Þjóðviljinn - 26.05.1987, Side 8
Sigurgeir Þorgeirsson búfjárfrœc
Þjóðviljinn heimsœkir tilraunabú Rannsóknastofnunar landbúnaðarins á Hesti í An
fjárhúsum á aldrinum 20-40 ára. Fornaldaraðstaða, en niðurstöður tilrauna eru hagn
neytenda. Sigurgeir Þorgeirsson: Nú átímumframleiðsluskerðingar skiptir meginmáli
Sigurgeir með stoltinu sínu;
forystuánni Hosu og afkvæmum
hennar. íslenskt forystufé er gætt
alveg sérstökum eiginleikum sem
Sigurgeir segir að gangi í erfðir og
hafi verið ræktaðir upp í gegnum
aldirnar. Myndirgg.
Nú á tímum samdráttar og
framleiðsluskerðingar í
sauðfjárrækt hefur það
sjónarmið orðið æ algengara að
rökrétt sé að draga úr tilraunum á
þessu sviði í kjölfar samdráttar í
framleiðslu. Sigurgeir
Þorgeirsson búfjárfræðingurer
alltannarrarskoðunar. Hann
segir að þörfin fyrir öfluga
rannsóknastarfsemi sem leiði til
betri og hagkvæmari framleiðslu
hafi aldrei verið meiri en einmitt
nú. Þar er hann enda á
heimavelli.
Sigurgeir er í raun og veru
doktor í vaxtarlífeðlisfræði og
kjötgæðum frá Edinborgarhá-
skóla, en honum finnst
handhægara að nota orðið
búfjárfræðingur. Hann vinnur að
rannsóknum í sauðfjárrækt á
tilraunabúi Rannsóknastofnunar
landbúnaðarins á Hesti í
Andakflshreppi undir stjórn
Stefáns Scheving Thorsteinsson-
ar.
Blaðamaður Þjóðviljans kom
að Hesti fyrir skömmu.
Sauðburður stóð þá sem hæst og
heimafólkið í miklum önnum, en
Sigurgeir tók blaðamanni vel og
sá síðarnefndi spurði nánar út í
gildi rannsókna á þessum síðustu
og verstu tímum í sauðfjárrækt.
Gœði og aukin
hagkvœmni
„Mér finnst það liggja í augum
uppi að nú þegar menn mega ekki
framleiða nema eitthvert ákveðið
magn, skiptir það höfuðmáli fyrir
viðkomandi bónda að fá sem
mest út úr hverri einingu sem
hann má framleiða. Við þær
aðstæður sem við búum við nú
skipta gæði framleiðslunnar
meira máli en nokkru sinni fyrr.
Ég nefni sem dæmi að missi bóndi
dilk niður í O-flokk vegna of
mikillar fitu, fær hann 12% lægra
verð fyrir hann en ella. Það eru
gæði og aukin hagkvæmni sem
gera útslagið í sauðfjárrækt í
dag.“
Og það er einmitt það sem
Sigurgeir og félagar hans á Hesti
eru að fást við. Tilraunabú var
upphaflega stofnað á Hesti árið
1943, af landbúnaðardeild at-
vinnudeildar Háskóla íslands.
Markmiðið fyrstu árin var að
rækta upp mæðiveikiþolinn
fjárstofn auk þess sem stunda átti
tilraunir sem lúta að ræktun og
8 SÍÐA —