Þjóðviljinn - 31.10.1986, Page 3

Þjóðviljinn - 31.10.1986, Page 3
—ÖRFRÉTTIR— Uppreisnin á Isafirði eftir Ragnar Arnalds er nú komið út á bók í leikuglu Máls og menn- ingar. A'uk texta leikritsins er að finna í bókinni viðauka með upp- lýálngum um sögulegar persónur og fjölmörg brot og kafla úr bréfum, blaðagreinum, dóms- skjölum og öðrum samtímaheim- ildum er snerta Skúlamálið. Bæjarráð Ólafsvíkur hefur einróma mótmælt því að ómæld veiði á hörpudiski utan kvóta fari fram á hefðbundnum fiskimiðum, Ólafsvíkurbáta, á sama tíma og Ólafsvfkingum er ekki heimil vinnsla eða veiðar á hörpudiski. Margrét Danadrottning hefursæmt Guðrúnu J. Halldórs- dóttur, skólastjóra Námsflokka Reykjavíkur, riddarakrossi Dann- ebrogsorðunnarfyrir mikil og góð störf hennar f sambandi við dönskukennslu í skólutn hér- lendis. Stuðningur við kvennaathvarf kom einnig fram á prestastefn- unni þar sem starfsemi Samtaka um kvénnaathvarf var fagnað og hvatt til stuðnings við starf- semina og aðgerðir til hjálpar í þeirri mannlegu neyð sem kvennaathvörfin hafa átt þátt í að vekja athygli á.- Vöruskipta- jöfnuðurinn f september var hagstæður um 39 miljónir króna. Flutt var inn fyrir 3.839 miljónir en út fyrir 3.878 miljónir. Vöruskiptajöfnu- ðurinn fyrstu 9 mánuði ársins var hagstæður um 4.517 miljónir. en verðmæti útflutnings hefur aukist um I5% á föstu gengi miðað við sama tíma í fyrra. Ping Iðnnemar á Borginni Um 100 iðnnemar munu sitja 44. þing Iðnnemasambandsins sem hefst á Hótel Borg kl. 16 f dag. Þingið mun standa alla helg- ina en helstu umræðuefni á þing- inu verða kjaramál, iðnfræðs- lumál, þjóðmál og félagsmál iðn- nemahreyfingarinnar. Þingið verður sett með ávarpi formanns sambandsins Lindu Óskar Sigurðardóttur en meðal gesta á þinginu er fulltrúi frá norska iðnnemasambandinu. Þingið er opið öllum iðnnemum meðan húsrúm leyfír. FRÉTTIR Afmœli Þjóðviljinn 50 ám ídag Afmœliskaffi í Síðumúlanum. Afmœlisbókin, „Blaðið okkar“ vœntanleg innan fárra daga Idag eru fimmtíu ár liðin frá því að Þjóðviljinn hóf göngu sína. I því tilefni er húsið að Síðumúla 6 opið velunnurum blaðsins kl. 14-18 og eru þeir boðnir velkomnir í afmællskaffl og upp á spjalla við starfs- menn um blaðsins og landsins gagn og nauð- synjar. í dag eru og hundrað ár liðin frá því að Skúli Thoroddsen hóf að gefa út Þjóðvilja sinn á ísafirði - en ekkja Skúla, Theódóra Thoroddsen, gaf okkar blaði nafn. Þjóðviljinn var í fyrstu gefinn út af Kommúnistaflokki íslands, árið 1938 varð hann svo málgagn hins nýstofnaða Sósíalistaflokks. Eftir að Sósíalistaflokkurinn var lagður niður 1968 hafa mál blaðs- ins verið í höndum Útgáfufélags Þjóðviljans. Þjóðviljinn var fjórar síður fyrstu árin, stækkaði í átta síður árið 1943, í tólf síður árið 1953. Árið 1962 stækkaði brot blaðsins mikið, en þegar gekk til samstarfs við þrjú dagblöð önnur 1972 í Blaðaprenti stækkaði það í sex- tán síður - hefur þó fjölgað mjög þeim dögum síðari árin þegar blaðið er 20 síður eða meira. Blaðið flutti í eigið húsnæði og stofnaði eigin prentsmiðju 1945- 46 en flutti í nýtt hús í Síðumúla 6 árið 1976. Fyrsti ritstjóri blaðsins var Ein- ar Ólgeirsson, en lengst allra rit- stýrðu blaðinu þeir Sigurður Guðmundsson (1943-1972) og Magnús Kjartansson (1947- 1971). Afmælis Þjóðviljans hefur ver- ið minnst með ýmsum hætti á síð- astliðnum mánuðum og vikum. Efnt var til rokkhátíðar, barna- hátíðar, bridgemóts, ljóða- kvölds, dagskrár um Jóhannes úr Kötlum. Innan fárra daga kemur út bókin „Blaðið okkar“ eftir Árna Bergmann, og geymir hún þætti um sögu blaðsins. Og í dag eru velunnárar blaðsins, sem fyrr segir, - boðnir í afmæliskaffi og til að spyrja starfsmenn um hvað- eina sem þeir kunna að vilja for- vitnast um. -lg- Fiskmarkaður Stefnt að stofnun rekstrarfélags Boðað til fundará morgun um stofnun rekstarfélags umfiskmarkað í Hafnarfirði. Guðrún Lárusdóttir formaður útvegsmanna: Mikill áhugi hjáfjölmörgum aðilum. Við höfum orðið vör við mikinn áhuga hjá útgerðarmönnum, sjómönnum, flskverkendum og öðrum hagsmunaaðilum fyrir því að koma upp fiskmarkaði hér í Hafnarflrði. Hafnarnefnd og bæjaryflrvöld hér í Hafnarflrði hafa sýnt þessu máli mikinn áhuga og ég er bjartsýn á að þetta gangi upp, sagði Guðrún Lárus- dóttir formaður Útvegsmannafé- Iags Hafnarfjarðar á fundi með fréttamönnum í gær. Útvegsmannafélagið hefur boðað til undirbúningsfundar um stofnun fiskmarkaðar í Hafn- arfírði í veitingahúsinu Gaflinum á laugardaginn kl. 13.30. Þangað hefur verið boðið hafnaryfirvöld- um í bænum, fulltrúum frá sjó- mannasamtökunum og öðrum áhugamönnum um fiskmarkað á Faxaflóasvæðinu. Á fundinum er ætlunin að leita eftir hlutafé í rekstrarfélag um fiskmarkaðinn. Á fundi fulltrúa Útvegsmanna- félagsins og hafnarnefndar Hafn- arfjarðar með fréttamönnum í gær kom m.a. fram að eigendur fiskvinnslufyrirtækja í bænum telja mikla þörf á fiskmarkaði svo frystihúsin geti keppt við sí- aukinn ferskfiskútflutning í gám- um. - Svona markaður gefur okkur tækifæri til að sérhæfa vinnsluna í húsunum um leið og við fáum betra hráefni. Þannig fáum við betri nýtingu og betri vöru og getum því boðið hærra verð fýrir góðan fisk, sagði Jón Friðjónsson framkvæmdastjóri Hvaleyrar. Haraldur Jónsson hjá Sjóla- iil 1' Á. . Hf ■ ■ 3 li Fulltrúar útvegsmanna og hafnarnefndarinnar f Hafnarfiröi sem nú vinna aö stofnun fiskmarkaðar i bænum. ( baksýn sést (fyrirhugað fiskmarkaðssvæði í Suðurhöfninni. Mynd-E.ÓI. stöðinni sagði að breytinga værí þörf í fiskvinnslunni og fiskmark- aður væri rétt skref í þá átt. Þar fyrir utan væri Hafnarfjörður á margan hátt kjörinn staður fyrir slíkan markað, vegna góðrar hafnaraðstöðu og greiðra flutn- ingaleiða. Hafnarnefnd Hafnarfjarðar er þessa dagana að yfirfara tilboð sem borist hafa í byggingu húss undir fiskmarkað í bænum, auk þess sem nefndin mun leita form- lega eftir áhuga hagsmunaaðila að taka þátt í byggingu fiskmark- aðshússins. Rœkja Drekitil Kópaskers Forval/Suðurland Margrét líklegust Forval um miðjan nóvember. Fáir riefndir ífyrsta sœti aðrir en Margrét Frímannsdóttir Einsog staðan er nú má telja lík- legt að Margrét Frímanns- dóttir verði í efsta sæti G-listans á Suðurlandi við næstu kosningar. Garðar Sigurðsson, þingmaður AB á Suðurlandi frá 1971, gefur ekki kost á sér, en þingsæti flokksins er talið nokkuð öruggt. Talið er víst að Margrét gefi kost á sér ef forvalsúrslit verða henni hagstæð. Alþýðubandalagsfélögin á Suðurlandi hafa ákveðið forval í tveimur umferðum, og er sú fyrri 14.-15. nóvember. Þá eiga flokksmenn að tilnefna sex, þar af tvo úr eigin félagi. Síðan verð- ur farið á fjörurnar við hina til- nefndu að gefa kost á sér í seinni umferðina 4.-5. desember, ann- arsvegar þá sem flestar fá tilnefn- ingar, hinsvegar þá sem flestar fá úr heimabyggð. Heimildir Þjóðviljans herma að ekki séu komnar raunhæfar hugmyndir um aðra í efsta sætið en Margréti, sem í vor var í farar- broddi kosningasóknar á Stokks- eyri, og var í öðru sæti síðast sam- kvæmt úrslitum baráttuforvals. Eyjamenn hafa allajafna verið sterkastir í flokknum á Suður- landi og „átt“ þingmanninn, en þaðan hafa ekki komið - ennþá - neinar hugmyndir um kandídat. Ragnar Óskarsson heyrist helst nefndur, en mun tregur til vegna annasamra ábyrgðarstarfa í bæjarstjórnarmeirihluta. Talið er öruggt að Eyjamenn muni gera tilkall til manns í annað sæti að minnsta kosti. Raddir heyrast enn um að fá til forystumann af höfuðborgar- svæðinu, og þá helst formanninn Svavar Gestsson, en yfir þeim hugmyndum hefur dofnað mjög uppá síðkastið. Ekki er búist við að línur skýrist frekar fyrren að lokinni fyrri umferðinni. -m Þokkalegur rækjuafli enn sem komið er Sæblik á Kópaskeri er nú að festa kaup á rækjuskipinu Dreka HF 36 frá Hafnarflrði. Skipið er 240 tonn og var smíðað i A- Þýskalandi árið 1960. Að sögn Kristjáns Árnasonar oddvita á Kópaskeri og fram- kvæmdastjóra Sæbliks hefur rækjuafli verið þokkalegur síð- ustu vikur og Útgerðarfélag Kóp- askers er nú með þróunarskipið Feng á leigu til rækjuveiða. Auk þess hafa 3 bátar frá Þórs- höfn og Bakkafirði landað þó nokkrum rækjuafla á Kópaskeri en nú hefur dregið úr afla vegna rysjótts tíðarfars. Atvinnuástand á Kópaskeri hefur verið ágætt síðan í haust og má búast við að nýja rækjuskipið bæti enn úr. Að sögn Kristjáns hafa heimamenn þó áhyggjur vegna minnkandi rækjuveiða en Fengur hefur aflað ágætlega á djúpslóð. -vd. Föstudagur 31. október 1986 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 3

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.