Þjóðviljinn - 08.04.1987, Page 7

Þjóðviljinn - 08.04.1987, Page 7
Lengingfœðingarorlofs úr 3 mánuðum Í6tekur3 ár. Heimavinnandi konum enn mismunað. Greiðslan hækkar aðeins um 1000 krónur. Frumvarpið keyrt í gegnum þingið án nœgilegrar umfjöllunar Lög um fœðingarorlof A margan hátt ófullnægjandi Guðrún Helgadóttir: Fæðingarorlof Sigríður Dúna Kristmundsdóttir: verði lengt í 12 mánuði og við vildum Finnst með orðinu fæðingarstyrkur fá lenginguna í 6 mánuði strax. að verið só að líta niður til kvenna. í mars síðastliðnum samþykkti Alþingi ný lög um fæðingarorlof. Þau fela í sér þá meginbreytingu að fæðingarorlof mun lengjast úr 3 mánuðum í fjóra um næstu ára- mót, í 5 mánuði 1989 og 6 mánuði 1990. Auk þess er hagur heima- vinnandi húsmæðra bættur lítil- lega, þar sem þær hafa áður átt rétt á 1/3 af fullri greiðslu, eða tæpum 11.000 krónum á mánuði, en eiga samkvæmt nýju lögunum rétt á 15.000 króna fæðingar- styrk. Enda þótt flestir sem til máls hafa tekið um þessi lög hafi fagn- að þeim breytingum sem þau fela í sér, þá hafa margir gagnrýnt hve skammt þau ná og að réttur heimavinnandi foreldra skuli ekki vera jafnmikill og þeirra sem útivinnandi eru. í nýju lögunum er sem sagt gerður skýrari greinarmunur á greiðslum til útivinnandi og heimavinnandi foreldra, þannig að þeir heimavinnandi fá fæðing- arstyrk, en þeir útivinnandi fá auk styrksins fæðingardagpen- inga eftir vinnuframlagi. Fulla fæðingardagpeninga fá þeir einstaklingar sem hafa unnið 1032 -2064 dagvinnustundir á síð- ustu 12 mánuðum fyrir töku fæð- ingarorlofs eða 18.874 krónur. Hálfa dagpeninga fá þeir sem hafa unnið 516-1031 dagvinnu- stund síðustu 12 mánuði fyrir töku fæðingarorlofs, eða 9.437 krónur. 1000 króna hækkun Viðmiðunartímabilið og upp- hæð greiðslu miðast við sama vinnustundafjölda og áður. Sam- kvæmt núgildandi lögum er or- lofið ein heild og skerðist um 1/3 hluta sé vinnustundafjöldinn undir 1031 stund, og 2/3 sé hann minni en 515 stundir. Ákvæðin um fæðingarstyrk taka ekki til félagsmanna í sam- tökum opinberra starfsmanna, bankamanna eða annarra stétt- arfélaga sem njóta óskertra launa í fæðingarorlofi samkvæmt kjara- samningum þann tíma sem óskert laun eru greidd. Að sögn Birnu Björnsdóttur lögfræðings Tryggingastofnunn- ar verður staða kvenna í þessum félögum því þannig að þær eiga rétt á fullum launum í 3 mánuði samkvæmt kjarasamningum og þegar orlofið lengist njóta þær sömu réttinda hjá Trygginga- stofnun og aðrar starfstéttir. Fullt fæðingarorlof er í dag 32.959 krónur á mánuði en verð- ur samkvæmt nýju lögunum 33.874 krónur. Hækkunin er því aðeins 915 krónur. Víxill á næstu stjórn Sem fyrr segir hafa fjölmargir gagnrýnt lögin og hafa þingmenn Alþýðubandalagsins og Kvenna- listans sérstaklega bent á ann- marka þeirra. Öánægjuradd- ir hafa einnig heyrst frá sumum fulltrúum Alþýðuflokksins. Athygli vekur að Framsóknar- menn hafa að mestu þagað, enda þótt það sé á stefnuskrá flokksins að heimavinnandi konur sitji við sama borð og aðrar konur hvað varðar fæðingargreiðslur. „Stefna Alþýðubandalagsins er sú að fæðingarorlof verði lengt í 12 mánuði í áföngum, og við hefðum viljað sjá lengingu í 6 mánuði strax“ sagði Guðrún Helgadóttir þingmaður Alþýðu- bandalagsins í samtali við Þjóð- viljann. „Hins vegar á frumvarpið ekki að taka gildi fyrr en um næstu áramót og er því í raun 9 mánaða víxill á næstu ríkisstjórn. Við vildum þó alls ekki greiða at- kvæði gegn frumvarpinu því þetta er þó lenging umfram það sem nú er“ sagði Guðrún. „Við teljum að frumvarpið gangi alltof skammt og að sjálf- sögðu ættu heimavinnandi konur að sitja við sama borð og þær sem vinna úti. Það er alveg sami kostnaðurinn við fæðingu barns hvort sem konan er úti-eða heimavinnandi. Og við skulum ekki gleyma því að heimavinnandi kona leggur fram sína vinnu á heimilinu sem minnkar að einhverju leyti þegar nýr einstaklingur bætist við og krefst mikillar umönnunar. Það er ákaflega er/itt að gera það upp í peningum hvað það er mikið tekjutap sem heimavinnandi kona verður fyrir. Sex mánuði strax Ég á einnig erfitt með að sjá ástæðuna fyrir því að breyta greiðslunum einsog gert er í þessu nýja frumvarpi, það er að skipta orlofinu í fæðingarstyrk og fæðingardagpeninga. Þetta frumvarp kom mjög seint fram og það fór mjög lítil umfjöll- un fram um það. Neðri deild fékk nær engan tíma til að fjalla um málið því það kom ekki inn fyrr en tveimur dögum fyrir þingslit. Þetta var afskaplega sérkennileg afgreiðsla, málið fór ekki í um- sagnir og annað slíkt einsog öll venjuleg þingmál þannig að það var mjög lítið hægt að ráðfæra sig við aðila einsog Tryggingastofn- un“ sagði Guðrún Helgadóttir. „Við höfum lagt fram frum- varp síðastliðin þrjú þing um lengingu fæðingarorlofs úr þrem- ur mánuðum í sex mánuði í einu stökki“ sagði Sigríður Dúna Kristmundsdóttir þingkona Kvennalistans í samtali við Þjóð- viljann. „Það fól í sér að konur nytu fullra launa í fæðingarorlofi. Við vildum setja þak á greiðslurnar þannig að þær færu aldrei upp fyrir ákveðið hámark. Þetta gagnrýndi Alþýðubandalagið og vildi að allar konur fengju sömu upphæð. Ef ég man rétt vildi Al- þýðubandalagið á sínum tíma ekki heldur að heimavinnandi konur fengju fullar viðmiðunar- greiðslur en hefur greinilega breytt þeirri stefnu sinni. Meingölluð lög Sigríður Dúna sagði gagnrýni Guðrúnar Helgadóttur að mestu samhljóða þeirri gagnrýni sem hún hefði sett fram í fyrstu um- ræðu um frumvarpið í efri deild. Hún sagði það óþarfa að flækja lögin með því að skipta fæðingar- orlofsgreiðslum í tvennt, styrk annars vegar og dagpeninga hins vegar. „Þar að auki finnst mér að með orðinu fæðingarstyrkur sé verið að tala niður til kvenna og hefði frekar viljað sjá orð einsog fæð- ingarorlofsgreiðslur" sagði Sig- ríður Dúna. Jafnframt benti hún á að þessu frumvarpi fylgdi ekkert tekju- öflunarfrumvarp en Kvennalist- inn hefur lagt fram slíkt frumvarp síðastliðin þrjú þing. Það fól í sér að lífeyristryggingagjald atvinnu- rekenda yrði hækkað úr 2% í 3% til þess að hægt yrði að standa straum af kostnaði við lengingu fæðingarorlofs úr 3 mánuðum í 6 í einu stökki. Kvennalistakonur greiddu frumvarpinu um fæðingarorlof atkvæði sitt en sátu hjá við af- greiðslu greiðslufrumvarpsins. „Við gátum ekki með nokkru móti samþykkt það frumvarp, þar sem að það mismunar konum stórlega í greiðslum" sagði Sig- ríður Dúna. „Það skýtur skökku við að okkar frumvarp var mánuðum saman í nefndum og fékkst aldrei afgreitt en það frumvarp sem nú er orðið að lögum var harkað í gegnum þingið á nokkrum dögum án fullnægjandi umfjöll- unar. Þetta eru vinnubrögð sem ná ekki nokkurri átt og svo sann- arlega ekki lýðræðisleg. Niður- staðan er lög um fæðingarorlof sem eru meingölluð.“ Að lokum er rétt að bæta því við að í samtali við Þjóðviljann sagði Birna Björnsdóttir, lög- fræðingur Tryggingastofnunnar, að um það bil 75% kvenna sem sóttu um fæðingarorlof á síðasta ári áttu rétt á fullum fæðingaror- lofsgreiðslum. „Því myndi kostnaður við að greiða öllum konum jafnhátt fæðingarorlof ekki verða umtals- verður“ sagði Birna. -vd. Miðvlkudagur 8. apríl 1987 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 7

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.