Þjóðviljinn - 08.04.1987, Síða 1

Þjóðviljinn - 08.04.1987, Síða 1
Atvinnulífið Nýjan Þróunarsjóð fyrir atvinnulíf ið Svavar Gestsson: Verðum að efla nýsköpun íatvinnulífinu. Mun leggja tilstofnun sérstaksþróunarsjóðs íþrjú ár, með 700 miljónum til árlegrar ráðstöfunar. Markmið: Efla vöruþróun og markaðsvinnslu. Aukaframleiðni Nú þarf verulcgt átak til að styðja nýsköpun í atvinnulíf- inu og nýta alla þá óútreiknanlegu möguleika sem ísland býr yfír. Þessvegna hef ég ákveðið að leggja til á næsta þingi að settur verði á stofn sérstakur þróunar- sjóður fyrir atvinnulífíð, og til hans verði varið myndarlegri ijárhæð á næstu árum. Það duga engin músarholusjónarmið, ég vil verja til sjóðsins sem svarar 2 prósentum af ríkisvcltunni, eða 700 miljónum á ári hverju. Þetta sagði Svavar Gestsson í viðtali við Þjóðviljann í gær, en hann telur að stofnun slíks sjóðs hljóti að verða meginþáttur í mál- efnasamningi nýrrar ríkisstjórnar sem Alþýðubandalagið ætti aðild að. „Þrátt fyrir hallann á ríkis- sjóði verður að skapa svigrúm fyrir þetta verkefni auk hinna fé- lagslegu umbóta, sem við gerum kröfur um.“ Hugmyndir Svavars gera ráð fyrir að þróunarsjóður atvinnu- lífsins starfi til þriggja ára, og verði undir stjórn fagfólks og full- trúa frá aðilum vinnumarkaðar- ins. Fjármagn sjóðsins komi frá hinu opinbera og jafnframt úr at- vinnulífinu sjálfu. Svavar telur rétt, að gera tiltekin svæði að forgangssvæðum, þannig að átakið nýtist sem best: „Fyrsta árið verði mestu hinna 700 milj- óna veitt í Vesturland, Vestfirði, og Norðurland vestra. Næsta ár fari fjármagn sjóðsins á Norður- land eystra, Austurland og Suð- urland, en síðasta árið á Reykjanes og til Reykjavíkur.“ „Þessu fé á að veita til einstak- linga, smáfyrirtækja, rannsókn- arstofnana, og raunar allra sem teljast hafa nýtilegar hugmyndir. Erlendir og innlendir sérfræð- ingar verði kallaðir til að vinna umsóknirnar, þannig að tryggt sé að peningarnir fari í raunhæfar, og arðvænlegar hugmyndir.“ „Fénu á ekki bara að verja til framleiðniaukningar og ný- sköpunar, heldur líka í tilraunir með ný eignarform og samhliða væri hugsanlegt að stuðla að auknu lýðræði með meiri ítökum starfsmanna í fyrirtækjunum.“ Svavar féllst á, að vissulega kynni sitthvað að misheppnast, peningarnir myndu ekki í öllum tilvikum nýtast fullkomlega, „.. en uppskeran af hinu mun skila fjármagninu margföldu inn í þjóðarbúið aftur.” -ÖS Kosningarnar 434 konur í framboði Jafnréttið síst í Sjálf- stœðisflokknum 434 konur eru í framboði til al- þingis, en 524 karlar. Ekki er útlit fyrir að konum íjölgi neitt veru- lega á þingi þrátt fyrir að þær séu 45% frambjóðenda. Ástandið í jafnréttismáium er lakast hjá Sjálfstæðisflokknum; 30% af öllum frambjóðendum flokksins eru konur, og af fjórum efstu mönnum í öllum kjördæmum eru aðeins fjórar konur - eða 12,5% 46% af frambjóðendum Al- þýðubandalagsins eru konur og í fjórum efstu sætum á öllum fram- boðslistum flokksins eru konur 40% Líkur eru á því að fjórar konur nái kjöri fyrir Alþýðu- bandalagið í kosningunum þann 25. n.k. Sjá Listakonum fjölg- ar, bls 8-9 Samningar Hamla verkföll kosningum? Töluvert virðist bera á milli í deilu ríkisins og póstemanna, og hefja þeir verkfall í kvöld ef samningar takast ekki. Tilboð ríkisins er einsog til SFR, en póst- menn telja sig hafa dregist veru- lega afturúr og vilja fá það leiðrétt. Félag íslenskra símamanna hefur boðað verkfall 21. apríl, í kosningavikunni. Búast jná við að símakerfið gangi fljótlega úr skorðum komi til verkfalls síma- manna, og gæti það sett óheppi- legt strik í reikninginn á loka- spretti kosningabaráttunnar. Félag símamanna hefur staðið í samningaviðræðum við ríkisvald- ið síðan í febrúar. Að sögn tals- manna félagsins hefur lítið þok- ast í samkomulagsátt og var því afráðið að leita eftir samþykki meðal félagsmanna um verkfalls- boðun. Verkfallsboðunin var sam- þykkt af meira en helmingi fé- lagsmanna, 518 voru samþykkir verkfallsboðí, en 183 andvígir. Á kjörskrá voru 918. Ef af verkfalli verður raskast verulega þjónusta Pósts og síma. Öll símaafgreiðsla fellur niður, þar á meðal skeytasendingar, talsamband við útlönd og öll handvirk afgreiðsla. Jafnframt fellur niður öll viðgerðaþjónusta á símtækjum og viðgerðir vegna bilana á símstöðvum. Fyrir utan margvísleg óþæg- indi, sem verkfall símamanna hefði í för með sér, fyrir símnot- endur, má búast við að kosninga- barátta stjórnmálaflokkanna yrði fyrir margvíslegum skakkaföllum af þess völdum. -rk Auðir bekkir og tómir stólar í blóðgjafasal Blóðbankans, meðan ekki semst við náttúrufræðinga. 14 af 16 líffræðingum Blóðbankans hafa sagt upp störfum. Mynd: Sig.Mar. Blóðbankinn Slembilukkan ræður Blóðbankinn nánast óstarfhœfur, samningarí strandi. Ólafur Jensson, bankastjóri Blóð- bankans: Astandið ekki bara erfitt- heldur ótœkt. 30 hjartasjúklingar bíða eftir að kom- ast í aðgerð. Slembilukkan rœður að ekki hef- ur komið til stórvægilegra óhappa Verulegur hluti af mínu starfí hefur í langan tíma farið f einskonar vinnumiðlunarstörf. Uppsagnir náttúrufræðinga héð- an af Blóðbankanum eiga sér miklu lengri sögu en síðustu vikur og mánuði. Það hefur lengi reynst nær ógerningur að fá fólk hingað til starfa sökum þeirra smánar- launa sem f boði eru. Þegar til lengdar lætur er slíkt ástand ekki bara erfítt, heldur ótækt,“ sagði Ólafur Jensson, bankastjóri Blóðbankans. Vegna verkfalls og uppsagna náttúrufræðinga, er Blóðbankinn aðeins keyrður á hálfum dampi. Af 16 líffræðingum sem bankinn hefur venjulegast í þjónustu sinni, hafa allir nema tveir sagt upp störfum, en þeir síðarnefndu starfa á undanþágum, meðan verkfall náttúrufræðinga stendur yfir. „Slembilukkan ræður því að ekki hefur komið til stórkostlegra óhappa. Við höfum getað ann- að blóðgjöfum vegna minnihátt- ar uppskurða. En með hverjum deginum sem líður hrannast vandamálin upp. Þannig bíða 30 sjúklingar eftir að komast að til hjartaaðgerða. Auk þess koma alltaf upp ný sjúkdómstilfelli, s.s. vegna illkynja sjúkdóma, sem þarf að skera við. En meðan ekki rætist úr hér hjá okkur verður þessum tilfellum ekki sinnt eins og þörf kerfur," sagði Ólafur Jensson. Enn situr allt fast í deilu ríkis- valdsins við Félag náttúrufræð- inga. Eins og skýrt var frá í blað- inu í gær, er samninganefnd ríkis- ins ekki reiðubúin að fallast á uppsagnarákvæði í samningum við náttúrufræðinga fyrir næsta ár, verði kauprýrnun byrjunar- launa meiri en 7%. „Það er tæpast samningafund- ur í dag eða á morgun. Það strandar á verðbótaákvæðunum. Við semjum ekki nema slíkt upp- sagnarákvæði sé í samningnum. Reynslan hefur einfaldlega kennt mönnum að án slíkra ákvæða er þeim kaupauka sem samið er um í dag stolið á morgun," sagði Páll Halldórsson, eðlisfræðingur og fulltrúi í samninganefnd náttúru- fræðinga.

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.