Þjóðviljinn - 08.04.1987, Qupperneq 2
FRÉTTIR
—SPURNINGIN—
Fylgistu með flokka-
kynningum í
Helgi Þorláksson, fyrrv.
starfsmaður Olíufélagsins hf.:
Já, það geri ég en líst misjafnlega
á.
Stefán Svavarsson, við-
skiptafræðingur og eftirlauna-
þegi:
Já, ég hef hugsað mér að gera _
það, enda athyglisvert.
Jón Hrafn Björnsson nemi:
Nei, ég fylgist ekkert með þeim
og þarf þess ekki. Ég veit alveg
hvað ég á að kjósa.
Elín Sverrisdóttir húsmóðir:
Nei, alls ekki.
Helen S. Helgadóttir kenn-
ari:
Já, ég geri það svona með öðru
auganu.
Útvegsbankinn hf.
Hlutur ríkisins falur
Stofnfundur nýendurreists Útvegsbanka. Háttí800 einstaklinga ogfyrirtœkja
hluthafar. Matthías Bjarnason, viðskiptaráðherra: Veitumfjársterka aðilasem
hafa augastað á hlut ríkisins. Lýsihlutaféð falt
Hátt í áttunda hundrað einstak-
linga og fyrirtækja hafa skráð
sig fyrir hlutabréfum að Útvegs-
banka íslands hf., sem stofnaður
var formlega í gær. Hiutafé bank-
ans er ákveðið 1000 miijónir. í
ávarpi Matthíasar Bjarnasonar,
viðskiptaráðherra á
stofnfundinum í gær kom fram að
hlutafé ríkisins er falt, hverjum
sem vera vill.
Hlutafjáreign í hinum endur-
reista Útvegsbanka skiptist þann-
ig að ríkissjóður leggur til 764
miljónir. Fiskveiðasjóður er
skráður fyrir hlutafé upp á 200
miljónir ícróna og einstaklingar
og einstök fyrirtæki hafa skráð sig
fyrir hlutafé að fjárhæð 36 milj-
ónir króna.
Matthías Bjarnason, við-
skiptaráðherra, sagði í setningar-
ávarpi sínu á stofnfundinum að
stofnun bankans þýddi ekki bara
að fjárhagsvandi bankans væri
leystur vegna þeirra búsifja er
hann hefði orðið fyrir vegna
gjaldþrots Hafskips, heldur væri
einnig stigið þýðingarmikið skref
frá því ríkisbankakerfi, sem hér
hefði alltof lengi verið við lýði.
Matthías gaf það jafnframt til
kynna í ávarpi sínu að hann vissi
um nokkra fjársterka aðila, sem
hug hefðu á að kaupa hlut ríkis-
ins, og sagði: „Ég lýsi því hér með
yfir að hlutafjáreign ríkisins í Út-
vegsbankanum er til sölu.“
Á stofnfundinum var kosin
stjórn fyrir Útvegsbankann hf. í
aðalstjórn sitja Gísli Ólafsson,
framkvæmdastjóri, Seltjarnar-
nesi, Björgvin Jónsson, útgerðar-
maður, Kópavogi, Jón Dýrfjörð,
vélvirki, Siglufirði, Baldur Guð-
laugsson, hæstaréttarlögmaður,
Reykjavík og Kristján Ragnars-
son, framkvæmdastjóri LÍU, sem
er tilnefndur af Fiskveiðasjóði.
-rk
Eigendur sparifjár á íslandi. Gamlir fjármálaspekúlantar og nýríkir Nonnar bíða eftir að skrá sig fyrir hlut f endurholdguð-
um Útvegsbanka í gær.
r Hjúkrunarfólk
Ottast flótta úr stéttinni
Starfsmenn á Landakotsspítala og hjá borginni skora á
fjármálaráðherra að ganga þegar til samninga
Nokkrir félagsmenn í Félagi
háskólamenntaðra hjúkrunar-
fræðinga sem starfa hjá Reykja-
víkurborg og á Landakotsspítala
hafa sent frá sér opinbera
áskorun til fjármálaráðherra
vegna þess neyðarástands sem nú
ó að almennur kærufrestur
vegna þingkosninganna sé
runnin út þá er enn möguleiki að
koma fólki inn á kjörskrá með
stefnu fyrir dómi. Það er því áríð-
andi að þeir sem ekki eru á kjör-
skrá hafi samband við okkur sem
allra fyrst, sagði Sævar Geirdal
starfsmaður utankjörstaðaskrif-
stofu Alþýðubandalagsins.
hefur varað á sjúkrahúsum
landsins á þriðju viku.
1. Kjaradeilan hefur nú dregist
mjög á langinn og hefur það haft
mikil áhrif. Við bendum á að eng-
ar stærri aðgerðir þ.m.t. hjarta-
aðgerðir hafa verið framkvæmd-
Sævar er með aðsetur í kosn-
ingamiðstöðinni Hverfisgötu 105
á fjórðu hæð, s: 22335.
Útankjörstaðaatkvæðagreiðsl-
an í Reykjavík hefur nú verið
flutt í Ármúlaskóla og er þar hægt
að kjósa alla virka daga og helgar
frá kl. 10 -12, 14-18 og á kvöldin
frá 20 - 22.
-Jg-
ar á Landsspítala síðan 19. mars.
Nú standa u.þ.b. 90 sjúkrarúm
ónotuð en þeim fjölgar sem bíða
eftir sjúkrahúsdvöl. Landsspíta-
linn er háskólasjúkrahús með
kennsluskyldur og hefur hin
skerta starfsemi þar raskað verk-
námi margra háskólanema.
2. Kjaradeilan hefur einnig
haft áhrif á heilsugæslu þar sem
hj úkrunarfræðingar á fjórum
stórum heilsugæslustöðvum eru
nú í verkfalli. í nýlegu nefndar-
áliti heilbrigðismálaráðuneytis-
ins um „heilbrigði allra árið
2000“ er mikil áhersla lögð á
forvarnarstarf, heilsugæslu og
aukna þjónustu utan stofnana.
Hjúkrunarfræðingar gegna þar
lykilhlutverki að mati Alþjóða
heilbrigðismálastofnunarinnar. í
háskólanámi hjúkrunarfræðinga
er rík áhersla lögð á þessa þætti.
3. Ef ekki nást viðunandi kjara-
samningar nú, óttumst við
minnkandi aðsókn í hjúkrunar-
nám og flótta hjúkrunarfræðinga
úr starfi. Augljóst er að slíkt
hefði alvarleg áhrif á heilbrigðis-
þjónustu landsmanna.
Við skorum á fjármálaráð-
herra að ganga strax til samninga
við félaga okkar sem starfa hjá
ríkinu.
Reykjavík, 6. apríl 1987.
Virðingarfyllst,
f.h. félagsmanna í Fhh sem
starfa hjá Fteykjavíkurborg
og á Landakotsspítala,
Dýrleif Kristjánsdóttir,
Hrafn Óli Sigurðsson,
Ingibjörg Hjaltadóttir,
Theodóra Reynisdóttir.
Prentarar
Þóra
ekki Þorunn
■ Rangt var farið með nafn eins
þeirra prentara í blaðinu í gær,
sem tók þátt í upplestri á hátíðar-
samkomu Félags bókagerðar-
manna um sl. helgi.
Það var Þóra Elfa Björnsson
prentari sem las upp með fé-
lögum sínum. Þjóðviljinn biðst
velvirðingar á þessum mistökum.
Kosningar
Hægt að stefna
inn á kjörskiár
Síðustu dagar til aðfá breytingar á kjörskrám
2 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Miðvikudagur 8. apríl 1987