1986, Side 7
SJÁVARÚTVEGUR
Ungur sveinn úr Sandgeröi, Arnar Bjarkason, situr miðskips í Þorsteini þar sem báturinn bíður þess að verða lagfærður í sina upphaflegu mynd. Ljósm. Sig.
Byggingalag Þorsteins er afar sérstætt og þykj-
ast menn hafa möguleika á að greina aldur
skipsins á því meðal annars. Á skipinu neðarlega
sóst úrtak fyrir skrúfur sem sett var á skipið er
það var flutt til Reykjavíkur. Ljósm. Sig.
það þarf langan tíma til að læra að
þekkja innréttingu hans alla, það
þarf líka mikla æfingu til að læra
til fulls að nota bátinn í vondu
veðri. Englendingar hafa notað
róðrarbáta til björgunar í yfir
hundrað ár og bjargað þúsundum
mannslífa. Þeir hafa allan þennan
langa tíma verið að endurbæta þá
og þessi bátur þarna er árangur af
starfi þeirra. Lengra hafa þeir
enn ekki komist." Síðar í ræðu
sinni segir Þorsteinn: „Hann
tæmir sig samstundis þótt hann
fylli, hann réttir sig undir eins
þótt honum hvolfi. Hann týnir
ekki úr sér neinu af farviðnum,
ekki svo mikið sem einum tolla
eða einni ár þótt honum hvolfi og
ef rétt er með allt farið og öll
handtök rétt, þá á enginn af
áhöfn bátsins að losna við hann
þótt honum hvolfi. Þetta er
meistaralegur útbúnaður."
Ferill bátsins
Björgunarskipið Þorsteinn var
staðsettur í Sandgerði allt fram til
ársins 1944. Þá var skipið endur-
nýjað og breytt úr teinæringi í
vélbát með tveimur vélum og
flutt til Reykjavíkur. Brimróðr-
arbátur, sem hlaut nafnið Oddur
V. Gíslason tók við af Þorsteini í
Sandgerði en það er af honum að
segja að í umsjá björgunarstöðv-
arinnar í Örfirisey komst hann á
lokadaginn 11. maí 1946 er stöðin
var vígð.
Þorsteinn var notaður við
Reykjavík en á milli jóla og nýj-
árs árið 1953 skemmdist báturinn
illa við landtöku í Engey. Var
ekki talið ráðlegt að gera hann
upp og var Þorsteini ráðið til
hlunns á Grímsstaðaholti og síð-
an við Skerjafjörð.
Nýtt skeið hefst
En hvernig má það vera að
björgunarskipið Þorsteinn er aft-
ur kominn á sinn gamla stað í
Sandgerði? Við gefum Sigurði H.
Guðjónssyni núverandi formanni
Sigurvonar orðið, en hann hefur
haft veg og vanda af því að Þor-
steinn komst til sinnar heima-
hafnar á ný:
„Það var um miðjan síðasta
áratug sem ég fann bátinn hjá
gömlum manni á Seltjarnarnesi,
en hann hafði keypt Þorstein eftir
óhappið við Engey og gert hann
upp. Þessi gamli maður hafði hins
vegar ekki bolmagn til að gera
bátinn út og dó raunar skömmu
eftir að við höfðum rætt saman.
Það varð að ráði að við fengum
að hirða bátinn og var hann flutt-
ur til Sandgerðis aftur árið 1975.
Hér stóð Þorsteinn úti í nokkur
ár, eða þangað til við vorum bún-
ir að gera gömlu björgunarstöð-
ina upp að mestu og í sínu gamla
skýli er hann í dag. Við ætlum
okkur að ljúka við endurgerð
skýlisins en síðan verður ráðist í
að breyta Þorsteini í teinæring á
ný og gera hann upp í sinni fyrstu
mynd.“
Hve gamalt skip?
Þrátt fyrir að allar teikningar
séu til af Þorsteini frá fram-
leiðendum í Bretlandi veit enginn
með vissu hve hann er gamall.
Sigurður H. Guðjónsson segir
það eitt vitað að Þorsteinn hafi
verið smíðaður fyrir fyrri
heimstyrjöld. Hann sagði þá Sig-
urvonarmenn vera í sambandi við
Breska björgunarfélagið sem
upphaflega seldi bátinn til íslands
og kvaðst vona að það tækist að
grafa upp smíðaárið.
Þorsteinn er greinilega afar
vandað skip, það er hverjum leik-
manni ljóst sem hann skoðar.
Hann er 35 fet að lengd og 5 tonn
að þyngd, smíðaður úr kletta-
álmviði, eik og Honduras mag-
honi.
Lofsvert framtak
Það er sannarlega lofsvert
framtak hjá forsvarsmönnum
björgunarsveitarinnar Sigurvon-
ar í Sandgerði að gera þetta vand-
aða skip upp og einnig skýlið sem
telst fyrsta björgunarskýli sinnar
tegundar á íslandi. Vonandi
koma góðir aðilar til liðs og fjár-
magna þetta mikla verk sem bíð-
ur þeirra Sigurvonarmanna því
segja má að með björgunar-
skipinu Þorsteini og stofnun Sig-
urvonar í Sandgerði hefjist skipu-
lagt björgunarstarf við strendur
iandsins. Væri þeirra vatnaskila
vel minnst með þessum hætti.
-v.
Helmildir: Árbók SVFÍ1978 bls.
51-53. Árbók SVFÍ1973 bls. 52-
57 og Víkurfréttir, jólablað
1984, Björgunarbáturinn Þor-
stelnn eftir Krlstinn Lárusson.
UTGERÐARVORUR
OG SKOÐUNARBÚNAÐUR
í GEYSILEGU ÚRVALI
BLAKKIR MARGAR GERÐIR OG STÆRÐIR. TOGVIR - SNURPUVIR -
VINNSLUVÍR - LÁSAR - KEÐJUR - KRÓKAR - KÓSSAR - TÓG - NETA-
BELGIR OG HRINGIR - SNURPUHRINGIR - SIGURNAGLAR - BAUJULJÓS
- FISKIKÖRFUR - FISKIHNÍFAR OG BRÝNI - LANTERNUR - FISKI-
GOGGAR - MERLSPÍRUR - BÁTADÆLUR - VANTSPENNUR
VINNUFATNAÐUR - SJOFATN-
AÐUR - SKIPAMÁLNING OG
LÖKK - BOLTA- OG BAKJÁRN
- SKÓFLUR - GAFFLAR -
SLÖNGUR ALLS KONAR -
SLÖNGUKLEMMUR -
- MÚRARAVERKFÆRI -
BAROMETER - KLUKKUR -
HITAMÆLAR - HVERFISTEINAR.
LÍNUBYSSUR - SVIFBLYS -
HANDBLYS - BJÖRGUNAR-
VESTI OG HRINGIR - SLÖKKVI-
TÆKI - BARCO ÖRYGGISLEIÐ-
ARI - BJÖRGUNARNETIÐ
MARKÚS - BRUNASLÖNGUR,
STÚTAR OG TENGI. ANNAR
SKOÐUNARBÚNAÐUR.
Og enn er fjölmargt ótalið
Ánanausfum, Grandagarði. Sími 28855.
ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 7