Þjóðviljinn - 08.04.1987, Side 13
HEIMURINN
Egyptaland
Mubarak sigurvegari
þingkosninganna
Talið er að Þjóðlegi lýðrœðisflokkurinn, flokkur Mubaraks forseta, fái tvo þriðju
hluta sœta á þinginu. Stjórnarandstaðan sakar valdaflokkinn um kosningasvik
í fyrradag fór fram þingkjör í
Egyptalandi og þegar fyrstu
atkvæðatölur voru birtar í gær
virtist allt stefna í yfirburða-
sigur Þjóðtega lýðræðis-
flokksins sem lýtur forystu
Hosni Mubaraks forseta en
lokaniðurstöður verða ekki
kunnar fyrr en á morgun.
Leiðtogar stjórnarandstöð-
unnar létu þau orð falla þegar
þeim var kunngerð staða mála að
þetta færi að vonum því
stjórnvöld hefðu haft svik og
pretti í frammi. Haft hefði verið í
hótunum við kjósendur, fram-
bjóðendur stjórnarandstöðunnar
hefðu sætt ofsóknum og þar fram
eftir götunum. Þessu hafa
stjórnvöld vísað á bug.
Það var í febrúar síðastliðnum
að Mubarak ákvað að rjúfa þing
og efna til kosninga. Ástæðan var
dómsúrskurður í þá veru að kosn-
ingalög landsins brytu í bága við
stjórnarskrána.
Á egypska þinginu sitja fjögur-
hundruð fjörutíu og átta þjóð-
kjörnir fulltrúar og tíu tilnefndir
af forseta. Sú breyting var gerð á
kosningalögunum fyrir þetta kjör
að fjörutíu og átta fulltrúar voru
kosnir persónubundið utan fram-
boðslista stjórnmálaflokka. Þetta
var nokkur búbót stjórnarand-
stæðingum frá því sem fyrrum
tíðkaðist en þá leyfðist einvörð-
ungu flokkum að bjóða fram og
fengu því aðeins þingsæti að þeir
hrepptu átta af hundraði heildar-
atkvæða.
Það velktust engir í vafa um
það að flokkur forsetans ynni
yfirburðasigur í kosningunum en
spurningin var sú hve mikill yrði
meirihlutinn og hver af flokkum
andsnúnum Mubarak fengju
flesta menn kjörna á þingið.
í gær var ekki útlit fyrir að
nema tveir af stjórnarandstöðu-
flokkunum hlytu þingsæti, Nýja
WAFD, hægri flokkur sem lék
aðalhlutverk í egypskum
stjórnmálum fyrir byltingu Nagu-
ibs og Nassers árið 1952, og sam-
fylking Sósíalíska Verkamanna-
flokksins, Frjálslynda flokksins
og Bræðralags múhameðstrúar-
manna.
Þingið í Kairo hefur ekki bein
pólítísk völd heldur sinnir það
fyrst og fremst löggjöf. Það hefur
til að mynda enga hlutdeild í
myndun ríkisstjórnar. Þó á svo að
heita að það tilnefni þann eina
fulltrúa sem í kjöri er hverju sinni
til embættis forseta. Nú stendur
slík tilnefning fyrir dyrum því í
október lýkur sex ára kjörtíma-
bili Mubaraks forseta og hann
þarf að fá nýtt umboð.
-ks.
Hosni Mubarak. öruggur i sessi.
borgaraS
FLOKKVRINN
-ílokkur með íramtið
SKEIFUNNI 7
SÍMAR:
Kosningastjórn
68 98 35
Happdrætti
68 98 28
Skrifstofustjórn -
Gjaldkeri
68 98 29
Skráning
sjálfboðaliða
68 98 34
Utankjörstaðakosning -
Þjóðskrá
68 98 22
68 99 81
Upplýsingar
68 98 32
68 98 33
Pósthólf 400, 121 Reykjavík
Símsvari 28060
Borgaraflokkurinn
Júgóslavía
Á barmi gjaldþrots
Afleitt efnahagsástand. Verðbólga um hundrað prósent
Á síðasta ári voru yfir tvö-
þúsund fyrirtæki rekin með
tapi í Júgóslavíu en hjá þeim
starfa yfir sexhundruð þúsund
manns. Af þeim ramba nú tvö-
hundruð á barmi gjaidþrots
vegna þess að þeim hefur ekki
Noregur
Stútur
við stýri
Þótt Norðmenn búi við
ströng viðuriög við ölvunar-
akstri þá færist það í vöxt að
þeir setjist kenndir undir stýri.
Á síðasta ári voru um tíu þús-
und Norðmenn handteknir fyrir
ölvun við akstur sem kvað vera
tíu prósent aukning frá árinu á
undan.
Það er líkt með okkur frændum
íslendingum og Norðmönnum að
hvorir tveggja teljast ölvaðir ef
vínandi í blóðinu mælist meiri en
0,5 prómill. Hinsvegar eru norsk
yfirvöld grimmari en íslensk við
þá stúta sem gómaðir eru undir
stýri. Við fyrsta brot þarf Norsar-
inn að dúsa í tuttugu og einn dag í
steininum og missir ökuleyfið í
tvö ár. Ef hann lætur sér ekki
þetta að kenningu verða þá getur
hann átt á hættu að þurfa gista
grjótið fáein jól. Það er því síst að
furða þó vinsældir drykkju-
aksturs aukist í Noregi. -ks.
tekist að vinna sig uppúr erfið-
leikum sem rekja má allar göt-
ur aftur til ársins 1985.
Fram til þessa hafa fyrirtæki
ekki verið lýst gjaldþrota í Júg-
óslavíu en nú er annar uppi. Ný
lög um rekstur ríkisfyrirtækjanna
taka gildi í júlí og þá verður for-
ráðamönnum fyrirtækja sem
hanga á horriminni gefinn frestur
í hálft ár til að bæta stöðu þeirra
og takist það ekki verða þau látin
fokka. Á því tímabili er þeim til
að mynda harðbannað að greiða
starfsmönnum meira en lág-
markslaun.
Háttsettir embættismenn ríkis-
ins hafa af því þónokkrar áhyggj-
ur að á því skeiði muni að nýju
sjóða upp úr hjá verkamönnum
en það er kunnara en frá þurfi að
segja að í síðasta mánuði logaði
allt í stéttaátökum í landinu
vegna laga um launastöðvun.
Þeirri deilu lauk með því að ráða-
menn brutu odd af oflæti sínu og
komu til móts við kröfur launa-
fólks.
Ástand efnahagsmála er allt
mjög bágborið £ Júgóslavíu um
þessar mundir. Á síðasta ári
neyddust stjórnvöld hvað eftir
annað til að frysta bankainni-
stæður fyrirtækja og lætur nærri
að fjórðungur þeirra hafi sætt
slíkum kárínum.
í dagblaðinu Politika í höfuð-
borginni Belgrað var því haldið
fram í gær að ótrúlegur fjöldi fyr-
irtækja ætti í mestu vandræðum
með að greiða starfsfólki sínu lág-
markslaun og fengi það oft minna
í sinn hlut. Og það sem verra er:
þúsundir verkamanna hefðu ekki
fengið grænan eyri í laun það sem
af er þessu ári.
Ráðamenn viðurkenna að illa
gangi að hemja óðaverðbólguna
sem tröllríður efnahagnum og
segja verð á neysluvörum hækka
um hundrað prósent á ári. Ýmsir
vefengja þessar tölur og segja
verðbólguna vera að minnsta
kosti hundrað og fjörutíu prós-
ent.
Branko Mikulic forsætisráð-
herra fullyrti í byrjun árs að ekk-
ert gæti unnið bug á vanda Júg-
óslava utan aukin framleiðni í
helstu atvinnugreinum og stór-
aukin útflutningur. Árið 1987
skyldi vera árið sem notað yrði til
að leysa efnahagsvanda landsins.
En svo virðist sem ummæli ráð-
herrans hafi verið hrein öfug-
mæli. Frá áramótum hefur út-
flutningur Júgóslava dregist sam-
an um tæp átján prósent og enn
sígur á ógæfuhliðina. Vegna
skorts á gjaldeyri hafa mörg
mikilvæg iðnfyrirtæki þurft að
draga saman seglin því þau hafa
ekki ráð á að kaupa varahluti í
vélar sem bila náttúrulega í Júg-
óslavíu einsog annars staðar!
Ofan á allt þetta bætist svo að
landsmenn eru með þeim
skuldseigari í heiminum, erlendir
lánadrottnar eiga hjá þeim tæpa
tuttugu miljarði bandarískra
dala. Ástandið er því ekki beysið
og nánast vítahringur. Stjórnvöld
hyggjast þó ekki leggja árar í bát
og fullyrða að árið sé enn ungt.
-ks.
Miðvikudagur 8. apríl 1987 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 13
if|l| Borgar- starfsmenn Kynningarfundur Almennur félagsfundur verður haldinn í Glæsi- bæ, fimmtudagin 9. apríl kl. 17.00 Á dagskrá er kynning á nýgerðum kjarasamningi félagsins. Allsherjaratkvæðagreiðsla um samninginn verð- ur á skrifstofu félagsins að Grettisgötu 89 3. hæð, mánudaginn 13. apríl og þriðjudaginn 14. apríl n.k. kl. 10.00-21.00 báða dagana. Utankjörstaðaatkvæðagreiðsla fer fram á sama stað fimmtudaginn 9. apríl og föstudaginn 10. apríl n.k. kl. 13.00 til 17.00 báða dagana. Félagar eru hvattir til að taka þátt í atkvæða- greiðslunni. Stjórn St.Rv.
St. Jósefsspítali Landakoti Starfsmaður í býtibúr Okkur vantar starfsmann í býtibúr, kvöldvaktir. Vinnutími er frá 16.30-21.00. Unnið 7 daga vikunnar, frí 7 daga. Starfið er laust frá 1. júní n.k. Upplýsingar gefur ræstingastjóri daglega kl. 10-12 í síma 19600-259. Reykjavík 6.4. 1987.
Kosningaskrifstofa Alþýðubandalagsins í Kjósarsýslu er í Litlalandi við Brúarland. Síminn er 667512. Opið frá kl. 5-9.