Þjóðviljinn - 29.03.1987, Qupperneq 18

Þjóðviljinn - 29.03.1987, Qupperneq 18
KROSSGÁTA Nr. 562 Z 3— T~ 5 H- l ? T~ V *? )0 // T— )Z JT~ /Ý 15 V (f ¥■ 15 ¥ )ls n- II ¥ 19 2o 1$ W~ ¥ \(o T~ 21 2* // ¥ tf ié (y; 2 <r w \5L 25 3 JT~ i5 1 25 V )0 IÍL u 'T 7 JT~ F~ 25 ¥ w 4 // )$ IL 7 15 'f 15 V 5- )5 ? /ÓU 4 1 ‘t 1 1/ !$ ¥ $5 w ¥ 21 25 ? $3 ¥ /3 )l l$ 22 É 12 T 2J T~ 9 /s* 22 15 V 21 T~ 15 22 )? 25 12 /? 13 15 2? 15 7 J? Y )D 12 2í> V /s 2Í T~ ? )5 ¥ jo /6 y T~ '/ 7 26' u, T T~ )ö 25 u 15 )1 )'i i4 iz 15 'li u 2b 22 V- V 14 7T 15 AÁBDÐEÉFGHIÍJKLMNOÓPRSTUÚVXYÝÞÆÖ Setjiö rétta stafi í reitina hér fyrir neðan. Þeir mynda þá kven- mannsnafn. Sendið þetta nafn sem lausn á krossgátunni til Þjóðviljans, Síðumúla 6, Reykjavík, merkt: „Krossgáta nr. 562“. Skilafrestur er þrjár vikur. Verðtaunin verða send til vinn- ingshafa. 3 3 )Z 32 2 (o 3 Stafirnir mynda íslenskt orð eða mjöq kunnuqleq erlend heiti nvort sem lesið er lá- eða lóðrétt. Hver stafur hefur sitt númer og galdurinn við lausn gátunnar er sá að finna staflykilinn. Eitt orð er gefið og á það að vera næg hjálp því að með því eru gefnir stafir í allmörgum oröum. Þaö eru þess vegna eðlilegustu vinnubrögðin að setja þessa stafi i hvern sinn reit eftir því sem tölurnar segja til um. Einnig er rétt að taka fram, að í þessari krossgátu er gerður skýr greinarmunur á grönnum sérhljóða og breiðum, t.d. getur a aldrei komið í stað á eða öfugt. Sigurður S. Sigurðsson, Fossheiði 15, Selfossi, fékk verðlaun fyrir krossgátu nr. 559. Lykilorðið var Hólaberg. Hann fær senda bókina Þátta- skil eftir Liv Ullmann. Þessa vikuna er skáldsaga Málfríðar Einarsdóttur, Auðnuleysingi og Tötrug- hypja í verðlaun. Útgefandi er Ljóðhús. MíilfríAur l .ítiíUMlóHk Auðnuleysingi og ’ Tötrughypja SKAK BRIDGE Biskupinn Það getur verið fróðlegt að hyggja að einstðkum mönnum á skákborðinu. Að þessu sinni skal litið lítillega á biskupinn en hann gengur raunar undir ýmis konar nöfnum í öðrum málum. Þjóð- verjar nefna hann láufer (hlaupari) væntanlega af því þeim þykir hann sprettharður. Frakk- ar hins vegar kalla hann fou (fífl) og er ein skýringin á þeirri nafn- gift sú að lögun taflmannsins hafi minnt á búning fífla við höfðing- jahirðir í þvísa landi. Þetta gefur frönskumælandi húmoristum færi á margs konar orðaleikjum. Eitt sinn leitaði einn af hinum minni spámönnum í íþróttinni til pólska skákmeist- arans Tartakowers og bar sig upp við hann út af því hvað hann ætti erfítt með að máta með tveim biskupum en það er eitt það auðveldasta af öllu auðveldu. Tartakower svaraði: „Það er hægt að máta með tveim fíflum (biskupum) en þrjú fífl geta aldrei mátað.“ Biskupinn er að því leyti hálf- drættingur á við aðra menn að hann gengur ætíð annað hvort á hvítum reitum eða svörtum og kemst þannig aldrei nema á helming borðsins. Þetta getur stundum orðið svolítið neyðar- legt, líkt og þegar biskupar af ó- líkum kirkjudeildum kallast á, eða réttara hvor fram hjá öðrum, út af einhverjum trúargreinum. Svartur getur ekki unnið þótt hann eigi þrem peðum meira. Biskupinn er ekki alltaf sterkur í návígi heldur unir sér betur bakatil, sérstaklega á löngu ská- línunum. í samvinnu við aðra menn getur hann orðið mjög á- hrifamikill jafnvel þótt hann hreyfi sig ekkert. Gott dæmi um það er úr skák sem var tefld austur í Júgóslavíu fyrir rétt hálfri öld: Hvítur lék 1. Rf5 Eftir 1. ... gxf5 kemur 2. Hg4+ og hvítur mátar. Svartur lék því 1. ... Dxh4 en þá kom 2. Dh5 og svartur gafst upp. Ef 2. ... gxh5 kemur 3. Rh6 mát og eftir 2. ... Dxh5 mátar riddarinn á e7. Þótt drottning hvíts, hrókur og sérstaklega riddari séu í aðalhlutverkunum þá er þáttur biskupsins ekki minnstur en hann hefur það eins og góðir predik- arar, vísar öðrum þann veg sem hann gengur ekki sjálfur. Sökum þess að biskupinn gengur aldrei nema á annað hvort hvítum reitum eða svörtum þá eflist hann oft- ar að mun þegar starfsbróðir hans úr sama liði vinnur með honum og er þá komið að hugtakinu biskupapar. Það má segja um biskupinn að „með öðr- um er hann meiri en hann sjálfur" og er rétt að líta á hvemig þá getur til tekist. Dæmið er sótt í skák þar sem Akiba Rubinstein stýrði svörtu mönnunum gegn Belitzmann nokkr- um árið 1971: 1. e4 -e5 2. RfJ - Rc6 3. Rc3 - Rf6 4. Bb5 - Rd4 5. Bc4 - Bc5 6. Rxe5 - De7 7. Rd3 - d5 8. Rxd5 - Dxe4+ 9. Re3 - Bd6 10. 0-0 - b5 11. Bb3 - Bb7 12. Rel - Dh4 Hvítur á enga vörn gegn hótuninni 16. ... Dxh2+ 17. ... hxg3+ og 18. ... Hhl mát eða 16. h?g3 og 17. ... Dhl mát. Ýmsar mýtur eru uppi um biskupa- parið. Sumir leggja mikið upp úr því en aðrir óttast það ekki. Raunar er allt komið undir stöðunni. Á opnu borði er biskupaparið verulega skeinuhætt en ef staðan er lokuð að verulegu leyti fá þeir sjaldnast að njóta sín saman. Það er þó eftirtekt- arvert að engir aðrir menn mynda par. Það er ekki talað um hrókapar eða riddarapar, aðeins biskupapar. Það er rétt að Ijúka þessu biskupa- rabbi með tafllokum eftir rússneska meistarann Kubbel en þar eru bisk- upar í aðalhlutverkunum. 1. Be6+ - Kf8 2. Kd7 - Bb5+ 3. Kd8 - Be8 Hvítur hótaði Bb2 - a3 xe7 mát en nú á svartur vörnina Be8 - f7 og þá opnast svarta kónginum flóttareitur á g8 (4. Ba3 Bf7) og ekki er lengur unnt að máta. Hvítur á betri fjórða leik og nú er bara að finna hann. Annir hjá bridgemönnum Skráningin í Opna Daihatsu- Stórmótið, sem haldið verður á Loftleiðum á skírdag og föstu- daginn langa (16.-17. apríl), n.k. hefur farið vel af stað. Yfir 30 pör eru þegar skráð til leiks, en gert er ráð fyrir 42 pörum (hámarks- þátttaka). Mótið er opið öllu spilaáhugafólki og gildir sú eina regla, að þeir fyrstu sem skrá sig fá að vera með. Heildarverðlaun verða á sjö- unda hundrað þúsund krónur. Þátttökugjald pr. par er kr. 7000 og greiðist fyrir 8. apríl. Skráð er hjá Bridgesambandi íslands (Ölafi) og hjá Suðurlandsvídeói á Selfossi, (Aðalsteini Jörg.) og Stefáni Pálssyni. Frestur til að til- kynna þátttöku rennur út mið- vikudaginn 8. apríl nk. Björn Theodórsson og Jón Baldursson báru sigur úr býtum á Opna Stórmótinu sem haldið var á Akureyri um síðustu helgi. 36 pör tóku þátt í mótinu og höfðu þá yfir 20 pör „dottið“ út, vegna aftakaveðurs á föstudeginum. Þrátt fyrir það tókst mótið með miklum ágætum. í næstu sætum komu svo Valur Sigurðsson-Þórarinn Sigþórsson og Jakob Kristinsson-ísak Ö. Sig- urðsson. Keppnisstjóri var Ólafur Lárusson. Suðurlandsmótið í tvímenning verður háð á Selfossi laugardag- inn 11. apríl. Undirbúningur miðast við þátttöku 36 para, með barometerfyrirkomulagi og 2 spilum milli para. Brynjólfur Gestsson sér um málin eystra. íslandsmótið í sveitakeppni, undanrásir, hefjast á Loftleiðum nk. föstudag, 3. apríl. Spilað er í fjórum x 6 sveita riðlum og kom- ast 2 efstu úr hverjum riðli í úrslit. Úrslitin verða svo spiluð á sama stað í vikunni eftir páska og hefj- ast á miðvikudegi. Menntaskólinn að Laugar- vatni, B-sveit, skipuð þeim Agn- ari Erni Arasyni, Sigurjóni Björnssyni, Ásmundi Örnólfs- syni og Sigþóri A. Sigþórssyni, bar sigur úr býtum á Framhalds- skólamótinu í sveitakeppni sem háð var að Sigtúni 9 um síðustu helgi. Aðeins 9 sveitir mættu til leiks og eflaust aftakaveður á föstudeginum gert strik í reikninginn auk verkfallsins. Mikil keppni var á milli vegur- vegaranna og Menntaskólans á Egilsstöðum og A-sveitar Laugarvatns. M. L. hefur því unnið þetta mót eins 6-7 ár í röð og veldi þeirra í bridge því enn óhnikað, þó óneitanlega hafi þeir Egilsstaðar- búar (um tíma) klórað í bakkann (bikarinn). ÓLAFUR LÁRUSSON g Enn hafa línur í landsliðsmál- um okkar ekki skýrst, þó hálfur mánuður sé liðinn frá úrtöku (æfinga-)keppni Bridgesam- bandsins og ljóst sé um úrslit í þeim æfingum. Að mati þáttarins stendur valið í Opna flokknum á milli fjögurra para, þeirra er höfnuðu í fjórum efstu sætunum. Hver sem niðurstaðan verður, má ljóst vera að heildarskipulag okkar á þessum málaflokki er í molum. Landslið ættu að veljast með þeim fyrirvara, að skipulag og áætlanir þeirra sem munu endanlega veljast til keppni, rek- ist ekki á þær áætlanir sem við- komandi nefnd (fyrirliði) hefur sett sér til undirbúnings. Til að mynda eru landsmenn flestir famir að skipuleggja sumarleyfi sín og gera viðeigandi ráðstafanir í þá átt, það þarf engan gáfumann til að sjá að langur dráttur á vali eykur ekki valkosti þeirra sem í hlut munu eiga. 18 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Sunnudagur 29. mars 1987

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.