Þjóðviljinn - 08.04.1987, Blaðsíða 5

Þjóðviljinn - 08.04.1987, Blaðsíða 5
Umsjón: Olafur Gíslason Ástin sigrar Hugleikur sýnir Ó, ÞÚ.... eftir Ingibjörgu Hjartardóttur, Sig- rúnu Óskarsdóttur og Unni Gutt- ormsdóttur Leikstjórn: Sigrún Vilbergsdóttur Enn hafa þær stöllur í Hugleik gert nýja aðför að íslenskum bók- menntum. Eftir að hafa gert sér mat úr Skugga-Sveini og Gullna hliðinu hafa þær nú tekið Pilt og stúlku til sinnar sérkennilegu meðferðar, reyndar með ívafi úr Skugga-Sveini og líklega Ingi- björgu Sigurðardóttur að því er fróðir menn tjá mér. Þetta er sag- an af hinni hreinu, tæru ást sem allt stendur af sér, hvort sem það er rógur og illmælgi vondra manna, tálsnörur heimskvenna, spilling borgarlífsins eða ólmar öldur hafsins. Þessi texti er vissulega oft bráðfyndinn býsna misjafn eins og gengur en það er skemmtilegt hvemig höfundar láta vaða á súð- um og hafa að engu viðteknar venjur í leikritasmíð. Það er raunar aðalsmerki Hugleiks að fara lítt troðnar slóðir og er það vissulega góð og rétt stefna fyrir félag áhugaleikara í Reykjavík að vera ekki að reyna að gera það sama eða svipað og atvinnumenn geta gert miklu betur. í Hugleik er fólk að leika sér bæði sér og öðrum til skemmtunar og býr um leið til sýningar sem eru skemmti- lega öðruvísi, einmitt vegna þess að hópurinn tekur sig ekki of al- varlega. Söguþráður verksins er flókinn og persónur mýmargar og verður hvorugt rakið hér til nokkurrar hlítar. Rauði þráðurinn í verkinu eru átökin milli hins heilbrigða sveitalífs og spillingar borgarlífs- ins, sem raunar er sígilt þema í íslenskum bókmenntum allt frá dögum Jóns Thoroddsens. Ind- riði og Sigríður fella hugi saman f Ástvaldur (Eggert Guðmundsson) segir Gróu á Leiti (Vilborg Valgarðsdóttir) að nú só hann búinn að stofna stjórnmála- flokk, og vanti bara konu til þess að reka kosningabaráttuna. sveitasælunni, síðan skilja leiðir og þau lenda hvort um sig í hremmingum margvíslegum í borgarsollinum en að lokum ná þau saman að nýju með undur- samlegum hætti. Öllum þessum flóknu atburðum kemur Sigrún Valbergsdóttir til skila á skýran og skilmerkilegan hátt og ber leikstjórn hennar vott um vand- virkni, útsjónarsemi og hug- kvæmni í smáatriðum. Hópurinn er stór en allir leika af lífi og sál og eru fjölmargar skemmtilegar per- sónur skapaðar á sviðinu sem of langt yrði upp að telja. En mest skemmtun var að Indriða og Sig- ríði í túlkun þeirra Gísla Sigurðs- sonar og Guðrúnar Hólmgeirs- dóttur. Þau voru bæði tvö sak- leysið uppmálað og léku af þeim tærleik og einfeldningshætti að unun var að horfa. Þarna var fet- að mjög þröngt einstigi milli ein- lægni og skopstælingar en þeim tókst frábærlega vel að hitta á nákvæmlega réttan tón og halda honum út í gegn. Hugleikur hefur skapað sér nokkra sérstöðu í leikhúslífi borgarinnar. Hópurinn hefur haft kjark og dug til að finna sér sjálfstæða stefnu og fylgja henni ótrauður. Þetta er af hinu góða og er óskandi að hópurinn haldi áfram á svipaðri braut og borgar- búar megi eiga von á framhaldi af þessari ágætu dægradvöl. Sverrir Hólmarsson Eigra vitstola um Einar Guðmundsson. M. Ljóð. Svart á hvítu. 1986. Einar Guðmundsson er enginn hvunndagsmaður og það væri mikil synd að segja þetta væri venjuleg bók. Það er náttúrlega ekki al- gengur siður að skrifa eins og hann gerir ljóð upp á svosem níu blaðsíður sem byggir á fáeinum algengum sögnum: lifa, fara, lesa, skrifa, borða, sofa, ríða osfrv., sem streyma að lesandan- um, fyrst tvær eða þrjár saman, en flæða síðan yfir hann í ítrekun- arbylgjum, fjölga sér, fækka sér, deyja út, verða aftur að óskrifuð- um blöðum. Manni verður fyrst fyrir að kalla þetta særingar og kannski kallar slíkur texti á flutning við sérstæðar aðstæður og umgjörð og hlustun frekar en lestur. Ekki síst næsta kvæðið sem byggir á hljómum og endingum orða og afleiðslumöguleikum róta: KRAGI KRAM KRAUMI KRAUM KRAUMI KREM KREMA KRÖM... Einhverntí- mann áður heyrðum við eitthvað áður, en því eru margir búnir að gleyma vafalaust og það er sjald- gæft og það sakar ekki að reyna, af þessum smíðum má skemmtun hafa eins þótt við höfnum í blind- Einar Guðmundsson. götu. Fjölbreytnin er lífsins krydd, eins sú sem byggist á tak- mörkun, einstefnu. Þriðji hluti kversins er fróðleg- astur. Einar er þar að leika sér sem fyrr, setur upp orð og gefur þeim hverju fyrir sig línu: Kör er mörgum búin Lög brotna saman Elur fólk börn Mörg fjúka tœkifœri En sem hann er að þessu eru allt í einu komnir frægir október- dagar, Reagan og Gorbatsjov eru komnir í heimsókn og váin sem fylgir þeim, en einnig vonir og vonbrigði. Tveim heimum lýstur saman: sovéska svartbílalestin brunar framhjá tilurð þessarar bókar atburðir líðandi stundar þjarma að skáldskapnum eitt og eitt andartak er eins og heimskan sé ekki lengur í algleymingi. Dagarnir breytast í bœkur. Bœkurnar breytast í daga... Sérkennileg áhrif stafa af þessu nábýli tveggja heima sem skipa sér á efri og neðri hluta hverrar síðu. Eiturskýið lak út fyrir ofan hagsmunaskynið og græðgina sem neitar að stöðva vígbúnað- arkapphlaupið. Eigra vitstol um fyrir ofan þessi ljóð sem eru eins og þrír drangar í hafi óskrifaðra blaðsíðna sem er reyndar furðubjartsýn at- hugasemd um skáldskap á vorum tímum, þegar allar blaðsíður sýn- ast löngu útbíaðar af ljóðum um allt og ekkert. áb. Miðvikudagur 8. apríl 1987 ÞJÓÐVILJiNN - SÍÐA 5 Tónlistinni úthýst úr Austurbæjarbíói. Schubert verður úti Tónlistarfélagið hefur haidið tónleika sína í Austurbæjarbíói í uþb. 40 ár. Þetta glæsilega tíma- bil hófst með Beethoven - Bucsh hátíðinni miklu, þegar allir kvartettar Beethovens voru flutt- ir hér í fyrsta sinn. Og því lauk með Schuberttónleikum William Parker og Dalton Baldwins s.l. laugardag. Það voru vissulega áhrifamiklir tónleikar, afbragðs ljóðasöngvari og einn besti ef ekki besti undir- leikari heims, flutti Malarastúlk- una og nokkur lög til viðbótar, þannig að um stund mátti gleyma áhyggjum dagsins. En aðeins stutta stund, og að tónleikunum loknum rankaði maður við sér í tómarúmi óvissunnar. Hvert á músíkin að flytja nú? Þama í fymdinni, þegar hún flutti úr bragganum (Tripoli) vestur á Melum, í nýbyggt Austurbæjar- bíó, ríkti mikil bjartsýni í þjóðfé- laginu. Þó Austurbæjarbíó væri „sérstaklega byggt með músíkina í huga,“ var þetta auðvitað bara áningarstaður, menn sáu hilla undir tónlistarhöll. En höllin sú er enn í draumalandinu, og það er löngu búið að rífa braggann. Nú spyr sá sem ekki veit: Hvað hefur einkaframtakið oft nælt sér í bíóleyfi út á músíkkina? í dag er víst búið að gera bíórekstur „frjálsan," svo það er engin þörf fyrir menningarlegan dulbúning í þeim herbúðum. Hvaða smá- krimmi sem er, virðist geta orðið stór í þeim bransa, þeas. ef hann lætur ekki list og mannúðarstefnu villa sér sýn. Það ber frjálshyggj- unni sannarlega fagurt vitni. Hinsvegar verður músíkin enn að álpast um í reiðuleysi einsog betlikerling í gömlu kvæði. Og það er sama hverjum vel er kveð- ið, hún verður úti. Hún verður úti. LÞ

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.