Þjóðviljinn - 18.10.1986, Blaðsíða 1
1936-1986 ÞJÓÐVILJINN 50 ÁRA
SUNNUDAGS-
BIAÐ
MENNING
Nesjavellir
Orkuveislan er ákveðin
Þrír miljarðarsettir íNesjavelli. Ákvörðun um virkjun tekin ígœr. Engin markaðsáœtlun er
til. Guðni Jóhannesson, verkfrœðingur: Með ólíkindumhvernig aðþessuerstaðið
Eeftir 800 miljóna undirbún-
ingsrannsóknir var í gær
ákveðið að hefjast handa við um
tvo miljarða fyrsta áfanga virkj-
unar á Nesjavölium. Meirihiuti i
stjórn veitustofnana vísaði frá til-
lögu um frestun meðan gerð væri
markaðsáætlun og könnuð hag-
kvæmni við að nýta umframorku
frá Landsvirkjun og Hitaveitu.
„Það er með óiikindum hvernig
að þessu er staðið,“ sagði Guðni
Jóhannesson, fulltrúi í stjórninni.
Samkvæmt áætlun hitaveitu-
stjóra, Jóhannesar Zoéga, á
fyrsta virkjunaráfanga á Nesja-
völlum að vera lokið árið 1989,
og er reiknað með að þar fáist 100
megavött. Núverandi afl Hita-
veitu Reykjavíkur er 450 MW.
Tillögu Guðna Jóhannessonar
frá Alþýðubandalagi um að
fresta framkvæmdum á ofan-
greindum forsendum var vísað
frá með þremur Sjálfstæðis-
flokksatkvæðum og hjásetu
Kvennalista, og ákvörðun um
virkjunarframkvæmdir tekin
með atkvæðum Sjálfstæðisflokks
og Kvennalista gegn atkvæði Al-
þýðubandalagsins.
í samtalið við Þjóðviljann í gær
sagði Guðni að staðið hefði verið
að rannsóknum og mannvirkja-
hönnun með sæmilegum þætti
sem snerist um markað og arð-
semi virkjunarinnar væri allt í
lausu lofti. „Þær áætlanir um
vatnssölu sem hitaveitustjóri hef-
ur lagt fram byggja vægast sagt á
hæpnum forsendum eða misskin-
ingi.“
Guðni sagði ljóst að það kæmi
að því að þörf væri á 100 mega-
vöttum til viðbótar, og allar líkur
bentu til að Nesjavellir væru gott
virkjunarsvæði. Hinsvegar væri
fjármagns- og rekstrarkostnaður
við þennan fyrsta áfanga um 200
miljónir á ári, og því til mikils að
vinna ef hægt væri að fresta fram-
kvæmdum um eitthvert árabil.
Því hefðu Alþýðubandalags-
menn lagt til að nýta umffamorku
Landsvirkjunar þangað til mark-
aðurinn væri orðinn það stór að
Nesjavallarvirkjunin teldist hag-
kvæm.
„í ljósi þeirrar offjárfestingar
sem hefur átt sér stað í orkukerf-
inu á síðustu árum er með
hreinum ólíkindum hvemig hér
er staðið að ákvörðun um nær
þriggja miljarða fjárfestingu í
nýrri virkjun.“ -m
Akureyrí
Sjallinn á
35 miljónir
Iðnaðarbankinn hreppti
húsið
Yeitingahúsið Sjailinn á Akur-
eyri var sleginn Iðnaðarbankan-
um á staðnum á öðru og síðara
uppboði húseignarinnar í gaer
fyrir 35 miijónir. Á fyrra uppboð-
inu bauð Iðnaðarbankinn 20
miljónir í húsið.
Iðnaðarbankinn átti kröfu í
húsið uppá 60 miljónir en alls er
áætlað að skuldir Sjallans nemi
um 100 miljónum. Auk Iðnaðar-
bankans bauð Landsbankinn 23
miljónir í Sjallann og Samvinn-
utryggingar 31 miljón.
Ékki er farið að bjóða innbú
Sjailans upp ennþá en Iðnaðar-
bankinn á kröfur í mest allt
lausafé fyrirtækisins. Opið verð-
ur í Sjallanum um helgina en
óvíst er um frekari veitingastarf-
semi í húsinu.
-yk/Akureyri/-lg.
Tyrkland
Bölv og
ragn
Geysiiegt bölv og ragn í Tyrklandi
fyrir nokkru varð til þess að yfir
200 menn voru handteknir og
kærðir fyrir slæmt orðbragð.
Bölvið og ragnið kom fram á
talstöðvum víða um Tyrkland og
er ástæðan ekki vel kunn. Yfir-
völd voru hins vegar ekki á því að
hleypa mönnum upp með neina
ókurteisi og eru nú búnir að sekta
130 manns um tæpar 2000 krónur
hvern.
IH/Reuter
Á að selja starfsfólki rásarinnar líka, eða mun það kaupa rásina fái frjálshyggjug auramir sinn vilja fram. Mynd E.ÓI.
Rás tvö
Við bíðum eftir útboði
PorgeirÁstvaldsson: Munum íhuga kaup efrásin verður seld. Einar Sigurðsson: Munum
athuga slíkt tilboð gefistþað. Markús Örn Antonsson: Sala ekki á dagskrá
Þessi hugmynd hefur borið á
góma meðai starfsfólks hér á
rásinni, en ekki verið rædd í al-
vöru, sagði Þorgeir Ástvaidsson
forstöðumaður rásar tvö við
Þjóðviljann í gær þegar hann var
spurður um það hvort starfsfólk
rásarinnar hefði áhuga á að
kaupa stöðina ef hún yrði seld.
í leiðara Morgunblaðsins í gær
er talað um að starfsfólkinu yrði
boðin rásin til kaups „fyrir verð
sem tæki mið af því fórnfúsa starfi
sem þetta fólk hefur unnið“.
„Ef slíkt tilboð kæmi myndum
við íhuga það vel en ég er hrædd-
ur um að það yrði erfitt að meta
starf okkar hér inn í slík við-
skipti."
Einar Sigurðsson, útvarps-
stjóri á Bylgjunni, segist líka
mundu athuga slíkt tilboð ef það
kæmi, aftur á móti væri óljóst
hvað átt væri með sölu á rásinni,
hvort átt væri við dreifikerfið eða
stúdíóin.
Markús Örn Antonsson, út-
varpsstjóri, segir að samkvæmt
lögum sé RUV skylt að reka tvær á dagskrá. Sjá umfjöllun í Sunnu •
útvarpsrásir og því væri sala ekki dagsblaði Þjóðviljans. -Sáf
SVK
Forstjórinn aftur til starfa
Karl Árnason, forstjóri Strætis-
vagna Kópavogs hefur aftur
tekið við stjórn fyrirtækisins.
Athugun Rannsóknarlögreglu
ríkisins og löggiltra endurskoð-
enda á bókhaldi þess þrjú ár aftur
í tímann leiddi ekki í ljós annað
en skjal það sem málið reis út af á
sínum tíma, og leiddi til þess að
Karl var leystur frá störfum með-
an málið var kannað.
Bæjarráð samþykkti með
öllum greiddum atkvæðum að
fela Karli störf á ný. _v