Þjóðviljinn - 20.11.1986, Page 17
_________________FRETTIR__________________
Ólympíuskákin
Rúllað yfir Finna
íslenska sveitin í5. -7. sœti eftirfimmtu umferð íDubai. Teflt við
Ungverja eða Argentínumenn í dag. Karpoftapaði, Sovétmenn aðeins
hálfum vinningi á undan næstu þremur sveitum
Þeir eru að komast í gang, sagði
Kristján Guðmundsson liðstjóri
við Þjóðviljann í gær eftir annan
3-1 sigurinn í röð á Dubai-
mótinu. íslendingar í 5.-7. sæti að
lokinni fimmtu umferð, en hætt
er við að þrautin verði þyngri
þegar sest er niður í dag. Líklegir
andstæðingar eru Argentínu-
menn eða Ungverjar. Sovétmenn
hafa forystu, skiptu í gær stigum
með Júgóslövum.
Finnska sveitin skaust í hæðir í
fjórðu umferðinni í fyrradag eftir
að hafa sigrað Uruguay á öllum
borðum, en í gær var grannþjóð
okkar sýnt í tvo heimana og vísað
til sætis á aftari bekkjum.
Fyrstaborðsmaðurinn Helgi
Ólafsson var hvíldur í viður-
eigninni við Finna, og tefldi Jó-
hann Hjartarson á fyrsta borði
gegn stórmeistaranum Rantanen.
Jóhann hafðisvartog tefldi Sikil-
eyjarvörn, lenti í vanda í byrjun
en sneri á Rantanen í tímahraki
og vann. Jón L. Arnason tefldi
góða stöðuskák og sýndi á sér
óvænta hlið gegn Westerinen,
vann vel úr endatafli og hafði
sigur. Margeir Pétursson tók
Fide-meistarann Raaste í karp-
húsið á þriðja borði fremur
auðveldlega, en Karl Porsteins
tapaði fyrir Valksalmi á fjórða
borði í tvísýnni skák sem Karl
tefldi hvasst, virtist í betri stöðu
um tíma en var ekki nógu ná-
kvæmur, fékk lakara endatafl og
varð að láta í minni pokann.
íslendingarnir í Dubai segjast
ánægðir með árangurinn, og eru
brattir, enda engin vanþörf á í
dag.
Karpof tapaði skák í fyrsta sinn
á Ólympíumóti síðan 1972, og
Sovétmenn náðu ekki nema jafn-
tefli gegn Júgóslövum. Karpof
tapaði fyrir hinum sterka Ljubo-
jevic, en aðrar skákir enduðu í
jafntefli. Englendingar höfðu
Ungverja undir, og eru til alls vís-
ir á mótinu, - tveir efstu menn
Ungverja, Portisch og Ribli, tefl-
du að vísu ekki í gær. Miles vann
Sax, aðrar skákir jafntefli. Kúbu-
menn tóku Kínverja á beinið og
eru meðal hinna efstu. Indónesar
veittu Bandaríkjamönnum harða
mótspyrnu, og Argentínumenn
möluðu Vestur-Þjóðverja sem
eru án bestu manna sinna, þar á
meðal Hiibners, vegna deilnanna
um mótstaðinn.
Ljubomir Ljubojevié Karpofbani
og hetja Júgóslava. Myndina tók
-eik á Ólympíumótinu á Möltu
fyrir sex árum. Von er á kappan-
um til íslands á IBM-mótið í febrú-
ar.
Af neðri sveitum er það meðal
annars að segja að botnliðið
Seychelles vann Gambíu, og þok-
aði sér þarmeð uppfyrir Berm-
údamenn sem nú sitja í neðsta
sæti með þrjá vinninga.
Sovét og Kína eru jöfn og efst í
kvennakeppninni með 12 vinn-
inga, England 11, Júgóslavía
IOV2.
Helstu úrslit í gær:
Sovét-Júgóslavía 2-2
Búlgaría-Frakkland 21/2-11/2
Tékkósóvakía-Chile 2-2
Ísland-Finnland 3-1
Bandaríkin-lndónesía 2V2-IV2
Argentína-V-Þýskaland 3V2V2
Skotland-Mexíkó 3V2-V2
England-Ungverjaland 2V2-IV2
Kúba-Kína 3-1
Spánn-Pólland 1-1 (2 biðsk.)
Rúmenía-Grikkland 3-1
Staða efstu liða:
151/2: Sovétríkin
15: Júcjóslavía, England, Kúba
141/2: Island, Búlgaría, Argentína
14: Ungverjaland, Skotland
131/2: Kína, l Indónesía, Frakk-
land, Chile, Tékkóslóvakía,
Bandaríkin, Rúmenía
13: Spánn (2 biðsk.), Finnland,
Portúgal, Kanada
121/2: Pólland (2 biðsk.), Indland,
Filippseyjar
12: Singapore, Sviss (1 biðsk.),
Ecuador, Belgía, Colombia, Ítalía
HV2: Vestur-Þýskaland, Brasilía
(1 biðsk.), Ástralía, Tyrkland (1
biðsk.), Venezuela.
-m
FIDE
Kasparof æfur
Campomanes þykir öruggur um endurkjör
Heimsmeistarinn Garí Kaspa-
rof ásakaði í gær Campomanes
forseta FIDE um að misnota vald
sitt í sambandinu til að ná endur-
kjöri á FIDE-þinginu í Dubai í
næstu viku. Talið er að Campo-
manes sé tiltöiulega öruggur um
að sigra keppinaut sinn, Brasilíu-
manninn Lincoln Lucena.
Formaður Ólympíunefndar-
innar sem skipuleggur mótið í
Arabísku furstadæmunum sagði í
fyrradag að Campomanes hefði
átt hugmyndina að því að nota
sjóði FIDE til að bjóða þátttak-
endum frá ýmsum þriðja
heimsþjóðum á mótið og á þing-
ið. Kasparof sagði í gær að það
væri vissulega ágætt að sjóðir
FIDE væru nýttir til að breiða út
skák í þriðja heiminum, - hins
vegar væri Campomanes hér fyrst
og fremst að misnota völd sín í
sambandinu sjálfum sér til fram-
dráttar, og það ekki í fyrsta sinn.
Menn gætu aldrei verið vissir um
að FIDE-fé og völdum væri beitt
til hagsmuna fyrir skák og skák-
menn. Campomanes hafði ekk-
ert um málið að segja.
Þráinn Guðmundsson forseti
Skákdsambands íslands sækir
FIDE-þingið. Hann sagði í sam-
tali við Þjóðviljann að Campom-
anes virtist öruggur um endur-
kjör. Bæði hefði hann „keypt“
sér stuðning með flugmiðum til
ýmissa smárra þriðjaheimsríkja,
og einnig væri honum í hag góð
frammistaða skipuleggjendanna í
Dubai. Hugmyndin um að halda
mótið þar hefði verið Campom-
anesar, og því heiðurinn hans að
vel tekst til.
Það eitt skapar óvissu, sagði
Þráinn, að austurblokkin virðist
enn ekki hafa gert upp hug sinn,
og ekki vitað hvað ný forysta í
sovéska sambandinu er að hugsa.
Ekki sé víst að það dugi Lucena
til sigurs að austurblokkinn legg-
ist gegn Campomanesi, en þá
væri komin upp sú kynduga staða
að allar voldugri skákþjóðir væru
forsetanum andstæðar.
-m/reuter
Húsnæðismál
Ný stefna
Miðstjórnarfundur Alþýðu-
bandalagsins vill marka nýja
stefnu í húsnæðismálum sem
byggir á eftirfarandi atriðum:
1. Koma á hið fyrsta samfelldu
húsnæðislánakerfi sem tryggi
rétt allra til öruggs og góðs
húsnæðis á viðráðanlegum
kjörum.
2. Skapa val milli mismunandi
húsnæðisforma, þ.e. sér-
eignar, hlutareignar og leigu.
3. Stórauka framboð á leiguhús-
næði.
4. Lánshlutfall til byggingar
leiguíbúða verði 80-100% og
vextir lægri en af lánum til sér-
eignarhúsnæðis.
5. Almannafélög, t.d. sveitarfé-
lög eða búseturéttarfélög ann-
ast rekstur leiguhúsnæðis og
komið verði á fót skipulegum
sparnaði fyrir búseturétti og
hlutareign.
6. Húsnæðisframlag til þeirra,
sem ráða ekki við leigu-
greiðslur miðað við launatekj-
ur.
7. Föst upphæð í skattafrádrátt
vegna kaupa á fyrstu íbúð.
8. íbúðir í félagseign haldist
áfram innan félagslega kerfis-
ins.
9. Verkamannabústaðakerfið
verði endurskoðað með ofan-
greind markmið í huga. Varð-
andi íbúðir sem losna í kerfinu
verði kannaðir aðrir kostir en
séreign, t.d. leiga, hlutareign
eða einhverskonar kaupleigu-
skilmálar.
Vegna þess vanda sem skapast
hefur í kjölfar kjaraskerðingar,
vaxtaokurs og rangrar byggða-
stefnu núverandi stjórnar leggur
Alþýðubandalagið áherslu á að
nauðungaruppboð verði stöðvuð
og lögbundið verði greiðsluhá-
mark hjá fjölskyldum í greiðslu-
erfiðleikum vegna húsnæðis-
kaupa.
Gripið verði til sérstakra ráð-
stafana í byggðarlögum þar sem
mikið verðfall hefur orðið á íbúð-
arhúsnæði, sem hafi það að
markmiði að íbúðareigendum
verði tryggt sem raunhæfast
endursöluverð eigna sinna.
Landbúnaður
Fruntaleg leiftursókn
Aðalfundur miðstjórnar Al-
þýðubandalagsins ályktar:
Atburðir síðustu vikna sýna,
að nú skal með skjótum hætti
hrinda í framkvæmd stefnu
stjórnarflokkanna í landbúnað-
ar- og byggðamálum sem óumd-
eilanlega leiðir til landeyðingar í
heilum héruðum jafnt í þéttbýli
sem í dreifðum byggðum
sveitanna.
Utsendarar stjórnarflokkanna
þeysa nú um sveitir landsins með
hnífinn á lofti og beita fyrir sig
Framleiðnisjóði til að kaupa upp
framleiðslurétt bújarðanna sem
þar með skulu lagðar í eyði. Hér
er á ferðinni fruntaleg leiftursókn
gegn bændum og allri lands-
byggðinni og handahófskennd og
skipulagslaus vinnubrögð sem
sérstök ástæða er til að mótmæla.
Tekist er á um það hvort þjóðin
ætlar að lifa á gæðum landsins og
byggja það eftir föngum eða of-
urselja þessa atvinnugrein mark-
aðskreddum auðvaldsins án tillits
til hagsmuna þjóðarinnar í heild.
Vandamál landbúnaðar og
landsbyggðar og þess starfsfólks í
iðnaði og þjónustu sem byggir af-
komu sína á tilvist landbúnaðar
er hægt að leysa og fyrir því mun
Alþýðubandalagið beita sér.
Námsmenn
Vitlausar
lánatillögur
Á fundi miðstjórnar AB um
helgina var harðlega mótmælt til-
lögum frá nefnd ríkisstjórnar-
flokkanna um breytingar á lána-
sjóði íslenskra námsmanna. „Þar
er gert ráð fyrir,“ segir í tillög-
unni, „að takmarka námslánin
verulega, taka vexti af lánunum,
lántökugjöld og að taka upp
styrkjakerfi sem byggist á óljós-
um forsendum og getur haft mis-
munun í för með sér.“
Tillögur þessar ganga gegn því
höfuðmarkmiði lánasjóðsins að
jafna aðstöðu til náms, burt séð
frá efnahag og búsetu.
Miðstjórnin felur þingflokkn-
um að beita sér gegn árásum á
Lánasjóðinn og heitir jafnframt
námsmönnum stuðningi í hags-
munabaráttu þeirra.
A fmætishappdræ tti Þjóðviljans
BIFREIÐAR &
LANDBÚNAÐARVÉLAR
Dregiö var í Afmælishappdrætti Þjóöviljans 31. október s.l. Vinningsnúmerin eru
innsigluö hjá borgarfógeta og verða birt þegar frekari skil hafa borist.
Gerið skil sem fyrst
Hægt er aö sækja skil til þeirra, sem þess óska.
Síminner681333.
þJÓÐVILJINN
Suðurlandsbraut 14, s: 38600