Þjóðviljinn - 14.03.1987, Qupperneq 8
Guðrún Tryggvadóttir sýnir þessa
mynd í Vestursal Kjarvalsstaða.
Myndlistarveisla
/
Myndlistárlífið í höfuðborginni
eróvenju blómlegt um þessar
mundir. Fimmsýningarverða
opnaðar nú um helgina, og
eru þær hver annarri forvitni-
legri. FyrstberaðteljaTvíær-
ing FÍM, sem opnar á Kjar-
valsstöðum kl. 14 í dag.
Blaðamönnum gafst kostur á
að sjá sýninguna fyrir helgina,
og verður að segjast, að hér
hefur óvenju vel til tekist um
samsýningu af þessari gerð,
og sýna margir þátttakendur
þarnasínarsterkustu hliðar.
Athygli vekja 3 stórar myndir
SigurðarÖrlygssonar, sem
sýna að hann hefur náð að
dýpka enn það kröftuga
myndmál sem hann sýndi á
Kjarvalsstöðum í desember.
Þáá Margrét Jónsdóttirafar
skemmtilegar myndir á þess-
ari sýningu, sem sýnaokkur
steinrunnar verur og form í
óvenjulegu Ijósi. Sigurður
Þórir hefur aldrei verið betri en
í myndum sínum á þessari
sýningu, og sömuleiðis sýnir
Eyjólfur Einarsson á sér fersk
tilþrif í magnaðri mynd af píra-
míða í tunglskinsbirtu sem
sýnirokkurað Eyjólfur hefur
alltaf haft vissar taugar til súr-
realismans. Margtfleira
markvert er á þessari sýn-
ingu, en í heild sinni gefur hún
viss fyrirheit um þá endurnýj-
un sem nú er að verða innan
FÍM.
Guðrún og Hansína
Tvær aðrar sýningar verða
opnaðar að Kjarvalsstöðum í
dag: Hansína Jensdóttir sýnir
skúlptúra í anddyri og Guðrún
Tryggvadóttir sýnir málverk í
Vestursal. Hansína Jensdóttir er
gullsmiður að mennt, en lærði
auk þess skúlptúr í 2 ár í Calgary í
Kanada. Myndir hennar eru eins
konar fuglabúr, það er að segja
þær eru þrívíðar myndir sem eru
teiknaðar með jámvír og sýna
næma tilfinningu fyrir rúmi og
línusamspili.
Guðrún Tryggvadóttir lærði
myndlist í MHI 1974-‘78 og var
síðan við framhaldsnám í París
1978- ‘79 og við Akademie der
Bildenden Kunste í Múnchen
1979- ‘83, þar sem hún lauk námi
með því að hljóta æðstu verðlaun
Akademíunnar fyrir verk sín.
Guðrún hefur síðar sýnt víða, en
þetta er viðamesta einkasýning
hennartil þessa. Baritónsöngvar-
inn Robert W. Becker mun flytja
hinn gullfallega ljóðaflokk „Astir
skáldsins“ eftir Schumann við
texta Heinrich Heine við opnun
sýningarinnar í dag kl. 15.30.
Sjávarlandslag
og Ijósmyndalist
í Norræna húsinu
Sýning Norræna hússins á
verkum eftir þá Sigurð Guð-
mundsson, Björn Tufta og Olav
Strömme, sem átti að opna um
síðustu helgi, verður opnuð á
sunnudaginn kl. 15. Misskilning-
ur og klaufaskapur við sendingu
listaverkanna milli landa olli töf-
inni. Hægt er að lofa því að hér
verður um mjög sérstæða sýningu
að ræða, en hugmyndin að henni
er komin frá Per Hovdenakk,
forstöðumanni Henie-Onstad
listasafnsins í Osló. Skúlptúrar
Sigurðar Guðmundssonar á þess-
ari sýningu eru kærkomin viðbót
við grafíkina og vatnslitamynd-
irnar, sem hann sýnir um þessar
mundir í Gallerí Svart á hvítu, og
gefa okkur fyllri mynd af þessum
óvenjulega og mjög svo frumlega
listamanni. Sigurður lýsti með
mjög skilmerkilegum hætti hug-
myndum sínum um myndlistina í
viðtali við Þjóðviljann um síðustu
helgi, og skal hér vísað til þess, en
þeir Norðmenn sem þarna sýna
með honum eru sinn af hvorri
kynslóðinni: Olav Strömme (f.
1909, d. 1978) mótaðist sem lista-
maður á 4. áratugnum, og varð
þá fyrir áhrifum frá súrrealisma,
síðkúbisma og Bauhaus. Ström-
me þurfti lengi að berjast fyrir
viðurkenningu á list sinni og var á
tímabili núið um nasir að vera
undir þýskum áhrifum, eftir að
Þjóðverjar höfðu hernumið Nor-
eg. En þeir þýsku listamenn sem
haft höfðu áhrif á Strömme voru
engir nasistar: þvert á móti voru
þeir úthrópaðir af nasistum sem
úrkynjaðir.
Björn Tufta er af yngstu kyn-
slóð norskra listamanna, og
landslagsmyndir þær, sem hann
sýnir í Norræna húsinu eru í anda
„nýja málverksins“ - þessar lans-
lagsmyndir sýna ekki ákveðið
ytra landslag, heldur eru þær
kortlagning þess innra landslags,
þar sem litur og form eru bein
ígildi djúpstæðra tilfinninga.
Að aflokinni heimsókn í kjall-
ara Norræna hússins er upplagt
að líta á ljósmyndasýninguna í
anddyrinu um leið og menn fá sér
kaffisopa, því þessi ljósmynda-
sýning er vissulega allrar athygli
verð og verðskuldar í rauninni
betra sýningarpláss en þarna er
fyrir hendi.
Sigurður Guðmundsson: Áttund,
1984. Norskur leirsteinn og blý
216x45x32 sm.
Sverrir í Gallerí Grjót
Sverrir Ólafsson hefur ekki
látið deigann síga við skúlptúr-
smíðina þrátt fyrir ytri áföll, en
hann sýnir nú nokkra
Margrét Jónsdóttir: málverk á Tvíær-
ingi FÍM á Kjarvalsstöðum.
málmskúlptúra í Gallerí Grjót
við Skólavörðustíg. En sem
kunnugt er þá eyðilagðist mikill
fjöldi af verkum hans í flóðum
sem urðu í vinnustofum mynd-
höggvara í kjallara Kjarvalsstaða
í desember síðastliðnum. En sýn-
ingin sem Sverrir hefur nú sett
upp í Gallerí Grjót er allrar at-
hygli verð, ekki síst þeir skúlptúr-
ar sem hann hefur steypt í málm
og unnið síðan og slípað. í fljótu
bragði minna andlitsgrímur
Sverris okkur á afrískar grímur
og tótemsúlur indíána, sem voru
snar þáttur í forfeðradýrkun og
andatrú þessara þjóða. En and-
litsmyndir Sverris eru allt annars
eðlis: í stað þess að sjá í þeim hinn
upphafna og stolta kynstofn í
frumgerð sinni er hér allt á hver-
fulli nótunum, þar sem sundruð
sjálfsmynd nútímamannsins er
hamin í bræddan málm. Það er út
af fýrir sig fróðlegt að bera saman
málmgrímur Sverris og próffl-
mynd Sigurðar Guðmundssonar,
sem hann sýnir nú í Norræna hús-
inu og kallar “Díabas 1986“.
Þessi mynd er úr svörtum stál-
hörðum steini. Á meðan Sverrir
fæst við hið hverfula er Sigurður
að skapa einskonar frumgerð, af-
hjúpa hinn varanlega kjarna
frumgerðarinnar í efninu.
Ásgerður hjá ASÍ
Vefnaðarsýningu Ásgerðar
Búadóttur f Listasafni ASÍ við
Grensásveg lýkur um þessa helgi.
Ekki verður svo fjallað um það
veisluborð sem myndlistarmenn
okkar hafa breitt út um höfuð-
borgina um þessa helgi, að ekki
sé minnst á þær dýrindiskrásir
sem þar er að finna. Ásgerður er
löngu kunn sem okkar fremsti
vefari og hún sýnir það enn á
þessari sýningu hversu fágætu
valdi hún hefur náð á galdri vefs-
ins með næmri tilfinningu fyrir
efninu og því stranga myndmáli
sem hún hefur tamið sér. Myndir
hennar byggja á einföldum frum-
formum og eru fábrotnar í lit, þar
sem ýmist eru tilbrigði í rauðu
eða indígó-bláu. Hrosshársívafið
notar hún síðan til þess að gefa
vefnum nýja vídd, og í bestu
myndum hennar, eins og t.d.
stóra bláa vefnum, sem hún kall-
ar Norðrið, verður hvítur þrí-
hyrningur úr hrosshári lifandi
miðpunktur myndarinnar, sem
gefur ekki bara tilfinningu fyrir
snævi þöktum fjallstindi, heldur
færir manni fiðring í lófana og
þann fögnuð sem einungis lifandi
list getur veitt.
Rómantík og raunsæi
Vart er hægt að hugsa sér ólík-
ari málara en þá Sigurð Eyþórs-
son, sem nú sýnir í Gallerí Gangs-
kör, og Hring Jóhannesson, sem
sýnir í Gallerí Borg. Þeir eiga það
þó engu að síður sammerkt að
ástunda nostursamlegt hand-
bragð og leggja rækt við gamlar
hefðir í olíumálverki, sem fyrir
fáum árum þóttu úrelt þing.
Sigurður Eyþórsson hefur lagt
mikið upp úr því að tileinka sér
aðferðir þær sem tíðkuðust við
málun á 15. og 16. öld í Evrópu,
jafnvel áður en olíuliturinn kom
til sögunnar. Þá blönduðu menn
litarduftið með eggjahvítu í stað
olíu, en það voru víst Hollending-
ar sem uppgötvuðu olíulitinn á
15. öldinni. Sigurður sýnir okkur
þarna hálfkláraða mynd af hold-
miklu kornabarni, sem eins kon-
ar sýnishorn þeirrar aðferðar sem
hann notar við málverkið, og
minnir ekki svo lítið á hálfklár-
aðar myndir eftir Leonardo eða
Botticelli. En það er víst ekki um
þetta sem listin snýst, heldur
þann óhlutlæga „sannleika“, sem
ekki verður skýrður með orðum
eða aðferðarfræði, heldur aðeins
upplifaður sem sjónræn reynsla.
Og þótt Sigurður sýni mikla
kunnáttu og þekkingu á náttúru
olíulitar og eggtempera, þá er sá
rómantíski heimur sem myndir
hans sýna ekki sannfærandi í mín-
um augum, auk þess sem mér
finnst teikningunni vera undar-
lega ábótavant í sumum mynd-
anna.
Sú langsótta rómantík sem rík-
ir í myndum Sigurðar Eyþórs-
sonar er hins vegar víðs fjarri í
myndum Hrings Jóhannessonar,
sem leitar sér ekki viðfangsefna í
fortíðardraumum, heldur x' sínu
nánasta umhverfi. Svo hvers-
dagslegt fyrirbæri sem plastpoki
fljótandi í drullupolli eða stag í
rifinni heyábreiðu geta orðið
honum tilefni formlegrar ígrund-
unar, sem oft og tíðum skilar
nokkrum árangri og þegar best
lætur tekst honum að magna upp
það smáa í þær víddir að þær skili
nýjum og frumlegum skilningi á
viðfangsefninu.En hættan sem
vofir yfir hjá Hring finnst mér
engu að síður vera sú sama og er
svo áberandi hjá Sigurði
Eyþórssyni: að aðferðarfræðin
verði að inntaki listarinnar. í
þessu sambandi er forvitnilegt að
líta til gjörólíkra vinnubragða
Sigurðar Guðmundssonar, sem
hefur þá aðferðarfræði eina, að
hafna öllum fyrirframgefnum að-
ferðum við það að skapa mynd-
list. Svo ólík og andstæð eru við-
horfin og stefnurnar í myndlist-
inni í dag, en viðfangsefnið er þó
eitt og hið sama: að umbreyta
mannlegri reynslu í áþreifanlegt
form. Og þar skulum við halda
sem flestum leiðum opnum.
ólg
8 SÍÐA - ÞJÓÐVIUINN Laugardagur 14. mars 1987