Þjóðviljinn - 29.03.1987, Qupperneq 6
Æfía mérað vera
dugleg vinnukona
Þegar ég barði upp á hjá Guð-
rúnu Helgadóttur fyrr í vikunni
var Albertsmálið enn á fullu
og um fátt annað talað í
landinu. Leigubílstjórinn hafði
tjáð mér að hann hefði verið
félagi í Sjálfstæðisflokknum í
tuttugu ár: „En á morgun
geng ég úrflokknum og þús-
undir annarra með mér, “ og
það sveif heilagur andi yfir
honum er þessi játning var
gerð. „Ég þekki Albert per-
sónulega og hef oft rabbað
við hann. Albert er maður
fólksins og við á stöðinni höf-
um ákveðið að keyra ókeypis
fyrir hann í kosningunum. Eg
held að Þorsteinn ætti að líta í
eigin barm og skoða eigið sið-
gæði.“
Eðlilega var því þráðurinn tek-
inn upp þegar ég hafði komið mér
fyrir við sófaborðið á heimili
Guðrúnar og talið barst að fjöl-
miðlafárinu út af Albertsmálum.
„íslensk pólitík er afar sér-
kennileg. Fólk vinnur svo mikið
og hefur svo lítinn frítíma að tími
þess til að hugsa um þjóðmál er
mjög takmarkaður. Flestir láta
sér því nægja að lesa fyrirsagnir
og gleypa svo við æsifregnum á
borð við það sem er nú að gerast í
Sjálfstæðisflokknum. “
Þar með voru mál Alberts út-
rædd af Guðrúnar hálfu og við
gátum snúið okkur að sjálfu við-
talinu, uppgjöri við það kjör-
tímabil sem nú er að ljúka og
kosningunum framundan.
Stjórnin hefur
af iitlu að státa
Hvað hefur einkennt þetta
kjörtímabil?
„Það hefur einkennst af
tvennu. í fyrsta lagi af óvenjulegu
góðæri og heppilegum ytri að-
stæðum. Lánið hefur leikið við
ríkisstjórnina. Olíuverð lækkaði,
það hefur aflast betur en nokk-
urntíman áður og markaðsmál
verið í besta lagi. Maður skyldi
því halda að eitthvað af þessu
hefði skilað sér til fólksins. Þjóð-
artekjur jukust t.d. á síðasta ári
um 10 milljarða króna.
Ríkisstjómin hrósar sér af því
að hafa komið niður verðbóígu
og maður skyldi ætla að það hefði
ekki verið svo erfitt við þessar
aðstæður. En einasta framlag
ríkisstjórnarinnar til þess að ná
niður verðbólgunni er, að taxta-
kaup fólks hefur verið skert um
þjriðjung.
' Þrátt fyrir þetta er vaxandi við-
skiptahalli og erlendar skuldir að
aukast. þannig að ríkisstjórnin
virðist ekki hafa af miklu að
státa. Sérhver íslendingur hefur
þurft að greiða um 300 þúsund
krónui til að ná niður verðbólg-
unni er þrátt fyrir það er hún nú
komin yfir 20% og vinveittustu
hagfræðingai ríkisstjómarinnar
spá því að hnn verði um 40% á
árinu með þe su áframhaldi.“
Stefnuleysi
í menntamálum
Hvað með frammistöðu ríkis-
stjórnarinnar í öðrum málum en
efnahagsmálunum?
„Það sorglegasta við kjörtíma-
bil þessarar ríkisstjórnar er
stefnuleysið og það öngþveiti
sem nú er í menntamálum. Aukin
þekking og menntun á öllum
sviðum er undirstaða framþróun-
ar og uppbyggingar í atvinnulífi.
Nærtækasta dæmið um það er hið
svokallaða efnahagsundur Jap-
ana. Það undur byggir á því að
Japanir hafa sett kennslu í for-
gang og kennarar em þar með
best launuðu og virtustu stéttum
landsins. Árangurinn hefur líka
sýnt sig
Hér drabbast skólarnir niður.
Hundruð kennara án réttinda
annast kennslu barnanna. Þeir
eru óánægðir með kjör sín og að-
stöðu. Ég óttast að menn geri sér
ekki grein fyrir því hvað þetta er
hættulegt ástand. Tíminn sem fer
í það að ala upp einstakling er
ótrúlega stuttur. Þetta ástand
verður því að stöðva ef við eigum
ekki að dragast aftur úr á öllum
sviðum.
ValdimarHarðarson, arkitekt,
höfundur Sóleyjarstólsins, hélt
framsöguerindi á málstefnu Al-
þýðubandalagsins um listir og
menningu. Hann sagði m.a.að
skortur á listrænu uppeldi háði
íslenskri nytjalist og hönnun á
iðnaðarvörum. Við komum alltaf
aftur að því sama: í nútímaheimi
er þekking og kunnátta á öllum
sviðum undirstöðuatriði. í okkar
þjóðfélagi einsog öðrum verða
það æ færri sem geta unnið við
nokkurn skapaðan hlut nema
með kunnáttu.
Það er því albrýnasta verkefni
stjórnvalda að reisa við mennt og
menningu í landinu og hefja
kennara landsins til vegs og virð-
ingar. Við eigum allt undir
kennslu fólksins í landinu. Allt
stríð milli námsmanna og
menntamanna annarsvegar og
verkalýðshreyfingar hinsvegar,
er gjörsamlega út í hött. Það er
fásinna að ætla sér að draga úr
námslánum og koma þannig í veg
fyrir að ungt fólk geti aflað sér
menntunar, hér og erlendis. Ég
held að þetta sé eitt af stærstu
pólitísku málum komandi ríkis-
stjórnar.
Verkfall kennara sem nú
stendur yfir er talandi sorgar-
leikur um ástandið. Nemendur
skilja sorgarleikinn þó að
stjórnvöld skilji hann ekki. ís-
lensk alþýða verður að gera sér
ljóst að hún á allt undir því að
börnin hennar fái þá þekkingu og
menntun sem nútímalíf krefst.“
Stysta þingið
Þingið sem nú var að Ijúka
störfum er líklega stysta þing sem
þú hefur setið?
„Jú, það var stutt í fyrra en enn
styttra nú.“
Háði það störfum þingsins?
„Ég er ekki svo viss um að tím-
inn hafi háð störfum þingsins
heldur fyrst og fremst það að
ríkisstjómin lagði ekki fram nein
mál fyrr en í lok þingsins. Það
vom því við stjórnarandstöðu-
þingmennimir sem héldum uppi
málflutningi í þinginu. Framan af
vetri hefðu ekki verið haldnir
neinir þingfundir ef stjómarands-
töðuþingmennimir hefðu ekki
verið með fmmvörp og tillögur.
Það var annars mesta furða
hverju þingið kom í verk á þess-
um örfáu vikum sem einhver mál
vom til meðferðar. Ég er hins-
vegar ekki svo viss um að með-
ferðin á öllum málum hafi verið
vönduð, enda ekki hægt að ætlast
til þess.“
Þessi vinnubrögð þingsins hafa
oft verið gagnrýnd, að öll stóru
málin koma fram á síðustu
dögum þingsins. Er engin leið til
að breyta þessu?
„Þetta er engin tilviljun. í
sumum málum kærir ríkisstjórnin
sig ekkert um að gefa þing-
mönnum tíma til að fjalla um
þau. Stjórnin getur hespað þing-
málum í gegn um þingið með því
að setja tímapressu á þingmenn.
Þetta em auðvitað engin vinnu-
brögð en hefur verið hefð lengi.
Þó sjaldan í jafn ríkum mæli og í
vetur.
Ofan á þetta bættist að fjöldi
þingmanna var kominn út og
suður í kosningaslag síðustu daga
þingsins og varamenn teknir við
þeirra störfum.
Tvennskonar
þingmenn
Það má skipta þingmönnum í
tvo hópa. Það rann ekki upp fyrir
mér fyrr en eftir töluvert langa
þingsetu. Annarsvegar eru það
þingmenn sem vinna verkin sín,
kynna sér þingmál, vinna í nefnd-
um og taka löggjafarstörf alvar-
lega. Hinn hópurinn er í því að
hafa völd, ítök hér og þar út um
allt þjóðfélagið og koma ekki til
þings nema þegar þeim sjálfum
sýnist.
Þessi tegund stjórnmálamanna
er held ég orsök kvennaframboð-
anna. Konur þola ekki svona
vinnubrögð. Þessi karlrembusvín
valdsins em svo órafjarri þeim
skilningi sem konur leggja í
stjórnmálastörf. Við konur eram
vanar að taka ruslið upp af gólf-
inu frekar en að vaða yfir það
þangað til einhver annar hirðir
það.“
Ánœgð
með minn hlut
Hvað með þín eigin þingmál á
kjörtímabilinu?
„Ég er að mörgu leyti ánægð
með kjörtímabilið í heild. Ég hef
borið fram fjölda mála og fengið
þó nokkur samþykkt, mörg
beint, önnur með því að ríkis-
stjórnin bar fram stjórnarfrum-
vörp um svipaða hluti. Ég get
nefnt framlengingu á feðra- og
mæðra launum í 18 ára aldur,
námsframlagi til 20 ára aldurs
fyrir þau börn öryrkja eða börn
sem ekki eiga meðlagsforeldri á
lífi. Nú þýðingarsjóður íslands
tók til starfa á kjörtímabilinu og
enginn deilir um þær breytingar
sem orðið hafa á þýðingum er-
lendra skáldverka. Ég fékk sam-
þykkta tillögu um að ríkið tæki
þátt í að fullgera Hallgríms-
kirkju, sem er eitt merkasta hús
landsins þó að umdeilt hafi verið.
Þá hef ég flutt frumvörp sem
enn hafa ekki náð í gegn þrátt
fyrir mikinn stuðning, einsog
fmmvarp mitt um umboðsmann
bama. Þá hef ég flutt framvarp
um að koma á skipulagi á lögræð-
issviftingu fólks og fmmvarp um
sjálfstætt bankaeftirlit og
breytingu á erfðalögum. Þótt það
síðasta færi ekki í gegn einsog ég
framast vildi urðu breytingamar
á lögunum til góðs og hafa margir
getað notfært sér þær. Mér tókst
á nýafstöðnu þingi að pressa í
gegn að greiðslur yrðu rýmkaðar
fyrir neyðarhnappa fyrir fatlaða
og sjúka.
Þá vinnum við hvert fyrir ann-
að að koma málum félaganna í
gegn einsog mál sem vörðuðu
skipulagða sjúkraþjálfun og for-
vamarstarfsemi í heilbrigðismál-
um, sem Helgi Seljan flutti og lög
yfir auglýsingastarfsemi, sem
Steingrímur J. Sigfússon flutti.
Samtals flutti Alþýðubanda-
lagið á annað hundrað mála á
þessu þingi og mörg þeirra hafa
farið af stað fyrir tilstilli þessara
tillagna okkar og nægir þar að
nefna fjarskiptakennslu, eða op-
inn háskóla, sem Ragnar Arnalds
er upphafsmaður að. Stjórnar-
andstaðan getur því haft veraleg
áhrif og það er langt því frá að
þingið sé afgreiðslustofnun fyrir
ríkisstjórnina einsog stundum
hefur verið haldið fram.“
Samviska
flokksins
Þú hefur stundum verið kölluð
samviska flokksins.
„Það væri nú ljóta hlutverkið!
Ætli við höfum ekki öll einhverja
samvisku. Kannski örlítið meiri
samvisku en flestir aðrir þing-
flokkar."
Þú er óhrœdd við að hafa þína
sjálfstœðu skoðun á ýmsum mál-
um, jafnvel skoðun sem þínum
flokksbrœðrum líkar ekki alls
kostar.
„Það væri mér óbærilegt að
taka afstöðu til mála þvert gegn
samvisku minni. Ég ætti ákaflega
erfitt með það.“
Er algengt að stjórnmálamenn
taki afstöðu gegn eigin samvisku
til að halda friðinn í þingflokkn-
um?
„Ég hugsa að það sé töluvert
algengt. Eflaust er meiri agi í öðr-
um þingflokkum en okkar. Sumir
hafa kallað það veikleika. Mér
finnst það hinsvegar styrkur. Ég
held að við ráðum við þetta vegna
þess að flokkur einsog Alþýðu-
bandalagið byggir á miklu af-
markaðri stefnu og hugsjón en
hinir flokkamir. Við emm öll
sósíalistar og höfum ákveðna
hugmynd um hvernig við viljum
hafa þjóðfélagið. Innan þess
ramma rúmast því ýmsar skoðan-
ir. Við þolum þess vegna að vera
ósammála um ákveðna hluti.
Sósíalismi er síbreytilegur og til
eilífrar endurskoðunar og er eng-
in eilífðar lausn á málefnum líð-
andi dags. Á bakvið ágreining
okkar er nokkuð skýr hugmynd
að hverju við erum að stefna.
Ég hef líka verið kölluð þing-
ræðissinni og er bara hreykin af
því. Ég ber mikla virðingu fyrir
stofnuninni Alþingi og vil ekki
vanvirða þá stofnun á neinn hátt.
Hún er lýðræðisleg í eðli sínu og
skynsamlega byggð upp. Alþingi
ætti því að vera óskabarn þjóðar-
innar í stað þess að vera bitbein
hennar.“
Þingmönnum
sjálfum
um að kenna
Alþingismenn hafa gagnrýnt
fjölmiðlana fyrir hvernig þeir
fjalla um stofnunina og þau störf
sem þar eru unnin. Ert þú sama
sinnis, að fjölmiðlarnir standi sig
illa?
„Ég hef lítið tekið undir þann
kór. Fjölmiðlamenn hef ég ekki
staðið að óvandaðri vinnu-
brögðum en gengur og gerist. Ef
þingmönnum finnst þeir vera lítið
í fjölmiðlum held ég að það sé
þeim sjálfum að kenna. Ef þing-
mönnum finnst málflutningur
6 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Sunnudagur 29. mars 1987
sinn vera affluttur, ættu þeir að
velta því fyrir sér hvort þeir séu
nógu skýrir í hugsun og tjáningu,
eða hvort þeir em með þann mál-
flutning sem menn hafa áhuga á.
Þær stundir hafa komið að
Morgunblaðið hefur sagt ná-
kvæmar frá málflutningi mínum
en Þjóðviljinn. Það má margt um
Moggann segja en þingfréttir
Morgunblaðsins em ekki slæmar
og alls ekki óheiðarlegar.
Auðvitað getur það farið í
taugamar á manni að oft er gert
meira úr skondnu tilsvari eða
uppákomu í þinginu, heldur en
langri ræðu sem þingmaður hefur
lagt mikla vinnu í. Ef við emm
almennilegir sósíalistar eigum við
þó að skilja í hvaða aðstöðu fjöl-
miðlamenn eru. Þeir hafa auðvit-
að ekki ótæmandi rými fyrir það
sem okkur þóknast að segja og
verða því að vinsa úr það sem þeir
meta áhugavert fyrir lesendur."
Sama hvaðan
gott kemur
Finnstþér hafa orðið breyting á
fréttamennskunni með tilkomu
nýju miðlanna. í kringum Al-
bertsmálið virðast stjórnmála-
mennirnir hafa tekið upp nýjan
stíl.
„Það er greinilegt að Þorsteinn
Pálsson hefur keyrt fram og til
baka blaðamannafund Gorbat-
sjofs í Háskólabíó og lært af fé-
laga Gorbatsjof, þannig að þeir
em vart sundurþekkjanlegir.
Þetta þótti mér skynsamlegt hjá
Þorsteini. Hann hefur ályktað
réttilega að það sé sama hvaðan
gott kemur og Gorbatsjof kann
svo sannarlega að halda blaða-
mannafundi, um það deilir eng-
inn.“
Lélegur njósnari
Nýlega varstu sökuð um að
hafa lekið ákveðnum upplýsing-
um til Greenpeace ogaðþú vœrir
þeirra helsti njósnari á íslandi.
Hverju svararðu slíku?
Nú hlær Guðrún við, segist
ekki telja sig efni í góðan njósn-
ara, enda hafi enginn tekið mark
á þessum yfirlýsingum Kristjáns
Loftssonar, og ekki einusinni
hann sjálfur í viðtali við hana.
Hún segist ekki vera í neinu sam-
bandi við Greenpeace en hins-