Þjóðviljinn - 21.11.1986, Síða 8
...ágætt að hlæja sig í gegnum eina og eina, en
það er þreytandi til lengdar. Svo er líka ósköp
tilgangslítið að lesa bækur, sem maður man ekki
hvað fjölluðu um 5 mín. eftir að maður lauk þeim.“
„Allir sem ætla að framleiða eitthvað og selja
reyna að pranga því inn á okkur. Það er nefnilega
auðvelt að segja okkur að við verðum að eignast...
Þið sjáið bara tískuna. “
„Ég held að þeir sem fyrst og fremst lesi
unglingabækur séu tólf til þrettán ára. Að
lestrinum loknum halda þau svo að þetta sé það
sem takivið hjá þeim þegar þau verða unglingar.
Síðan verða þau auðvitað fyrir vonbrigðum þegar
þau fá aldrei neina heimabakaða rjómaköku."
Arna Þórunn Björnsdóttir.
Guðrún Þórsdóttir.
Stefán Eiríksson á mynd Sig.
en Guðrún hefur ekki lesið hana.
Arna: „Hún var stórgóð. Veg-
urinn heim lika. Maður hugsar
bara ekki um svoleiðis sem ung-
iingabækur. „Unglingabók-
menntir“ er eiginlega bara sam-
heiti á Andrési, Eðvarð og fleiri
þess háttar. En bækurnar hennar
Olgu voru stórgóðar, enda voru
þær trúverðugar. Ilmurtil dæmis.
Þar var verið að fást við alvöru
vandamál. Þær eru að vísu harð-
ari, það eru meiri átök, en maður
trúir þeim.“
Stefán: „Alveg sammála. En
bækur þurfa svosem ekkert að
vera afar raunsæjar til að þær séu
ógnvekjandi. Það er bara þessi
glansmynd sem er ekki áhuga-
verð. En ég hef til dæmis enn
gaman af að grípa í Ármann Kr.
og sveitarómantíkina hans. Nú
nýverið las ég líka bók sem mér
fannst mjög skemmtileg. Ég ætti
kannski ekki að segja frá því, þá
verð ég kannski áiitinn jafn bilað-
urog menn halda höfundinn. Það
var Baneitrað samband á
Njálsgötunni."
En er nokkur ástœða til að vera
að velta sér upp úr vandamálum
sýknt og heilagt? Verða bók-
menntirnar þá ekki bara að leiðin-
legu stagli og þrasi?
Stefán: „Nei. Búrið var til að.
mynda langt frá því að vera
leiðinleg.“
Arna: „Allar bókmenntir
hljóta að fjalia um vandamál.“
Stefán: „Einkum unglingabók-
menntir."
Krakkar hættir
að lesaog leika
En lesa krakkar almennt minna
nú en áður?
„Guðrún: „Já. Það er einsog
með annað. Mér finnst til dæmis
að ég sjái aldrei yngri krakka uti
að leika sér. Þegar ég var krakki
vorum við alltaf úti að leika okk-
ur, en nú halda þau sig bara inni
við yfir vídeói og teiknimynda-
sögum.“
Stefán: „Það er líka alveg búið
með að fara á bókasafnið þrisvar í
viku og taka tíu bækur í hvert
sinn. Eg held að fólk hafi bara
ekki orku til að lesa jafn mikið og
það gerði.“
Arna: „Það er líka svo margt
komið á vídeó sem áður varð
bara lesið úr bókum. Sjáðu þætti-
na um Marco Polo. Þá fyrst fór
maður að lesa þessa þurru
mannkynsögu sína, þegar maður
hafði séð hann. Svo finnst mér ég
heldur ekki hafa nógu mikinn
tíma til að lesa. Að maður háfi
nóg með skólann og vinina.“
Þau hin samsinna hinu síðar-
nefnda bæði og sú spurning er
rædd hvort of mikið vinnuálag sé
í skólum. En aftur rennur um-
ræðan í sinn rétta farveg.
Arna: „Bókmenntalestur fer
líka eftir þjóðfélagshópum. Þar
sem ég ólst upp, í Grindavík, lesa
jafnöldrur mínar sem ekki fóru í
skóla, það sem við myndum kalla
lélegar bókmenntir. ísfólkið,
Sannar sögur og svo framvegis."
En hvernig stendur á því að þið
lesið „góðar“ bókmenntir? Er ýtt
á ykkur heima til slíks lesturs
eða...
Guðrún: „Já, pabbi ýtir
gjarnan á eftir mér. En ég fer líka
reglulega til hans og spyr hvort
hann sé ekki með eitthvað
skemmtilegt að lesa.“
„Stefán: „Ég held að þess hafi
bara ekki þurft. En annars hefði
það ábyggilega verið gert. Ég hef
að vísu alltaf fengið mjög mikið
áf bókum, t.d. á jólunum, en
öðruvísi held ég að ekki hafi verið
ýtt á mig.“
Arna: „Það er sama sagan hér.
Ég sótti það mikið í þetta sjálf, að
þess þurfti varla. Hins vegar hef
ég mjög verið hvött til almennrar
menntunar.“
Yrkja öll
En hvað með Ijóð, lesið þið
þau?
Það er eining um þessa spurn-
ingu, öll lesa þau ljóð og hafa
gaman af góðum ljóðum.
Arna: „Þetta finnst mér dýpsta
formið í bókmenntum.“
Stefán: „Það fer nú líka eftir
höfundum.“
Guðrún: „Mér finnst samt ekki
að maður þurfi að skilja þau, það
er að segja, ekki einsog höfu-
ndurinn skildi þau. Manns eigin
túlkun finnst mér það eina rétta. “
„Einmitt“, svara Stefán og
Arna og Arna heldur áfram:
„Þessvegna er alveg ferlega fúlt
að fá 0 fyrir túlkun á prófi og
beinlínis heimskulegt."
En hvernig Ijóðum þykirykkur
gaman að?
Stefán: „Mest gaman hef ég af
gamla forminu, rímað og stuðl-
að.“
Guðrún: „Súrrealískum. Þó vil
ég hafa einhvern þráð í þeim.“
Arna: „Ég hef gaman af ýms-
um formum, þó það gamla heilli
mig nú ekkert sérstaklega.“
Stefán: „Ég hef líka mjöggam-
an af skemmtilegum ljóðum.
Fyndnum og frumlegum líking-
um og þess háttar. Hef raunar
sjálfur gert nokkur svoleiðis."
Hvað með ykkur, hafið þið
eitthvað ort?
Þær kinka kolli settlega og í
sameiningu komast þau að þeirri
niðurstöðu að níu tíundu hlutar
allra unglinga hefðu ort.
Guðrún: „En fólk er líka dug-
legt við að fela þetta. Hrætt við
að opinbera sig.“
Arna: „Já. En allir eru til í
viðurkenna að þeirhafi ort, en að
sýna það: neeei.“
Stefán: „Það eru líka fáir að
skrifa af alvöru."
Arna: „Ég er ekki viss, ég á
fullt af vinum sem eru að því. Til
dæmis í Grindavík held ég að allir
hafi stundað það að setja
hugsanir sínar á blað. Það er
svo gott að fá útrás við ljóða-
gerð.“
Vilja frekar í bíó
Flestir yrkja Ijóð, segið þið en
hvernig er með leikhús? Fer ungt
fólk í leikhús? Leikur það sjálft?
Guðrún: „Þau fara lítið í
leikhús. Vilja frekar í bíó. Svo er
það líka dýrara að fara í leikhús.
Ég vann í leikhúsi í fyrra og mað-
ur fann ekki fyrir neinum áhuga
hjá krökkunum á að fara á eina
eða aðra sýningu.“
Stefán: „Vinir mínir, ef þeir
fara í leikhús er það með foreldr-
um sínum. Öðruvísi ekki og það
þykir gott ef einhver sér eina sýn-
ingu á leikári.“
En þið sjálf?
„Jú töluvert“, svara þau öll í
senn.
„Það er miklu meiri upplifun,
miklu skemmtilegra en fara í
bíó“, bætir Arna við.
En leikur ungt fólk ekki mikið
enn, t.d. í skólanum?
Guðrún: „Nei, ekki finnst mér
það. í Hagaskólanum eru 400
nemendur og það eru ekki nema
60 í leiklist.“
Hinum þykir það nú þónokk-
uð.
„Ég held líka að það hafi orðið
nokkur uppvakning með
leikhópnum „Veit mamma hvað
ég vil“. Að vísu voru þetta mest
krakkar sem voru í leiklist fyrir,
en þau héldu þó áfram.“
Guðrún og Arna sáu báðar
sýningu Ieikhópsins á „Myrkur“
og eru sammála um að það hafi
ekki verið neitt sérstakt. En öll
eru þau á einu máli um að þetta sé
virðingarvert framtak.
„Annars er það eins með
leikhúsið, unglingabók-
menntirnar og Dallas. Fólk vill
helst bara sjá einhverja glans-
mynd, helst svolítið skemmti-
lega, til að gleyma sér smá stund.
Við sjáum það á aðsókninni að
revíum, söng- og gamanleikjum.
Leikhúsið á sér sína formúlu fyrir
afþreyingunni, rétt eins og Dallas
og unglingabókmenntirnar.
Ast+vinátta+létt vanda-
mál+söngur og fimmaura brand-
arar.“
Að lokum komast þau að sam-
eiginlegri niðurstöðu, sem á
sennilega jafnmikið við um söng-
leiki og Dallas, einsog unglinga-
bókmenntirnar. Ef unglingabók-
menntir eru bækur Andrésa og
Eðvarða heimsins, þá nægir að
lesa eina - þá hefurðu lesið þær
allar."
Við þökkum krökkunum kær-
lega spjallið og getum þess í
leiðinni að unglingabækurnar í ár
verða framvegis ritdæmdar á síð-
um Glætunnar.
Vinsældalistar Þjóðviljans
Bylgjan 1) Serblnn Bubbi Morthens 2) In the army now Status Quo 3) The final countdown Europe 4) Walk like an Egyptlan Bangles 5) Suburbia Pet Shop Boys 6) Don ’t get me wrong Pretenders 7) Love will conquer all Lionel Richie 8) You keep me hangin’ on Kim Wilde 9) Hip to bee square Huey Lewis & The News 10) i’we been losing youu A-Ha Grammið 1) Talking Heads Truestories 2) Smlthereens Especially for you 3) Tex and the horseheads Live so cool 4) Rem Lives reach plagaeant 5) Billy Bragg Talking with the tax-man about poetry 6) Cure Standing on the beach 7) Richard Thompson Daring adventures 8) Elvls Costello Blood and Chocolate 9) Frankie goes to Hollywood Liverpool 10) Smith The Queen is dead Rás 2 1) ln the army now Status Quo 2) Walk like an Egyptan Bangles 3) Serbinn Bubbi Morthens 4) l’ve been losing you A-ha 5) Moscow Moscow strax 6) Don ’t glve up Peter Gabriel/Kate Bush > 7) Heartbeat Don Johnson 8) Always the sun Stranglers 9) True blue Madonna 10) A matter of trust Ðilly Joel
8 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Föstudagur 21. nóvember 1986