Þjóðviljinn - 08.04.1987, Side 12
HKMURINN
Persaflóastríðið
Iranir sækja,
írakar sigra
í gær kváöust íranir hafa sótt
hart að fjendum sínum írökum
í námunda við borgina Basra í
suðurhluta írak. Einsog vænta
mátti úr þeirri áttinni var talað
digurbarkalega um ávinninga
og yfirburði. Til dæmis stærðu
þeir sig af því að hafa vegið
tvöþúsund og sexhundruð
andstæðinga sinna og gert
annað eins lið óvígt af sárum.
alla staði unnið sætan sigur.
Óvinurinn hefði að auki misst
þúsundir dáta í þessu tilgangs-
lausa áhlaupi sínu.
Einsog fyrri daginn er ekki
hægt að henda reiður á því hvað
sé hvað né hverjir hafi sigrað
hverja og því er sem ekkert hafi
gerst í þessu endalausa stríði
tveggja áróðursmálaráðuneyta.
Stríði sem Rafsanjani, leiðtogi ír-
Rafsanjani: Stríðinu lýkurfyrirtuttugasta mars. Einhverntíma.
anska þingsins, segir að lokið ugasta mars á næsta ári. Því ekki hann hafði lofað, fyrir tuttugasta
verði fyrir nýársdag Persa, tutt- hafi tekist að ljúka því, einsog mars á þessu ári. -ks.
Vitaskuld svöruðu írakar í
sömu mynt. Þeir hefðu hrundið
árásinni, rekið Persaflóttann og í
Vestur-Beirút
Madagaskar
Skrítinn siður
Það hefur löngum vakið
furðu ferðamanna sem leið
eiga um þorpið Mahrabe á há-
sléttu Madagaskar hve vel
þorpsbúar láta að gestum og
gangandi.
Skýringin er sú að innbyggj-
arnir hafa þá trú að einn góðan
veðurdag beri guðinn Talp að
garði í líki fátæks förumanns og
þá renni upp sú stóra stund að
forfeðurnir gangi aftur. Viðmót
þeirra við afkomendurna sé svo í
samræmi við gestrisni þeirra við
guðinn.
-ks.
Særðir bíða brottflutnings
Hjálparsveitir bjuggu sig í
gær undir að flytja á brott slas-
aða íbúa flóttamannabúðanna
Bourj Al-Baranjeh og Shatila
en um helgina náðist, sem
kunnugt er, vopnahlé miili
stríðandi fylkinga Palestínu-
manna og Amalsíta að frum-
kvæði Sýrlendinga.
1 fyrrinótt og í gærmorgun var
allt með kyrrum kjörum í búðun-
um og jók það vonir manna um
að þetta bardagahlé myndi
endast Iengur en önnur sem sam-
ið hefði verið um en entust
skamma hríð.
Þó hermdu heimildir úr bæki-
stöðvum síta að konum, börnum
og slösuðu fólki yrði ekki hleypt
út úr búðunum nema palestínskir
skæruliðar yfirgæfu þorp sem
þeir hefðu náð á sitt vald í
átökum við Amalliða austan
borgarinnar Sídon.
En sá er hængur á þessu þrí-
hliða vopnahléssamkomulagi
Amalsíta, Palestínumanna og
Sýrlendinga að Al-Fatah, sveitir
Jassírs Arafats og öflugustu
skæruliðasamtök Palestínu-
manna, voru fjarri góðu gamni.
Þeirra í stað var það hópur and-
stæðinga Arafats og vina Sýrl-
endinga, Þjóðleg frelsisfylking
Palestínu, sem féllst á vopnahléð.
Það eru AI-Fatah samtökin sem
hafa þorpin í nágrenni Sídon á
valdi sínu.
Það er því máski ekki enn séð estínsku flóttamannanna í
fyrir endan á hremmingum pal- Vestur-Beirút. -ks.
BORGARA
FLOKKURINN
-ÍIokkuT með framtíð i
Stórbingó
Borgaraflokksins
Borgaraflokkurinn heldur stórbingó í Súlnasal Hótels Sögu
fimmtudaginn 9. apríl n.k. klukkan 20.30.
Ávarp flytur Albert Guðmundsson alþingismaður,
1. maður á lista Borgaraflokskins í Reykjavík.
Spilaðar verða nokkrar umferðir,
heildarverðmæti vinninga er 400.000.-
Stórgóð skemmtiatriði verða á hátíðinni og einnig dansleikur.
Með kærri kveðju
BORGA RA FL OKKURINN
x-s
Danmörk
Kaupferðum lýkur
Danska stjórnin hyggst
stemma stigu við skottúrum
þegna sinna til nágrannaland-
anna í því augnamiði að festa
kaup á ýmissi neysluvöru sem
fæst þar við lægra gjaldi.
Til að ná fram þeim markmið-
um sínum ætla stjórnvöld að fella
niður söluskatt af allskyns heimil-
istækjum svo sem útvarpstækj-
um, grammófónum, myndbands-
tækjum og ryksugum.
Söluskattur af þessum gripum
hefur verið á bilinu frá tíu til tut-
tugu prósent og næmi því tekju-
tap ríkissjóðs um tvöhundruð
sjötíu og fimm miljónum danskra
króna ef ekki kæmu bætur fyrir.
Þær hyggst stjórnin fá með því að
hækka tolla af smærri ökutækj-
um.
-ks.
Félag síldarsaltenda á Suður- og Vesturlandi og
Félag síldarsaltenda á Norður og Austurlandi
kynna:
FRUMSÝNING I REYKJAVÍK
Ný heimildarkvikmynd um saltsíldar-
iðnað íslendinga verður sýnd í Stjörnu-
bíói í dag, miðvikudaginn 8. apríl kl. 17.30
og 19.00.
Áðgangur ókeypis
BLAÐAUMMÆLI:
Silfur hafsins er einmitt ánægjulegt dæmi um, hvernig
hægt er að gera fróðlegt efni forvitnilegt, aðgengilegt
og skemmtilegt. Al/Mbl. 24.2.
í Silfrinu er öllum efniviðnum þjappað á tæpa klukku-
stund, sem verður til þess, að saga, hlutverk og ferli
saltsíldarinnar skilar sér án allra vífilengja til áhorfand-
ans. Aldrei er tóm til að láta sér leiðast. Sáf/Þjv. 21.2.