Þjóðviljinn - 31.10.1986, Blaðsíða 8

Þjóðviljinn - 31.10.1986, Blaðsíða 8
Skyldi hann vera með Krapútkín? Er þessi skólafundur ykkar ekki einsdœmi? Er nokkur umræða í gangi? „Umræðan er vissulega í gangi meðal nemenda, og það virðist mikillar óánægju gæta, en þessi umræða finnur sér enga leið uppá yfirborðið. Annaðhvort er það vegna þess að það veit ekki hvernig það á að koma hugmyndum sínum fram eða það er of kúgað til að geta það.“ Að lokum Sigmundur, hvað telur þú brýnast í skólamálum almennt? „Tvímælalaust jafnrétti til náms. Mér finnst mönnum hætta til að gieyma þessari gömlu hugsjón og það má ekki verða. Menntun á ekki að vera forréttindi, en hún er það. Það eru uggvænlegar tölur sem við okkur blasa varðandi stéttaskiptingu í framhaldsskólum, en verst þykir manni þó að þegar við tæpum á þessu við skólayfirvöld er okkur svarað með því að við séum forréttindahópur og eigum að meta það að verðleikum. Besta leiðin og vænlegasta að jafnrétti til náms hlýtur að vera opin leið og frjáls til menntunar, opinn og frjáls skóli. Menn verða að hafa í huga að menntun á ekki að vera ítroðsla, hún á að kveikja áhuga á þekkingarleit.“ Upplýst einræði Aldrei sagt neitt Það má segja að við höfum fundið þær Hrafnhildi Blöndal og Sigrúnu Skaftadóttur, útskriftarmeyjar, með því einfaldlega að ganga á lyktina. Þær sátu ekki langt frá bökkum Köldukvíslar á Matgarði og seldu ilmandi vöflur með sultu, rjóma og öllu tilheyrandi. Voruð þið á fundinum? „Nei, við vorum að læra. Þetta kemur okkur ekki lengur við.“ En hvaðfinnstykkur um það sem þið hafið heyrt? „ Við höfum ekki heyrt neitt af þessum fundi.“ Svo við grípum til þess að segja stuttlega frá fundinum og spyrjum þær síðan álits: „Að sjálfsögðu á að mótmæla því að busar skyldu sviptir valfrelsi. Þetta er útí hött. Þeir veija valfrjálsan skóla og fá svo ekkert að velja. Hvað varðar reglugerðina frá Sverri, þá er rétt að breyta þessu í tölustafi, en þeir sem eru á annað borð byrjaðir að fá í bókstöfum eiga að fá það áfram. Svo eru þessi mætingarmál ósköp þreytt. Það er búð að karpa svo mikið og svo lengi um þau og alltaf verið að hringla með kerfið. Frjáls mæting er svosem góð og blessuð fyrir þá sem eru nógu sjálfstæðir og agaðir, en sumir þurfa aðhald. Sérstaklega busarnir." En afstaðan, erhún ábyrg? „Það er upp og ofan einsog yfirleitt. Fer eftir einstaklingum. Þó held ég að ungt fólk hugsi miklu meiren margir halda,“ svarar Hrafhildur og Sigrún kinkar kolli. En umrœðan, hefurhún aukist eða hefur dregið úr henni þessi ársem þið hafið verið hér? „Aukist, hún er alltaf að aukast.“ En hjáykkur sjálfum? „Engin. Við höfum aldrei sagt neitt. Við unum við okkar,“ segja þær og brosa þessu umburðarlynda brosi lífsreyndu konunnar og þegar maður sér allar vöflurnar sem þær hafa á borðinu hjá sér, fer ekki hjá því að maður skilji þær. „Ef þú hefur lesið þaðsem Krapútkín...", heyrum við úreinu horni Norðurkjallaraog erum ekki seinir að hlaupa á hljóðið. Sigmundur Halldórsson, nemi á 5. ári, situr þar og er ekki seinn til svars: „Það er ekkert eins eðlilegt og sjálfsagt og að neytandinn geri sínar kröfur til þjónustunnar og við erum að sækja hingað þjónustu. Þessi þjónustumiðstöð hefur brugðist hlutverki sínu og við viljum breytingar til batnaðar.“ Hvernig hefur hún brugðist hlutverki sínu? „Lögum samkvæmt ber henni að búa nemendur undir líf og störf í lýðræðisþjóðfé- lagi, en það hlutverk rækir hún ekki. Þessi skóli er, en á ekki að vera, geymslustaður. Því viljum við breyta, viljum að skólinn standi við skyldur sínar. Teljum að fólk komi hingað til þess að mennta sig, ekki til að láta passa sig. Að þetta sé framhaldsskóli - ekki bamaheimili.“ Er á ykkur hlustað? „Það er nú svona og svona. Við heyrum stundum að ofan, að einhverjir þurfi nú að STJÓRNA, en virðast gleyma því að stjórn þarf aðhald þegnanna, þjónusta aðhald neytandans. Sjáðu til, upplýst einræði er ágætt að vissu marki, en við teljum að lýðræði sé okkar þjóðskipulag og eigi ekkert síður við skólann en aðrar stofnanir þjóðfélagsins.“ En eruð þið ekki bara að reyna að losa ykkur undan „þjónustunni", með því að leita eftir frjálsri mœtingu og þvílíku? „Langt því frá. Ef fólk kemur hingað og sækir tíma vegna þess að það vill það en ekki vegna þess að það er skyldað til þess, þá hættir þetta að vera bamaheimili. Gettóið verður úr sögunni. Þetta mun að vísu reyna mikið á kennara, en það er líka kominn tími til að þeir fái eitthvert aðhald. Þeir mega alveg fá hærri laun og í því skulum við styðja þá, en þeir verða þá líka að kenna. Sé ekkert uppúr kennslu þeirra að hafa, þá myndu nemendur einfaldlega ekki fara í tíma til þeirra því þangað væri ekkert að sækja, en í dag eru þeir skyldaðir til mætingar. Menn verða einfaldlega að fara að ganga útfrá því að nemendur vilji mennta sig og að þetta sé menntastofnun, ef hér á einhver steinn að standa yfir steini.“ „Við unum við okkar." Hrafnhildur, Sigrún og vöflumar. „Ég er dálítill skrópari..." Kristín og Vigdís á Miðgarði. Við fáum a6 kenna á því Þæreru ekki framagjarnar, Hamrahlíðarmeyjar, og ekki vandalaust að fá þær til viðtals. En þó eru þar til ófeimnar stúlkurogtværþeirra, þærKristínu Benediktsdótturog Vigdísi Klöru Aradóttur, fengumviðtilviðtals: „Við vorum að vísu ekki á fundinum,“ svara þær í kór. „Við vorum að læra, enda erum við að útskrifast og að mestu hættar að skipta okkur af þessu.“ En er ekki einhver umrœða í kringum ykkur? „Nei, einsog áður sagði, við erum að klára og erum líka kannski samdauna þessu eftir' rúmlega þriggja ára vist.“ En það sem þið hafið heyrt af fundinum, hvernig líst ykkur á það? „Illa. Samþykktin um frjálsa mætingu er fáránleg,“ sagði Kristín og heldur áfram: „Kosning um mætingarkerfi á vitanlega að vera leynileg, því ella er hætta á múgsefjun. Hér yrði líka upplausn, margir myndu hætta og fleira falla, ef frjálsri mætingu yrði komið á.“ Vigdís tekur undir þetta, setur upp prakkarasvipinn og segir: „Ég er dálítill skrópari sjálf og veit hvernig færi, hefði maður ekki aðhald." „Þetta gengur allavega ekki í svona stórum skóla,“ bæta þær við. „Það væri hægara um vik í minni skóla þarsem hægt væri að fylgjast betur með hverjum og einum. Það gengi kannski að veita eldri nemum hér frjálsa mætingu, því þeir vita nokkurn veginn hvað þeir þurfa að leggja mikið á sig, en þetta gengi engan veginn með nýnemana.“ En hvað með aðhald að kennurum? „Auðvitað þurfa kennarar eitthvert aðhald, en mér finnst það engin framkoma, að ætla bara ekki að mæta hjá þeim sem ekki standa sig í stykkinu," svarar Kristín, og Vigdís bætir við: „Auk þess myndu sumir bara segja að allir kennarar væru ómögulegir og mæta þá ekki neitt.“ En hvað um aðra hluti sem samþykktir voru? „Þetta með leikfimina er rétt, en fullseint að samþykkja það á miðri önn. Hvað varðar valfrelsi nýnema, erum við líka á sama máli og þeir sem á fundinum voru. Þetta hefur gengið ágætlega hingað til og því alveg ónauðsynlegt að gera þetta. Við erum líka ósammála reglugerð Sverris. Það er asnalegt að hann ákveði þetta uppá sitt eindæmi. Það hefði átt að kanna vilja nemenda. Það þarf ekki að fara eftir þeim vilja í einu og öllu en það má kanna hann.“ En er nokkuð hlustað á nemendur yfirleitt? „Lítið sem ekkert. Þeir eru sjálfsagt að hlæja að samþykktunum uppá kennarastofu núna. En þeir eiga að hlusta, því það erum við sem fáum að kenna á því sem úrskeiðis fer...“ Vinsældalistar Þjóðviljans Bylgjan 1) Moscow, Moscow Strax 2) Raln or shine Five Star 3) True Blue Madonna 4) (1 just) died In your arms Cutting Crew 5) In the army now Status Quo 6) True colors Cyndi Lauper 7) Tve been looslng you a-ha 8) Easy lady Spagna 9) HIHIHI Sandra 10) Notorios Duran Duran Grammiö 1) Talking heads True stories 2) Paul Simon Graceland 3) Smithereens Especially for you 4) Rem Lives reach plagaeant 5) Billy Bragg Talking with the tax-man about poetry 6) Elvis Costello Blood and chocolate 7) Cure Standing on the beach 8) Pretenders Get close 9) Tex and the horseheads Live's so cool 10) Frankie goes to Hollywood Liverpool Rás 2 1) Moscow Moscow strax 2) In the army now Status Quo 3) Suburbia pet Shop Boys 4) Walk like an Egyptan Bangles 5) Don ’t get me wrong Pretenders 6) True colors Cyndi Lauper 7) Tve been losing you a-ha 8) True blue Madonna 9) You can call me Al pau| Simon 10) Wild wild life Talking Heads 8 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN j Föstudagur 31. október 1986

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.