Þjóðviljinn - 21.10.1986, Blaðsíða 4

Þjóðviljinn - 21.10.1986, Blaðsíða 4
Enska knattspyrnan Úrslit 1. deild: Charlton-Leicester.............2-0 Chelsea-Manch.City.............2-1 Coventry-Wimbledon.............1-0 Liverpool-Oxford...............4-0 Manch.Utd-Luton................1-0 Newcastle-Arsenal..............1-2 Norwich-West Ham...............1-1 Nottm.Forest-Q.P.R.............1-0 Southampton-Everton............0-2 Tottenham-Sheff.Wed............1-1 Watford-AstonVilla.............4-2 2. deild: Birmingham-Cr.Palace...........4-1 Bradford City-lpswich..........3-4 Brighton-Barnsley..............1-1 Hull City-Reading..............0-2 Leeds-Portsmouth...............3-1 Oldham-Millwall................2-1 Plymouth-Sunderland............2-4 Sheff.Utd-Huddersfield.........0-0 Shrewsbury-DerbyCounty.........0-1 Stoke City-Blackburn...........1-0 W.B.A.-GrimsbyTown.............1-1 3. delld: Blackpool-Notts County.........3-1 Brentford-YorkCity.............3-1 BristolRovers-PortVale.........0-0 Bury-Bournemouth...............0-1 Chester-Mansfield..............1-1 Doncaster-Darlington...........0-0 Gillingham-Carlisle............1-0 Middlesborough-Walsall.........3-1 Newport-Bristol City.......frestaö Rotherham-Bolton...............1-0 Swindon-Chesterfield...........2-1 Wigan-Fulham...................2-0 4. doild: Burnley-Stockport..............2-0 Cambridge-Northampton..........2-3 Colchester-Cardiff.............3-1 Halifax-Tranmere...............0-0 Hartlepool-Peterborough........1-2 Hereford-Exeter................1-1 Lincoln-Rochdale...............1-1 Orient-Wrexham.................2-4 PrestonN.E.-Aldershot..........1-2 Scunthorpe-Torquay.............2-0 Southend-Crewe.................3-1 Swansea-Wolves.................1-0 Staóan 1. delld: Nottm.For ...11 7 2 2 26-11 23 Norwich ...11 6 4 1 19-12 22 Liverpool ...11 6 2 3 23-12 20 Tottenham ... 11 5 4 2 12-8 19 WestHam ...11 5 4 2 22-19 19 Everton ... 11 5 3 3 17-12 18 Arsenal ...11 5 3 3 11-7 18 Coventry ...11 5 3 3 10-7 18 Shetf.Wed ...11 4 5 2 21-16 17 Leicester ...11 4 3 4 14-14 15 Watford ...11 4 2 5 17-15 14 Luton ... 11 3 5 3 8-8 14 Q.P.R ...11 4 2 5 11-14 14 Charlton ...11 4 2 5 12-16 14 South.ton ...11 4 1 6 22-24 13 Wimbledon.... ...11 4 1 6 12-16 13 Oxford ...11 3 4 4 10-20 13 Chelsea ...11 3 3 5 13-20 12 Manch.Utd.... ... 11 3 2 6 14-14 11 Aston Villa ...11 3 1 7 15-28 10 Newcastle ...11 2 2 7 9-20 8 Man.City ...11 1 4 6 8-13 7 2. deild Oldham ...11 6 3 2 17-10 21 Leeds ...11 6 2 3 18-11 20 Portsmouth... ... 10 5 4 1 11-5 19 W.B.A ...11 5 3 3 13-11 18 Cr.Palace ...11 6 0 5 14-17 18 Plymouth ... 10 4 5 1 16-12 17 Ipswich ... 10 4 4 2 16-14 16 Sunderland... ...10 4 4 2 15-14 16 DerbyCo ... 10 4 3 3 9-10 15 Reading ... 10 4 2 4 20-14 14 Brighton ...11 3 5 3 10-8 14 Birmingham... ...11 3 5 3 16-15 14 Sheff.Utd ... 11 3 5 3 12-12 14 Hull ...11 4 2 5 9-15 14 Grimsby ... 10 3 4 3 10-12 13 BradfordC ...11 3 3 5 13-17 12 Millwall ...11 3 2 6 13-14 11 Stoke ...11 3 2 6 8-12 11 Blackburn ... 10 3 1 6 12-15 10 Shrewsbury... ... 10 3 1 6 8-13 10 Huddersfld.... ... 10 2 3 5 9-13 9 Barnsley ... 11 2 3 6 8-13 9 3. deild I: Midd.boro ...11 7 3 1 22-11 24 Blackpool ...11 6 4 1 26-12 22 Bournemth... ... 10 6 3 1 15-7 21 Gillingham 9 6 2 1 11-4 20 4. delld I: Northampton 10 8 1 1 25-14 25 Swansea ...11 6 2 3 18-11 20 Colchester... ...11 6 2 3 21-17 20 Wrexham ...10 5 3 2 19-11 18 Markahæstlr f 1. delld: Clive Allen, T ottenham.........11 Colin Clarke, Southampton.......10 NeilWebb, Nottm.Forest..........10 Garry Birtles, Nott.Forest.......9 lan Rush, Liverpool..............9 ÍÞRÓTTIR England Clough eldri á föstudag Clough yngri á laugardag! Brian Clough kallaði lánsmanninn heimfrá Norwich og Forest tók við forystunni í 1. deild með markifrá Nigel Clough Nottingham Forest er á nýjan leik í efsta sæti 1. deildar ensku knattspyrnunnar eftir að Norw- ich hafði gert þar skamma við- dvöl. Forest vann QPR á meðan Norwich varð að sætta sig við jafntefli gegn West Ham á heima- velli. En margir segja þó að Brian Clough framkvæmdastjóri Forest hafi leikið sterkasta leikinn strax á föstudag. Ian Butterworth, varnarmaður frá Forest, hefur verið í láni hjá Norwich og leikið vel í vörninni þar í forföllum Shauns Elliott. Clough neitaði á föstudaginn að framlengja lánssamninginn um annan mán- uð og þetta þýddi að vörn Norw- ich var ekki uppá sitt besta í leiknum við West Ham - hvort sem það hafði úrslitaáhrif eða ekki! En þaö leit út fyrir um tíma að Norwich myndi halda efsta sæt- inu - eftir að Kevin Drinkell hafði skorað á 58. mínútu, 1-0. West Ham náði að jafna korteri fyrir leikslok - Paul Goddard var þar að verki en hann lék þarna sinn fyrsta leik með Lundúnalið- inu frá því í maí. Á City Ground í Nottingham gerði Forest það sem til þurfti til að komast á toppinn - vann QPR 1-0. Ekki lék liðið þó sérlega sannfærandi knattspyrnu en það var sonur framkvæmdastjórans, Nigel Clough, sem skoraði eina mark leiksins. Á White Hart Lane í London ríkti mikil spenna meðal stuðn- ingsmanna Tottenham. Belgíska stjarnan Nico Claesen lék þar sinn fyrsta heimaleik með liðinu eftir að hafa verið keyptur á 600 þúsund pund frá Standard Liege. En hann náði sér aldrei á strik gegn kraftmiklum varnar- mönnum Sheff.Wed. og að vanda var það Clive Allen sem var í aðalhlutverki hjá Totten- ham. Hann skoraði á lokasek- úndum fyrri hálfleiks eftir send- ingu frá frænda sínum, Paul All- en. Ellefta mark Allens í 1. deild í haust og hann hefur enn gert öll mörk Tottenham nema eitt. En það dugði ekki til sigurs, Gary Megson náði að jafna fyrir Shef- f.Wed. eftir 15 mínútur í síðari hálfleik, 1-1. Það var Mark Falco sem var seldur frá Tottenham til að rýma til fyrir Claesen. Falco minnti heldur betur á tilveru sína í sínum fyrsta heimaleik með Watford og skoraði 3 mörk í 4-2 sigrinum á Aston Villa. Kenny Jackett skoraði fjórða mark Watford en Mark Walters og Simon Stainrod skoruðu fyrir Villa sem tapaði þarna í fyrsta sinn síðan Billy McNeill tók við liðinu. Liverpool heldur sig í nám- unda við efstu tvö liðin og ætlar sér greinilega að berjast um titil- inn að vanda. Oxford var lítil fyrirstaða og Ian Rush skoraði tvö mörk í 4-0 sigrinum. Inná milli þeirra skoruðu stjórinn Kenny Dalglish og Daninn Jan Mölby (víti). Gæfuhjólið virðist loksins vera farið að snúast Manchester United í hag. Lánið lék við liðið þegar Brian Stein skaut framhjá marki þess úr vítaspyrnu á 66. mínútu í leik liðanna á Old Traff- ord. Luton hefur ekki skorað mark á þeim velli í 27 ár og tókst ekki að breyta því. Man.Utd náði því að sigra 1-0 því Frank Stap- leton skoraöi mark strax á 8. mín- útu leiksins. Eftir þrjú töp í röð vann Evert- on kærkominn sigur á The Dell í Southampton, 0-2. Mörkin komu þó ekki fyrr en á síðustu 12 mín- útunum - Trevor Steven skoraði úr vítaspyrnu og síðan tryggði Paul Wilkinson sigurinn með öðru marki. Arsenal er að nálgast efstu lið- in eftir dauft gengi til að byrja með. Ian Stewart skoraði þó fyrst fyrir Newcastle en Arsenal svar- aði með mörkum frá Viv Ander- son og Steve Williams, 1-2. Chelsea vann sinn fyrsta sigur á heimavelli þegar botnlið Manc- hester City kom í heimsókn. Þó skoraði Imre Varadi fyrir City eftir aðeins 7 mínútur í sínum fyrsta leik með liðinu en hann var keyptur á fimmtudag frá WBA. Micky Hazard og John Bumstead náðu að tryggja Chelsea 2-1 sigur með mörkum á síðustu 13 mínút- unum. Charlton virðist ætla að spjara sig þrátt fyrir allar hrakspár og að eiga engan heimavöll. Liðið leikur heimaleikina á Selhurst Park, velli Crystal Palace, og vann þar Leicester 2-0 með tveimur mörkum frá Mark Stu- art. Coventry vann Wimbledon 1- 0 á sunnudaginn og heldur sig í efri kantinum. Wimbledon tap- aði hinsvegar í fimmta skiptið í síðustu sex leikjunum og fallbar- átta blasir við litla liðinu frá tenn- isúthverfinu í London. Oldham tók forystuna í 2. deild og Leeds lyfti sér í annað sætið með góðum sigri á Ports- mouth, sem tapaði þar með sín- um fyrsta leik. Plymouth tapaði líka í fyrsta skipti og Crystal Pal- ace er að dragast afturúr eftir góða byrjun. Gamalkunnug félög á borð við WBA, Ipswich, Sund- ereland og Derby þokast upp töfluna og gætu öll blandað sér í toppbaráttuna í deildinni innan skamms. -VS/Reuter Nigel Clough, hlnn tvítugi sonur fram- kvæmdastjóra Nottingham Forest, virð- ist eiga bjarta framtíð fyrir sér. Hann kom Forest á toppinn í 1. deild á laugar- daginn með því að skora sigurmarkið gegn QPR. Ítalía Fimm á útivelli! Juventus íham. Mark Maradona dugði ekki Napoli tilsigurs Ascoli-Juventus....................o-5 Brescia-Udinese....................1-0 Como-Fiorentina....................o-o Empoli-AC Milano...................o-3 InterMilano-Sampdoria..............1-0 Napoli-Atalanta....................2-2 Torino-Roma........................o-2 Verona-Avellino....................2-2 Juventus.............6 4 2 0 12-1 10 Napoli...............6 3 3 0 9-5 9 Inter................6 3 2 1 9-2 8 Como.................6 2 4 0 4-2 8 Roma................6 3 2 1 6-5 8 Avellino............6 2 3 1 6-7 7 Þótt Juventus léki án margra fastamanna, þar á meðal Laudrups og Cabrinis, vann liðið glæsilegan sigur á útivelli gegn Liam Brady og félögum í Ascoli. Briaschi skoraði 2 fyrstu mörkin, 16 ára nýliði, Renato Buso, sem lék í stað Laudrups gerði það þriðja og þeir Bonetti og Platini skoruðu tvö í iokin. Napoli tókst ekki að sigra Atal- anta þrátt fyrir mark frá Diego Maradona og er stigi á eftir Ju- ventus. Daniel Passarella skoraði sigurmark Inter gegn Sampdoria úr vítaspyrnu og Daninn Klaus Berggren skoraði sitt fyrsta mark fyrir Roma í útisigrinum gegn Torino. -VS/Reuter Skotland Celtic heklur forystunni Celtic-Motherwell..................3-1 Dundee Utd-Clydebank...............2-0 Falkirk-Rangers....................1-5 Hamilton-Hearts....................1-3 Hibernian-Aberdeen.................1-1 St.Mirren-Dundee...................4-1 Celtic..........13 10 2 1 29-7 22 DundeeUtd...... 13 9 3 1 27-9 21 Rangers......... 13 9 1 3 25-9 19 Hearts..........13 7 4 2 16-7 18 Aberdeen........13 5 5 3 22-14 15 Alan „Rambo“ Mclnally skoraði 2 marka Celtic og Tony Shepherd eitt og liðið heldur eins stigs forystu. Rangers er mjög sannfærandi þessa dagana og burstaði Falkirk á útivelli. Ro- bert Fleck skoraði 3 mörk, David Cooper og Ally McCoist eitt hvor en mark Falkirk var sjálfsmark enska landsliðsmiðvarðarins Terrys Butcher. -VS/Reuter Terry Butcher skoraði sjálfsmark en það kom að lítilli sökfyrir Rangers.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.