Þjóðviljinn - 18.10.1986, Blaðsíða 3
•ORFRETTIR
FRÉTTIR
Vísitala
framfærslukostnaðar miðað við
verðlag í októberbyrjun reyndist
vera 175,62 stig eða 0,43 %
hærri en í septembyrjun. Þetta
svarar til um 5,3% árshækkunar
en á sl. tólf mánuðum hefurfram-
færsluvísitalan hækkiað um
15,6%
Almanak
Háskólans
Byggungfundurinn
Urðum einskis vísari
Mikil reiði ríkti áfundi íbúa Byggungblokkanna á Granda með forráðamönnumfyrirtœkisins.
Þóra Guðmundsdóttir: Bakreikningarnir enn óútskýrðir
Halldór Reynisson
forsetaritari var kjörinn til prests-
þjónustu í Hrunaprestakalli í Ár-
nessýslu í prestskosningum sem
haldnar voru um sl. helgi. Halldór
hlaut 125 atkvæði. Sr. Haraldur
M. Kristjánsson hlaut 119 at-
kvæði, sr. Önundur Björnsson 63
atkvæði og Jón ísleifsson cand.
theol 2 atkvæði. Á kjörskrá voru
383 og greiddu 310 atkvæði.
Rausnarleg
minningargjöf barst Blindarvin-
afélaginu, Styrktarfélagi lamaðra
og-faltaðra og Styrktarfélagi van-
gefinna á dögunum. Arfur að
upphæð 2.5 miljónir eftir Krist-
björgu Ingólfsdóttur Framne-
svegi I6, skiptist jafnt á milli félag-
anna. Kritsbjörg sem lést (ágúst
sl. gaf þessa gjöf til minningar um
foreldra sína Elísabetu Ingólfs-
dóttur og Ingólf Kristjánsson og
systur sína Helgu.
Atvinnuleysi
í september á landinu öllu svar-
aði til 0.3% af mannafla á vinn-
umarkaði. Þetta er besta atvinnu-
ástand í einum mánuði á þessu
ári. Alls voru skráðir 6700 at-
vinnuleysisdagar á landinu sem
er 3400 dögum færri en í ágúst sl.
Þetta jafngildir að um 300 manns
hafi verið án atvinnu í september.
Við erum einskis vísari um
stððu okkar eftir fundinn í gær-
kvöldi, sagði Þóra Guðmunds-
dóttir einn ibúanna í Byggung-
blokkunum á Granda um fund
íbúanna með framkvæmdastjóra
Byggung og stjórnarmönnum þar
sem íbúarnir leituðu skýringa á
óvæntum bakreikningum sem
þeir fengu senda frá fyrirtækinu.
„Á fundinum kom fram mikil
óánægja og reiði meðal íbúa og
það undarlega er að það virtist
eins og forráðamönnum Byggung
þætti furðulegt að við værum að
æsa okkur út af þessum bakreikn-
ingum,“ sagði Þóra. Bakr-
eikningarnir sem sendir voru á
129 íbúðir, eru samanlagt um 56
miljónir og á hverja íbúð hafa
þeir verið frá u.þ.b. 200 þúsund-
um uppí rúma miljón. Á fundin-
um var einróma samþykkt að
ráða endurskoðanda til þess að
fara yfír reikninga fyrirtækisins,
en að sögn Þóru eru t.d. ársreikn-
ingar þeir sem íbúarnir hafa verið
að skoða mjög ófullkomnir og er
þar engan veginn hægt að sjá hver
raunveruleg fjárhagsstaða fyrir-
tækisins hefur verið hverju sinni.
Beðið verður með að innheimta
bakreikninga þar til endurskoð-
andi íbúa hefur skilað áliti sínu.
-K.Ol.
fyrir árið 1987 er komið út. Þetta
er 151. árgangur ritsins sem hef-
ur komið samfellt út frá því 1837.
Dr. Þorsteinn Sæmundsson
Ætjarnfræðingur hefur reiknað
'almanakið og búið það til prent-
unar.
Frá vinstri: Jóhannes Gunnarsson formaður Neytendasamtakanna, Sigurður E. Haraldsson formaður Kaupmannasamtakanna og Hjalti Þálsson frá versl-
unardeild Sambandsins skrifa undir samning um kvörtunarnefnd fyrir neytendur. Mynd E.ÖI.
Neytendasamtökin
Neytendadómstóll til starfa
Neytendasamtökin, SIS og Kaupmannasamtökin undirrituðu samning ígœr
Þorbjörn
Guðjónsson
viðskiptafræðingur hefur verið
ráðinn framkvæmdastjóri Lána-
sjóðs íslenskra námsmanna.
Þorbjörn lauk viðskiptafræðiprófi
frá HÍ 1967 og stundaði fram-
haldsnám í hagfræði við Minnes-
ótaháskóla á árunum 1967 -
1971. Hann hefur síðustu árin
starfað við þróunarhjálp hjá
DANIDA og síðan SIDA ( Afríku
og starfað hjá stjórnarráðinu í
Zambiu.
,4Iér er stigið mikilvægt skref í
neytendamálum,“ sagði Jóhann-
es Gunnarsson formaður Neyt-
endasamtakanna þegar hann,
ásamt fulltrúm SIS og Kaup-
mannasaintakanna undirritaði í
þjónustu frá aðilum sem eru í
öðrum hvorum samtökunum.
Kvörtunarnefnd þessi verður
skipuð 3 mönnum, 1 frá Neytend-
asamtöunum, 1 frá SÍS eða
Kaupmannasamtökunum og
skera úr í málum sem snúast um
upphæðir undir 60.000 krónum,
en úrskurðir hennar hafa þó ekki
lagagildi. Ef sú staða kemur upp
að úrskurði er ekki hlýtt verður
málinu vísað til almennra dóm-
stóla. Önnur kvörtunarnefnd hef-
ur starfað síðan 1984, og er hún
skipuð fulltrum ferðaskrifstofa
og Neytendasamtakanna. Að
sögn Jóhannesar hefur kvörtun-
um vegna þjónustu ferðaskrif-
stofa fækkað verulega síðan
nefndin tók til starfa og vildi
þakka það því að skrifstofurnar
hefðu tekið sig verulega á.
-vd.
gær samning um neytendadóms- þriðja fulltrúann mun viðskipta-
tól sem mun taka við kvörtunum ráðuneytið skipa. Nefndin mun
neytenda um keypta vöru eða
Verslanir
Opnunartími endurskoðaður
® Sigurjón Pétursson borgarfulltrúi:
Mörg rök mœla með að opnunartími verslana verði lengdur '
Eg tel alveg víst að afgreiðslu-
tími verslana verði rýmkaður
eftir að borgarráð hefur fjaliað
um tillöguna,“ sagði Sigurjón
Pétursson borgarfulítrúi Alþýðu-
bandalagsins, en hann talaði fyrir
tillögu Alþýðuflokks, Framsókn-
arflokks og Alþýðubandalags, á
borgarstjórnarfundi á fimmtu-
dag um að fela borgarráði að
endurskoða reglur um afgreiðslu-
tíma verslana með það fyrir
augum að rýmka þær.
Samþykkt var að vísa málinu til
borgarráðs. Að sögn Sigurjóns
telur hann mörg rök mæla með
því að opnunartími verslana
verði rýmkaður, meðal annars
þau að nágrannabyggðarlög hafa
ekki fylgt eftir því fordæmi
Reykjavíkur að festa opnunar-
tíma verslana og það hefur valdið
því að verslun hefur færst til
þeirra úr borginni. í öðru lagi
sagði Sigurjón að deilur urn hvað
mætti selja í búðurn á vissum tím-
um yrðu úr sögunni ef þetta næst
fram og auk þess mun rýmri opn-
unartími styrkja smærri kaup-
menn verulega, en þeir hafa átt
undir högg að sækja í samkeppn-
inni við stórmarkaðina.
-vd.
Störf í félags-
miðstöðvum unglinga
Starfsfólk vantar í félagsmiöstöövarnar Agnar-
ögn og Ekkó. Hlutastörf komatil greina. Menntun
og reynsla í uppeldismálum æskileg.
Umsóknareyöublöð liggja frammi á Félags-
málastofnun Kópavogs, Digranesvegi 12.
Umsóknarfrestur er til 1. nóv. n.k.
Nánari upplýsingar gefurtómstundafulltrúi í síma
41570.
Tómstundaráð
ALLT M>
AFSLATTUR
AF FUAVARNARAEFNUM
ALLT AÐ
20%
AFSLATTUR
AF MALNINGU
OPIÐ
KL. 8-18 VIRKA DAGA
KL. 10 - 16 LAUGARDAGA
2 góðar byggingavöruverslanir.
Austast og vestast í borginni
Stórhöfða, sími 671100
v/Hringbraut,