Þjóðviljinn - 28.09.1986, Blaðsíða 18

Þjóðviljinn - 28.09.1986, Blaðsíða 18
KROSSGÁTA Nr. 536 ->— Z v- s 5 ? 8 JO 5? II 12 r fT /7 !¥ IS 9? jy /? )g Z JS /9 ö> 9? I1! Zó )0 2 9? 10 Zl JO 22 2 /9 5~ 9 íí 23 Zl 9? Y 2^ 20 Z b 9 9 zs 6' 10 )D <7 i& S 6 T~ Qp z ó )7- (z iT y 2 18 zu 9? *k bT 9 Ý 2D 18 ZT 20 J0 Z 9? u /e n 10 T 2 ZÐ ? ZT Jö ZD (o n 8 z (p <? 25 9 (? 8 Y T~ /? & 9 Y 20 !(? Qp 9 /? (> 4- S 9 (p )> sr >5 5 10 y Zó 10 2 Y /i )0 *7 °) 9? 9? // (p 9 5 10 V 23 <íT /0 9 23 9- 2(? 2^ 2? 9? T~ 2Ý 2? 21 IO 9? z )(? 26 31 /r JD 20 2? )(? S? Z 2$ 2? / b AÁBDÐEÉFGHIÍJKLMNOÓPRSTUÚVXYÝÞÆÖ Setjið rétta stafi í reitina hér fyrir neðan. Þeir mynda þá karl- mannsnafn. Sendið þetta nafn sem lausn á krossgátunni til Þjóðviljans, Síðumúla6, merkt: „Krossgátanr. 536“. Skilafrest- ur er þrjár vikur. Verðlaunin verða send til vinningshafa. J0 9 27 32 )D 23 ? 27 2 Stafirnir mynda íslenskt orð eða mjög kunnugleg erlend heiti hvort sem lesið er lá- eða lóðrétt. Hver stafur hefur sitt númer og galdurinn við lausn gátunnar er sá að finna staflykilinn. Eitt orð er gefið og á það að vera næg hjálp því að með því eru gefnir stafir í allmörgum orðum. Það eru þess vegna eðlilegustu vinnubrögðin að setja þessa stafi í hvern sinn reit eftir því sem tölurnar segja til um. Einnig er rétt að taka fram, að í þessari krossgátu er gerður skýr greinarmunur á grönnum sérhljóða og breiðum, t.d. getur a aldrei komið í stað á eða öfugt. Gunnar Grímsson, Fannborg 9 í Kópavogi hlaut verölaun fyrir krossgátu nr. 533. Lykil- orðið var Norðdahl. Hann fær senda bókina Maðurinn sem féll til jarðar eftir Walter Tevis. Verðlaunin fyrir krossgátuna þessa vik- una er skáldsagan Stefnumót við óvissuna eftir Jerzy Kosinski. Út- gefandi er Almenna bókafélagið. SKAK BRIDGE Svipmyndir frá Íslandsþingi Svo sem vænta má berst mikið af góðum skákum frá Landsliðskepp- ninni á Grundarfirði. Mótið er vel setið og teflt af miklu kappi enda jafnteflin í færra lagi. Að þessu sinni skal brugðið upp nokkrum svipmyndum frá mótinu, rétt si svona í belg og biðu. Jóhann Hjartarson tefldi rök- rétta skák gegn Þresti Árnasyni. Hvítt: Jóhann Svart: Þröstur 1. e4 - e6 2. d4 - d5 3. Rd2 - c5 4. exd5 - exd5 5. Rg-f3 - Rc6 6. Bb5 - a6 7. Bxc6+ - bxc6 8. 0-0 - Bd6 9. dxc5 - Bxc5 10. Rb3 - Bd6 Staðan er að mótast. í næstu leikjum bindurhvíturmiðborðspeð svarts. f ljósi þess sem síðar gerðist hefði verið betra að draga biskup- inn til e7 í síðasta leik svarts. 11. Dd4 - Rf6 12. Hel+ - Be6 13. Bf4 - 0-0 14. Bxd6 - Dxd6 Eftir skiptin á svartreita biskup- unum er svarta staðan lífvana. Hvítur neglir nú miðborðspeðin niður og býr til góða reiti handa riddurunum sínum. 15. c4 - Ha-d8 16. c5 - Dc7 17. Da4 - Ha8 18. Re5 - Hf-c8 19. Rd4 - Bd7 Nú eru riddarar hvíts komnir í óskastöður. Næst er að koma hrók- unum í leikinn. Peðsleikir svarts í framhaldinu eru ráðleysislegir en það er torvelt að benda á betri leiðir fyrir hann. 20. He3 - Re4 21. Rd3 - h6 22. Ha-el - a5 23. f3 - Rg5 24. Re5 - Be8 25. h4 - Rh7 I I JL + m i i k A w m b S&J A n & Hvítur hefur byggt upp yfir- burðastöðu. Hann vinnur nú peð og fljótlega fellur annað hjá svarti. 26. Rf5 - Rf6 27. Rd6 - Hd8 28. Rxe8 - Hxe8 29. Dxc6 - Da7 30. Rg4 - Hxe3 31. Rxf6+ - gxf6 32. Hxe3 - Kg7 33. Dxd5 - ... Svartur lék nokkra leiki enn og gafst upp þegar tímahrakinu var lokið. Hannes Hlífar (hvítt) og Jón L. Ámason (svart) tefldu mikla flækj- uskák. Jón fómaði peði en náði lít- illi sókn fyrir. Eftir 38. leik hvíts kom þessi staða upp: 38. ... - Kh8 Ef 38. ... De7 kemur 39. De6+ og vinnureða38. ... Dh4 39. De8+ Kh7 40. De4+ og vinnur. Svartur þolir ekki drottningakaup, hvorki nú né síðar. 39. d4 - De7 40. KO - Dh4 Betra var að halda drottningunni í borðinu (Dd8, De7 o.s.frv.) og leika jafnvel b6. Hvítur vinnur samt á endanum með framrásinni c4-c5 því þá eignast hann frípeð sem veður upp í borð. 41. De8+ - Kh7 42. De4+ - Dxe4+ 43. Kxe4 Og hvítur vinnur peðsendataflið auðveldlega. Jón gafst upp og mun þetta vera fyrsta skákin sem hann tapar sem stórmeistari. Lokin á skák Karls Þorsteins (hvítt) við Jóhann (svart) voru snyrtileg. Eftir 20 leiki stóðu ridd- ari og biskup Jóhanns afsíðis en Karl kom sínum síðustu mönnum í lokasóknina á snaggaralegan hátt. 21. f4 - exf4 Hvítur hótaði f4-f5-f6. 22. Rxf4 - Dxe4 23. Bd3 - De3+ 24. Kc2 - He7 Allir menn hvíts taka þátt í sókn- inni og það gildir nánast einu hverju svartur leikur. M.a. vofir fóm á g6 yfir. 25. hxg6 - fxg6 26. Dxf8+ Svartur gaf því eftir 26. ... Kxf8 27. Re6++ verður hann mát. Fal- legur lokahnykkur. Landsmót framundan Landsbikartvímenningskeppni Bridgesambands íslands, sem er nýjung í keppni hér á landi, verður spiluð vikuna 13.-17. október n.k. Sá háttur er hafður á, að spiluð eru sömu spil um land allt, númer 1-33 eftir fyrirfram gefinni tölvu- gjöf sem send verður öllum for- mönnum félaganna á lándinu. Fyrstu 26 númerin (spilin) munu síðan reiknast út á landsvfsu, þann- ig að allir þátttakendur reiknast sem einn riðill. Spilað er um gull- stig auk mjög góðra verðlauna, sem tilkynnt verða nánar síðar. Vegna fyrirkomulags verða félögin að fyrirfram skrá keppendur í riðla, þannig að vitað sé fyrirfram hver þörfin er á spilagjöf. Með öllum skráningum verða að fylgja nafnnúmer keppenda, vegna tölvu- vinnslu útreiknings. Keppnisgjald er aðeins 700 kr. pr. par, en allur hagnaður rennur í Guðmundar- sjóð, húsakaupssjóð Bridgesam- bandsins. f framhaldi af þessu er ekki úr vegi að beina því til þeirra félaga sem tök hafa á, að spila þessa keppni í sameiningu. Þátturinn veit til þess, að félögin á Suðurlandi hafa í bígerð slíka framkvæmd. Öllum félögunum í Reykjavík og nágrenni býðst að fá spilagjöfina tilbúna á sínum spiladegi, en það er ekkert sem mælir á móti því að tvö eða fleiri félög sem spila á sama degi slái sér saman í þessari keppni. Og með byggðasjónarmið í huga, þá er ekkert sem mælir t.d. á móti því að Keflavík og Sandgerði slái sér saman, Tálknafjörður og Pat- reksfjörður, Siglufjörður og Fljótin (og jafnvel Ólafsfjörður ef heiðin er akfær), Blönduós og Skagast- rönd o.fl. Fró Bridgesambandi íslands Tvö ný félög hafa bæst við í Bridgesambandi fslands. Það eru: Bridgefélag Sandgerðis og ná- grennis og Bridgefélag Hofsóss. Eru þau boðin velkomin í Bridge- samband íslands. Alls eru því fé- lögin innan sambandsins orðin 49, fyrir utan svæðasamböndin. Enn eru þónokkur félög utan sambandsins og ber þar hæst Hjón- aklúbbinn í Reykjavík, Bridge- deild Barðstrendings, Húnvetn- inga og Rangæinga í Reykjavík, Krummaklúbbinn í Reykjavík og eflaust einhver fleiri félög. Landsbikarkeppni í tvímenning hefur verið ákveðin. Hún verður spiluð um land allt þriðju viku í október (frá 13.-17. október). Mælst er til þess að öll félögin innan BSÍ taki þátt í þessari tvímennings- keppni, sem er með því sniði að landið allt telst einn riðill í út- reikningi í tölvu. Spilað verður um gullstig. Hægt verður að spila þessa keppni í 8-10-12-14-16 para riðlum, þannig að öll félögin geta verið með. Fyrirfram skráð verður í riðla í öllum félögum og verður nafnnúmer keppenda að fylgja með skráningu, svo og þátttöku- gjald. Allur hagnaður rennur til húsakaupanna að Sigtúni 9. Bréf með útskýringum hefur ver- ið sent til allra formanna og eru þeir vinsamlegast beðnir um að koma þessu á framfæri við spilarana. Út- reikningur mun liggja fyrir mjög fljót að lokinni spilamennsku í öllum félögum, en Vigfús Pálsson og Ásgeir P. Ásbjörnsson munu sjá um þá hlið málanna. ÓLAFUR LÁRUSSON á Skráning í íslandsmót kvenna og yngri spilara (fædd ’62 og síðar) í tvímenning, sem spilað verður í Gerðubergi helgina 25.-26. októ- ber, n.k. er hafin hjá Bridgesam- bandi íslands. Bæði mótin verða með Barometer-sniði og ræðst spila- fjöldi milli para af þátttöku. Loka- frestur til að tilkynna þátttöku er föstudaginn 17. október n.k. Eftir þann tíma geta spilarar ekki vænst þess að komast að. Þátttökugjald í báðum mótum er 3.000 kr. pr. par. Skráð er hjá Bridgesambandi fs- lands í síma 91-18350, eingöngu. Fró Bridgefélagi Sauðórkróks Mánudaginn 22. september var fyrsta spilakvöld „vetursins“. Spil- aður var tvímenningur, 12 pör mættu til leiks. Skor efstu para var. stig 1. Sigurfinnur J. - Símon Sk 199 2. Bjarki T. - Halldór T. 190 3. Jón Örn B. - Gunnar Þ. 183 4. Baldvin Kr. - Þórarinn Th. 177 5. Einar S. - SkúliJ. 175 18 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Sunnudagur 28. september 1985

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.